Fréttablaðið - 05.12.2007, Blaðsíða 48
40 5. desember 2007 MIÐVIKUDAGUR
KÖRFUBOLTI Þórsarinn Cedric Isom
og KR-ingurinn Monique Martin
voru þeir leikmenn í Iceland
Express deildum karla og kvenna
sem voru mest hæsta framlagið í
nóvembermánuði en til þess að ná
inn á listann þurfa leikmenn að
lágmarki að hafa tekið þátt í
þremur leikjum. Þau Brenton
Birmingham í Njarðvík, Hlynur
Bæringsson í Snæfelli og Mar-
grét Kara Sturludóttir úr Kefla-
vík voru efst af íslensku leik-
mönnum deildanna.
Cedric Isom var með 30 stig að
meðatali í fjórum leikjum Þórsara
í nóvembermánuði auk þess að
gefa 6,5 stoðsendingar og taka 5,0
fráköst í leik. Isom hitti úr tæp-
lega 59 prósentum skota sinna og
þar af setti hann niður 5 af 10
þriggja stiga skotum sínum. Isom
var aðeins hærri en Darrel Flake
hjá Skallagrími sem var hæstur
leikmanna í október. Flake var
með 21,5 stig og 13,5 fráköst að
meðaltali í nóvember.
Njarðvíkingurinn Brenton
Birmingham og Snæfellingurinn
Hlynur Bæringsson voru hæstir
af íslensku leikmönnum Iceland
Express deildanna en báðir voru
þeir með 20,8 framlagsstig í leikj-
um sinna liða. Brenton var með
19,5 stig, 5,3 fráköst og 4,5 stoð-
sendingar í leik en Hlynur var
með 11,3 stig, 14,4 fráköst og yfir
56 prósenta skotnýtingu. Þeir
tveir eru einu íslensku leikmenn-
irnir meðal tólf efstu á listanum.
KR-ingurinn Monique Martin
hefur verið illviðráðanleg í leikj-
um KR-liðsins í Iceland Express-
deildinni í vetur og hún var með
hæsta framlag allra í deildinni í
nóvember. Martin varð með 36,5
stig og 19,3 fráköst að meðaltali í
leik og hjálpaði KR-liðinu til þess
að vinna þrjá af fjórum leikjum
sínum í mánuðinum. Martin stal
auk þess 3 boltum, gaf 2,5 stoð-
sendingar og varði eitt og hálft
skot í leik.
Næst á eftir var Tiffany Rober-
son hjá Grindavík en þessar tvær
voru í nokkrum sérflokki. Rober-
son var með 24,2 stig, 18 fráköst,
3,4 stoðsendingar og 3 stolna bolta
að meðaltali í leik.
Keflvíkingurinn Margrét Kara
Sturludóttir var efst af íslensku
leikmönnum deildarinnar, aðeins
á undan Valsskonunni Signýju
Hermannsdóttur. Margrét Kara
var með 15,2 stig, 11,6 fráköst, 4
stoðsendingar og 3,2 stolna bolta
að meðaltali í fimm sigurleikjum
Keflavíkur, en Signý var með 11,5
stig, 10 fráköst, 4,6 varin skot og 4
stoðsendingar að meðaltali í 5
leikjum Valsliðsins.
ooj@frettabladid.is
HÆSTA FRAMLAG LEIK-
MANNA Í NÓVEMBER:
Iceland Express-deild karla
1. Cedric Isom, Þór Ak. 30,8
2. Darrell Flake, Skallagrími 29,0
3. George Byrd, Hamar 25,25
4. Donald Brown, Tindastól 25,2
5. Joshua Helm, KR 25,0
6. Justin Shouse, Snæfell 24,0
7. Bobby Walker, Keflavík 23,6
8. Maurice Ingram, Stjörnunni 22,0
9. Brenton Birmingham, Njarðv. 20,8
9. Hlynur Bæringsson , Snæfelli 20,8
11. Allan Fall, Skallagrími 20,5
12. Samir Shaptahovic , Tindast. 20,2
Iceland Express-deild kvenna:
1. Monique Martin, KR 34,8
2. Tiffany Roberson , Grindavík 32,2
3. LaKiste Barkus, Hamar 23,5
4. Margrét Kara Sturlud., Keflavík 21,0
5. Signý Hermannsdóttir , Val 20,6
6. Slavica Dimovska, Fjölni 18,8
7. Gréta María Grétarsd., Fjölni 18,75
8. Kiera Hardy, Haukum 18,6
9. Sigrún Ámundadóttir, KR 16,2
10. Unnur Tara Jónsd., Haukum 16,0
10. Joanna Skiba, Grindavík 16,0
10. Ólöf Helga Pálsd., Grindavík 16,0
Leikmenn þurfa að hafa spilað 3 leiki
Isom og Martin dýrmætust
Cedric Isom hjá Þór Akureyri og Monique Martin hjá KR voru með hæsta fram-
lagið í nóvembermánuði í Iceland Express-deild karla og kvenna.
VIÐ 40 STIG OG 20 FRÁKÖST Monique
Martin hefur spilað frábærlega með KR-
liðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
YFIR 30 STIG Í LEIK Cedric Isom skoraði
yfir 30 stig að meðaltali með Þór í nóv-
ember. Hér sést hann í sigurleik gegn
Fjölni um síðustu helgi.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
KÖRFUBOLTI Dwight Howard hefur
slegið í gegn vestra í vetur og
framganga hans á mikinn þátt í
því að Orlando Magic er búið að
vinna 16 af fyrstu 20 leikjum
sínum í vetur.
Howard er efstur í deildinni í
fráköstum með 15,1 í leik, hann er
í 2. sæti í skotnýtingu (61 prósent),
þriðji í vörðum skotum (3,0) og er
jafnframt tíundi stigahæsti leik-
maður deildarinnar með 23,2 stig
að meðaltali í leik.
Það er hins vegar einn tölfræði-
listi þar sem þessi 22 ára og 211
cm miðherji er með algjöra yfir-
burði, jú, hann treður boltanum
langoftast í körfuna af leikmönn-
um NBA-deildarinnar.
Troðslur eru ávallt mikið augna-
yndi og Howard gleður stuðnings-
menn Orlando Magic reglulega
með því að hamra boltanum í
körfuna.
Reyndar eru tilþrifin slík að
sjónvarpsmenn í Bandaríkjunum
eru farnir að rifja upp troðslur
sínar í herbergiskörfuna í gamla
daga því þeir finna engan annan
samanburð til að lýsa því hversu
auðvelt það er fyrir þennan 120
kílóa mann að troða boltanum í
körfuna.
Howard var búinn að troða bolt-
anum 84 sinnum í körfuna fyrir
sigurleik Orlando Magic gegn
Golden State á mánudagskvöldið
en það var 47 sinnum oftar en
Andrew Bynum hjá Los Angeles
Lakers sem er næsti maður á list-
anum. Þá er ekki öll sagan sögð
því aðeins tvö lið í deildinni, Den-
ver (100) og Los Angeles Lakers
(96), hafa troðið boltanum oftar í
körfuna en Howard.
Það er mögnuð staðreynd sem
sýnir jafnframt þá gífurlegu yfir-
burði sem framtíðarstórstjarna
NBA-deildarinnar hefur haft inni í
teig þennan fyrsta fjórðung NBA-
tímabilsins.
NBA-spekingarnir hafa verið
duglegir að skrifa um afrek How-
ards og hann var á dögunum val-
inn besti leikmaður nóvember-
mánaðar í Austurdeildinni og
hafði þá betur en LeBron James
hjá Cleveland og Kevin Garnett
hjá Boston sem báðir hafa leikið
frábærlega. Howard náði fimmtán
tvennum í fyrsta mánuði tímabils-
ins og skoraði meira en 30 stig í
sex leikjanna. - óój
FLESTAR TROÐSLUR Í NBA:
(Til og með 3. desember)
Dwight Howard, Orlando Magic 84
Andrew Bynum, L.A Lakers 37
Chris Wilcox, Seattle 34
Shawn Marion, Phoenix 30
Shaquille O’Neal, Miami 29
Dwight Howard hjá Orlando Magic er enginn smákarl undir körfunni:
Búinn að troða boltanum oft-
ar en 27 af 29 liðum í NBA
EIN AF 84 Dwight Howard hefur troðið
tæplega fimm sinnum að meðaltali í
leik í vetur. NORDICPHOTO/GETTY
FÓTBOLTI Fiorentina frá Flórens
tapaði 0-2 gegn Ítalíumeisturum
Inter frá Mílano í Serie A
deildinni á síðastliðinn sunnudag,
sem er ef til vill ekki í frásögur
færandi þremur dögum seinna
nema hvað að í leikslok átti sér
stað athyglisverð uppákoma.
Leikmenn Fiorentina stilltu sér
upp í skipulagða röð fyrir utan
leikmannagöngin sem liggja að
búningsherbergjunum og tóku í
hendur á leikmönnum Inter og
þökkuðu fyrir leikinn.
Uppákoman mun hafa verið
fyrir tilstilli Cesare Prandelli,
stjóra Fiorentina, en eiginkona
hans lést nýverið af völdum
krabbameins og því var einnig
einnar mínútu þögn fyrir leikinn.
Knattspyrnusamband Ítalíu tók
þessari uppákomu fagnandi og
strax á mánudag staðfesti forseti
þess, Antonio Matarrese, í
yfirlýsingu að á næstkomandi
fundi sambandsins sem fram fer
13. desember myndi uppákoma
sem þessi að öllum líkindum vera
færð í reglur strax í janúar í
Serie A og Serie B. - óþ
Leikmenn í ítalska boltanum:
Gert skylt að
heilsast
BRÓÐERNI Leikmenn Fiorentina röðuðu
sér upp og tóku í spaðann á leikmönn-
um Inter eftir 0-2 sigur Mílanóliðsins
síðastliðinn sunnudag. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Joan Laporta, forseti FC
Barcelona, er ekki sáttur við að
Brasilíumaðurinn Ronaldinho
hafi verið á bekknum í síðustu
tveimur leikjum.
„Það er ekki hægt að nota
Ronaldinho sem varamann því
hann er einn að lykilmönnum í
okkar liði. Hann hefur glímt við
meiðsli og þurft að ferðast langt
með landsliðinu en hann er
enginn varamaður þótt hann hafi
ekki náð sér á strik. Það veit
Frank Rijkaard vel,“ sagði
Laporta en eitt af fyrstu verkum
hans sem forseti félagsins var að
næla í Ronaldinho árið 2003.
Ronaldinho kom inn á fyrir
Bojan á 63. mínútu í 1-1 jafntefl-
inu á móti Espanyol en í leiknum
á undan sem var gegn Lyon í
Meistaradeildinni leysti hann Eið
Smára Guðjohnsen af hólmi á 71.
mínútu. Eiður Smári hefur byrjað
báða þessa leiki en nú er að sjá
hvort Frank Rijkaard hlusti á
forsetann sinn. - óój
Krafa Laporta hjá Barca:
Ronaldinho í
byrjunarliðið
Á BEKKNUM Ronaldinho sést hér á
varamannabekknum í síðasta leik.
NORDICPHOTOS/AFP
NFL Hið virta íþróttatímarit
Sports Illustrated hefur útnefnt
Brett Favre, leikstjórnanda
Green Bay Packers, íþróttamann
ársins árið 2007.
Hinn 38 ára gamli Favre hefur í
raun risið upp frá dauðum í vetur
og hefur sjaldan eða aldrei leikið
betur. Síðasta tímabil var hans
slakasta og bjuggust fáir við því
að hann myndi snúa aftur og hvað
þá að hann myndi spila jafn vel
og raun hefur orðið með yngsta
liði deildarinnar. - hbg
Sports Illustrated:
Favre íþrótta-
maður ársins
Sendu sms
BTC BMF
Á númerið
1900og þú
gætir unnið!
Vinningar eru DVD myndir,
varningur tengdur myndinni
og margt fleira!
SMS
LEIKUR
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
1
49
k
r/
sk
ey
tið
.
Kemur í verslanir 6. desember!