Fréttablaðið - 20.12.2007, Page 22

Fréttablaðið - 20.12.2007, Page 22
nær og fjær „ORÐRÉTT“ Bí bí og blaka Eiginkona fann blað- bera „Við ætlum bara að sjá til þess að konurnar í Kvennaathvarfinu geti haldið vegleg jól,“ segir Anna Lind Magnúsdóttir, einn af eigendum Vatns- virkjans, en þar er ýmislegt í pípunum. „Við borgum jólamatinn, gjafir svo þær geti gefið börnum sínum og svo fá þær gjafakort í Kringluna. Undanfarin ár höfum við gefið viðskiptavinum okkar eitt og annað en að þessu sinni höfum við ákveðið að bjóða þeim í mat en láta konurnar fá gjafirnar sem verulega hafa þörf fyrir þær. Þetta er sennilega ekki slæm hugmynd fyrir bankana sem gefa þeim heil ósköp sem nóg hafa fyrir. En mikill vill meira svo það er betra að gleðja með því að gefa þangað þar sem þörfin er til staðar.“ Vatnsvirkinn er þjónustufyrirtæki fyrir pípulagn- ingamenn, vatnsveitur og almenna neytendur. Matarveislan er aðeins fyrir pípulagningamennina en það eru um 200 munnar. Anna Linda segir að níu konur búi nú í Kvennaat- hvarfinu í þremur herbergjum en fleiri konur fá notið gjafa Vatnsvirkjamanna. Anna Linda nefnir þennan þrönga kost sem enn eina af ástæðunum sem þeir geta borið fyrir sig sem kjósa að gefa þeim sem eru í neyð frekar en þeim sem ærið nóg hafa. Hugsa um bágstadda en gleyma ekki kúnnunum Sleppur við jólaundirbúning vegna vinnu Mikil lambahátíð gekk í garð í gær hjá múslimum um allan heim en henni eru samfara margar hefðir sem erfitt getur verið að fylgja eftir hér á landi. Ellefu trúbræður áttu þó ekki í vandræðum með að fá slátrað lömbum með þeim hætti sem hefð gerir ráð fyrir. Í gær var tíundi dagur Dihijja-mánaðar sam- kvæmt dagatali múslima. Það er enginn venjuleg- ur dagur því þá fagna múslimar því að Guð færði Abraham lamb þegar hann ætlaði að fórna syni sínum Ísmael til að sanna trúfestu sína. Eins og biblíufróðir menn vita var lambinu fórnað í stað Ísmaels. Í gær fóru ellefu múslimar búsettir á Íslandi í Sláturhúsið frá Selfossi með leyfi frá landbúnað- arráðuneytinu upp á vasann til að láta slátra nokkrum lömbum með svipuðum hætti og Abraham gerði á sínum tíma. „Þetta er í raun ekki svo ólíkt því sem Íslendingar eru vanir nema hvað að meðan að verið er að slátra segjum við hver eigi lambið og þökkum guði fyrir og slátrum lambinu í hans nafni,“ segir Redouane Adam, einn trúbræðranna. „Svo verður það að fá að hanga í tvo daga.“ En ekki má rífa allt kjötið í sig loks þegar dagarnir tveir eru liðnir því hefðin segir einnig til um það hvernig því skuli skipt. „Við verðum að láta fátæka hafa vissan hluta af kjötinu og við erum nú þegar búnir að ákveða að láta múslimska flóttamenn fá nokkurn hluta en þeir búa í húsnæði í Njarðvík á vegum Félagsþjónustunnar í Reykjanesbæ. Og svo fæ ég mér að sjálfsögðu kjöt með fjölskyldunni minni.“ Hann segir matseldina þá sömu og hjá Íslend- ingum. En hvernig bragðast íslenska lambið? „Það er svolítið feitt en annars bara nokkuð gott,“ segir Adam sem er frá Marokkó. Slátrað að hætti Abrahams Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.