Fréttablaðið - 05.12.2007, Page 16

Fréttablaðið - 05.12.2007, Page 16
16 5. desember 2007 MIÐVIKUDAGUR SMOKKUM ÞAKIÐ KENNILEITI Eitt helsta kennileiti Brussel er Manneken Pis eða Pissandi strákurinn. Hefð er fyrir því að klæða hann upp í ýmsa búninga og var hann skreyttur með smokkum 1. desember í tilefni af Alþjóðlega alnæmisdeginum. NORDICPHOTOS/AFP TRÚARBRÖGÐ Séra Guðrún Karlsdóttir hefur verið valin úr hópi ellefu umsækjenda til að gegna prestsembætti í Grafarvogs- prestakalli. Hún hefur verið prestur á Gautaborgar- svæðinu í Svíþjóð síðan hún hlaut vígslu 2004. Guðrún lauk guðfræðiprófi frá Háskólanum árið 2000 og hefur reynslu af æskulýðsstarfi og starfi með eldri borgurum. Séra Anna Sigríður Pálsdóttir, sem hefur þjónað sem prestur í Grafarvogssöfnuði er orðin dómkirkjuprestur. - kóþ Grafarvogsprestakall: Guðrún Karls- dóttir valin SÉRA GUÐRÚN KARLSDÓTTIR MENNTUN Tveir nemendur Háskóla Íslands hlutu styrk úr Þórsteins- sjóði til blindra og sjónskertra nemenda. Þetta er í fyrsta sinn sem styrkur er veittur úr sjóðnum. Það voru þau Gunnar Valur Gunnarsson, meistaranemi í tölv- unarfræði við verkfræðideild Háskóla Íslands, og Erla Soffía Jóhannesdóttir, BA-nemi í þýsku við hugvísindadeild Háskóla Íslands, sem hlutu styrkinn að þessu sinni. Bæði Gunnar Valur og Erla Soffía hafa þótt sýna framúrskarandi námsárangur við skólann. 500.000 krónur voru til úthlutunar úr sjóðnum, en auk þess lagði Blindravinafélag Íslands fram 500.000 króna við- bótaframlag. Sjóðnum bárust alls sex umsóknir. Þórsteinssjóður er til minning- ar um Þórstein Bjarnason, sem stofnaði Blindravinafélag Íslands árið 1932 og var það fyrsta félag- ið til hjálpar fötluðum á Íslandi. Sérstök áhersla er lögð á styrki til rannsókna í félags- og hugvís- indum sem aukið geta þekkingu á blindu og skertri sýn og afleið- ingum hennar. Megintilgangur sjóðsins er að styrkja blinda og sjónskerta til náms við Háskóla Íslands. - eb Styrkur til blindra og sjónskertra nemenda Háskóla Íslands: Ein milljón króna veitt úr Þórsteinssjóði STYRKUR Gunnar Valur Gunnarsson og Erla Soffía Jóhannesdóttir hlutu 500 þúsund króna styrk úr Þórsteinssjóði, sem nefndur er eftir stofnanda Blindravinafélagsins. SVEITARSTJÓRNIR Minnihluti bæjar- ráðs í Hveragerði segir það vekja undrun að lögmaður bæjarins virðist ætla að láta nægja að orðið verði við kröfu bæjarins um að eignarhald á svokallaðri Tívolílóð verði leiðrétt í fasteignabók sýslu- manns. Lóðin var ranglega skráð eign byggingarréttarhafans á lóð- inni eftir að hann breytti áritunum á skjölum til þinglýsingar. „Það getur seint kallast krafa að lög- mætum eignum sé skilað til réttra eigenda heldur er það sjálfgefið. Minnihluti A-listans leggur enn og aftur áherslu á að málið verði skoðað í heild og hljóti réttarfars- lega meðferð,“ segir í bókun Róberts Hlöðverssonar, bæjarfull- trúa A-listans. - gar Minnihlutinn í Hveragerði: Réttvísin skoði Tívolílóð AUSTURMÖRK 24 Eignarhald á svokallaðri Tívolílóð í Hveragerði skolaðist til. REYKJAVÍK „Það er býsna blóðugt fyrir fólk að borga jafnvel mörg þúsund krónur fyrir hvert bréf. Það getur verið nógu erfitt að ná endum saman fyrir innheimtunni samt,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, spurður um fyrir- komulag innheimtu vangoldinna fasteignagjalda. Í Fréttablaðinu hefur verið greint frá því að fjármálaskrif- stofa borgarinnar og fyrrverandi borgarstjóri sömdu við fyrirtæki um þessa innheimtu, án útboðs og formlegrar verðkönnunar. Þáverandi fjármálastjóri taldi samræmast venju hjá borginni að semja beint við einkafyrirtæki. Helgi Þór Jónasson innheimtu- stjóri kveður samninginn í sam- ræmi við stefnu borgarinnar um góða nýtingu fjármuna og gagn- sæja stjórnsýslu, enda hafi mark- miðið verið fjárhagslegt hagræði, almennt jafnræði og hagsmuna- vernd borgaranna. Þá hafi samn- ingurinn verið ræddur mikið innan borgarinnar og loks sam- þykktur af borgarráði. Borgarstjóri minnir á að Sam- fylkingin hafi lagt það til í borgar- ráði á sínum tíma að þessi þjón- usta yrði boðin út. „Útboðsstefnan á að vera reglan og hitt að heyra til algjörra undan- tekninga. Þessi samningur [við innheimtufyrirtækið Momentum] gildir út næsta ár. Ég hef látið kanna það og borgin virðist vera bundin af því. En við munum nota árið til að fara yfir innheimtumál- in í heild sinni og undirbúa þá hugsanlegt útboð,“ segir hann. Með nýja fyrirkomulaginu getur kostnaður skuldara hækkað um 43 prósent, utan dráttarvaxta. Að þeim meðtöldum hækkar kostnaður um 55 prósent. Hver og ein áminning kostar 4.358 krónur, með bæði kostnaði og ítrekunarkostnaði. Áður sá Toll- stjóri um innheimtuna og bættust þá einungis dráttarvextir við skuldina. „Það hlýtur að koma til álita á hvaða stigi menn senda innheimtu- aðgerðir frá sér,“ segir Dagur. „Við höfum verið að innheimta sjálf og okkar innheimtudeildir hafa náð mjög góðum árangri og átt í góðum samskiptum við greið- endur á fjölmörgum sviðum. Við þurfum því að samræma áralagið, hvort sem við erum að innheimta leikskólagjöld eða önnur þjónustu- gjöld.“ klemens@frettabladid.is Innheimtan er blóðug Borgarstjóri segir að til álita hljóti að koma hvernig innheimtu hjá borginni er háttað. Fjármálastjóri segir markmið samningsins vera almennt jafnræði og hagsmunavernd borgara. SKRIFSTOFUR MOMENTUM OG GJALDHEIMTUNNAR Borgarstjóri hefur látið kanna samning borgarinnar við fyrirtækin og telur borgina bundna af honum út næsta ár. Sá tími verði notaður til að endurskoða fyrirkomulagið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Fjármálaskrifstofa Reykjavíkurborg- ar bregst rösklega við og ætlar á næstunni að senda Fréttablaðinu ýmis umbeðin gögn, sem tengjast innheimtusamningnum. Hún hefur nú svarað þeim spurn- ingum sem lagðar voru fyrir hana 26. nóvember. Þar var hún meðal annars spurð hvort talið væri að jafnræðis- og samkeppnissjónarmiða hefði verið gætt þegar ákveðið var að semja beint við einkafyrirtæki. Farið verður yfir svör skrifstofunnar og þau gögn sem enn eru ókomin, svo skjótt sem auðið er. Þess má geta að skrifstofan hefur komið til móts við skuldara um þessi gjöld og leyfði honum þá að greiða einungis höfuðstól og dráttarvexti. Sá hafði neitað að greiða það sem hann taldi óeðlileg innheimtugjöld. BEÐIÐ GAGNA FRÁ FJÁRMÁLASKRIFSTOFU FRÍTT Í BÍÓ P IP A R • S ÍA • 7 2 4 0 4 Gáfaðar græjur Nýju HP Photosmarttækin tala saman, milliliðalaust. Engin tölva! Þú einfaldlega tengir myndavélina beint í prentarann eða stingur minniskortinu í hann og prentar út myndirnar þínar. SÖLU- OG ÞJÓNUSTUAÐILAR: Omnis - Reykjanesbæ, Akranesi, Borgarnesi • TRS - Selfossi Eyjatölvur - Vestmannaeyjum • Verslun Opinna kerfa - Reykjavík SÖLUAÐILAR: Bókaverslun Þórarins Stefánssonar - Húsavík • Hátíðni - Höfn • Kaupfélag Skagfirðinga - Sauðárkróki • Netheimar - Ísafirði • A4 • Start tölvuverslun - Kópavogi • Tölvutækni - Kópavogi • Office 1 • Munus - Hafnarfirði • Snerta Ísland - Vogum

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.