Fréttablaðið - 07.12.2007, Blaðsíða 84
7. desember 2007 FÖSTUDAGUR
Saga Elísabetar Jökulsdóttur, Heil-
ræði lásasmiðsins, fjallar um konu
í álögum. Þetta er óvenjuleg bók,
saga höfundarins af kynnum sínum
af trommuleikaranum og hatta-
gerðarmanninum Algea. Þetta er
ástarsaga innan gæsalappa. Óvenju-
legt par hittist í stórborginni New
York þar sem sagan hefst og síðan
berst leikurinn til Íslands, niður í
miðbæ og upp á hálendi, yfir til
Þingvalla og út um allt. Stelpa hittir
strák, stelpa verður brjálæðislega
yfir sig ástfangin, stelpan fær alls
kyns efasemdir og óróa í sálina,
strákurinn reynist vera óttalegur
skíthæll, stelpan veit ekkert hvað
hún á að gera, strákurinn lætur sig
hverfa og stelpan lærir mikilvæga
hluti um sjálfa sig.
Þessi saga ber sterk höfundar-
einkenni svo sem áberandi áherslur
á tilfinningar, vísanir til stjórnleys-
is, töfra og þess líkamlega. Líkt og
síðasta ljóðabók Elísabetar,
Vængjahurðin, er þetta bók um
langanir og að sumu leyti er Heil-
ræði lásasmiðsins eins og skýringar-
texti fyrir önnur verk höfundarins,
að minnsta kosti í ævisögulegu til-
liti. Höfundurinn segir sögu sína á
berorðan og óvæginn hátt, með
blöndu af húmor og sársauka. Þau
eru óneitanlega ólík – hún íslenskur
rithöfundur með alls konar
komplexa, hann framandlegur og
frumstæður útlendingur en lag-
hentur við kvenfólk og saumavélar.
Samlíf þeirra var alls ekki dans á
rósum og persóna Algea er ráðgáta
alla bókina. Elísabet prófar hann
við alls konar hlutverk svo sem
flagarans, afætunnar og galdra-
mannsins – hún veit ekki hvort
hann er raðmorðingi eða maðurinn
sem hún ætlar sér að giftast, djöf-
ull eða draumaprins. Kynþáttahug-
myndir koma mikið við sögu sem
og hugmyndir um hið holdlega en
hvort tveggja jaðrar við þráhyggju
hjá sögukonunni.
Tilfinningar einmanaleikans eru
líklega það sem sameinar þetta ólíka
fólk, Elísabet er líkt og umkringd
vinum – í aðra röndina á kafi í ósk-
hyggju og sjálfsblekkingu en í hina
svo fallega trúuð á hugsjónir ástar-
innar og allt sem þeim fylgir. Hún
fær ráð og ábendingar víða en lása-
smiðurinn rammar inn frásögnina.
Höfundur notar býsna sniðugar lík-
ingar og myndmál í þessari sögu en
margar þeirra vísa til hliða og hurða,
þess að loka inni, læsa og þagga.
Þetta er bráð skemmtileg frásögn á
köflum þó að hún fjalli um graf-
alvarleg efni á borð við flótta, auð-
sveipni, andlegt ofbeldi og þessa
undarlegu merkimiða sem við
hengjum utan á annað fólk. Ég
sveiflaðist milli þess að halda að
sögukonan væri að segja mér óþægi-
lega mikið og þess að vilja vita
meira. Mikilvægasti lærdómurinn
er samt líklega staðfesting þess
hversu hættulegt það er að læsa
sjálfa sig úti. Kristrún Heiða Hauksdóttir
Ástarsaga innan gæsalappa
Ekki er það nafn á bát en fari: í
félagsheimilli SÁÁ í Efstaleiti 7
verða tónleikar í hádeginu, og
hefjast kl. 12.15, þeir þriðju í
röðinni sem ber heitið hér að ofan.
Þær Nína Margrét Grímsdóttir
píanóleikari og Auður Hafsteins-
dóttir fiðluleikari eru þar í
aðalhlutverkum með sveit
nemenda Auðar sér til fulltingis
og flytja verk eftir Pachelbel og
aðra barokkmeistara. Verður hin
kunna Kanóna Pachelbels meðal
annars leikin.
Röðin er samstarfsverkefni
Rásar 2, SÁÁ og er Nína Margrét
listrænn stjórnandi hennar.
Veitingasala er á staðnum og gefst
mönnum úr Háaleiti, Fossvogi og
nærliggjandi hverfum hér
tækifæri á yndislegri stund í
hádeginu. Nærsveitamenn geta
komið bílandi því nóg er af
stæðum við Von og nálægar
byggingar í Efstaleitinu. - pbb
VON103
TÓNLIST Auður leiðir fríða sveit nem-
enda sinna.
Auglýsingasími
– Mest lesið
BÓKMENNTIR
Heilræði lásasmiðsins
Elísabet Jökulsdóttir
★★★
Persónuleg bók ásta og áráttu.
ELÍSABET JÖKULSDÓTTIR SKÁLDKONA Segir sögu af hinum undarlegu merkimiðum
sem við hengjum á annað fólk.
Þjóðleikhúsið
Á öllum sviðum lífsins
Afgreiðsla miðasölu á Hverfisgötu er opin frá kl. 12.30–18.00
mán. og þri. Aðra daga frá kl. 12.30–20.00.
Símapantanir frá kl. 10.00 virka daga.
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is
Hjónabands-
glæpir
Eftirminnilegt verk um
ást og gleymsku
Allra síðustu sýningar
um helgina
eftir Eric-Emmanuel Schmitt
Óhapp!
Stundarfriður okkar tíma
Síðasta sýning sun. 9/12
eftir Bjarna Jónsson
Konan áður
Háski og heitar tilfinningar
á Smíðaverkstæðinu
Sýning sun. 9/12
eftir Roland Schimmelpfennig
Gjafakort Þjóðleikhússins er frábær
gjöf fyrir fjölskyldu og vini.
Gefum góðar stundir
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
7. og 8. des uppselt
30. des
Allt í plati!
Sýning úr söguheimi Sigrúnar Eldjárn
Frábær upplifun fyrir alla fjölskylduna!
Sýningarstjórarnir, Una og Anik,
taka á móti gestum á sunnudaginn kl. 14!
Þetta vilja börnin sjá
Myndskreytingar úr íslenskum barnabókum 2007
Dimmalimm-verðlaun ársins hlaut Sigrún Eldjárn fyrir
bókina Gælur, fælur og þvælur!
Einn og átta
Handgerðir jólasveinar, Grýla og Leppalúði
Alíslensk jólasýning Sunnu Emanúelsdóttur,
alþýðulistakonu, í Kaffi Bergi
Málverkasýning Togga
Þorgrímur Kristmundsson, alþýðulistamaður, sýnir
landslagsmálverk unnin í olíu og vatnslit í Boganum
Listamaðurinn tekur á móti gestum um helgina!
Sýningarnar standa til 13. janúar og eru opnar virka daga frá 11-17
og um helgar frá 13-16. Sími 575 7700.
GERÐUBERG
www.gerduberg.is