Fréttablaðið - 20.12.2007, Síða 16

Fréttablaðið - 20.12.2007, Síða 16
 20. desember 2007 FIMMTUDAGUR SUÐUR-KÓREA, AP Lee Myung-bak, frambjóðandi Íhaldsflokksins, vann yfirburðasigur í forseta- kosningunum í Suður-Kóreu í gær. Hann hefur lagt áherslu á efnahagsmálin í kosningabaráttu sinni. Lee hlaut hann tæplega 49 pró- sent atkvæða. Næstur í röðinni varð Chung Dong-young, fram- bjóðandi frjálslyndra, með rúm 26 prósent atkvæða, og þar á eftir kom Lee Hoi-chang, sem er óháð- ur frambjóðandi og hlaut 13,5 prósent samkvæmt útgöngu- spánni. Lee er fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Hyundai-bifreiða- verksmiðjanna og var um tíma borgarstjóri í Seúl, höfuðborg Suður-Kóreu. Kjósendur binda vonir við að honum takist að rétta við efnahag landsins og virðast láta sér í léttu rúmi liggja þótt ásakanir hafi heyrst um kosn- ingasvindl. Undanfarinn áratug hafa stjórnmálamenn úr Frjálslynda flokknum gegnt forsetaembætti í Suður-Kóreu. Fáeinum dögum fyrir kosning- ar samþykkti þing Suður-Kóreu að óháð nefnd skyldi rannsaka ásakanir um að Lee hefði stundað óeðlileg viðskipti með hlutabréf. Rannsókninni á að ljúka fyrir 25. febrúar, þegar hann á að sverja embættiseið sinn. - gb Fyrrverandi bílaframleiðandi verður næsti forseti Suður-Kóreu: Einbeitir sér að efnahagnum SIGRI FAGNAÐ Lee Myun-bak fagnar sigri ásamt eiginkonu sinni, Kim Soon- ok. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580 ÍS L E N S K A /S IA .I S /U T I 39 98 6 12 /0 7 Brettapakkar 20% afsláttur KÓPAVOGUR „Íslenska óperan er sjálfseignarstofnun með samning við ríkisvaldið upp á 176 milljónir á ári,“ segir Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir menntamálaráðherra. Hún segir ennfremur að á sínum tíma hafi verið ákveðið að Óperan færi ekki í nýja tónlistar- og ráðstefnu- húsið, nema kannski með ákveðnar stærri uppfærslur. „Ef Kópavogs- bær er tilbúinn að sjá Óperunni fyrir húsnæði þá heldur samningur ríkis og Óperu auðvitað,“ segir Þor- gerður Katrín. Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, segist hafa rætt málið við mennta-, fjármála- og forsætis- ráðherra. „Engar formlegar umræð- ur hafa átt sér stað en þeir hafa tekið þessum hugmyndum vel, sér- staklega menntamálaráðherra,“ segir Gunnar. Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti samhljóða á fundi sínum á þriðju- daginn viljayfirlýsingu um bygg- ingu óperuhúss í Kópavogi. Í yfir- lýsingunni segir meðal annars að bærinn styðji stofnun einkahlutafé- lags með þátttöku Kópavogsbæjar, fjárfesta og Íslensku óperunnar um byggingu óperuhúss í Kópavogi. Þá er gert ráð fyrir að óperuhúsið verði boðið út sem einkaframkvæmd en nýja félagið sjái um undirbúning verksins sem og taki við störfum undirbúningsnefndar, þar með talda samkeppni um hönnun hússins. Ekki er gert ráð fyrir að Kópa- vogsbær komi að rekstri hússins heldur verði hann í höndum Íslensku óperunnar með stuðningi ríkisvalds- ins en Íslenska óperan er meðal ann- ars rekin með ríkisstyrkjum. Að sögn Stefáns Baldurssonar óperu- stjóra hafa engar umræður farið fram um hvort Óperan fái aukið fjármagn vegna verkefnisins. Hins vegar sé ljóst að núverandi húsnæði sé það lítið að tap sé á rekstri sýn- inga, jafnvel þótt það sé uppselt í öll 450 sæti Óperunnar. Er þá gert ráð fyrir að Óperan flytji starfsemi sína í Kópavog en eins og kunnugt er standa nú yfir framkvæmdir við byggingu nýs tón- listarhúss í Reykjavík. „Því miður hefur Íslensku óper- unni aldrei staðið til boða að fá aðstöðu í tónlistarhúsinu,“ segir Stefán en hann segir frumkvæði að byggingu óperuhúss koma frá Kópa- vogsbæ. Gert er ráð fyrir að kostnaður við byggingu hússins verði um tveir og hálfur milljarður. Til stendur að sal- urinn rúmi átta hundruð gesti og þar verði tvennar svalir. Er áætlað að framkvæmdir geti hafist snemma árs 2008 og að húsið verði tilbúið til notkunar síðla árs 2010. olav@frettabladid.is Reikna með þátt- töku ríkisvaldsins Kópavogsbær, Íslenska óperan og fjárfestar ætla að hefja byggingu óperuhúss snemma á næsta ári. Samningur ríkis og Óperunnar upp á 176 milljóna króna árlegan styrk heldur hvar sem Óperan er, að sögn menntamálaráðherra. SYNGJANDI GLAÐUR BÆJARSTJÓRI Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópa- vogi, getur kannski hlýtt á Hamraborgina í nýja óperuhúsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.