Fréttablaðið - 07.12.2007, Síða 87
FÖSTUDAGUR 7. desember 2007 51
Bloodgroup
Sticky Situation
★★★★
Skemmtilega samsett og dansvæn
rafpoppplata sem einkennist af
flottum lagasmíðum, góðu sándi
og umfram allt miklu stuði. TJ
Páll Óskar
Allt fyrir ástina
★★★★
Æðisleg poppplata um allar hliðar
ástarinnar. Páll Óskar sannar sig
sem einn hreinskilnasti, einlægasti
og sannasti tónlistarmaður þjóðar-
innar. SHA
Birgitta Haukdal
Ein
★★★
Þetta er ljúft og notalegt popp
borið uppi af smekklegum útsetn-
ingum og góðum söng. Og Birg-
itta sýnir að hún er efnilegur laga-
smiður. TJ
Regína Ósk
Ef væri ég...
★★
Bakslag frá síðustu plötu og líður
helst fyrir óspennandi laga- og
textasmíðar og útþynntar útsetn-
ingar. SHA
Hjálmar
Ferðasót
★★★
Þrátt fyrir frábær lög inni á milli
detta gæðin svolítið niður á milli
toppanna á þessari þriðju plötu
Hjálma. Ekki vond plata, en stend-
ur fyrri plötunum nokkuð að baki.
TJ
Mugison
Mugiboogie
★★★★★
Stórvirki sem drepur víða niður
fæti í tónlistarsögunni, en ein-
kennist öðru fremur af flottum
lagasmíðum, kraftmiklum og skap-
andi útsetningum og tilþrifamikl-
um flutningi.
TJ
For a Minor Reflection
Reistu þig við, sólin er...
★★★
Farið er eftir öllum formúlum og
klisjum síðrokksins en samt sem
áður er útkoman snyrtilegur, fag-
mannlegur og spennuþrunginn
frumburður.
SHA
Mr. Silla & Mongoose
Foxbite
★★★
Þrátt fyrir að vera of löng og á köfl-
um ómarkviss er Foxbite athyglis-
verð plata frá efnilegu tvíeyki. Mr.
Silla sýnir að hún er ein af bestu
söngkonum landsins.
TJ
NÝJAR PLÖTUR
Hljómsveitin Hraun, sem tekur á
sunnudag þátt í úrslitum hljóm-
sveitakeppni breska ríkisútvarps-
ins, BBC, ætlar að gefa dómefnd-
inni bókina Ástarsaga úr fjöllunum
eftir Guðrúnu Helgadóttur.
Lagið sem Hraun flytur í keppn-
in heitir einmitt Ástarsaga úr fjöll-
unum og er byggt á þessari sígildu
barnabók. „Við ætlum að taka með
okkur eintök af bókinni og gefa
dómnefndinni eftir að hún hefur til-
kynnt úrslitin,“ segir söngvarinn
Svavar Knútur, sem er mikill aðdá-
andi sögunnar. „Þetta er bók sem
ég las fram og aftur þegar ég var
barn. Lagið er samið vegna þess
hve Guðrún Helgadóttir afgreiðir
tröllkarlinn svolítið ódýrt. Við
karlar erum engin fífl og við erum
ekki tilfinningalausir,“ segir hann í
léttum dúr.
Alls taka fimm hljómsveitir þátt
í úrslitunum og mun sigurvegarinn
spila á stórum tónleikum 15. desem-
ber í tilefni af 75 ára afmæli BBC.
Svavar er ekkert allt of hrifin af
því að hampa sigurlaunum því
árlega jólatónleika Hrauns ber upp
á sama dag. „Við erum ánægðir
með þann árangur sem við erum
búnir að ná og viljum ekkert láta
einhverja heimsfrægð skemma
jólaundirbúninginn. Það er gaman
að fá þetta tækifæri en það sem
mér finnst mest spennandi af þessu
öllu er að fá að hitta hina tónlistar-
mennina. Það er miklu meira gaman
en tal um heimsfrægð og tónleika-
ferðir,“ segir Svavar. - fb
Hraun færir dómnefndinni Ástarsögu
HRAUN Hljómsveitin Hraun tekur þátt í úrslitum hljómsveitakeppninnar á sunnudag-
inn. MYND/MARÍNÓ THORLACIUS
Fær fjölskylda þín endurgreiðslu?
Skráðu fjölskylduna á spron.is fyrir áramót
og þú gætir tryggt henni endurgreiðslu þessa árs!