Fréttablaðið - 07.12.2007, Qupperneq 28
28 7. desember 2007 FÖSTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 613
6.381 -1,99% Velta: 19.265 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 10,00 +0,00% ... Bakkavör
58,40 +0,34% ... Eimskipafélagið 36,30 +0,00% ... Exista 22,45
-2,18% ... FL Group 15,65 -4,28% ... Glitnir 22,90 -1,29% ... Icelandair
27,50 +0,00% ... Kaupþing 852,00 -3,29% ... Landsbankinn 35,40
-1,39% ... Straumur-Burðarás 15,65 +0,00% ... Össur 99,20 -0,80% ...
Teymi 5,90 -2,96%
MESTA HÆKKUN
EIK BANKI 1,89%
MAREL 1,45%
ATLANTIC PETROL. 0,83%
MESTA LÆKKUN
365 6,57%
FL GROUP 4,28%
KAUPÞING 3,29%
Bannað að fara í ræktina
Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings,
hugsar vel um heilsuna eins og fleiri í fjármála-
geiranum. Yfirstjórn Kaupþings á fastan tíma
hjá einkaþjálfara klukkan 11 alla virka daga í
World Class. Sé svigrúm hjá framkvæmdastjór-
unum nýta þeir þennan tíma til æfinga. Nýlega
fór Hreiðar í ræktina eins og vanalega. Þar
hitti hann marga af framkvæmdastjórunum,
forstöðumenn og maura af viðskiptagólfinu.
Eitthvað fannst forstjóranum skrítið að svo
margir starfsmenn bankans væru í ræktinni
á meðan markaðir voru að hrynja í niður-
sveiflunni. Sá hann ástæðu til að senda
út leiðbeinandi tilmæli til starfsmanna
um að ekki væri æskilegt að þeir æfðu
á meðan markaðir væru opnir.
Þegar Róm brennur eiga
menn að slökkva elda en
ekki spila á fiðlu.
Einkaklúbbur auðmanna
Undanfarnir dagar hafa verið þrungnir spennu
fyrir marga fjárfesta. Hlutabréf hafa fallið í
verði og margir tapað háum fjárhæðum. Þá
er nauðsynlegt að geta slappað af í rólegu
umhverfi. Nú hafa efnaðir einstaklingar í
íslensku viðskiptalífi opnað einkaklúbb við
Nýbýlaveg í Kópavogi. Þar er útvöld-
um boðið að gerast meðlimir og
þurfa að punga út hálfri milljón
króna fyrir. Aðstaðan er til fyrir-
myndar; golfhermir, ballskák,
bar og sjónvarpstæki á veggjum.
Allt til alls til að gleyma amstri
dagsins stundarkorn. Þá eru
þarna fundarherbergi til að ræða
mikilvæg mál fjarri augngotum
annarra. Efnaðir einstakl-
ingar verða líka að fá
að leika sér.
Peningaskápurinn …
„Það færist í vöxt að sérstök einka-
hlutafélög séu stofnuð um verð-
bréfaeign eða fasteignir,“ segir
Skúli Jónsson, forstöðumaður
Hlutafélagaskrár, í grein í Tíund,
fréttabréfi Ríkisskattstjóra.
„Einkahlutafélög eru um þriðj-
ungur félaga á skrá,“ segir Skúli,
en frá og með árinu 2004 hafi tæp-
lega tólf þúsund slík félög verið
skráð. Enn sé einnig mikið um að
einstaklingar færi rekstur inn í
einkahlutafélög.
„Það stefnir í enn eitt metár í
skráningu nýrra einkahluta-
félaga,“ segir Skúli.
3.158 ný einkahlutafélög voru
skráð á fyrstu tíu mánuðum árs-
ins. Þetta eru næstum fimm hundr-
uð fleiri skráningar en á sama
tíma í fyrra. - ikh
Stofna hlutafélög
um hús og verðbréf
HÚS Í BYGGINGU Dæmi eru um að
einkahlutafélög séu stofnuð um fast-
eignir einstaklinga.
NÝSKRÁNINGAR
EINKAHLUTAFÉLAGA
2004 2.510
2005 2.942
2006 3.188
2007 3.158
Fjörutíu prósent hlutafjár
í Kauphöllinni eru erlent
fé en ætla má að jafnvel
þrír fjórðu hlutar þeirrar
erlendu fjárfestingar séu
í höndum íslenskra félaga
sem skráð eru erlendis.
Allt upp í helmingur eignarhluta
sumra stærstu fyrirtækjanna í
Kauphöllinni er í eigu erlendra
félaga, sem aftur eru í eigu Íslend-
inga. Yfirleitt er íslenska eignin
geymd í hollenskum félögum.
Stærsti eigandi Kaupþings er til
dæmis hollenska félagið Exista
B.V. Félagið á ríflega 23ja prósenta
hlut í Kaupþingi, en þetta félag er
aftur í eigu Exista sem er íslenskt
félag. Næststærsta félagið er Egla
Invest B.V. sem einnig er skráð í
Hollandi. Félagið má rekja til Ólafs
Ólafssonar, athafnamanns og
stjórnarformanns Samskipa.
Saman lagt eiga þessi félög 32,9
prósenta hlut í Kaupþingi.
Erlend félög í eigu Íslendinga
eiga næstum helmingshlut í Lands-
bankanum. Samson eignarhalds-
félag á 40,73 prósenta hlut, en það
félag er aftur í eigu Samson Global
Holding, sem er í eigu Björgólfs-
feðga. Landsbankinn í Lúxemborg
er svo skráður fyrir 6,59 prósent-
um, en hann er í eigu Landsbank-
ans sjálfs.
Svipaða sögu má segja af Bakka-
vör, en þar á Exista B.V. næstum
fjörutíu prósenta hlut.
Í Glitni eiga hollensk félög í
eigu FL Group ríflega þrjátíu pró-
senta hlut.
Langstærsti hluthafinn í Exista
er svo aftur hollenska félagið
Bakkabraedur Holding B.V. sem
er í eigu bræðranna Lýðs og
Ágústs Guðmundssonar.
Eins er með Alfesca. Þar er
stærsti hluthafinn Kjalar Invest
B.V. Félagið verður aftur rakið til
Ólafs Ólafssonar.
Straumur Burðarás er í meiri-
hlutaeigu Samson Global Holdings
og hluta í vörslu Landsbankans í
Lúxemborg.
Undantekningin í hópi stærstu
félaga virðist vera Icelandic
Group. Þar á Fjárfestingafélagið
Grettir ríflega 28 prósenta hlut.
Grettir er í eigu Hansa, sem skráð
er hér á landi. Eigandi Hansa er
Björgólfur Guðmundsson. Hins
vegar á þýska félagið FAB rúm
tuttugu prósent. Eftir því sem
næst verður komist er félagið í
eigu Finnboga Baldvinssonar.
Óljóst er hvernig hlutir skiptast
í FL Group en þar var stærsti hlut-
hafinn félag Hannesar Smára-
sonar, Oddaflug B.V.
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallarinnar, sagði í Frétta-
blaðinu í gær að erlend fjárfesting
hefði aukist í Kauphöllinni.
Hún hefði numið 41 prósenti í
september og hefði aukist tölu-
vert frá sama tíma í fyrra. Aukn-
ingin væri merki um aukna
erlenda fjárfestingu hér, en erfitt
væri að komast að því hversu
mikið væri í raun í eigu Íslend-
inga.
Friðrik Már Baldursson hag-
fræðiprófessor fullyrti að töluvert
væri um þetta fyrirkomulag
eignar halds. Það yrði einkum
rakið til skattamála.
ingimar@frettabladid.is
Erlent fé í Kauphöllinni
á sér íslenskar rætur
KAUPHÖLLIN Mikið af því sem skráð er sem erlend fjárfesting reynist vera íslenskt fé.
Kaupþing 32,9%
Landsbanki 47,32%
Bakkavör 39,63%
Glitnir 30,85%
Exista 45,21%
Alfesca 39,67%
Straumur 57,04
Icelandic 20,22%
FL 20,59%
Hlutföll miðast við 29. nóvember.
MARKAÐSFRÉTTIR
Landsmenn verða 437.844 árið 2050
samkvæmt spá Hagstofu Íslands
um mannfjölda fyrir tímabilið 2007
til 2050. Gert er ráð fyrir því að
árleg fjölgun íbúa verði um 0,8% á
tímabilinu.
Matsfyrirtækið Fitch Ratings lækkaði í
gær lánshæfismat hollenska bankans
NIBC, sem Kaupþing er að kaupa, úr
A í A- vegna langtímaskuldbindinga
og úr F1 í F2 vegna skammtíma-
skulda.
Bankastjórn evrópska seðlabankans
ákvað í gær að halda stýrivöxtum
óbreyttum í fjórum prósentum. Eng-
landsbanki lækkaði sína stýrivexti úr
5,75 prósent í 5,5 prósent.
Ekki verður farin bráðabirgðaleið
í skráningu hlutabréfa í evrum í
Kauphöll Íslands. Þess í stað á
endanleg lausn með aðkomu Seðla-
banka Finnlands að vera tilbúin
fyrir mitt næsta ár.
Þetta kemur fram í tilkynningu
Verbréfaskráningar Íslands til
Kauphallar í gær. Hér er lagaum-
hverfi túlkað svo að uppgjör með
verðbréf megi ekki eiga sér stað
nema fyrir tilstilli Seðlabanka
Íslands. Til þess að hann geti ann-
ast slíkt uppgjör í evrum þarf
bankinn fyrirgreiðslu evrubanka
sem tryggt gæti honum aðgang að
gjaldmiðlinum. Seðlabankinn leit-
aði til Deutsche Bank um
slíka fyrirgreiðslu
og hefur svars
þaðan verið
beðið um
nokkurt
skeið. Þaðan
barst svo í
gær afsvar. „Þessi niðurstaða
veldur því að fyrirhuguð bráða-
birgðalausn er fallin á tíma. Verð-
bréfaskráning mun nú einbeita sér
að því að innleiða endanlegt fyrir-
komulag til uppgjörs á verðbréfa-
viðskiptum í evrum. Gert er ráð
fyrir að það verði tilbúið um mitt
næsta ár. Endanleg dagsetning
mun liggja fyrir um áramót,“ segir
í tilkynningu.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins liggur skýringin á áhuga-
leysi Deutsche Bank helst í því að
bráðabirgðalausn sú sem stefnt
var að er nokkuð flókin og
umfangsmikil
vegna örygg-
iskrafna. Því
hafi bankinn
ekki viljað
leggja í svo
mikla vinnu við
framkvæmdina.
- óká
Evruskráning frestast
Deutsche Bank vill ekki styðja Seðlabanka Íslands.
FJÖLTÆKNISKÓLI ÍSLANDS HÁTEIGSVEGI FTI@FTI.IS
30 rúmlesta réttindanámskeið
Kennd eru þau grundvallarfög sem þarf til að öðlast skipstjórnarréttindi.
Enn eru nokkur sæti laus á námskeið sem hefjast um helgina.
GPS námskeið - tilvalin jólagjöf
Almennt námskeið fyrir byrjendur og þá sem vilja upprifjun.
Nánari upplýsingar á www.fti.is og í síma 522 3300
námskeið í Fjöltækniskólanum
Spennandi