Fréttablaðið - 07.12.2007, Síða 74
7. desember 2007 FÖSTUDAGUR
Loksins á
íslensku!
Sjónvarpsmyndin
Skólasöngleikurinn -
High School Musical -
hefur slegið í gegn um
allan heim og nú geta
íslenskir aðdáendur loks
lesið um ævintýri Troys,
Gabriellu og hinna
krakkanna í East High
skólanum.
Galdrastelpur
í vanda
Grænir töfrar er fjórða
bókin í bókaflokknum
eftir Lene Kaaberbøl um
Galdrastelpurnar. Þessi
bók fjallar um Cornelíu
og dularfullar aðstæður
sem hún lendir í.
Er hún búin að missa
tökin á sambandi sínu
við jörðina? Hvaða
hræðslulega rödd berg-
málar í höfði hennar?
Þrettán nýjar
jólasögur!
Spennandi
textabók um
galdrastelpur!
Jack Sparrow
og félagar enn
á ferð!
Byggð á sjón-
varpsmyndinni
vinsælu!
Syrpa í
innbundinni
hátíðarútgáfu!
Nýjar, spennandi og
bráðfyndnar myndasögur
sem koma öllum í gott
jólaskap. Vinir okkar í
Andabæ undirbúa jólin af
kappi og lenda í ýmsum
óvæntum og skemmti-
legum ævintýrum.
Ævintýrið
heldur áfram
Á hjara veraldar segir frá
nýjustu ævintýrum
sjóræningja
Karíbahafsins.
Óborganleg saga þar sem
sjóræningjar, skrímsli,
hetjur og óþokkar leika
lausum hala og spenna,
grín og gaman skapar
kostulega atburðarás!
UMRÆÐAN
Kynjafræði
Í dag verður haldin árleg félagsvísinda-
ráðstefna Háskóla
Íslands, Þjóðarspegill-
inn. Fjölmargir áhuga-
verðir fyrirlestrar verða
á dagskrá, þar með talin
málstofa í kynjafræði
auk þess sem kynja-
fræðilegar rannsóknir
verða kynntar í fleiri málstofum.
Meðan félagsvísindi eru þekkt
hugtak meðal almennings er
kynjafræðin minna þekkt. Kynja-
fræðilegt sjónarhorn er til innan
flestra fræðigreina og felst í því
að þverfræðilegu sjónarhorni er
beitt til þess að skoða birtingar-
myndir kyns í öllum sínum marg-
breytileika. Gagnrýnni nálgun er
beitt á söguna og samtímann, mis-
munandi menningarsvæði og sam-
félög, tungumál og vísindi, og ekki
síst fræðasviðið sjálft. Hraustleg
sjálfsgagnrýni er eitt megin-
einkenni kynjafræðinnar og
fræðingar takast þar á af miklum
krafti.
Þetta kom glögglega í ljós á ráð-
stefnu Rannsóknastofu í kvenna-
og kynjafræði 10.-11. nóvember
sl. en það var glæsilegasta kynja-
fræðiráðstefna hérlendis fram til
þessa.
Útilokun og þöggun
Í upphafi snerust fræðin aðallega
um útilokun kvenna og sjónarmiða
þeirra frá þátttöku og hlutdeild í
samfélaginu. Bríet Bjarnhéðins-
dóttir var t.d. ásökuð fyrir
„heimtufrekju“ þegar hún lagði til
að 150 kr. yrði veitt í sundkennslu
kvenna á sínum fyrsta bæjar-
stjórnarfundi árið 1908 en þá var
450 kr. þegar veitt í sundkennslu
karla. Svipuð viðbrögð fékk þing-
frumvarp Ingibjargar H. Bjarna-
son árið 1927 um að konur fengju
sæti í nefndum á vegum ríkisins
þar sem karlar voru einráðir.
Frumvarpið var fellt og það sjónar-
mið heyrðist að með tillögunni
væri verið að „gera konur rétt-
hærri en karla“ (!!). Þá má nefna
fyrsta íslenska kvendoktorinn,
Björgu C. Þorláksson, sem bjó við
ævilanga útilokun og þöggun.
Formlegri útilokun af þessu tagi
hefur verið hnekkt í okkar heims-
hluta en við hefur tekið
undirskipun sem birtist í
því að konur og það sem
tengt er kvenleika er iðu-
lega skör neðar í sam-
félagsstiganum en karlar
og það sem tengt er karl-
mennsku.
Mikilvægur hluti kynja-
fræðinnar er menningar-
og vísindarýni. Mörg
dæmi eru um kynjaslag-
síðu í vísindagreinum
þótt þær líti á sig sem
kynhlutlausar og styðjist við við-
tekna aðferðafræði. Einn partur
af því er myndmál og líkingar og
þekktasta dæmið er líklega rann-
sóknir mannfræðingsins Emily
Martin á orðræðunni um sæðið og
eggið. Hún lýsti hvernig fjallað er
skáldlega um æxlunarkerfi karla
með tungutaki eins og reðurhúfa,
kóngur og þensluhólf, og mikið
gert úr fjölda sæðisfruma, nýsköp-
un þeirra og framleiðslu. Æxlunar-
kerfi kvenna er hins vegar lýst
sem náttúrugerðu og óvirku, engin
upphafning aðeins slím, vessar,
hrörnun og upplausn. Hjá konun-
um er heldur engin drottning, bara
snípur og húðfellingar.
Gagnrýnin skoðun
Annað stef í fræðunum er gagn-
rýnin skoðun á forsendum vís-
indanna og hugtakinu hlutlægni (í
hversdagsmáli kallað „hlutleysi“).
Skilgreining hefðbundinna vís-
inda er að sjónarhorn sem er
félagslega staðsett sé „skoðun“ en
til þess að verða „þekking“ verði
sjónarhornið að vera óháð stað og
stund, ómengað af hagsmunum og
gildum. Róttæk fræði hafa bent á
að þetta meinta „hlutlausa“ sjónar-
horn byggi á hugmyndinni um hið
alsjáandi auga en það sjónarhorn
er vandfundið því enginn einstakl-
ingur er hafinn yfir stund og stað.
Þessu ætti ekki að afneita heldur
skoða eigin staðsetningu gagnrýn-
um augum og takast á við slagsíð-
una. Þetta gildir um vísindamenn
en ekki síður um fjölmiðlamenn
sem hafa það mikilvæga verkefni
að upplýsa og fræða.
Ráðandi hópar hafa löngum haft
vald til að skilgreina sitt eigið
sjónar horn sem hina sönnu þekk-
ingu en verið ómeðvitaðir um eigin
slagsíðu og gildi. Þannig er saga
stríðsátaka alla jafna saga sigur-
vegaranna. Hóparnir með skil-
greiningarvaldið hafa gjarnan
verið hvítir, vestrænir, gagnkyn-
hneigðir, ófatlaðir einstaklingar –
karlar oftar en konur. Hversdags-
legt tungutak sýnir þetta vel og
gefur oft til kynna ómeðvitaða for-
réttindastöðu og aðgreiningu. Til
dæmis þýðir hugtakið „litað fólk” í
daglegu tali hörundsdökkir, rétt
eins og hvítt sé ekki litur. Orðið
„maður“ á að ná til beggja kynja en
útilokar oft konur, til dæmis er ekki
hægt að segja „þarna gengur
óléttur maður eftir Tjarnarbakkan-
um“. Enginn tekur eftir kyni guðs
fyrr en einhverjum dettur í hug að
guð sé kona og fleira mætti telja.
Að víkka sjóndeildarhringinn
Kynjafræði er hluti af fræðum
margbreytileikans eins og fjöl-
menningarfræði, hinseginfræði,
fötlunarfræði, o.fl. Sú afstaða
byggist á því að hópar sem eru á
jaðrinum í einhverri merkingu,
vegna uppruna, fötlunar, kyn-
hneigðar, aldurs eða annarra
þátta, hafi annað sjónarhorn en
þeir sem eru staðsettir í „miðju
alheimsins“ með vald til að skil-
greina og túlka heiminn. Leitast
er við að skoða heiminn frá sjónar-
horni jaðarhópa til þess að
afbyggja valdakerfi og ryðja
braut fyrir lýðræðislegra sam-
félag. Þetta kallast á við nýjustu
hugmyndir í hagnýtu jafnréttis-
starfi sem ganga út á jafnrétti í
víðum skilningi, jafnrétti allra.
Kynjafræði er því ekki stunduð í
eiginhagsmunaskyni fyrir konur
eins og sumir virðast halda. Þeir
sem vilja kynna sér kynjafræði
ættu endilega að koma á Þjóðar-
spegilinn í Háskóla Íslands á
föstudag. Aldrei of seint að víkka
sjóndeildarhringinn.
Höfundur er doktor í félagsfræði
og dósent í kynjafræði við
Háskóla Íslands.
Kynjafræði í Þjóðarspegli
ÞORGERÐUR
EINARSDÓTTIR
Ráðandi hópar hafa löngum
haft vald til að skilgreina sitt
eigið sjónarhorn sem hina
sönnu þekkingu en verið
ómeðvitaðir um eigin slagsíðu
og gildi. Þannig er saga stríðs-
átaka alla jafna saga sigur-
vegaranna.
Gleðileg jól?
UMRÆÐAN
Skerðing á lífeyri
Það var í skyndi sem ég tók ákvörðun um að senda grein til Fréttablaðsins, í
kjölfar greinar í 24 stundum miðvikudag-
inn 4. desember. Með þessari grein vil ég
allra fremst vekja umræðu á skertum
lífeyristekjum öryrkja þessi mánaðamót-
in.
Málin standa nú þannig að móðir mín er
í þeirri stöðu að vera 75% öryrki og hefur
verið það frá því ég var kornung. Tókst
henni, með miklu fjárhagslegu erfiði, að koma upp
þremur heilbrigðum þjóðfélagsþegnum sem
einstæð móðir, og ofan á allt öryrki. Það tel ég vera
aðdáunarvert.
Æskan mín einkenndist ekki af hljóðfærakennslu
né mikilli íþróttaiðkun, þar sem allt slíkt krefst
fjárútláta en í dag lítur út fyrir að þetta sé eitthvað
sem allar fjölskyldur geti leyft sér. Hún hafði
mikið fyrir að ná endum saman hver mánaðamót
og jafnframt að láta okkur ekki finna fyrir að
erfiðleikar voru til staðar. Jólin voru nú jafnframt
haldin ár hvert, góður matur á borðum og pakkar
undir trjánum, en alltaf eftir jólin féll maður í
skuggann af vinum sínum þegar talið var upp
hverjar jólagjafirnar voru. Þó svo að nýlega hafi
móður minni verið tilkynnt að henni hafi verið
ofgreiddar 3.000 krónur á mánuði í fleiri ár var
samt alltaf þörf til að leita hjálpar mæðrastofnunar
og kirkjunnar fyrir hver jól.
Í dag er staðan allt önnur. Við dætur
hennar þrjár erum allar uppkomnar, ein
búsett í Danmörku, ein nýútskrifaður
kennari og sú þriðja, ég, stundar nám í
sjúkraþjálfun í Háskóla Íslands. Og það
tekur mikið á hana móður mína að hafa
ekkert getað stutt okkur fjárhagslega á
lífsleið okkar, heldur eingöngu getað verið
okkur stoð og stytta þegar mikið reynir á
tilfinningalega. Ég er að öllu þakklát fyrir
að hafa átt svona góða manneskju að. Hún
hefur staðið í endalausri baráttu við
þjóðfélagið og látið vel í sér heyra, en þó
virðist sem aldrei sé hlustað á þessar fáu raddir.
En í dag horfi ég upp á hana niðurdregna og
orkusnauða af endalausri baráttu um peningana,
svo uppgefna á endalausum heimsóknum til
hjálparstofnana og hefur í dag endanlega gefist
upp, gráti næst. Ég fyllist heiftarlegri reiði að sjá
þjóðfélagið umbuna þegnum sínum með eilífum
tekjuskerðingum og þó sérstaklega núna, mánaða-
mótin fyrir jól. Flestir innan þessa þjóðfélagshóps
sjá sér ekki fært að geta borið jólamat á borðin. Ég
get bara hlegið að því hve kaldhæðnislegt það er
þegar sagt er frá í fréttum að við höfum unnið
Norðmenn í lífsgæðabaráttunni meðan ég veit, eins
og eflaust fleiri, að staðan hjá sumum í þjóðfélag-
inu er ekki betri en þetta.
Í dag get ég ekki lengur á mér setið og hef ekki
hjarta í mér að sitja bara og horfa á. Ég veit að til
er fólk sem hugsar það sama og ég, en hvernig
væri nú að gera eitthvað í málunum þannig að við
getum með réttu átt fyrsta sætið á lífsgæðalista
ríkjanna.
Ég óska engum því lífi sem ég hef í stuttu lýst,
en væri þó til í að leyfa þeim sem ákvarða grunn-
laun og tekjur öryrkja og ellilífeyrisþega, að lifa í
hálft ár á þessum tekjum og sjá hvort þeim fyndist
lífið ekki örlítið súrt.
Höfundur er háskólanemi.
GYÐA RÁN
ÁRNADÓTTIR
Ég fyllist heiftarlegri reiði að sjá þjóðfélagið
umbuna þegnum sínum með eilífum tekju-
skerðingum og þó sérstaklega núna, mánaða-
mótin fyrir jól. Flestir innan þessa þjóðfélags-
hóps sjá sér ekki fært að geta borið jólamat á
borðin.