Fréttablaðið - 05.12.2007, Qupperneq 33

Fréttablaðið - 05.12.2007, Qupperneq 33
MIÐVIKUDAGUR 5. desember 2007 25 UMRÆÐAN Trúmál Þjóð á að hafa metnað og því meiri sem hún er minni. Það þarf nefnilega svo lítið útaf að bera svo hún týnist í orðsins fyllstu merkingu. Þjóð sem víkur trú sinni og siðum fyrir fjölþjóð- lega innflytjendur, fer villur vega. Þjóðir sem slíkt gerðu, upp skáru vandræði og vanþakklæti, sem ekki sést fyrir endann á. Múslima- þjóðir, Indverjar, Japanar, Kínverj- ar, Rússar og fleiri, breyta ekki trúarvenjum sínum og siðum fyrir útlendinga sem þar vilja vera. Þeim er ætlað að laga sig að við- tökuþjóð sinni, eins og sjálfsagt er. Ef þeir sætta sig ekki við það, er þeim vinsamlega bent á að leita annað. Það er að segja, koma sér burt. Við Íslendingar höfum ekkert að gera með fólk sem ekki vill laga sig að siðum okkar og sætta sig við að trú vor hafi forgang eins og þeirra í eigin löndum. Við eigum ekki að breyta mataræði barna okkar í skólum, fyrir forneskjulegar trúar venjur innflytjenda. Innflytjendur eiga að sjá sóma sinn í að taka tillit til siðar og trúar þeirrar þjóðar sem við þeim tekur. Heimtufrekja er illa séð af þjóð sem hefur tekið fólkinu svo vel sem Íslendingar. Sú einstaka heimska, eða skiln- ingsleysi, sem kom yfir ráðamenn nokkurra leikskóla borgarinnar, að meina prestum að flytja þar guðs- orð eins og tíðkast hefur, er útlend- ingum síst til góðs. Nokkrir borg- arar voru spurðir álits og voru svör öll á einn veg. Prestana inn í skól- ana. Sem skilja má að hætt sé öllu fjölmenningar kjaftæði. Tökum við góðu fólki frá öðrum löndum eftir bestu getu, en höldum áfram að vera Íslendingar með okkar siði og venjur. Vonandi kristnir. Höfundur er trésmíðameistari. Prestum úthýst ALBERT JENSEN UMRÆÐAN Loftslagsmál Hinn 3. desember gengu Banda-ríkin til liðs við hin 191 aðildarríkin að Rammasamningi Sameinuðu þjóðanna um loftslags - breytingar (UNFCCC) á Balí í Indónesíu. Þar verður tekið lykil- skref fyrir samfélag þjóðanna til að takast á við hið alvarlega við- fangsefni þar sem loftslagsbreyt- ingar eru annars vegar. Á þessari tveggja vikna ráðstefnu hyggjast Bandaríkin vinna á uppbyggilegan hátt með öðrum þjóðum að því að setja fram „Balí-vegvísi“ sem mun kortleggja leiðina að nýjum alþjóð- legum rammasamningi um lofts- lagsbreytingar fyrir árið 2009. Við óskum eftir Balí-vegvísi sem mun stuðla að samningavið- ræðum samkvæmt UNFCCC og þróa rammasamning eftir 2012 sem mun takast á áhrifaríkan hátt á við loftslagsbreytingar og styrkja orkuöryggi okkar. Bandaríkjamenn telja að rammasamningur, sem tæki gildi eftir 2012, um loftslagsbreytingar verði að vera umhverfislega áhrifaríkur og efnahagslega sjálf- bær. Útblástur er hnattrænn og lausnin verður að vera hnattræn til að bera árangur. Nálgun þar sem aðeins sumir eru virkir er ekki umhverfislega áhrifarík. Þar að auki verður framtíð- arrammasamningur að vera sveigjanlegur og gera ráð fyrir margvís- legum aðstæðum hinna ýmsu þjóða, auk víð- tækra félagslegra og efnahagslegra mark- miða. Bandaríkin hafa, bæði heima fyrir og erlendis, frumkvæði að ýmiss konar aðgerð- um til að draga úr losun gróðurhúsa loft tegunda, auka orkuöryggi og draga úr hættulegri loftmengun. Við höfum gripið til fjölbreyttra aðgerða, þar á meðal eru tugir lögboðinna, hvetjandi, markaðstengdra og frjálsra verkefna til að draga úr útblæstri innanlands. Við höfum einnig varið 37 millj- örðum dala í aðstoð við að þróa og útfæra nýja tækni til að draga úr losun gróðurhúsaloft- tegunda án þess að draga úr hagvexti. Við vitum að þetta er hægt. Á árunum 2000- 2005 fjölgaði Banda- ríkjamönnum um fimm prósent (14 milljónir manna) og verg landsframleiðsla jókst um tólf prósent (u.þ.b. 1,2 billjónir dala) en á sama tíma jókst losun gróðurhúsalofttegunda um aðeins 1,6 prósent. Frá 2005 til 2006 var hagvöxturinn hjá okkur 2,9 pró- sent en losun gróðurhúsaloftteg- unda dróst saman um 1,5 prósent. Á alþjóðavettvangi er stefna Bandaríkjanna í loftslagsmálum hluti af víðtækri, sjálfbærri þró- unarstefnu. Við höfum haft frum- kvæði að, eða tekið þátt í mörgum alþjóðlegum samvinnuverkefnum – til dæmis í Asíu-Kyrrahafsverk- efninu um hreina þróun og loftslag og Metanverkefninu – sem taka á loftslagsbreytingum á þann hátt sem ýtir undir hagvöxt og hjálpar ríkjum að skapa íbúum sínum meiri hagsæld. Á grundvelli þessa árangurs kölluðu Bandaríkin saman fulltrúa sautján stærstu hagkerfa heims – sem standa fyrir 80 prósent hagkerfa heimsins, orku notkunar og losunar gróður- húsalofttegunda – og Sameinuðu þjóðirnar til fyrsta Fundar helstu hagkerfa um orkuöryggi og lofts- lagsbreytingar í september 2007. Með uppbyggilegri samvinnu telja Bandaríkin að helstu hagkerfin geti stuðlað að og flýtt fyrir umræðum samkvæmt UNFCCC. Á ráðstefnunni á Balí munum við hlusta gaumgæfilega á hug- myndir annarra og miðla viðleitni okkar og vilja til að ná samkomu- lagi um „Balí-vegvísi“ sem mun leiðbeina samfélagi þjóðanna fram á við næstu tvö árin. Höfundur er sendiherra Banda- ríkjanna. Loftslagsþing Sameinuðu þjóðanna á Balí CAROL VAN VOORST Aðventan er tíminn til að njóta þess besta sem völ er á í mat og drykk. Jólamatseðillinn á Grillinu er aðventan í allri sinni dýrð. Pantaðu borð núna í síma 525 9960 og tryggðu þér sæti við kræsingarnar.PIP A R • S ÍA • 7 2 4 1 0

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.