Fréttablaðið - 07.12.2007, Síða 64

Fréttablaðið - 07.12.2007, Síða 64
BLS. 14 | sirkus | 7. DESEMBER 2007 SPURNINGAKEPPNI sirkuss Rétt svör 1. RommTommTechno 2. Egill Örn Egilsson, eða Eagle Egilsson. 3. Súkkulaði og rósir. 4. Hátíðarskap. 5. Vigdís Grímsdóttir. 6. Ólafur Jóhannesson. 7. Birgir Örn Steinarsson. 8. Pressa 9. Ragnar Bragason. 10.Brasilíumaðurinn Kaká. ■ Davíð Þór 1. RommTommTechno. 2. Man ekki nafnið. 3. Backmann. 4. Möller Jól. 5. Sæunn eitthvað. „Buffið“ Hannes Heimir sigraði Flís-töffarann Davíð Þór Jónsson með glæsibrag. Hannes hlaut níu stig af tíu mögulegum á móti þremur stigum Davíðs. Davíð Þór skorar á Jóel Pálsson saxófónleikara til að binda enda á sigurgöngu Hannesar. 1. Hvað heitir plata Tómasar R. Einarssonar sem kom nýverið út? 2. Hvaða íslendingur hefur leikstýrt þremur þáttum af spennumálaþættinum C.S.I: Miami? 3. Hvað heitir verslunin sem Edda Heiðrún Backman opnaði í tilefni 50 ára afmælis síns? 4. Á dögunum gaf Helga Möller út jólaplötu, hvað heitir platan? 5. Hvað rithöfundur sendi frá sér bókina „Sagan um Bíbí“? 6. Hver er landliðsþjálfari íslenska landsliðsins í knattspyrnu? 7. Hver ritstýrir tímaritinu Monitor? 8. Hvað heitir íslenska spennuþáttaröðin sem hefur göngu sína á Stöð 2 síðar í mánuðinum? 9. Hver leikstýrir áramótaskaupinu í ár? 10. Hver var valinn besti knattspyrnumaður Evrópu nú á dögunum? SPURNINGAKEPPNI SIRKUSS HELDUR GÖNGU SINNI ÁFRAM. HANNES HEIMIR, TROMMULEIKARI HLJÓMSVEITARINNAR BUFF, HEFUR HALDIÐ ÞÉTT Á SPÖÐUNUM OG HEFUR ALLS UNNIÐ NÍU MÓT- HERJA. HÉR REYNIR HANNES VIÐ DAVÍÐ ÞÓR JÓNSSON TÓNLISTARMANN Í HLJÓMSVEITINNI FLÍS. 10 RÉTT SVÖR 3 RÉTT SVÖR■ Hannes Heimir 1. RommTommTechno. 2. Eagle Egilsson. 3. Súkkulaði og jarðarber. 4. Hátíðarskap. 5. Vigdís Grímsdóttir. 6. Ólafur Jóhannesson. 7. Birgir Örn Steinarsson. 8. Pressa. 9. Ragnar Bragason. 10.Kaká. 6. Hef ekki hugmynd. 7. Birgir Örn Mausari. 8. Í heljargreipum. 9. Ragnar Bragason. 10. Ronaldo. RÚDOLF MEÐ RAUÐA NEFIÐ Ferð í IKEA getur hleypt jólahreindýrinu innra með þér af stað. Jólapappír, jólaskraut, jólasvuntur, jólaviskustykki og jólateppi hleypa heilli hreindýrahjörð af stað ef út í það er farið og tæma sömuleiðist budduna fyrir jólin. KLUKKURNAR DINGALINGLING Kláraðu allan jólaundirbúning fyrir 10. desember. Hver veit nema jólunum verði varið á heilsuhælinu í Hveragerði? ILMURINN ÚR ELDHÚSINU ER SVO LOKKANDI Bakaðu tíu smákökutegundir fyrir jólin, spesíur, hálfmána, vanillu- hringi, mömmukökur, piparkökur, sörur, kókostoppa, loftkökur, blúndur og súkkulaðibitakökur. Nýársheitið verður bókað að byrja í ræktinni og ganga í vinnuna. BLIKAR JÓLASTJARNA Gerðu þitt eigið jólaþorp. Upplýst lítil hús með bómullarhnoðr- um og krúttlegir „dverga“- jólasveinar færa jólaland Blómavals í stofuna til þín. HÓ HÓ HÓ Leyfðu jólasveininum í hjarta þínu að blómstra og fjárfestu í jólasveina- húfu sem getur nýst við öll tækifæri. Það verður þó að teljast ólíklegt að auðkenni sveinka kveiki áhuga hjá hinu kyninu. Þegar Fjóla María var í mastersnámi í viðskipt- um og stjórnun í Skotlandi 2003 kviknaði hugmyndin að tölvutöskum sem væru smart en hefðu jafnframt notagildi. Hún klófesti hugmyndina og sleppti ekki takinu á henni fyrr en töskurnar voru komnar í framleiðslu. Nú eru töskurnar komnar til Íslands og fást í Kraumi í Aðalstræti. Fjóla María hefur alltaf haft mikinn áhuga á hönnun og hefur unun af því að sauma og gera mósaík- og þófaverk. „Þegar ég var í Skotlandi var ég með tölvuna mína með mér alla daga. Mig langaði til að hanna fallega tölvutösku fyrir konur, þar sem mjög lítið úrval er af slíkum töskum. Flestar þær töskur sem eru í boði eru úr svörtu gerviefni og hannaðar með karlmenn í huga og fram- leiddar af tölvufyrirtækjunum,“ segir hún. Hugmyndin varð svo að veruleika síðastliðið vor þegar hún komst í samband við framleiðanda í Kína en hún vann með honum í sumar. „Það er mjög gaman og lærdómsríkt að vinna með fólkinu úti þótt tungumálið sé smá vandamál en fólkið hefur mjög góðan enskumælandi túlk svo þetta hefur allt gengið vel, og það er mjög vandvirkt og duglegt. Ég hef einnig notið góðs af því að maðurinn minn á stundum leið um Kína og hefur búið þar og stofnað fyrirtæki og þekkir því ágætlega inn á viðskiptahættina.“ Töskurnar eru úr íslensku roði og áströlsku nautaleðri. „Roðið er ótrúlegt efni og sútunin er einstök í heiminum, þar sem þekkingin hér á sútun á roði og litun á engan sinn líka. Roðið er mjög sterkt og endingargott. Roðinu hefur stundum verið ruglað saman við snákaleður en það getur verið býsna líkt.“ Til að byrja með verður ein gerð af tölvutöskunum sett í sölu en strax eftir áramót koma fleiri á markað. „Tölvutöskurnar verða til í ellefu mismunandi litasamsetningum og úr nílarkarfa-, hlýra- og laxaroði.“ Þess má geta að töskurnar verða einnig fáanlegar á hönnunar- og handverkssýningu í Norræna húsinu 15.-16. desember. martamaria@frettabladid.is FJÓLA MARÍA ÁGÚSTSDÓTTIR LÉT DRAUMINN RÆTAST Hannar töfrandi tölvutöskur LÚXUSEFNI Fjóla María notar íslenskt roð og ástralskt nautaleður í tölvutöskurnar. MYND/ANTON BRINK H annes Smárason er fæddur 25. 11. 1965 og er með lífstöluna fimm. Það gefur honum mikinn kraft og hann er mjög orðheppinn,“ segir spákonan Sigríður Klingenberg um Hannes Smárason, fyrrverandi forstjóra FL Group. „Margir prestar og predikarar með þá lífstölu hafa til dæmis komist langt í lífinu. Fimmurnar eru miklir húmoristar og vilja hafa glens og grín í kringum sig. Þess vegna er alltaf gaman að vera í kringum Hannes og alltaf stuð á honum. Það er alveg sama hvaða snúning fólk ætlar að taka á hann, alltaf mun hann vinna það tafl. Hann er líka þannig gerður að hann vinnur langbest ef hann er króaður af úti í horni og öfugt við marga aðra þá eflir streita hann milljónfalt. Hannes hefur mikla næmni á fólk. Hann vill að það sé skarpt en jafnframt létt og skemmtilegt. Hann hefur sérstaka færni í að velja starfsfólk og samverkamenn og hann þarf aldrei að kvíða því að hann fari á hausinn. Það verður aldrei gúrkutíð í kringum hann og blaðamenn eiga eftir að elska hann í framtíðinni. Innst inni finnst honum það dálítið skemmti- legt. Það er gaman að segja frá því að þar sem hann er nýbúinn að eiga afmæli þá er hann á nýrri árstölu. Það að öll ósköpin hafi gerst núna er honum í vil. Næsta ár verður töluvert á brattann að sækja. En þar sem hann er mikill göngugarpur verður það ekkert mál fyrir hann. Hann verður hins vegar í bestu orkunni sinni árið 2009 og þar á eftir svo bíðið þið bara. Hann á eftir að gera eitthvað stórkostlegt.“ Verður upp á sitt besta 2009 Sigríður Klingenberg spáir í Sirkus www.klingenberg.is HEFUR GAMAN AF HASAR „Það verður aldrei gúrkutíð í kringum hann og blaðamenn eiga eftir að elska hann í framtíðinni. Innst inni finnst honum það dálítið skemmtilegt,“ segir Sigríður Klingen- berg um Hannes Smárason. FJÓLA MARÍA ÁGÚSTSDÓTTIR Lét drauminn rætast og hannaði sínar eigin tölvutöskur. ■ 5 leiðir til að missa tökin í jólaundir- búningnum
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.