Fréttablaðið - 05.12.2007, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 05.12.2007, Qupperneq 38
30 5. desember 2007 MIÐVIKUDAGUR menning@frettabladid.is Það er ekki á hverjum degi sem óperusöngkona flytur aríur ætlaðar ólíkum rödd- um á einum og sömu tón- leikunum. Þetta gerist þó á morgun þegar Ingveldur Ýr Jónsdóttir, sem er vel þekkt sem messósópran, kemur fram í fyrsta skipti sem sópran á hádegistónleikum í Hafnarborg. „Ég hef alltaf verið á mörkunum á milli þess að vera sópran og messósópran. Þegar ég var í námi sveiflaðist ég dálítið á milli þess að syngja verk fyrir þessar tvær radd- ir því ég hafði svo vítt raddsvið. Það fór á endanum svo að ég hálfpart- inn fann mig í messósópran röddinni og hef því ætíð starfað sem slík. Undanfarið hef ég þó verið að leika mér að því að syngja sópranrödd og nú er svo komið að ég hef ákveðið að koma opinberlega fram sem sópran,“ segir Ingveldur Ýr. Ingveldur segir söngraddar- skipti sín ekki vera neitt einsdæmi enda eru margar söngkonur annað- hvort á mörkum raddanna tveggja eða með breið raddsvið sem ná yfir þær báðar. Helsta breytingin sem raddskiptin fela í sér er að tölu- verður munur er á hlutverkum fyrir raddirnar tvær innan tónbók- menntanna. „Messósópranhlut- verk eru gjarnan mikil karakter- hlutverk sem reyna ekki aðeins á sönginn heldur einnig leikhæfileik- ana. Messósópranpersónur eru stundum dálítið utangarðs, til dæmis nornir eða vondar kvenper- sónur, þó að það séu að sjálfsögðu til margvísleg hlutverk fyrir þessa rödd. Sópranhlutverk eru aftur á móti oftast kvenhetjur. Með radd- skiptunum má því segja að ég bæti við mig kvenhetjuhlutverkunum.“ Tónleikarnir eru liður í hádegis- tónleikadagskrá Hafnarborgar, menningar- og listastofnun Hafnar- fjarðar, en þar hafa farið fram mánaðarlegir hádegistónleikar síðan árið 2003. Listrænn stjórn- andi tónleikaraðarinnar er píanó- leikarinn Antónía Hevesi og velur hún þá listamenn sem koma fram á tónleikunum. Á efnisskránni á morgun verða auðvitað sópranaríur en einnig aríur fyrir messósópran- rödd. Aríurnar eru eftir ekki ómerkari tónskáld en Bizet, Mozart, Verdi og Puccini. Tónleikarnir hefjast kl. 12, eng- inn aðgangseyrir er að þeim og eru þeir öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Tónleikarnir standa yfir í um hálfa klukkustund og eru hugs- aðir sem tækifæri fyrir fólk í Hafnarfirði til að njóta góðrar tón- listar í hádegishléinu sínu. vigdis@frettabladid.is Daglegt líf almennings hefur tæknivæðst á ógnarhraða síðast- liðin eitt hundrað ár. Um aldamótin síðustu mætti segja að viss kúvending hafi orðið í ásýnd tækjaheimsins þegar stafræn tækni ruddi sér til rúms og náði á skömmum tíma yfirhöndinni á fjöldamörgum sviðum hins vél- ræna. Samfara tækniþróun breytist ímynd tækninnar og hug- myndir okkar um hana. Tækni, hug myndir og ímyndir eru einmitt viðfangsefni myndlistarsýningar sem verður opnuð á morgun kl. 18 í danska netgalleríinu Net- filmmakers. Sýningin nefnist Ímynd tækn- innar og eru listamennirnir sem eiga á henni verk þau Anna María, Finnur Arnar Arnarsson og Hrafn- kell Sigurðsson. Listamennirnir sýna ný myndbandsverk sem eru sérstaklega gerð fyrir netið. Sýn- ingarstýra er Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur. Opnunin verður í turnherbergi Nikolaj-listasafnsins, sem er stað- sett í gamalli kirkju í miðbæ Kaup- mannahafnar, og þar munu lista- mennirnir kynna og frumsýna verk sín. Netfilmmakers er gallerí sem er eingöngu rekið á netinu og er í umsjá Annettu Finnsdóttur. Gall- eríið er hugsað sem rafrænt rými fyrir myndlistarfólk og kvik- myndagerðarfólk, og er opið öllum á netinu, alltaf, án gjalds. Fyrir utan að skoða þær sýningar sem eru í gangi hverju sinni geta gest- ir einnig horft á verk af fyrri sýn- ingum í safni gallerísins. Nýjar sýningar eru opnaðar á þriggja mánaða fresti og eru allar sýningarnar tematengdar. Hug- myndin er sú að kanna möguleika listsköpunar á netinu og í rafræn- um rýmum, jafnframt því að kanna form og mörk myndbands- verka og kvikmyndalistar. Net- filmmakers má finna á vefslóðinni www.netfilmmakers.dk - vþ Ímynd tækni á netinu Þrír áhugaverðir fyrirlestrar eru í boði í Þjóðminja- safninu í dag og á morgun. Aðalfundur Hins íslenzka fornleifafélags verður haldinn í dag klukk- an 16 í fyrirlestrarsal safnsins og mun þá Gunnar Bollason, sagnfræðingur og verkefnisstjóri hjá Fornleifavernd ríkisins, flytja fyrirlestur um eldri minningarmörk, legsteina og steinsmíði á Íslandi. Hið íslenzka fornleifafélag, sem stofnað var 1879, sinnir bæði rannsóknum á fornleifum og öðrum menningarminjum. Á fimmtudag, sem vill svo til að er afmælis- dagur dr. Kristjáns Eldjárn, fyrrum þjóðminja- varðar, verða svo þær Æsa Sigurjónsdóttir listfræðingur og Sigrún Sigurðardóttir, sagn- fræðingur og menningarfræðingur, með mál- stofu þar sem þær kynna rannsóknarverkefni sín en þær vinna báðar við ljósmyndarann- sóknir í rannsóknarstöðu Kristjáns Eldjárn. Viðburðurinn hefst kl. 14.30. Fyrirlestur Æsu heitir Myndir úr köldu stríði og fjallar um rannsóknir hennar á ljósmyndum kalda stríðsins og myndir Werners Bischof frá Íslandi, en myndir þessar komu nýlega í leitirnar. Myndirnar voru hluti af umfangsmiklu verkefni sem var skipulagt af ECA-stofnuninni í París til að skipuleggja Marshall-aðstoðina í Evrópu. Fyrirlestur Sigrúnar heitir Afturgöngur og ræðir hún um heimildagildi ljósmynda, sannleika, blekk- ingu og félagslegt raunsæi í ljósmyndum, einkum af börnum og unglingum við vinnu á sjó. Sigrún segir ljósmyndina vera heimild um atburð sem átti sér stað á ákveðnum tíma, en að við þurfum þó að taka sannleiksgildi myndarinnar með fyrirvara. Þannig eru ljósmyndir, að mati Sigrúnar, eins og vofur eða afturgöngur að því leyti að þær eru hvorki raunverulegar né óraunverulegar, en þó hvort tveggja í senn. Allir eru velkomnir á viðburðina báða dagana og ekkert kostar inn. - vþ Mark Wallinger, 48 ára gamall breskur myndlistarmaður, vann hin virtu bresku Turner-myndlist- arverðlaun í ár. Auk heiðursins hlýtur listamaðurinn rúmar þrjár milljónir króna í verðlaunafé. Wallinger fékk verðlaunin fyrir innsetninguna State Britain sem var til sýnis í Tate Britain-safninu í London fyrr á árinu. Í innsetn- ingunni endurskapaði Wallinger mótmæli sem maður að nafni Brian Haw hélt úti um fimm ára skeið gegn þátttöku Breta í stríð- inu gegn hryðjuverkum. Haw kom sér fyrir á grasbala á móti þing- húsinu í London og setti þar upp ótal mótmælaskilti sem hann skap- aði sjálfur. Mótmælin stóðu frá árunum 2001 til 2006, en þá fjarlægði lögreglan í London skilt- in og Haw sjálfan í krafti nýrra laga sem banna mótmæli í eins kílómetra radíus frá þinghúsinu. Wallin- ger hafði sér til fulltingis þrettán aðstoðarmenn við að skapa verkið, en þrátt fyrir liðsaukann tók vinnan hálft ár. Dómnefnd hrósaði verkinu fyrir nánd þess, kraft og sagnfræðilegt mikilvægi. Wallinger var að vonum ánægður með heiðurinn. Hann sagði við það tilefni að hann ætti verðlaunin fyllilega skilin þar sem State Britain hefði einfaldlega verið besta breska samtímalista- verkið sem sýnt hefði verið á árinu og að hann sæi enga ástæðu til að gera sér upp hógværð. Aðspurður hvort hann hefði í hyggju að deila verðlaunafénu með Haw sagði Wallinger að það kæmi engum við hvernig hann kysi að ráðstafa fénu. - vþ Mótmæli vinna Turner-verðlaunin VIÐ ÆFINGAR Ingveldur og Antónía æfa fyrir tónleikana á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Raddskipti í hádeginu MARÍA MEY HÖGGVIN Í STEIN Fagurt minningarmark. Þrír fyrirlestrar LISTAMAÐURINN Engin hógværð. MYNDBANDSVERKIÐ SLEEPER Í þessu verki röltir Wallinger um listasafn um nótt íklæddur bjarndýrsbúningi. Kl. 17.15 Hildur Helgadóttir les upp úr bók sinni, Í felulitum, á Amtsbóka- safninu á Akureyri í dag kl. 17.15. Í bókinni fjallar Hildur um dvöl sína í Bosníu á vegum íslenska utanríkisráðuneytisins. Viðburð- urinn er ókeypis og öllum opinn. > Ekki missa af... Ljósmyndasýningunni Flickr- flakk og heljarstökk sem stendur nú yfir í Ljósmynda- safni Reykjavíkur, Tryggvagötu 15. Sýningin beinir sjónum sínum að íslenskum ljósmynd- urum og ljósmyndaáhuga- mönnum sem lifa og hrærast í ljósmyndasamfélaginu Flickr á netinu. Hvorki meira né minna en 94 ljósmyndarar eiga um 220 ljósmyndir á sýningunni. ÚLFHILDUR DAGSDÓTTIR Sýningarstýra Ímyndar tækninnar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.