Fréttablaðið - 07.12.2007, Blaðsíða 18
18 7. desember 2007 FÖSTUDAGUR
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Ekki hætt
„Ég legg áherslu á að þetta
er bara skref, við erum alls
ekki hætt.“
GEIR H. HAARDE FORSÆTISRÁÐ-
HERRA UM AÐGERÐIR STJÓRN-
VALDA Í ÞÁGU ALDRAÐRA OG
ÖRYRKJA.
Fréttablaðið 6.desember.
Hinn mikli þjófur
„Það er enginn meiri þjófur
til, hvað lífskjör allra varðar,
en verðbólgan, sem öllu vill
stela.“
GUÐNI ÁGÚSTSSON VONAR AÐ
VERÐBÓLGAN HIRÐI EKKI KJARA-
BÆTUR ÖRYRKJA OG ALDRAÐRA.
Fréttablaðið 6. desember.
Bílddælingar voru vanir
að geta gengið til vinnu
sinnar enda er þorpið lítið
og fámennt. Því er ekki
þannig farið með Jón Hákon
Ágústsson, sem þarf að
ferðast 384 kílómetra til
vinnu sinnar í Skútuvogi í
Reykjavík.
„Það er ekkert gaman að þessu en
maður lætur sig hafa það,“ segir
Jón Hákon Ágústsson, sem búsett-
ur er á Bíldudal en starfar sem
vaktstjóri og aðstoðarrekstrar-
stjóri í Húsasmiðjunni í Skútuvogi.
Það er að segja 384 kílómetrum frá
heimili sínu.
„Sem betur fer búa móðir mín og
bróðir hérna í bænum og ég hef
fengið herbergi hjá þeim. Þetta
væri nú varla hægt ef maður þyrfti
að leigja hérna. Venjulega kemst
ég heim aðra hvora helgi með því
að skipta, þá legg ég í hann á
fimmudagskvöldi og svo legg ég í
hann aftur frá Bíldudal um miðjan
dag á sunnudegi.“
Jón Hákon ólst upp á Bíldudal
eins og kona hans, Guðbjörg J.
Theódórs, en þau fluttu til Reykja-
víkur þegar komið var að fram-
haldsskólanámi. Árið 2003 héldu
þau aftur vestur og Jón Hákon opn-
aði veitingastofu í gamla Kaup-
félaginu en hún hártískuhúsið
Centrum. „Svo var fólksfækkunin
orðin svo mikil að það var ekki
nokkur grundvöllur fyrir því að
reka veitingastofuna áfram svo ég
skellti bara í lás. Ég leitaði að vinnu
fyrir vestan en það var enga vinnu
að fá. Þegar mér bauðst svo þessi
vinna í sumar hjá Húsasmiðjunni
tók ég því með glöðu geði enda ekk-
ert annað að gera eins og staðan
var.“
Það er rífandi gangur hjá Guð-
björgu á Centrum en vissulega
unir hún þessum hag þeirra illa.
„Þetta er náttúrlega ekkert
skemmtilegt en maður lætur sig
hafa það,“ segir hún. „Reyndar var
faðir minn sjómaður og var því oft
fjarverandi þannig að ég þekki
þetta,“ segir hún. Dætur þeirra
hjóna, Veroníka sem er sex ára, og
Sylvía Björt sem er tíu ára, hafa
þurft að búa við þetta fyrirkomu-
lag frá því í sumar. „Þetta er ekk-
ert auðvelt fyrir þær,“ segir Guð-
björg meðan hún klippir
viðskiptavin sem kominn er frá
Tálknafirði til að láta hana fara
höndum um hár sitt. „Þau eru líka
þung skrefin fyrir mig þegar ég
þarf að hafa mig af stað suður,“
segir Jón Hákon.
Þótt vestfirskir sjómenn hafi
mátt búa við álíka örlög heila ævi á
árum áður ætla þau hjúin ekki að
una þessu lengi. „Ég er að vonast
til að atvinnumálin vænkist á
Bíldudal, þá fer ég vestur alveg um
leið. Nú fer kalkþörungaverk-
smiðjan að fara á fullt svo vonir
manns glæðast vissulega við það.
Nú, ég tala nú ekki um ef af olíu-
hreinsunarstöðinni verður. Eflaust
þyrfti þá Húsasmiðjan útibú á
Bíldudal, þá er ég með lausnina við
því,“ segir hann og hlær. „Ef ekk-
ert gerist í þeim atvinnumálum þá
kemur Guðbjörg með stelpurnar
suður þegar skólanum lýkur, það
er ekkert annað að gera.“
Þessir 384 kílómetrar sem skilja
heimili hans frá vinnustaðnum eru
síður en svo greiðfarnir. „Ég held
ég sé búinn að eyðileggja fjögur
dekk á þessu,“ segir hann og hlær
við. Og nú er sá tími genginn í garð
að það þykir ekkert sjálfsagt að
fært sé yfir Klettsháls eða aðrar
heiðar á leiðinni vestur og því ekk-
ert sjálfgefið að Jón Hákon komist
heim til að njóta frídaganna þegar
að þeim kemur.
Jón Hákon er alls ekki eini Bíld-
dælingurinn sem þarf að ferðast til
vinnu sinnar. „Það eru nokkrir sem
vinna í vegavinnu í Kollafirði og
svo er það einn sem hefur verið að
róa frá Grindavík í árafjöld,“ segir
Jón Hákon.
En hvar svo sem Jón Hákon
sækir vinnu í framtíðinni og hvar
sem þau hengja hattinn er alveg
víst hvert vilji þeirra stefnir. „Við
viljum eiga heima hér á Bíldudal,“
segir Guðbjörg. jse@frettabladid.is
Heim frá Arnarfirði til
vinnu í Skútuvogi
JÓN HÁKON ÁGÚSTSSON Í HÚSASMIÐJUNNI Það er eins gott að það sé gaman í vinnunni hjá Jóni Hákoni því hann þarf að leggja
að baki eina 384 kílómetra til að komast í hana heiman frá sér úr Arnarfirðinum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
GUÐBJÖRG J. THEÓDÓRS Í hártískuhús-
inu Centrum á Bíldudal.
BÍLDUDALUR Vonast er til að atvinnuástandið batni á staðnum.
„Ég var að koma aftur frá Gaza-svæðinu og
get sagt þér hvað er að frétta þaðan,“ segir
Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og formaður
Íslands-Palestínu.
„Ég varð ekki var við aðra gesti á hótelinu
mínu, því ég var kominn inn í eitt stórt fang-
elsi. Þarna vantar allar helstu nauðsynjar,
þar með talin næstum öll lyf og matvæli eru
af mjög skornum skammti. Alla varahluti
vantar fyrir rafeindatæki og allt þetta gerir að
verkum að heilbrigðisþjónustan er lítil sem
engin,“ segir Sveinn.
Ísraelsmenn hafi hótað að taka rafmagnið
af svæðinu í byrjun mánaðarins en því hafi
verið frestað til 21. des. með dómsúrskurði.
„Og ef þeir gera það þá stöðvast rafmagns-
dælurnar sem pumpa söltu drykkjarvatninu
úr brunnum, fyrir utan dælurnar sem pumpa
skólpi.“
Sveinn hefur ferðast öðru hvoru
til Palestínu allar götur síðan
1990. Hann segir ástandið
aldrei hafa verið jafn ömurlegt.
„Þetta er einhvern veginn allt
öðruvísi núna því það er verið
að banna fólki allar bjargir.
Það segir sig sjálft að þegar vatn
og rafmagn er tekið af fólki þá
er ekki mikið eftir. Það er alveg
ótrúlegt ef heimurinn ætlar að
horfa upp á þessar aðfarir án þess
að gera nokkuð. Á sama
tíma og menn þykjast
vera að ræða frið og
friðsam legar lausnir
á málunum er fólk
að deyja fyrir hendi
Ísraelshers. Það
var alveg voðalegt að koma
þarna og að sjá að ástandið er
jafn ægilegt og raun ber vitni.“
Á Gaza-svæðinu er yfir 70
prósenta atvinnuleysi og 80
prósent lifa undir hungur-
mörkum, segir Sveinn. Fólk
lifi á matargjöfum hjálpar-
starfsmanna, sem komast
inn á svæðið öðru hvoru, eftir
duttlungum hersins.
„Ég hvet fólk til að kynna
sér þetta betur á www.
end-gaza-siege.ps,“
segir Sveinn og
kveður.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? SVEINN RÚNAR HAUKSSON, LÆKNIR OG FORMAÐUR ÍSLANDS-PALESTÍNU
Nýkominn aftur frá Gaza-svæðinu
„Ég hef nú ekki sett
mig mikið inn í þetta
mál, en auðvitað er gott
mál ef þeir eru að gera
eitthvað í þessu,“ segir
Ásdís Jóelsdóttir kennari
um aðgerðir ríkisstjórn-
arinnar í þágu öryrkja og
aldraðra, sem kynntar
voru í fyrradag. „Ég á sjálf
aldraða foreldra sem eru
á hjúkrunarheimili og
kannast við allt baslið í
kringum það.“
Samkvæmt yfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar miðast aðgerð-
irnar meðal annars við að skerðing
tryggingabóta vegna tekna maka
verði afnumin og frítekjumark
vegna atvinnutekna
ellilífeyrisþega hækki
í hundrað þúsund
krónur.
Ásdís segist þekkja
vandamál sem tengist
þessum málum, og
líst ágætlega á lausn-
irnar. „Síðan finnst
mér rétt að nefna
það að heimahjálp er
engin lausn, aldraðir
geta fengið þessa
þjónustu en hún
hentar ekkert öllum.
Mér finnst að aldraðir eigi að hafa
rétt á að fara á hjúkrunarheimili,
þeir hafa greitt fyrir það með sínum
sköttum.“
SJÓNARHÓLL
AÐGERÐIR Í ÞÁGU ALDRAÐRA
Gott að þeir geri eitthvað
ÁSDÍS JÓELSDÓTTIR
Kennari.
OPIÐ HÚS
HJÁ SVFR
Föstudaginn 7. desember
MIKIÐ STUÐ - HÚSIÐ OPNAR KL. 20.00
Dagskrá:
::: Séra Pálmi Matthíasson blessar vetrarstarfið
::: Bubbi Morthens kynnir nýju bókina sína
::: Guðmundur Guðjónsson kynnir 2 nýjar bækur
::: Einar Falur og Ingólfur kynna nýja bók
::: Guðmundur formaður segir frá nýjum svæðum SVFR
::: Veiðistaðalýsing, Langá á Mýrum
::: Myndagetraunin magnaða
::: Happahylurinn verður á sínum stað í boði Intersport