Fréttablaðið - 07.12.2007, Blaðsíða 37
[ ]Jóladagatölin opnast nú smám saman eftir því sem nær dregur jólum. Það er líka hægt að telja niður dagana með því að brenna dagatalskerti og ef krakkarnir eiga súkkulaðidagatal er mikilvægt að muna eftir að bursta tennurnar!
Einfaldir og ljúffengir réttir
bjóðast börnum og fullorðnum
af jólahlaðborði Fjölskyldu- og
húsdýragarðsins í Laugardal
um helgar. Grýla sjálf er veislu-
stjóri.
„Þetta er matur og skemmtun
fyrir alla fjölskylduna,“ segir
Unnur Sigurþórsdóttir, starfsmað-
ur Fjölskyldu-og húsdýragarðsins,
um jólahlaðborðin sem þar eru
tvisvar á dag næstu tvær helgar,
klukkan 11 og 14, bæði laugardaga
og sunnudaga. „Fullorðna fólkið á
kost á jólahlaðborðum á veitinga-
stöðum og vinnustöðum og börnin
í sínum skólum en hér eru aldurs-
hóparnir saman,“ bendir hún á.
Óli Hermannsson er matreiðslu-
maðurinn í garðinum og þó að eld-
húsið sé ekki stórt þá afkastar
hann þar miklu. „Ég fæ síldarrétt-
ina tilbúna en annað laga ég mest
sjálfur,“ segir hann og telur upp
helstu rétti á borðinu. „Það er
þetta hefðbundna eins og ham-
borgarhryggur, skorpusteik og
hangikjöt. Einnig kjúklingur og
djúpsteiktur fiskur, rækjur og
reyktur og grafinn lax, alls konar
kartöfluréttir, salöt og brauð. Svo
erum við með möndlugraut,
ávexti, ís og kökur í eftirmat.
Þannig að það þarf enginn að fara
héðan svangur,“ segir hann bros-
andi. Aðspurður segir hann kjötið
áberandi vinsælast.
Unnur segir veislurnar alltaf
hafa heppnast vel. Grýla sjálf sé
veislustjóri og standi sig vel í því
hlutverki. „Hún er kannski svolítið
stríðin en reynir að halda aftur af
sér. Einn af sonum hennar kemur
alltaf með henni og þau gera sitt-
hvað skemmtilegt með veislu-
gestum.“ gun@frettabladid.is
Grýla sjálf er veislustjóri
Börnin syngja sjálf í veislunni og Grýla
fylgist spennt með.
Það er sannkallað jólahlaðborð sem boðið er upp á í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. MYND/UNNUR SIGURÞÓRSDÓTTIR
Auð jörð
RAUÐ JÓL BÚA YFIR ÁKVEÐINNI
MERKINGU SEM MÁ REKJA AFTUR
TIL ÞJÓÐSAGNA JÓNS ÁRNASONAR.
Á vísindavef Háskóla Íslands er
spurt af hverju snjólausum jólum
er lýst sem rauðum jólum í stað til
dæmis svartra jóla.
Svarið við því er að lýsingarorðið
rauður hafi fleiri en eina merkingu
og þar á meðal merkir orðið snjó-
laus og auður, eins
og rauð jörð. Rauð
jól merkja því
snjólaus jörð um
jólin.
Í framhaldi af
því er bent á að í
orðatiltækinu rauð
jól, hvítir páskar, hvít jól, rauð-
ir páskar felist sú trú manna að
væri jörð auð um jól yrði snjór
um páska og öfugt. Orðabók Há-
skólans á elsta dæmið um slíkt
úr þjóðsögum Jóns Árnasonar
(II:564), en líklegast er orðatiltæk-
ið eldra í munni manna.
Í því samhengi má nefna að
svipað orðasamband er til á
dönsku en þá er talað um græn
jól sem hefur þá sömu merking-
una og rauð jól, samanber grøn jul
bringer snehvid påske. Sjá www.
visindavefur.is - rve
Enn betra golf 3
Enn betra golf
Eftir
Arnar Má Ólafsson
landsliðsþjálfara og
Úlfar Jónsson
margfaldan
Íslandsmeistara
og golfkennara
Eftir Arnar Má Ólafsson
landsliðsþjálfara og
Úlfar Jónsson
margfaldan Íslandsmeistar
a
GOLF
ENN BETRABETRA
G
O
LF
ArnarM
ár Ó
lafsson og Úlfar Jónsson
11/20/07 11:46:42 PM
Jólabók golfarans!
Borgartúni 23 · 105 Reykjavík · Sími: 512 7575 - www.heimur.is
eftir Arnar Má Ólafsson og Úlfar Jónsson
Á Laugaveginum fást
Armani úr og skartgripir hjá
Mini hafrafitness
Holtagarðar & Smáralind & Kringlunni
Nú er Jói Fel byrjaður að undirbúa jólin.
Leggjum mikinn metnað í að vera með
ferskt og gómsætt bakkelsi á boðstólum
fyrir viðkiptavini okkar.
Auglýsingasími
– Mest lesið
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki