Fréttablaðið - 07.12.2007, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 07.12.2007, Blaðsíða 24
24 7. desember 2007 FÖSTUDAGUR Activision og Vivendi saman Tölvuleikjaútgáfurnar Activision og Vivendi Games, sem á meðal annars Blizzard Entertainment, ætla að sameinast. Nýja fyrirtækið mun heita Activision Blizzard, og verður að meirihluta í eigu Vivendi. Sameinaða fyrirtækið verður eitt það allra stærsta í leikjaheiminum. Fullyrt er að sameiningin hafi engin áhrif á starfsemi Blizzard, sem gerði meðal annars leikina Warcraft, Dia- blo, Starcraft og World of Warcraft. Jobs talar á Macworld Steve Jobs, forstjóri Apple, mun flytja aðalfyrirlesturinn á Macworld-ráðstefn- unni sem haldin verður í San Francis- co í Bandaríkjunum í byrjun janúar. Búist er við að nýjar vörur verði kynntar á ráðstefnunni og er ný fartölvulína oftast nefnd í því sambandi. Mest leitað að iPhone iPhone var það leitarorð sem oftast var slegið inn í Google á þessu ári samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Facebook lenti í þriðja sæti og YouTube var í því sjötta. iPhone-síminn var fyrst kynntur í janúar á þessu ári, og kom út í Bandaríkjunum í júní. Facebook biðst afsökunar Stofnandi Facebook hefur beðið notendur afsökunar á því hvernig staðið var að nýju auglýsingakerfi samfélags- vefjarins. Kerfið fylgist með því hvað notendur kaupa í gegnum samstarfsvefi Facebook, og birtir síðan auglýsingar sem tengjast kaupum notenda. Eftir fjölda kvartana hefur Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, nú beðið notendur afsökunar og boðið þeim að slökkva á auglýsingakerfinu ef þeir vilja. taekni@frettabladid.is Vefurinn: StumbleUpon Rápaðu um vefinn með hjálp StumbleUpon. Notendur mæla með sniðugum síðum og birta tengla hingað og þangað á vefnum. www.stumbleupon.com TÆKNIHEIMURINN Tvö ný fjarskiptafyrirtæki bætast í flóruna hér á næsta ári: IceCell og Amitelo. Þau koma bæði frá Sviss, og voru með bestu til- boðin þegar Póst- og fjarskipta- stofnun bauð út rekstur tveggja GSM-kerfa fyrr á þessu ári. Ólafur Sigurvinsson, framkvæmdastjóri IceCell, segir undirbún- ingsvinnu ganga vel og stefnir á að hefja starfsemi í júní á næsta ári. „Núna er í gangi undirbúningsvinna hjá okkur, og síðan förum við af krafti í uppbyggingu GSM-sendanna eftir áramót. Við vorum með þýskt uppsetningarteymi hjá okkur í vikunni að skoða aðstæður og þeim leist mjög vel á þetta,“ segir hann. „Upp- byggingin á netinu fer fram í febrúar og mars, svo taka við prófanir og slíkt, þannig að við erum að stefna á að hefja starfsemi í júní.“ Aðspurður hvaða áhrif innkoma Nova á fjarskiptamarkaðinn hafi á IceCell segir Ólafur að fyrirtækin leggi áherslur á mismunandi þjón- ustu. „Þeir eru að leggja áherslu á þriðju kynslóðina (3G), en við verðum með venjulega GSM- þjónustu á okkar eigin neti. Það verður samt keppt um viðskipta- vini, það er alveg ljóst. Við erum ekkert feimnir við það.“ Ólafur segir að þrátt fyrir að IceCell verði ekki með 3G-þjónustu, í það minnsta ekki til að byrja með, muni fyrirtækið bjóða upp á þjónustu sem ekki hafi sést hér áður. Hann geti þó ekki farið nánar í útfærsluna. „Nokkrir hluthafar okkar koma frá Asíu þannig að við verðum væntanlega að horfa á módel sem eru í gangi þar. Það kemur bara í ljós þegar við ýtum úr vör, en þetta verður alveg glænýtt.“ Að lokum bætir hann við að næsta ár verði mjög áhugavert í farsímaþjónustu- bransanum. „Það er náttúrlega rányrkja í gangi á þessum markaði, en fjörið eykst eftir því sem fleiri fara í loftið. Það sem skiptir öllu máli er að á endanum er það neytand- inn sem græðir.“ TÆKNISPJALL: FJARSKIPTAFYRIRTÆKIÐ ICECELL UNDIRBÝR INNREIÐ SÍNA Á ÍSLENSKAN MARKAÐ Stefna á að hefja starfsemina í júní Ný viðbót við íslenska fjöl- spilunarleikinn EVE Online kom út í fyrradag. Útgáfan gekk ekki snurðulaust fyrir sig því margir notendur lentu í því að geta ekki kveikt á tölvunni sinni eftir uppfærsluna. Trinity, nýrri viðbót við fjölspilunar leikinn EVE Online fylgdi meinleg villa sem gerði fjölmargar tölvur óstarfhæfar. Fyrsta útgáfa viðbótarinnar, sem sett var á netið í fyrradag, eyddi mikilvægri stýrikerfisskrá sem Windows XP þarf til að ræsa sig. Fyrir vikið gátu þeir spilarar sem settu inn gölluðu útgáfuna, og nota Windows XP, ekki kveikt á tölvunni sinni eftir að slökkt var á henni. Til þess að komast aftur inn í Windows þurftu þeir að gera við stýrikerfið með sérstökum upp- setningardisk, eða hreinlega setja það upp aftur. Gallinn var lagaður fljótlega eftir að hann kom í ljós, og er ekki til staðar í þeirri útgáfu Trinity sem er nú á vef EVE Online. Fjöldi spilara hafði þó náð í gölluðu útgáfuna, enda jafnan mikil eftir- vænting eftir nýrri viðbót við leik- inn. Viðbótin er ókeypis eins og aðrar viðbætur við leikinn. Allt frá því leikurinn kom út í maí 2003 hafa fimm eiginlegar viðbætur komið út: Exodus, Cold War Edition, Red Moon Rising og Revelations I og II. Sú nýjung sem helst er hampað í Trinity-viðbótinni er stórbætt grafík. Flikkað hefur verið upp á áferð og útlit geimskipanna í leiknum, sem eru til í yfir fimm hundruð stærðum og gerðum, þannig að þau virðast raunveru- legri. Þess utan eru fimm nýjar tegundir geimskipa kynntar í við- bótinni, sem bætast við þær 25 tegundir sem fyrir voru í leikn- um. Engin svör fengust hjá forsvars- mönnum CCP varðandi gallann þegar Fréttablaðið leitaði eftir því. Á EVE-vefnum er notendum tilkynnt um gallann í frétt, og þeir beðnir að slökkva alls ekki á tölvum sínum sem settu upp göll- uðu útgáfu viðbótarinnar. Þeir sem eiga nú tölvu sem virkar ekki eru beðnir innilega afsökunar. salvar@frettabladid.is Ný EVE-viðbót breytti tölvum í bréfapressur TRINITY Grafíkin hefur verið stórbætt í nýju viðbótinni og fimm nýjum tegundum geimskipa hefur verið bætt við. MYND/CCP Spirit, geimbíll NASA sem staddur er á Mars, hefur loksins náð að losa sig úr jarðvegin- um sem hann hefur verið fastur í síðustu tvær vikur. Vísindamönnum á jörðu niðri tókst að losa bílinn með gamalkunnugri tækni: að juða honum fram og til baka þangað til hann komst af stað. Ævintýrið er þó ekki úti enn því næsta mánuðinn þarf Spirit að keyra 25 metra yfir svipað torfæran jarðveg, til að komast í skjól áður en veturinn hefst á Mars. Þangað þarf hann að komast fyrir 1. janúar, enda eru orkubirgðir bílsins nánast uppurnar vegna ryks á sólarraf- hlöðum hans. - sþs Spirit náði loksins að losa sig: Fastur á Mars vikum saman Geimvísindastofnun Bandaríkjanna, NASA, hefur slegið geimskoti ferjunnar Atlantis á frest vegna bilunar í eldsneytis- tanki. Reynt verður að skjóta geimferjunni á loft í dag, en í ferðinni á að bæta við nýrri álmu í Alþjóðlegu geimstöðina. Samkvæmt fréttavef Reuters er nýja álman, sem heitir Columbus, stærsta framlag evrópsku geimvísindastofnunar- innar, ESA, til geimstöðvarinnar. Upphaflega átti að setja hana upp fyrir fimm árum en Columbia- slysið, þegar geimferja sprakk rétt eftir að henni var skotið á loft, setti strik í reikninginn. - sþs Ætla að bæta við geimstöð: Atlantis bíður eftir geimskoti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.