Fréttablaðið - 07.12.2007, Blaðsíða 102
66 7. desember 2007 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. teikning af ferli 6. kusk 8. spíra 9.
svelg 11. berist til 12. kryddblanda
14. stoðvirki 16. nafnorð 17. eyða 18.
erlendis 20. gangþófi 21. sjúkdómur.
LÓÐRÉTT
1. ljómi 3. slá 4. hvítingi 5. flík 7. æði-
bunugangs 10. dýrahljóð 13. þakhæð
15. fara aftur 16. nudda 19. ryk.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. graf, 6. ló, 8. ála, 9. iðu,
11. bt, 12. karrí, 14. grind, 16. no, 17.
sóa, 18. úti, 20. il, 21. asmi.
LÓÐRÉTT: 1. blik, 3. rá, 4. albínói,
5. fat, 7. óðagots, 10. urr, 13. ris, 15.
dala, 16. núa, 19. im.
Leikaraparið Álfrún Helga Örn-
ólfsdóttir og Friðrik Friðriksson
eignaðist myndarlega dóttur 29.
nóvember síðastliðinn. Fæðingin
gekk eins og í sögu og þeirri litlu
hefur þegar verið gefið nafnið
Margrét í höfuðið á bæði systur
Álfrúnar og bestu vinkonu
hennar.
„Í augnablikinu sitjum við
mæðg urnar bara saman og horf-
um á snjóinn út um gluggann.
Maður er náttúrlega bara svífandi
um á bleiku skýi og ekki alveg
lentur ennþá,“ segir Álfrún og
hlær. Eins og margir muna líklega
var hún gestur Ragnhildar Stein-
unnar í Laugardagslögunum dag-
inn sem fæðingin var áætluð, 17.
nóvember. Áhyggjur af því að
fæðingin yrði í beinni útsendingu
reyndust algjörlega óþarfar. „Ég
fór tæpar tvær vikur fram yfir
settan fæðingardag og það stóð til
að setja allt af stað daginn eftir að
hún fæddist,“ segir Álfrún.
Álfrún segir að Friðrik standi
sig með prýði í pabbahlutverk-
inu en meðfram því æfir hann
nýtt leikhlutverk þar sem hann
mun fara með eitt aðalhlutverkið
í Vígaguðinum, frönsku leikriti
eftir Yasminu Reza sem verður
frumsýnt í Þjóðleikhúsinu um
miðjan janúar. Álfrún segist hins
vegar ekki enn hafa gert upp við
sig hversu langt frí hún muni
taka sér frá leiksviðinu en
reiknar með að það verði að
minnsta kosti sex mánuðir. „Ég
ætla bara að sjá til hvað ég nenni
lengi að stara á barnið og gefa
brjóst,“ segir Álfrún. „Í augna-
blikinu get ég ekki hugsað mér
að gera neitt annað.“
- sók
Leikaraparið eignaðist dóttur
„Við reynum að stilla á 96,7 til
að fá dálítið af þessum gömlu
jólalögum. Eitt lag sem ég heyri
oft og er stoltur af að hafa verið
hluti af er Hjálpum þeim. Ég
var í kórnum sem söng lagið og
það verður á hverju ári sterkara
í mínu hjarta.“
Jakob Ragnar Garðarsson hárskeri.
BÚIN AÐ NEFNA Dóttir leikaraparsins
Álfrúnar Örnólfsdóttur og Friðriks Frið-
rikssonar hefur fengið nafnið Margrét.
Þeir fimmtíu fyrstu sem
kaupa nýja bók um lista-
manninn Erró fá
óvæntan glaðning.
Þeir fá nefnilega
grafík þrykkt verk
eftir listamanninn
sem eru bæði árituð
og tölusett en her-
legheitin fara fram í
bókabúð Máls og
Menningar á Lauga-
veginum á laugar-
daginn um leið og
búðin er opnuð.
Umrædd bók heitir
Erró í tímaröð –
líf hans og list
og er eftir
Daniellu
Kvaran. Sigurður Pálsson
þýddi bókina sem í
vikunni hlaut til-
nefningu til
íslensku bók-
menntaverðlaun-
anna í flokki
fræðirita.
„Erró er mjög
ánægður með bók-
ina en ákaflega
leiður yfir því að
geta ekki komist til að árita fyrir
jólin. En hann ætlar að koma
eftir jól,“ segir Bryndís Lofts-
dóttir, vörustjóri íslenskra bóka
í Máli og menningu, sem tók á
móti listaverkunum og var ákaf-
lega hissa en glöð yfir gjafmildi
listamannsins. Bryndís segist
ekki óttast að þarna eigi eftir að
myndast örtröð og telur að bóka-
búðirnar séu vel mannaðar nú
þegar jólaösin nálgast óðum
hámarkið.
Og það eru eflaust ansi margir
sem hugsa sér gott til glóðarinn-
ar og gætu vel þegið að slá tvær
flugur í einu höggi. Áætlað er að
verðmæti listaverksins sé í
kringum hundrað þúsund krón-
ur. - fgg
Erró gefur listaverk fyrir fimm milljónir
VERK ERRÓS Þetta grafíkþrykkta verk
verður gefið með fimmtíu fyrstu bókun-
um um Erró en það er bæði tölusett og
áritað af listamanninum.
KEMUR EFTIR JÓL Erró er
víst ákaflega leiður yfir
því að komast ekki til
að árita bókina fyrir
jól en ætlar að
mæta galvaskur
eftir hátíðarnar.
„Svona óþekkt, ef svo má kalla,
hefur löngum verið þekkt í okkar
fjölskyldu. Það má segja að hún sé
mönnum inngróin og Vífill sver sig
því vel í ættina,“ segir Bjarni
Harðar son, alþingismaður og föð-
urbróðir hins 16 ára gamla Vífils
Atlasonar, sem komst í sviðsljósið í
gær fyrir símahrekk sem hann
gerði á Hvíta húsinu um síðustu
helgi.
Vífill var andartökum frá því að
ná beinu sambandi við sjálfan for-
seta Bandaríkjanna, George Bush,
eftir að hafa farið í gegnum hin
ýmsu skiptiborð Hvíta hússins
undir þeim formerkjum að hann
væri Ólafur Ragnar Grímsson, for-
seti Íslands. Eftir að hafa svarað
fjölda spurninga um Ólaf Ragnar
og Ísland með hjálp alfræðivefjar-
ins Wikipedia náði Vífill loks sam-
bandi við einkaritara Bush. Sá bók-
aði símafund forsetanna sem átti
að eiga sér stað klukkan 19 á mánu-
daginn var. Upp komst um gabbið í
tæka tíð og fékk Vífill þess í stað
heimsókn frá lögregluyfirvöldum á
mánudag.
Atli Harðarson, faðir Vífils, sagði
við Fréttablaðið í gær að sonur sinn
hefði ávallt átt auðvelt með að láta
fólk hlæja. Hann viti þó ekki alveg
hvað hann eigi að segja við þessu
nýjasta uppátæki hans. „Móðir hans
ræddi við hann eftir að lögreglan
hafði samband. Hún hló ekki, en við
tökum þessu uppátæki hans nú
ekki svo alvarlega,“ segir Atli.
Yfirvöldum í
Bandaríkj-
unum er
mikið í mun
að komast
að því
hvernig
leynilegt
númer forsetaskrifstofunnar gat
komist í hendur unglingspilts á
Íslandi. Aðspurður segist Vífill ekki
muna hvar honum áskotnaðist síma-
númerið umrædda en hann staðfest-
ir að hann hafi
ekki fengið það
frá Bjarna frænda sínum. „Enda gat
það ekki verið. Það næsta sem ég
hef komist Hvíta húsinu var þegar
ég gekk þar framhjá í sumar sem
ferðamaður,“ sagði Bjarni og hló.
Lögreglan á Akranesi er með
símahrekksmálið á borðinu
hjá sér en hæpið er að ein-
hver eftirmál verði af því.
„Ég get allavega ekki séð
að það sé saknæmt að gera
léttan símahrekk. Ég var
ekki dónalegur og var
ávarpaður sem „herra
forseti“ af starfsmönn-
um Hvíta hússins, trekk
í trekk. Þessi læti hafa
öll verið vel þess virði,“
segir Vífill.
vignir@frettabladid.is
BJARNI HARÐARSON: VÍFILL SVER SIG Í ÆTTINA
Bróðursonur alþingismanns
pantaði símafund með Bush
HREKKJALÓMUR Það kom Vífli Atlasyni mikið á óvart hversu auðvelt það var að ná
beinu sambandi við einkaritara George Bush. FRÉTTABLAÐIÐ/SKESSUHORN
FORSETARNIR
George Bush hafði
ekkert á móti því
að eiga símafund
með Ólafi
Ragnari Gríms-
syni, án þess
að vita nokkuð
um erindið.
BJARNI HARÐARSON Er ánægður með
uppátækjasemi frænda.
Mikil traffík hefur verið inn á síðu
Egils „Gillzeneggers“ Einars-
sonar, gillz.is, eftir
að Drífa Snædal
vakti athygli lög-
reglu á ósæmileg-
um skrifum hans
um fjórar konur
sem m.a. hafa
látið í sér heyra
í tengslum við
aukin réttindi
kvenna. Í
kjölfarið hélt Egill
því fram í Fréttablaðinu að Ásgeir
Kolbeinsson, fjölmiðlamaður með
meiru, væri í raun ábyrgur fyrir
skrifunum sem frétta-
stjóri síðunnar. Ásgeir
reiddist þeim yfirlýs-
ingum Egils mjög og
hefur nú verið birt
leiðrétting á
síðunni þar sem
segir að Ásgeir
sé módel gillz.
is en ekki
fréttastjóri og
hafi ekkert
með skrifin að gera. Hin umdeilda
færsla var fjarlægð en var svo sett
inn á nýjan leik með breyttu sniði.
Síðdegis í gær hafði Egill svo tekið
færsluna út að nýju.
Mentor Reynis
Traustasonar,
ritstjóra DV og forveri,
Jónas Kristjánsson,
tekur í hnakkadramb
lærisveins síns á
blogginu jonas.
is vegna leiðara
sem Reynir skrifaði
í vikunni. Þar fjallar
Reynir af miklu vand-
læti um kröfur vantrú-
aðra um að Lofsöng-
urinn skuli tekinn til
endurskoðunar sem
þjóðsöngur. „Aldrei hef ég lesið
vitlausari leiðara,“ skrifar Jónas og
segir Reyni rugla saman kristni og
siðgæði í „ofstækisleiðara“. Jónas
segir leiðara Reynis
sýna hvar menn
lendi þegar þeir
rugli saman
siðgæði og
kristni.
- jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
Gnoðarvogi 44, s. 588 8686.
Opið 10-18:15 laugardaga 11-14.
Þú færð aðeins það besta hjá okkur
STÓR HUMAR, HÖRPUSKEL, LÚÐA
RISARÆKJUR, SKÖTUSELUR, LAX
NÝLÖGUÐ SJÁVARRÉTTASÚPA.
„...fyrst á visir.is“
...ég sá það á visir.is