Fréttablaðið - 20.12.2007, Side 32
[Hlutabréf]
Norska fjármálaráðuneytið hefur
samþykkt samruna Glitnis bank
ASA og BNbank. Samruninn sem
kallaður hefur verið Albatross-
verkefnið verður þar af leiðandi á
áætlun og mun ljúka í byrjun mars
á næsta ári að því er fram kom í
tilkynningu til Kauphallar Íslands
í gær.
Sameinuðum banka er einnig
heimilt að yfirtaka öll hlutabréf í
Glitnir Factoring ASA, Glitnir
Securities ASA og 70 prósenta
hluta í Glitnir Property Holding
AS með dótturfyrirtækinu Glitnir
Property Group, sem á fasteigna-
félögin Union Eiendomskapital AS
og Glitnir Norsk Næringsmegling
AS.
Áætlað er að formlegum sam-
runa verði lokið 1. mars á næsta
ári.
Glitnir í Noregi
sameinast BNbank
FL Group tilkynnti í gær um sölu á
11,7 prósenta eignarhlut í finnska
flugfélaginu Finnair og á eftir það
12,7 prósent í félaginu. FL Group
fékk rétt tæpa ellefu milljarða
króna fyrir hlutinn að sögn Hall-
dórs Kristmannssonar, fram-
kvæmdastjóra samskiptasviðs FL
Group. Um fimmtán milljónir
hluta voru seldir á genginu 8 evrur
á hlut.
Í tilkynningu til Kauphallarinn-
ar segir að salan sé liður í stefnu
FL Group að minnka fjárfestingar
í flugrekstri en fyrir söluna áttu
félagið og finnska ríkið um 80 pró-
sent af útistandandi hlutafé félags-
ins. FL Group verður áfram annar
stærsti hluthafi Finnair.
Í hálffimm fréttum Kaupþings
segir að salan á bréfum Finnair sé
jákvæð fyrir FL Group. Reikna
megi með að heildartap á fjárfest-
ingunni í Finnair nemi rúmum 5,8
milljörðum króna á fjórða árs-
fjórðungi að fjármagnskostnaði
slepptum. Innleyst tap af sölunni
nemi um 2,8 milljörðum króna. Til
viðbótar bætist óinnleyst tap á
bréfum sem enn eru í eigu FL
Group upp á rúma þrjá milljarða
króna.
Sex milljarða tap á Finnair
Peningaskápurinn ...
„Ég held ekki að það sé markaðn-
um til framdráttar að menn viti
hvað hver og einn er að gera,“
segir Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallarinnar.
OMX hefur ákveðið að innleiða
auðkennaleysi í viðskiptum frá 26.
maí á næsta ári.
Svo verður á öllum mörkuðum
hér og í Finnlandi. Í Svíþjóð verð-
ur auðkennaleysið bundið við þau
fimm fyrirtæki sem mest er versl-
að með. OMX í Kaupmannahöfn
hyggst hins vegar ekki gera þetta.
Auðkennaleysi þýðir að ekki
sést hverjir eiga í viðskiptum
þegar þau eiga sér stað.
Þórður segir þetta ekki draga úr
gagnsæi því upplýsingarnar birt-
ist eftir á. „Í lok dags. Þá kemur
fram hverjir áttu í viðskiptum,“
segir Þórður.
„Þetta er talið styrkja heilbrigða
verðmyndun. Ekki verður tekið
tillit til þess hverjir eigi í viðskipt-
um. Menn verða að taka ákvarðan-
ir út frá eigin forsendum, en ekki
því sem aðrir eru að gera,“ segir
Þórður og bætir því við að þetta
tíðkist í öllum helstu kauphöllum
austan hafs og vestan.
Nafnlaus viðskipti
FL Group hefur ákveðið að
halda ekki áfram viðræðum við
breska hugbúnaðarfyrirtækið
Inspired Gaming Group um
yfirtöku.
Félagið segir í tilkynningu að
í ljósi núverandi markaðsað-
stæðna hafi verið ákveðið að
gera það ekki að svo stöddu.
FL Group á nú um 19 prósent
í félaginu og hyggst áfram
vinna með stjórn Inspired að
vexti þess. Inspired þróar hug-
búnaðarlausnir fyrir tölvu-
tengdar leikjavélar og hefur
markaðsráðandi stöðu í leikja-
vélum fyrir afþreyingariðnað-
inn í Bretland.
Engin yfirtaka
hjá FL Group
Héraðsdómur hefur fellt
úr gildi ákvörðun Kaup-
hallarinnar frá því í
fyrrahaust um að áminna
Atorku Group og sekta um
2,5 milljónir króna. Kaup-
höllin á að birta dóminn í
fréttaveitu sinni, eða sæta
dagsektum ella. Kauphöllin
birti dóminn þegar í gær,
en hefur, að sögn forstjóra
hennar, ekki ákveðið hvort
dómnum verður áfrýjað.
Ákvörðun Kauphallar Íslands um
að áminna og beita Atorku Group
fjársekt upp á 2,5 milljónir króna
2. október í fyrra var ekki réttum
grunni byggð. Atorka sætti sig ekki
við úrskurð Kauphallarinnar og
vísaði málinu til dómstóla. Dómur
Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu
féll í gær.
„Við förum rækilega yfir þetta
mál með lögfræðingum okkar,“
segir Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallarinnar og býst við að
fljótlega liggi fyrir ákvörðun um
hvort áfrýjað verði til Hæstarétt-
ar.
Að mati Kauphallarinnar var
misræmi milli fyrirsagnar og meg-
inefnis fréttatilkynningar um
afkomu Atorku Group sem birt var
í fréttaveitu Kauphallarinnar í
ágústlok í fyrra. Upp hófust þá
bréfaskriftir og fundahöld milli
Kauphallar og Atorku sem enduðu
með því að leiðrétt tilkynning var
birt 26. september 2006. Kauphöll-
in taldi hana þó enn ekki fullnægj-
andi og því var tekin ákvörðunin
um áminningu og sekt. Héraðsdóm-
ur bendir á að tilkynningin
umdeilda hafi verið í samræmi við
tilkynningu Atorku um uppgjör
fyrsta ársfjórðungs, sem þó hafði
verði birt athugasemdalaust. Í fyr-
irsögn tilkynningarinnar um hálf-
sársuppgjörið var hins vegar dreg-
inn fram hagnaður móðurfélags
Atorku, en ekki samstæðu félags-
ins. Dómurinn bendir hins vegar á
að lykiltölur úr samstæðureikn-
ingnum hafi komið fram í tilkynn-
ingunni og verið framarlega.
Þannig segir dómurinn að þótt
mikil áhersla hafi verið lögð á
afkomu móðurfélags Atorku í leið-
réttri tilkynningu sé ekki hægt að
að fallast á með Kauphöllinni að
þar hafi nær eingöngu verið veittar
upplýsingar um niðurstöðu reikn-
ingsskila móðurfélagsins. „Upp-
lýstum lesanda tilkynningar stefn-
anda [Atorku] 26. september 2006
mátti vera afkoma samstæðunnar
ljós,“ segir dómurinn og bendir
jafnframt á að ekki hafi verið gerð-
ar neinar athugasemdir við reikn-
ingsskil Atorku Group.
„Að því er varðar fyrirsögn til-
kynningarinnar frá 26. september
2006 þá er orðalag ákvæðis 2.1.6, að
í fyrirsögn skuli koma fram efni til-
kynningar, til þess fallið að gefa
útgefendum ákveðið svigrúm, enda
hefur sú verið raunin í tilkynning-
um útgefenda í Kauphöll Íslands að
þeir reyna að draga fram jákvæða
þætti í uppgjörum sínum í fyrir-
sögn,“ segir jafnframt í dómnum.
Auk þess að fella ákvörðun Kaup-
hallarinnar úr gildi og dæma hana
til að bera 600 þúsund króna máls-
kostnað þá er Kauphöllinni gert að
birta dóminn í fréttakerfi hennar
með sama hætti og gert var með
áminningu Atorku. Þetta ákvæði
dómsins uppfyllti Kauphöll Íslands
þegar klukkan þrjú í gærdag, jafn-
vel þótt ekki hafi verið tekin
ákvörðun um áfrýjun.
Dóminn kváðu upp Sigríður Ingv-
arsdóttir héraðsdómari og með-
dómsmennirnir Árni Harðarson
lögmaður og Knútur Þórhallsson,
löggiltur endurskoðandi.
Héraðsdómur ógildir
ákvörðun Kauphallar
LÆKJARGATA 34 C • HAFNARFJÖRÐUR • WWW.GULLSMIDJAN.IS