Fréttablaðið - 07.12.2007, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 07.12.2007, Blaðsíða 2
2 7. desember 2007 FÖSTUDAGUR DÓMSMÁL Karlmaður á fertugs- aldri, Ari Kristján Runólfsson, hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi í Hæstarétti fyrir tilraun til manndráps. Hann stakk mann í brjóstkassann með hnífi í apríl á þessu ári. Hæstiréttur þyngdi dóm Héraðsdóms Reykjavíkur. Hnífstungan átti sér stað í íbúð í Reykjavík, þegar Ari Kristján og fórnarlambið sátu ásamt fleirum við drykkju og horfðu á fótbolta- leik. Samkvæmt vitnisburði hús- ráðanda fóru mennirnir skyndi- lega að rífast, og endaði rifrildið með því að Ari stakk manninn tvisvar í brjóstkassann. Fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur játaði Ari að hafa stungið mann- inn, en það hefði gerst í kjölfar ögrunar fórnarlambsins. Niður- staðan var sex ára fangelsis dómur. Hann undi þeirri niðurstöðu ekki og áfrýjaði málinu til Hæsta réttar, þar sem hann krafðist vægari refsingar. Svar Hæstaréttar var að þyngja dóminn um tvö ár. Bótagreiðslur Ara til fórnar- lambsins voru lækkaðar í dómi Hæstaréttar. Í Héraðsdómi Reykjavíkur var hann látinn greiða eina og hálfa milljón króna, en 1,2 milljónir í Hæstarétti. Þá bættist við áfrýjunarkostnaður málsins, tæp hálf milljón króna. - sþs Calia Italia Premium hvíldarsófi (Stærð: 222 sm) Öll sætin eru með skemli. Fæst með ljósu, dökkbrúnu eða svörtu leðri Fæst einnig sem 2ja sæta og 4ja sæta. Verð kr. 179.900,- SETT EHF • ASKALIND 2A • 201 KÓPAVOGUR • SÍMI: 534 1400 • WWW.SETT.IS OPNUNARTÍMI: MÁN. - FÖS 11:00 - 18:00 LAUGARDAGA 11:00 -16:00 SUNNUDAGA 13:00 - 16:00 BJÓÐUM MIKIÐ ÚRVAL AF HÚSGÖGNUM Á HAGSTÆÐU VERÐI VÖNDUÐ HÚSGÖGN SÓFASETT, HVÍLDARSÓFAR, BORÐSTOFUHÚSGÖGN, RÚM OG MARGT FLEIRA LÖGREGLUMÁL Einn af fimm Pólverjum sem eru í farbanni vegna rannsóknar lögreglu Selfoss á nauðgunarmáli er farinn úr landi, að því er segir í tilkynningu sem lögreglan hefur sent frá sér. „Przemyslav Pawel Krymski, sem kært hafði farbann til Hæstaréttar, sem staðfesti það, hefur nú yfirgefið Ísland,“ segir í tilkynn- ingunni. Lýst hefur verið eftir honum. Lögreglan á Selfossi hefur vegabréf hans og hinna fjögurra í vörslu sinni. Rannsókn mála þessara manna er ekki lokið þar sem enn er beðið niðurstöðu úr rannsóknum lífsýna. Farbann þess sem yfirgaf Ísland átti að renna út hinn 17. desember. - jss Rannsókn á nauðgunarmáli: Rauf farbann LÖGREGLUMÁL „Svona lagað gengur náttúrlega ekki,“ segir Hilmar Ingimundarson hæstaréttarlög- maður og skellir upp úr þegar hann er spurður út í þjófnaðarmál sem þingfest verður í Héraðs- dómi Reykjavíkur á mánudag- inn. Hilmar er verjandi Lee Reynis Freer, heimilislauss manns sem freistaðist til að stinga inn á sig lifrarpylsu- keppi. Tildrög þess eru þau að í mars var Lee Reynir svangur og lagði leið sína í 10-11 í Austurstræti og keypti þar harðfisk, rjóma og smjör. Þá voru peningar hans upp- urnir. Hann segist hins vegar hafa verið afskaplega svangur og því freistaðist hann til að stinga inn á sig lifrarpylsukeppi, sem hann langaði mikið í. Þegar hann var kominn að útgangi verslunarinnar kom ungur starfsmaður 10-11 til hans og bað hann um að koma með sér inn á skrifstofu. „Ég skilaði honum auðvitað keppnum og baðst afsökunar. Maðurinn sagði að þetta væri allt í lagi og hann hefði fullan skilning á þessu. Hann hefði þó áhyggjur af því hvað ég væri illa til reika og spurði hvort ég gæti ekki komist í gistiskýlið í skjól. Ég sagði honum að það væri fullt,“ segir Lee Reynir. Hann segir unga manninn þá hafa stungið upp á að hringja í lögregl- una svo hann gæti komist út úr kuldanum. Það þótti Lee Reyni góð hugmynd. Lögreglan tók skýrslu af Lee Reyni daginn eftir vegna málsins og sagði að keppinn yrði hann að greiða. Hann segir verslunarstjór- ann þó ekki hafa viljað þiggja greiðslu þar sem keppurinn hefði endað uppi í hillu og enginn skaði orðið. Hilmar furðar sig á því að ákæruvaldið hafi stefnt Lee Reyni fyrir dóm vegna málsins þótt for- svarsmenn 10-11 hafi ekki lagt fram kæru. „Þetta er svo mikið smámál og ég skil ekki hvað þeim gengur til, þetta mál kostar skatt- borgara svo margfalt meira en einn lifrarpylsukeppur gerir,“ segir Hilmar og kveðst steinhissa á viðbrögðum lögreglu og bætir við: „Þeir standa sig vel en það eru takmörk fyrir öllu.“ Í sama streng tekur Guðjón Karl Reynisson, framkvæmdastjóri 10- 11. „Mér þykir þetta alveg með ólíkindum og finnst undarlegt að einhver vilji elta ólar við heimilis- lausa menn vegna svona lagaðs,“ segir Guðjón en tekur fram að málið þekki hann ekki til hlítar. karen@frettabladid.is Dreginn fyrir dóm út af lifrarpylsukeppi Lee Reynir Freer stakk á sig lifrarpylsukeppi í verslun 10-11 í mars. Starfsmaður hafði samband við lögreglu, aðallega til að koma Lee í húsaskjól. Málið verður þingfest á mánudag. „Með ólíkindum,“ segir framkvæmdastjóri 10-11. SEGIST HAFA VERIÐ AFSKAPLEGA SVANGUR Lee Reynir hnuplaði lifrarpylsukeppi en var gripinn af starfsmanni verslunarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Undarlegt að einhver vilji elta ólar við heimilislausa menn vegna svona lagaðs. GUÐJÓN KARL REYNISSON FRAMKVÆMDASTJÓRI 10-11 Þorsteinn, var þetta of dýrt spaug? „Nei, spaugið fæst ekki keypt nema dýru verði!“ Ekkert tilboð hefur borist í sextíu sek- úndna auglýsingahlé sem setja átti inn í mitt Áramótaskaupið á gamlárskvöld. Þorsteinn Þorsteinsson, markaðsstjóri RÚV ohf., segist telja að markaðnum hafi fundist verðið, þrjár milljónir króna, of hátt. SJÁVARÚTVEGUR „Vísbendingar eru um að nýr árgangur þorsks sé lélegur,“ segir Björn Ævarr Steinarsson, fiskifræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun. „Þetta er í stórum dráttum staðfesting á niðurskurði aflamarks í haust og gefur því miður ekki tilefni að endurskoða hann,“ segir Björn. „Það sem þessi niðurstaða þýðir í raun er að það mun taka enn lengri tíma að ná stofninum upp en áætlað hafði verið.“ Heildarvísitala þorska, eins árs og eldri, hafi lækkað um tuttugu prósent, sem sé í samræmi við stofnmat í vor. - kóþ Stofnmæling botnfiska: Nýr árgangur þorsks lélegur Stakk mann tvisvar í brjóstkassann með hnífi yfir fótboltaleik í apríl síðastliðnum: Átta ár fyrir manndrápstilraun ■ Í dómi Hæstaréttar segir að ekkert hafi komið fram í málinu sem leitt gæti til refsilækkunar Ara Kristjáns. ■ Sérstaklega var tekið fram að atlaga hans hefði verið slík að hending ein hefði ráðið því að fórnarlambið lést ekki samstundis. ■ Maðurinn sem var stunginn býr enn við mikinn heilsubrest vegna árásarinnar. ■ Sveinn Andri Sveinsson hæsta- réttarlögmaður var verjandi Ara Kristjáns. SLYS Tveir menn slösuðust alvarlega í bílslysi nálægt álverinu í Straumsvík um fimm leytið í gær. Mennirnir fóru í aðgerð á Landspítalanum í nótt. Eftir aðgerðina var ráðgert að færa þá á gjörgæsludeild. Þá slasaðist þriðji maðurinn í slysinu minna. Áreksturinn varð um fimm- leytið í gær þegar jeppi og sendibíll skullu saman, en þeir komu hvor úr sinni áttinni. Reykjanesbrautinni var lokað vegna slyssins og björgunar- starfa og varð þá annar árekstur vegna bílamergðarinnar. Enginn slasaðist í það skiptið. Mikið annríki var í gær hjá sjúkraflutningamönnum vegna þessara og annarra óhappa. - kóþ Bílslys á Reykjanesbraut: Tveir fóru í aðgerð í nótt BRETLAND, AP Eiginkona mannsins sem gaf sig fram á lögreglustöð á laugardag eftir að hann hvarf fyrir fimm árum viðurkenndi í gær að hafa vitað af því að hann væri á lífi. Áður hafði hún sagst koma af fjöllum við fregnir af endurkomu eiginmanns síns. Anne staðfesti í viðtölum í breskum fjölmiðlum í gær að myndin sem birtist af hjónunum í blöðum daginn áður, sögð ársgömul og tekin í Panama, væri í raun af þeim. Hjónin sæta nú rannsókn bresku lögreglunnar vegna gruns um fjársvik en Anne Darwin fékk greidda út líftryggingu John Darwin þegar dánardómstjóri lýsti hann látinn eftir hvarfið. Lögregla hóf rannsókn á málinu fyrir nokkrum mánuðum eftir að ættingi taldi sig heyra Anne tala við John í síma og tilkynnti það. John Darwin hvarf fyrir fimm árum þegar hann var á kanósiglingu í Norðursjó. Anne segist hafa trúað því að eiginmaður sinn væri dáinn þangað til hann hafði samband við hana nokkrum árum síðar. Hún neitaði að greina nánar frá því hvernig það bar að. Tveir synir hjónanna segjast foreldrum sínum reiðir og að þeir vilji ekki hafa neitt saman við þau að sælda reynist satt að þau hafi sviðsett dauða föður þeirra. - sdg Eiginkona mannsins sem gaf sig fram eftir að hann hvarf fyrir fimm árum: Vissi af eiginmanninum JOHN DARWIN Tveir synir John og Anne Darwin segjast reiðir föður sínum og móður og vilja ekkert samband við þau hafa. FRÉTTABLAÐIÐ/AP HENDING AÐ MAÐUR- INN LÉST EKKI ÞORSKUR Niðurstöður stofnmælingar- innar staðfesta niðurskurð kvóta í haust. NÁTTÚRA Fólk rak upp stór augu þegar sjaldséður íbúi undirdjúp- anna kom úr kafi um fjögurleytið við Grafarvogskirkju. Engir dýrafræðingar voru viðstaddir til að bera kennsl á gestinn, en áhorfendur þóttust vissir í sinni sök að annað hvort hrefna eða höfrungur væri þar á ferð. Hvort sem var hélt dýrið innar í voginn og synti þar hring eftir hring, sallarólegt og vært. Albert Hauksson, sem fylgdist með ferðum skepnunnar, segist aldrei hafa séð þetta áður, enda sé vogurinn afar grunnur á þessum slóðum og eigi til að tæmast þegar fjarar. - kóþ Hrefna eða höfrungur: Gæfur gestur í Grafarvoginum HREFNA EÐA HÖFRUNGUR MYND/ALBERT HAUKSSON NÁTTÚRA Skeiðarárhlaup er hafið. Gunnar Sigurðsson, verkfræðing- ur hjá Orkustofnun, segir rafleiðni í ánni hafa aukist undanfarna daga og rennslið vaxið. Einnig hafi óróa orðið vart á jarðskjálftamælum Veðurstofunnar á Grímsfjalli í fyrrinótt, sem merki að vatn sé farið að streyma úr Grímsvötnum í Skeiðará. Því sé enginn vafi á því að hlaupið sé hafið. „Við gerum ekki ráð fyrir stóru hlaupi, þetta ætti ekki að vera neitt til að hafa miklar áhyggjur af,“ segir hann. Síðasta Skeiðarárhlaup var í nóvember 2004, og fylgdi því eldgos í Grímsvötnum. - sþs Órói á jarðskjálftamælum: Skeiðarárhlaup hafið á ný SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.