Fréttablaðið - 07.12.2007, Blaðsíða 40
BLS. 2 | sirkus | 7. DESEMBER 2007
Kaffihús þrí-
eykisins Frið-
riks Weiss-
happel,
Brynjólfs Garð-
arssonar og
Ingvars Stein-
ars „The Laun-
dromat Café“
komst á dögun-
um í ferðahand-
bók tískurisans
Louis Vuitton,
yfir vinsælustu
staðina í Kaup-
mannahöfn.
Ferðabiblían
kemur út árlega
og er veglegt rit
sem selt er í verslunum Louis Vuitton
um allan heim. Í bókinni er heitustu
borgir Evrópu útnefndar og fjallað er
um skemmtilegustu staðina til að
heimsækja í hverri borg. Kaffihús
þeirra félaganna er sagt vera vinsælt,
vinalegt og óvenjulegt og engu líkt.
Lýðhylli „The Laundromat Café“ virð-
ist engan enda ætla að taka því að í
kjölfar útkomu ferðahandbókarinnar
birtist heilsíðu umfjöllun um íslensk
ættaða kaffihúsið í einu stærsta við-
skiptablaði Damerkur, Börsen. „Mér
líður eins og stoltum föður þessa dag-
ana. Það er mikill heiður fyrir okkur
félaga að jafn goðsagnakennt fyrir-
tæki eins og Louis Vuitton
mæli með staðnum okkar.
Við erum í skýjunum yfir
allri jákvæðu umfjölluninni
sem „The Laundromat
Café“ hefur hlotið og þetta
er mikil auglýsing fyrir
okkur, sagði Friðrik Weiss-
happel í gleðivímu enda
hefur hann fulla ástæðu
að brosa út að eyrum
miðað við alla þá hylli
sem staður þeirra
félaga nýtur. Áfram
Ísland.
bergthora@frettabladid.is
■ Heyrst hefur
Útgáfufélag 365 prentmiðlar
Ritstjóri Marta María Jónasdóttir
martamaria@365.is
Bergþóra Magnúsdóttir
bergthora@frettabladid.is
Forsíðumynd Völundur
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir
kristina@frettabladid.is
Sirkusblaðið Skaftahlíð 24
105 Reykjavík, sími 512 5000
MORGUNMATURINN:
Það er alltaf gamli góði hafragrautur-
inn – ég og dóttir mín borðum hann af
bestu lyst á morgnana enda er hann
úr lífrænt ræktuðum höfrum af ökrum
Bretadrottningar.
SKYNDIBITINN:
Hann er á undanhaldi hjá mér en í
látunum er það oft bara það sem að
kjafti kemur sem er algjörlega
skelfilegt.
RÓMÓ ÚT AÐ BORÐA:
Það er margt hérna í London
sem gagnast í rómantíkinni.
Taman Gang er skemmti-
legur veitingastaður
við Park Lane og
Marble Arch sem
mér finnst gaman
að bjóða konunni
minni á.
LÍKAMSRÆKTIN:
Virgin Active er
ræktin sem ég
hef farið í hérna á
Oxford street, rétt
hjá höfuðstöðvum
Believer Music í
London.
BEST VIÐ
BORGINA:
Það besta
við London
er náttúru-
lega það að
hér er hjarta
tónlistariðnaðarins í Evrópu ef ekki
heiminum. Hér er gott að vera ef
menn ætla að ná heimsyfirráðum. En
sveitin hérna fyrir utan London er líka
yndisleg og afslappandi þannig að
hér er „best of both worlds“.
Veturinn er líka ekki alveg eins
myrkur hérna :-)
UPPÁHALDSVERSLUNIN:
Það er alveg sama í hvaða
borg ég kem, alltaf finnst
mér skemmtilegast að
heimsækja Apple-
verslanir.
Borðar hafragraut
í morgunmat
Einar Bárðarson
umboðsmaður
LONDON
The Laundromat Café
og tískurisinn Louis Vuitton
Hárgreiðslumaðurinn Guðmundur
Hallgrímsson og kona hans, Ása
Ninna Pétursdóttir, hafa sett einbýlis-
hús sitt að Frostaskjóli 7 á sölu en þau
eru að flytja til Kaupmannahafnar.
Húsið er rúmlega 180 fm á einni hæð
og byggt 1966. Guðmundur og Ása
Ninna keyptu húsið í byrjun ársins og
hafa lagt mikinn metnað í að gera það
upp.
„Þetta var ótrúlega mikil vinna. Ég
var hérna öllum stundum þegar ég
var ekki að vinna,“ segir Guðmundur
sem mun kveðja húsið með trega
enda hefur hann bundist því miklum
tilfinningaböndum eftir alla vinnuna
sem í það fór. Hann er nefnilega ekki
bara flínkur í að setja strípur og
permanent í fólk heldur kann hann
líka að smíða. Húsið er innréttað eftir
nýjustu húsbúnaðarstraumunum
með splunkunýju eldhúsi
með korean-borðplötu,
gegnheilu eikarplanka-
parketti, tölvustýrðu hita-
kerfi í gólfum og vegg-
fóðruðu baðherbergi.
„Ég á eftir að sakna
hússins,“ segir hann
og vill ekki gefa
meira upp í bili en
eitt er þó víst að
ævintýrin bíða
hinum megin við
hornið og verður
spennandi að sjá
hvað Guðmundur
tekur sér fyrir
hendur í kóngs-
ins Kaupmanna-
höfn.
- mmj
GUÐMUNDUR HALLGRÍMSSON EIGANDI HÁRGREIÐSLUSTOFUNNAR MOJO
SELUR GLÆSILEGA
EIGN SÍNA
FROSTASKJÓL 7 Guðmundur hefur lagt mikinn metnað í að gera húsið sem glæsilegast, en hjónin rifu nánast allt út úr því og flikkuðu upp á það. MYND/PJETUR
NÝMÓÐINS ELDHÚS Eldhúsið er búið
öllum nútímaþægindum, tveir bakaraofn-
ar, innbyggð uppþvottavél og ísskápur.
„Vantar þig far?“
Það er hætt að vera töff að ferðast á
Saga Class, allavega hjá auðmönnum
þjóðarinnar, þar sem það
er orðið jafn sjálfsagt að
eiga einkaþotu og
einkabifreið. Vinir
auðmannanna hafa þó
margir hverjir notið
góðs af þessu því það
þykir orðið arfasmart
að fá „far“ með
auðmönnunum þegar
þeir ferðast landanna á milli. Íbúar
miðbæjarins eru þó ekki jafn sáttir og
sérstaklega ekki íbúar Þingholtanna því
það er varla nú orðið svefnfriður fyrir
einkaþotuumferð en auðmennirnir eru
sjaldnast á ferðinni á skrifstofutíma og
virðist það vera aðalstællinn að yfirgefa
landið að næturlagi. Einkaþoturnar eru
eins og lúxusíbúðir að innan og búnar
helstu þægindum eins og sönnum
auðmannslífi sæmir. Það vaknar enginn
upp með bakverki eða aðra kvilla svo
þægileg eru sætin. Ekki skortir heldur
þjónustuna því þeir allra svölustu eru
með sína eigin flugfreyju.