Fréttablaðið - 20.12.2007, Page 44

Fréttablaðið - 20.12.2007, Page 44
 20. desember 2007 FIMMTUDAGUR6 Diesel- stráka- náttföt með hliðarvösum. Mjúk og þægileg og fást í versluninni Krakkar í Kringlunni á 3.590 kr. Jól í skókassa GOTT ER AÐ GLEÐJA NÁUNGANN Verkefnið Jól í skókassa er alþjóðlegt verkefni sem felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til að gleðja önnur börn sem búa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir. Gjafirnar eru settar í skókassa og til þess að tryggja að börnin fái öll svipaða jólagjöf er mælst til þess að tilteknir hlutir séu í hverjum kassa. Verkefnið er samvinnuverkefni KFUM og KFUK og Biblíules- hópsins Bleikjunnar. Verkefninu var ýtt úr vör fyrir jólin 2004 og hefur það vaxið jafnt og þétt. Skókassarnir verða nú líkt og síðustu þrjú ár sendir til Úkraínu og verður meðal annars dreift á munaðarleysingjaheimili, barna- spítala og til barna einstæðra mæðra sem búa við sára fátækt. Tekið var á móti skókössum í nóvember og eru þeir nú á leið til barnanna, sem munu væntan- lega gleðjast mikið yfir þeim. Nánari upplýsingar má finna á www.skokassar.net. - hs Í öllum kössunum sem sendir eru til barna úti í heimi er eitthvað svipað. Hjá sumum börnum er það árviss viðburður að fá ný náttföt fyrir jólin. Þá skipa þægindin stóran sess en krúttlegheit skipta líka máli. Barnaföt eru oftast nær þægileg og eru náttfötin þar engin undantekning. Þau eru víð, mjúk og gott að skottast í þeim seint á aðfangadagskvöld eða snemma á jóladag. Þetta er langþægilegasti klæðnaðurinn innanhúss, ekki of heitur eða kaldur og auðvelt að hreyfa sig eða hreinlega liggja eins og skata. Náttfötin fást í ýmsum stærðum og gerðum og geta oft hæft áhugamáli barnsins. Það er til dæmis hægt að fá náttföt með risaeðlumyndum eða Mínu mús, í kínverskum stíl og svo mætti lengi telja. Hér gefur að líta nokkur dúlluleg dæmi um hvað finna má í barnafataverslunum borgarinnar. hrefna@frettabladid.is Jólanótt í notalegum náttfötum Bakhlutinn á bleiku stúlknanáttfötun- um með kínverska sniðinu. Sætt munstur á sæta bossa. Fagurbleik stúlkna náttföt með litlum fiðrildum og maríubjöllum. Fást í versluninni Krakkar á 3.590 kr. Þessi ofurkrúttlegu stelpunáttföt frá Diesel eru með kínversku sniði og fást í verslun- inni Krakkar á 3.990. Bolinn má einnig nota með gallabuxum. Þykk, mjúk og teygjanleg klassísk náttföt með köflum frá Ductus. Þau eru á góðu verði, 2.490 kr., og fást í versluninni Krakkar í Kringlunni. Röndótt og lífleg bómullarnátt- föt með litlum vösum framan á. Litavalið minnir dálítið á áttunda áratuginn og er því smá „retró“ stemning í þeim. Fást í Du pareil au même á 2.290 kr. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Dásamlega grænblár velúrnáttgalli með fallegum myndum af ýmsum blóma- og fiðrildafurðudýrum. Sætur bleyjurass með smellum og hosur fyrir tærnar. Fæst í Du pareil au même á 2.590 kr. Eiturgræn risaeðlunáttföt fyrir alla sanna risaeðlu- áhugamenn. Neðan úr bolnum hangir lítil eðla og eru náttbuxurnar stuttbuxur.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.