Fréttablaðið - 05.12.2007, Blaðsíða 42
34 5. desember 2007 MIÐVIKUDAGUR
folk@frettabladid.is
Bókaútgáfan Forlagið hélt jóla-
gleði sína síðastliðið föstudags-
kvöld í húsi Ferðafélags Íslands.
Forlagið er stærsta útgáfufyrir-
tæki Íslands og gefur út bækur
undir merkjum JPV, Máls og
menningar, Vöku-Helgafells og
Iðunnar. Þar var því margt um
manninn enda mikill fjöldi nýút-
gefinna bóka til að fagna.
Forlagið fagnar
jólabókaflóðinu
GAGNRÝNANDINN OG SPENNUSAGNA-
HÖFUNDURINN Kolbrún Bergþórsdóttir
og Viktor Arnar Ingólfsson tóku tal
saman.
PÉTUR OG BERGÞÓR Pétur Árnason og
Bergþór Pálsson, sem nýverið gaf út
bókina Vinamót með veisluráðum til
gestgjafa.
HIMNAFEÐGAR Egill
Örn Jóhannsson
framkvæmdastjóri og
Jóhann Páll Valdimarsson
stjórnarformaður fögnuðu
jólabókaflóðinu með
höfundum sínum. Þeir
kalla sig nú Himnafeðga
eftir útgáfu nýrrar Biblíu-
þýðingar.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VÖ
LU
N
D
U
R
>VILJA DEYJA SAMAN
Rokkhjónin Sharon og Ozzy Osbourne
hafa gert með sér sjálfsvígssamn-
ing sem tekur þó ekki gildi fyrr en
árið 2012. „Við viljum ákveða
sjálf hvenær við deyjum og við
ætlum að fara saman,” segir
Sharon Osbourne.
„Jájá, Magnús mætir með
kvennabúrið,“ segir Magnús
Kjartansson, tónlistarmaður
og kórstjóri Flugfreyjukórs-
ins, hress að vanda.
Í kvöld verða haldið
aðventukvöld Flugfreyju-
félags Íslands í Laugarnes-
kirkju og vitaskuld mun
Flugfreyjukórinn verða þar í
lykilhlutverki.
„Þetta eru aðventutónleik-
ar í bland við þakkargjörð og
innstillingu inn á aðventu.
Já, þakkargjörð fyrir að árið
hefur gengið vel í þessu ann-
ars slóttuga umhverfi sem
flugið er,“ segir stjórnandi
kórsins. Magnús upplýsir
jafnframt að á dagskrá séu
eingöngu jólalög en þó með
öðru sniði en má finna á dag-
skrá flestra. Eingöngu er um
að ræða amerísk jólalög –
dægurjóladjass. Kórinn er
að verða fimm ára gamall og
Magnús hefur verið stjórn-
andi kórsins frá upphafi.
„Flugfreyjukórinn, þessi
óviðjafnanlegi hópur, syngur
jólamúsík öðruvísi en flestir.
Ég er búinn að vera með
þeim við strangar æfingar í
Skálholti í þrjá daga. Hafði
reyndar Villa Guðjóns með
mér. En þetta er akkúrat rétti
fjöldinn. Svona rúmlega
tuttugu. Og þá sér maður í
hendi sér að þetta er tapað
spil. „Game over“ og maður
heldur sig á mottunni,“ segir
Magnús, sem einmitt er
giftur flugfreyju sjálfur og
veit því hvað til síns friðar
heyrir. „Þetta er stórkostlegar
stelpur. Og, jú, við Villi
sváfum í hrútakofanum í
Skálholti.“ - jbg
Flugfreyjur syngja jóladægurlagadjass
Íslenska fatamerkið Farmers
Market er komið í úrslit í
keppninni Brand New Award sem
haldin er í tengslum við stærstu
útivistarsýningu í Evrópu. Það
hafnar þar í hópi þrjátíu fyrir-
tækja, sem öll þykja koma með
ferska strauma í iðnaðinn. Að
baki merkinu standa Jóel Pálsson
og Bergþóra Guðnadóttir, sem
eru afar ánægð með árangurinn.
„Aðalatriðið er að komast í
þennan hóp. Það er frábær
stökkpallur fyrir okkur,“ segir
Jóel, en sýninguna sækja árlega
50 þúsund gestir og tvö þúsund
blaðamenn.
Sýningin fer fram í München í
janúar.
Íslensk hönn-
un í úrslit
FARMERS MARKET Merki Jóels Pálssonar
og Bergþóru Guðnadóttur er komið í
úrslit í alþjóðlegri hönnunarkeppni.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Óheillakrákan Amy Winehouse
hefur enn á ný vakið athygli fyrir
undarlega hegðun sína. Snemma á
sunnudagsmorgun náðust myndir
af söngkonunni berfættri á ráfi
um götur Lundúna, á gallabuxum
og brjóstahaldara einum fata.
Winehouse er sögð hafa verið í
miklu uppnámi, grátið og
muldrað eitthvað óskiljanlegt.
Hún hafi virst afar ringluð og
látið sem hún væri að leita að
einhverju, en á endanum horfið
inn í hús vinar síns.
Talskona söngkonunnar segir
hana rétt hafa skotist út til að
kanna undarleg hljóð en verið of
svefndrukkin til að átta sig á
tímanum. Að læknisráði aflýsti
Winehouse nýlega öllum fyrir-
huguðum tónleikum sínum og fór
í felur.
Hálfnakin á
ráfi um nótt
AMY WIN-
EHOUSE
Berfætt úti
á götu í
annarlegu
ástandi.
Kvikmyndin Duggholufólkið eftir Ara
Kristinsson verður frumsýnd í dag
en Árni Beinteinn Árnason er einn af
aðalleikurum myndarinnar. Hann lét
sér þó ekki nægja að leika í myndinni
því kynningarmyndband Duggholu-
fólksins er klippt af Árna sem er
aðeins tólf ára gamall.
„Ég var að talsetja myndina þegar
talið barst að því að ég hefði
klippt svona „trailera“ fyrir
Sjónvarpið,“ segir Árni en
einhverjir kannast líklega við
drenginn úr Laugardagslögun-
um þar sem hann hefur tekið
viðtöl við þjóðþekkta Íslend-
inga. „Ari leikstjóri minntist á
það í gamni að ég gæti klippt.
Síðar spurði ég hvort ég ætti
ekki bara að gera það og hann
lét mig samstundis hafa efnið.
Þetta tók mig þrjár til fjórar
vikur í samvinnu við Ara og
dóttur hans.“ Hæfileikar Árna í
klippingu fengu víðar að njóta
sín. „Í myndinni er söguhetjan
að horfa á myndband með
Sprengjuhöllinni. Ég klippti það
líka. Það þurfti að fá einhvern til
að klippa það til með stuttum fyrir-
vara og ég var beðinn.“
Duggholufólkið fjallar um Kalla, tólf
ára borgarbarn, sem er sendur vestur á
firði til að eyða jólunum með pabba
sínum á afskekktum sveitabæ. Þegar
hann reynir að stinga af þaðan villist
hann, lendir í snjóbyl og hittir fyrir bæði
ísbjörn og dularfullar verur. „Þetta er
rosalega skemmtilegt nútíma-
ævintýri. Ég hef aldrei lagt eins
mikið á mig og í tökum fyrir
myndina. Maður var helfros-
inn á Ísafirði í næfur-
þunnum skinnskóm að taka
upp á nóttunni,“ segir Árni
en tekur þó fram að farið
hafi verið vel með hann.
„Ég vil segja sem
minnst um mína
persónu en hún er ekki
af þessum heimi.“
Áhugasamir geta séð
kynningarmyndbandið
á YouTube með því að
slá inn „Duggholu-
fólkið“.
sigrunosk@frettabladid.is
Tólf ára klippti kynningar-
myndband fyrir bíómynd
FLUGFREYJUKÓRINN Í ÖLLU SÍNU VELDI
Magnúsi kórstjóra er sjaldan orða
vant en skortir lýsingarorð þegar
hann tjáir sig um hversu stórkostlegar
flugfreyjurnar í kórnum séu.
UNGUR OG EFNILEGUR Árni Beinteinn
Árnason leikur stórt hlutverk í Dugg-
holufólkinu sem er frumsýnd í dag.