Fréttablaðið - 05.12.2007, Blaðsíða 44
36 5. desember 2007 MIÐVIKUDAGUR
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
16
10
7
12
12
16
16
14
HITMAN kl. 6 - 8 - 10
DAN IN REAL LIFE kl. 6 - 8
RENDITION kl. 10
16
16
16
12
16
14
HITMAN kl.5.50 - 8 - 10.10
DAN IN REAL LIFE kl.5.45- 8 - 10.15
LA VIE EN ROSE/LÍF RÓSARINNAR kl.5.20 - 8 - 10.40
LIONS FOR LAMBS kl. 8 - 10
THIS IS ENGLAND kl.6
HITMAN kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
HITMANLÚXUS kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
DAN IN REAL LIFE kl. 8 - 10.15
WEDDING DAZE kl. 3.40 - 5.50 - 8 -10.10
BALLS OF FURY SÍÐUSTU SÝN. kl. 4 - 6
ÆVINTÝRAEYJA IBBA 600 KR. kl. 4
THE HEARTBREAK KID kl. 8 - 10.30
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
ACROSS THE UNIVERSE kl. 5.20 - 8 - 10.40
RENDITION kl. 5.30- 8 -10.30
EASTERN PROMISES SÍÐUSTU SÝN. kl. 5.30 - 8 - 10.20
VEÐRAMÓT SÍÐUSTU SÝN. kl. 5.40 - 8 - 10:20
NÝTT Í BÍÓ!
BRÚÐKAUPSBILUN
DAN Í RAUN OG VERU
LÍF RÓSARINNAR
ÁSTARSORG
LOFORÐ ÚR AUSTRI
ÞETTA ER ENGLAND
LJÓN FYRIR LÖMB
Stórskemmtileg
rómantísk
gamanmynd
MÖGNUÐ MYND SEM ENGINN MÁ MISSA AF
STÚTFULL AF ÆÐISLEGRI BÍTLATÓNLIST!
Magnaður spennutryllir sem gerður er eftir hinum
frábæru tölvuleikjum með Timothy Olyphant úr Die
Hard 4.0 í fantaformi.
ALHEIMSFERÐ
LEIGUMORÐINGINN
- bara lúxus
Sími: 553 2075
HITMAN kl. 6, 8 og 10-POWER 16
RENDITION kl. 5.30, 8 og 10.30 16
AMERICAN GANGSTER kl. 10 16
MR. WOODCOCK kl. 8 L
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
www.laugarasbio.is - Miðasala á
SV MBL
LIB TOPP5.IS
VJV - TOPP5.IS
LIB - TOPP5.IS
HJ - MBL
TSK - 24Stundir
Hljómsveitin Hjaltalín er ekki
nema tveggja ára gömul, en hefur
þegar vakið töluverða athygli. Hið
frábæra lag Goodbye July/Margt
að ugga sló í gegn í vor og verður
eflaust ofarlega á listum þegar lög
ársins 2007 verða valin. Hljóðfæra-
skipan sveitarinnar hefur líka vakið
athygi, en auk hefðbundinna rokk-
hljóðfæra eins og gítars, bassa,
trommusetts og hljómborða spila
meðlimir hennar sem eru níu tals-
ins á fiðlu, selló, klarinett, fagott og
fleira. Reyndar er komin fram hér
á landi bylgja af fjölmennum
sveitum sem hafa óvenjulega hljóð-
færaskipan, en Hjaltalín er
sennilega þekktust þeirra.
Maður tekur eftir því strax við
fyrstu hlustun að Sleepdrunk Sea-
sons er óvenjulega heilsteypt og
sannfærandi frumsmíð. Það eru
ellefu stykki á plötunni og nokkur
þeirra eru hreint magnaðar laga-
smíðar. Hljómur, útsetningar og
flutningur eru sömuleiðis framúr-
skarandi.
Lögin eru sum nokkuð flókin að
uppbyggingu og meira um takt- og
kaflaskiptingar en gengur og gerist
í poppinu. Þau eru samt á sama
tíma melódísk og grípandi og
útsetningarnar eru óvenjulegar. Ég
er mjög hrifinn af því hversu vel
strengja- og blásturshljóðfærin
falla inn í tónlistina. Sellóið, fiðlan,
fagottið og klarinettið eru ekki
aukahljóðfæri sem skreyta tónlist-
ina eins og algengt er í poppinu
heldur eru þau notuð sem grunn-
hljóðfæri rétt eins og gítarinn og
bassinn. Fagottið rokkar til dæmis í
Traffic Music og í rokkkaflanum í
lokalaginu, Trailer Music, spýta
fiðluleikararnir í lófana rétt eins og
trommarinn og gítarleikarinn... Ég
er eiginlega gapandi af hrifningu
yfir þessum útsetningum. Hjaltalín
hefur tekist að búa til hljóm sem er
einstakur og sækir bæði í popp og
klassíska tónlist. Það er líka gaman
að heyra dökkan og hlýjan hljóm
fagottsins í poppinu. Fagott hefur
frekar lítið verið notað í rokktónlist.
Ég man í fljótu bragði ekki eftir
fagotti í íslensku poppi síðan Rúnar
Vilbergsson fór á kostum á hljóð-
færið með Þursaflokknum fyrir
tæpum þrjátíu árum síðan.
Flytjendurnir standa sig líka allir
mjög vel. Söngvararnir eru góðir
og raddútsetningarnar eru pott-
þéttar. Hljóðfæraleikararnir eiga
líka góð tilþrif, sérstaklega er ég
hrifinn af trommuleiknum og
bassaleiknum.
Á hinni alþjóðlegu tónlistarsenu
væri Hjaltalín flokkuð sem indie-
sveit. Þó að hún eigi sér ekki skýra
fyrirmynd þá á hún heima með
listamönnum eins og Sufjan
Stevens, Architecture in Helsinki
og Jens Lekman svo nokkur af þeim
nöfnum sem koma upp í hugann
séu nefnd. Hjaltalín er ekki beint
lík neinum þeirra en það er svipuð
nálgun í gangi. Sama opna hugar-
farið og sami metnaðurinn.
Hjaltalín er oft nefnd í sömu
andrá og Sprengjuhöllin sem hluti
af nýju íslensku poppkynslóðinni.
Eflaust eiga þær eitt og annað sam-
eiginlegt, en samt eru þetta mjög
ólíkar sveitir. Tónlist Sprengju-
hallarinnar er einfaldari, en fjöl-
breyttari og hjá henni eru textarnir
mikilvægur hluti af heildinni. Tón-
list Hjaltalín er fágaðari og fram-
sæknari og textarnir sem eru á
ensku skipta eiginlega engu máli.
Það er varla að maður heyri þá, þó
að maður staldri við stöku hend-
ingu. Báðar þessar sveitir koma þó
með ferska vinda inn í íslenska
poppheiminn.
Á heildina litið er Sleepdrunk
Seasons frábær plata. Poppverk í
sérflokki og ein af plötum ársins.
Trausti Júlíusson
Poppverk í sérflokki
TÓNLIST
Sleepdrunk Seasons
Hjaltalín
★★★★★
Magnaðar lagasmíðar, framúrskarandi
flutningur og frumlegar útsetningar
gera þessa fyrstu plötu Hjaltalín að
einni af bestu plötum ársins.
„Okkur fannst dálítið spennandi
að umslagið væri í rauninni hætt
að vera umslag þegar maður væri
búinn að opna það,“ segir tónlist-
armaðurinn Benedikt Hermann
Hermannsson um óvenjulegt
umslagið á nýjustu plötu sinni Ein
í leyni.
Kona Benna, Auður Jörunds-
dóttir, hannaði umslagið rétt eins
og hún hefur gert með önnur
umslög hans. Hún er menntuð
myndlistarkona og starfar í gall-
eríi. „Við gerðum litla plötu 2003 í
dálítið stóru krossviðar-koveri og
okkur langaði að gera eitthvað í þá
áttina. Það var upprunalega hug-
myndin og svo gerði hún alla
restina.“
Benni hvetur fólk til að hengja
umslagið upp sem plakat eftir að
það hefur opnað það í stað þess að
setja það upp í hillu. „Fólk hefur
áhyggjur af því hvernig það eigi
að koma þessu saman aftur. Mér
finnst spennandi að sjá svipinn á
fólki og það verður alveg ruglað í
ríminu. Svo byrjar það að pæla í
hvernig þetta sé og finnst þetta þá
rosalega flott.“
Ein í leyni, sem hefur að geyma
sjö lög, kemur aðeins út hér á
landi. Platan var prentuð í sex
hundruð eintökum og óvíst er
hvort fleiri líti dagsins ljós. Fram
undan hjá Benna Hemm Hemm
eru tvennir tónleikar í London í
næstu viku. Upptökum á stórri
plötu sem áttu að hefjast í lok árs-
ins hefur verið seinkað og hefjast
þær í janúar eða febrúar. - fb
Plötuumslagið upp á vegg
BENNI HEMM HEMM Tónlistarmaðurinn
Benni Hemm Hemm hefur gefið út
plötuna Ein í leyni.