Fréttablaðið - 20.12.2007, Page 38
38 20. desember 2007 FIMMTUDAGUR
SEND IÐ OKK UR LÍNU
Við hvetj um les end ur til að senda okk ur línu og leggja orð í belg um mál-
efni líð andi stund ar. Grein ar og bréf skulu vera stutt og gagn orð. Ein göngu
er tek ið á móti efni sem sent er frá Skoð ana síð unni á vis ir.is. Þar eru nán ari
leið bein ing ar. Rit stjórn ákveð ur hvort efni birt ist í Frétta blað inu eða Vísi
eða í báð um miðl un um að hluta eða í heild. Áskil inn er rétt ur til leið rétt-
inga og til að stytta efni.
UMRÆÐAN
Efnahagsmál
Í málgagni Sjálf-stæðisflokksins
föstudaginn 14.
desember er viðtal
við Árna M. Mathie-
sen fjármálaráð-
herra, undir yfir-
skriftinni
„Metafgangur og
aðhald aldrei meira“. Fram
kemur hjá ráðherranum að
afgangurinn, tæplega 40 millj-
arðar króna, sé mesti afgangur
sem samþykktur hafi verið við
afgreiðslu fjárlaga. Þessi niður-
staða fáist hvort sem litið er á
fjárhæðina sjálfa eða á hlutfall
tekjuafgangsins sem hlutfall af
landsframleiðslu. Þetta er lík-
lega rétt hjá ráðherranum. Hins
vegar heldur hann því fram að
aðhald hafi aldrei verið meira
við afgreiðslu fjárlaga en nú. Þar
er ekki hægt að vera sammála
fjármálaráðherranum. Mæli-
kvarðinn á aðhald í fjárlögum
getur ekki falist eingöngu í því
hve mikill tekjuafgangurinn er,
þar ber fyrst og fremst að líta til
þróunar útgjalda.
18% hækkun útgjalda
Útgjaldaliður fjárlaga 2008 er
rúmlega 18% hærri en var í fjár-
lögum fyrir árið 2007. Við
afgreiðslu þeirra fjárlaga gagn-
rýndi m.a. Samfylkingin lausa-
tök í ríkisfjármálum, sem væri
fyrst og fremst vegna þess að
2007 væri kosningaár. Það á ekki
við rök að styðjast hjá fjármála-
ráðherra að fjárlög 2008 beri í
sér mesta aðhald sem þekkist í
ríkisfjármálum. Hann getur ekki
leyft sér að slá ryki í augu
almennings með því að benda á
tekjuafganginn sem mælikvarða
á aðhaldið. Þar er beinlínis verið
að blekkja almenning í landinu.
Ef tæplega 20% hækkun á
útgjöldum fjárlaga milli ára kall-
ast meira aðhald en áður í ríkis-
fjármálum, þá er greinarhöfund-
ur að misskilja tilveruna.
Sér fræðingar í efnahagsmálum,
innlendir og erlendir hafa að
undanförnu varað við þróun ríkis-
útgjalda og hvatt ríkisstjórnina
til meira aðhalds. Aðstæður í
efnahagsmálum kalla beinlínis
eftir því. Við framsóknarmenn
erum þeir einu á Alþingi sem
höfum haldið þeim málflutningi
á lofti.
Hvað kom yfir sjálfstæðismenn?
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
lengi gert út á þá ímynd að vera
ábyrgur í ríkisfjármálum og
hver þekkir ekki áróður þeirra
um að vinstri flokkum sé ekki
treystandi í þeim málum. Vinnu-
brögð Sjálfstæðisflokksins í
ríkis fjármálum og efnahags-
málum í núverandi ríkisstjórn
eru ekki í samræmi við þetta nú.
Við framsóknarmenn áttum í
samstarfi við sjálfstæðismenn í
tólf ár, á þeim tíma urðu alger
umskipti í ríkisfjármálum og
efnahagsmálum, eftir þann tíma
stendur ríkissjóður betur en
nokkru sinni. Okkur tókst nánast
að gera upp allar skuldir ríkis-
sjóðs og á þeim tíma var sameigin-
legt markmið flokkanna að halda
vel utan um efnahagsmálin og
halda útgjaldaþenslu fjárlaga í
skefjum.
Framsókn þjóðinni nauðsynleg
Eftir áralangt samstarf við Sjálf-
stæðisflokkinn er erfitt að skilja
hvað hefur komið yfir þann flokk
eftir myndun núverandi ríkis-
stjórnar. Ábyrgðarleysið er nú
allsráðandi og engir
tilburðir til þess að
taka á í efnahags-
málum og vinna
markvisst að þeim
stöðugleika sem
verður að nást í efna-
hagsmálum. Líklega
er ein helsta skýring-
in sú að Sjálfstæðis-
flokkurinn sé í slæm-
um félagsskap, hann
láti til leiðast til að
ausa út fjármunum úr ríkissjóði
þar sem lausatökin eru augljós.
Eða getur verið að komin sé upp
þreyta í Sjálfstæðisflokknum
eftir langt valdatímabil og þeim
þyki þægilegra að vera ekki að
standa í neinu stappi við að halda
aftur af ríkisútgjöldunum? Allt
þetta eru dæmi um það sem ekki
má viðgangast. Sjálfstæðis-
flokkurinn ber höfuð ábyrgð á
ríkisfjármálunum og efnahags-
stjórninni og við framsóknar-
menn þekkjum ekki þau vinnu-
brögð sem nú viðgangast af
þeirra hálfu. Það er augljóst
hvaða flokkur hefur sýnt mesta
ábyrgð í ríkisfjármálum og efna-
hagsmálum síðustu tólf ár. Þjóðin
á eftir að vakna upp við vondan
draum ef fram fer sem horfir og
viðurkenna þá staðreynd að til-
vera Framsóknarflokksins í
landstjórninni er þjóðinni nauð-
synleg og mikilvæg.
Unnið gegn verðbólgumarkmið-
um
Útgjaldaþenslan í ríkisfjármál-
unum eru ekki góð skilaboð í
þær kjaraviðræður sem aðilar
vinnumarkaðarins eiga í um
þessar mundir. Auk þess spilar
ríkisstjórnin algerlega frítt í
baráttunni gegn verðbólgunni.
Réttara væri reyndar að segja
að hún ynni gegn þeim mark-
miðum sem unnið er að. Fram-
göngu ríkisstjórnarinnar má
líkja við knattspyrnumann sem
leggur sig sérstaklega fram við
að skora í eigið mark. Slíkir leik-
menn eru einfaldlega teknir
útaf vellinum og settir á bekk-
inn. Það munu kjósendur gera
við stjórnarflokkana ef þeir
bæta ekki ráð sitt. Stóra spurn-
ingin þegar þetta er skrifað er
sú, hvað mun Seðlabankinn gera
þann 20. desember, þegar bank-
inn tekur næstu ákvörðun um
stýrivexti?
Röng skilaboð
Það er ekki sannleikanum sam-
kvæmt hjá fjármálaráðherra
þegar hann reynir að telja þjóð-
inni trú um að aðhald hafi aldrei
verið meira, þótt svo afgangur
fjárlaga sé svona mikill. Það sem
skiptir máli er þróun útgjalda.
Þessi ummæli fjármálaráðherra
sem fram koma í Morgunblaðinu
14. desember sl. eru til þess fall-
in að senda röng skilaboð út í
samfélagið. Þau eru ekki til þess
fallin að hafa þau áhrif að það
dragi úr þenslu og kröfum um
aukin útgjöld í ríkiskerfinu.
Í öðrum heimi?
Ummæli ráðherrans gefa til
kynna að hann sé í öðrum heimi.
Þau staðfesta það sem við fram-
sóknarmenn höfum haldið fram.
Ríkisstjórnin er algerlega
ábyrgðarlaus í efnahagsmálum
og hefur enga meðvitund um
það sem er að gerast. Það er
almenningur í landinu og
atvinnulífið sem munu taka á
sig byrðarnar af því, með háum
vöxtum og verðbólgu.
Höfundur er þingmaður Fram-
sóknarflokksins.
Ráðherra í
öðrum heimi UMRÆÐANUppeldi
Það yrði undarleg útkoma ef próf
væri lagt fyrir for-
eldra um hvort þeir
væru hæfir til að ala
upp börn, tilbúnir að
standa undir þeirri
ábyrgð og fjárhags-
legu skuldbindingu
sem það krefst og
hvort þeir hafi tíma fyrir börnin
sín. Talið er að 85% af mannkyni
séu alin upp við óæski legar
aðstæður. Það er margt sem er
hreinlega samþykkt í mörgum
þjóðfélögum eins og drykkja for-
eldra innan um börn, það má víst
ekki tala illa um þá sem eru með
sjúkdóminn sem kallaður er alkó-
hólismi. Það er merkilegt að fólk
skuli alltaf standa upp fyrir þeim
en ekki þeim sem alkóhólisminn
bitnar á.
Það er skoðun mín að það sé
andlegt ofbeldi að vera drukkinn
eða í annarri vímu fyrir framan
börnin sín. Það er samþykkt af
alltof mörgum forráðamönnum
barna að vera í áfengisvímu eða
eiturlyfjavímu innan um börn.
Margir álíta líka áfengi miklu
skárra vímuefni en eiturlyf.
Áfengið gerir alveg
sama skaða og fíkni-
efni, oft á hægvirkari
hátt en stundum ekki
á minni hraða. Svo ég
taki dæmi frá heima-
síðu SÁÁ um afleið-
ingar drykkju:“...
áfengissýki [er] talin
sérstakur sjúkdómur
sem þarf sérhæfðrar
meðferðar við. Það
sem áður var talið ein-
kenni um geðveiki eða
geðveilu hjá alkóhólistum er nú
oftar talið afleiðing drykkjunnar
fremur en orsök.“ Þannig að með
áfengisdrykkju er hægt að
áskapa sér geðsjúkdóm. Í beinu
framhaldi af geðveikinni sem
skapast, ætla ég að taka dæmi af
heimasíðu Geðhjálpar þar sem
afleiðingar geðraskana fyrir
aðstandendur eru raktar: Algeng
áhrif geðröskunar á fjölskyldu
eru:
- Reiði
- Ráðleysi
- Skömm
- Ótti
- Sorg
- Vanmáttur
Þegar foreldri, eða forráða-
maður, tekur ákvörðun um að
vera drukkið fyrir framan
barnið sitt þá er það að sam-
þykkja ákveðnar vísindalegar
niðurstöður. Barnið mun að
öllum líkindum læra það sem
fyrir því er haft og verða alkó-
hólisti í framtíðinni eða með-
virkur einstaklingur sem þarf
að upplifa óþarfa áhyggjur og
óhamingju af völdum þess sem
það býr með. Meðvirkt fólk á
auðvelt með að festast í fórnar-
lambshlutverkinu. Fórnarkostn-
aðurinn af því að neita að taka
ábyrgð og vera fullorðinn er
himinhár fyrir börnin sem verða
dramakóngar og -drottningar í
framtíðinni. Afsakanir þeirra
sem neita að fullorðnast og taka
ábyrgð á því að vera foreldri
eru á marga vegu eins og „ég
nenni ekki að vera edrú, það er
svo leiðinlegt“.
Nú er Evrópuráðið farið af
stað með verkefni sem leggur
áherslu á að börn eru líka fólk.
Þetta hefur vantað í umræðuna.
Áður var talið að börn væru eign
foreldra sinna og margir álitu að
þeir gætu hegðað sér hvernig
sem er í návist barna sinna. For-
eldrum ber að uppfylla ákveðnar
þarfir barna, til dæmis að sjá
þeim fyrir mat, húsaskjóli, hrein-
læti og klæðum. Tryggja þarf
öryggi barna. Barnið þarfnast
tilfinningalegrar hlýju, þ.e. að
það sé metið að verðleikum. Örva
þarf vitsmunaþroska barnsins,
til dæmis með því að hvetja það
til náms og aðstoða það við lær-
dóm. Setja þarf barninu mörk,
þannig það kunni að lifa í samfé-
lagi við aðra. Það þarf að sýna
barninu staðfestu, til dæmis með
því að vera innan um þá fjöl-
skyldumeðlimi sem eru barninu
góðir og æskilegir.
Áfengi, fíkniefnaneysla og
óreglulegt líferni dregur veru-
lega úr foreldrahæfni. Þegar
partýið hefur staðið of lengi og
allt er komið í óefni vegna
fátæktar eða vanrækslu, sem
sést langar leiðir á barninu, fær
þetta fólk oft verktaka til að taka
að sér uppeldishlutverkið, það er
fósturforeldra eða upptökuheim-
ili. Það er óþarfi að rekja afleið-
ingarnar af því.
Höfundur er móðir.
Stolin æska
MAGNÚS STEFÁNSSON
Áður var talið að börn væru
eign foreldra sinna og margir
álitu að þeir gætu hegðað sér
hvernig sem er í návist barna
sinna. Foreldrum ber að upp-
fylla ákveðnar þarfir barna.
HALLDÓRA MARÍA
STEINGRÍMSDÓTTIR
Miele ryksugur
á einstöku tilboðsverði
Tilboð:
Kr. 15.990
Fáanlegir fylgihlutir t.d.:
AFSLÁTTUR
35%