Fréttablaðið - 07.12.2007, Blaðsíða 48
● hús&heimili
● STELLA MCCARTNEY Tískuhönnuðir eru yfirleitt
einni árstíð á undan okkur hinum og þar
er Bítladóttirin Stella McCartney engin
undantekning. Meðan við skjálfum af
kulda hérna á skerinu, dúðuð í ullar-
kápur og bryðjandi hálsbrjóstsykur,
hefur McCartney sent frá
sér vor- og sumarlínu
næsta árs og er frem-
ur spör á efnið
eins og sjá má.
Enda kannski
frekar hugsað fyrir
baðstrandarferð
í steikjandi hita en
jeppaferð upp á jökul.
Við bíðum þess tíma með
öndina í hálsinum.
1
2
3
4
5
Frakkar eru það heitasta í ár að
sögn Sighvats og ef verið er að
hugsa um yfirhöfn þá er það frakki
en ekki úlpa eða útijakki. Alveg
sama hvort það er yfir gallabuxur
eða jakkaföt. „Fyrir þremur til
fjórum árum notuðu menn frakk-
ana sína bara spari en nú eru
þeir orðnir aðalyfirhöfnin í stað-
inn fyrir úlpuna, stutta jakkann
eða annað slíkt,“ segir Sighvatur
en tekur fram að það sé svo sem
ekkert nýtt undir sólinni því auð-
vitað komi tískan alltaf aftur.
Sighvatur segir boli gjörsam-
lega vera á útleið og að skyrt-
urnar komi inn í staðinn. „Þetta
hefur verið þróunin síðasta árið
að skyrtan hefur leyst bolina af
hólmi,“ segir Sighvatur og tekur
sem dæmi að í stað þess að vera í
bol undir peysu með v-hálsmáli þá
sé nú málið að vera í skyrtu undir
peysunni. „Þá er auðvitað hægt
að skella bindinu upp líka. Aftur
á móti er það algjört bannorð að
vera í bol undir skyrtunni. Menn
sem vilja vera í bol undir skyrt-
unni hafa meira að segja rifið
bolinn yfir bringuna til að ekki
sjáist í hann,“ segir Sighvatur og
bætir því við að tískan sé að verða
fínni aftur.
Spurður hvað sé að gerast í
bindatískunni, segir Sighvatur:
„Það er allt að gerast í bindunum.
Þau fara mjókkandi og gardínu-
efnin eru að koma inn aftur en við
eigum auðvitað gríðarlegt úrval af
bindum.“
- sig
Frakkar eru málið
●Sighvatur Halldórsson, verslunarstjóri í Herragarðinum í Kringlunni, hefur tískustraum-
ana alveg á hreinu. Hann mælir með því að frakki sé notaður sem alhliða yfirhöfn í dag.
Starfsmaður Herragarðsins skartar
hér millisíðum frakka sem Sighvatur
Halldórsson verslunarstjóri segir að
sé aðalyfirhöfn herramannsins þessa
dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
1. Gallabuxur og stælleg skyrta frá Zink í Smára-
lindinni. Buxur 5.990 krónur og skyrta 4.990 krónur.
2. Tískan er dökk. En þó má hressa upp á svarta
litinn með skemmtilegum fylgihlutum og lífga upp
á stemninguna. Rokkaður tjullkjóll með bleikum borða
fer vel með bleikum skóm. Kjóllinn kostar 5.990 krónur í
Debenhams og skórnir fást líka þar á 2.990 krónur.
3. Svart er inni en einnig er til mikið af fötum í
bjartari litum. Í Debenhams geta ungir herrar
fundið ljósröndótta skyrtu á 2.990 krónur og svo
bláar sparibuxur við á 5.490 krónur.
4. Svartir skór eru ávallt klassískir og
þægilegt að þurfa ekkert að reima.
Svartir skór í Debenhams á 5.490 krónur.
5. Svartar satínbuxur við svartan topp
með púffermum er einföld samsetning sem hægt
væri að rokka upp með t.d bleikum skóm. Buxur
4.490 krónur og toppur 3.990 krónur úr Zink
Smáralind.
Rokkað um jólin
●Svarti liturinn er áberandi í fötum fyrir unglinga í vetur og jólafötin gætu því orðið svört og rokkuð. Svört föt eru þó notadrjúg þannig að jafnvel er
hægt að endurnýta jóladressið í skólann eftir áramótin.
Hönnuður
Nú er verslun Lauru As-
hley í Faxafeni 14 farin að
selja kvenfatnað auk hús-
búnaðarvörunnar sem er
víðfræg.
„Þetta er dömuklæðn-
aður fyrir allan aldur og í
miklu úrvali,“ segir Rósa
Björg Óladóttir verslunar-
stjóri þegar hringt er í
hana og forvitnast um
vöruúrvalið í fatadeildinni.
„Hér eru samkvæmis-
kjólar, aðrir kjólar, yfir-
hafnir og ullarpeysur,
skyrtur, pils, bolir og allt
mögulegt. Við erum með
ilmlínu líka sem hentar
vel til jólagjafa og svo má
nefna tískuskartið, bæði fínlegt og gróft. Það er mjög vinsælt.“
Rósa rifjar upp að Laura Ashley hafi verið með fatadeild á
Snorrabrautinni fyrir nokkrum árum. Nú hafi verið ákveðið
að prófa hana aftur. „Það gengur rosa vel,“ segir hún. „Laura
Ashley er með flotta hönnun. Þar eru margar nýjungar auk þess
sem haldið er í gamlar hefðir og eldri munstur eru endurgerð.“
- gun
Ný hönnun en haldið í gamlar hefðir
Jólakjólar eru meðal þess sem Laura
Ashley býður upp á.
7. DESEMBER 2007 FÖSTUDAGUR2