Fréttablaðið - 20.12.2007, Side 51

Fréttablaðið - 20.12.2007, Side 51
FIMMTUDAGUR 20. desember 2007 39 UMRÆÐAN Einelti Einelti meðal fullorð-inna er síður en svo einskorðað við vinnu- staði. Segja má að ein- elti geti skotið upp koll- inum í alls kyns aðstæðum þar sem sami hópur hittist reglulega hvort sem hann er skuld- bundinn til þess eða kemur saman til að njóta góðra stunda. Einelti meðal fullorðinna er misgróft og lýtur í raun svipuðum lögmálum og einelti meðal barna og unglinga. Til að flokkast sem einelti þarf að vera um röð atvika að ræða í stað eins ákveðins atburðar. Einelti er skilgreint sem ítrekaðar neikvæðar athafnir sem einn eða fleiri beina gegn öðrum einstaklingi. Neikvæðar athafnir eru sem dæmi aðfinnslur svo sem að gera grín að eða hæðast að viðkomandi. Slíkar aðfinnslur geta verið hvort heldur sem er þegar enginn heyrir til og einnig í viðurvist annarra. Aðrar neikvæðar athafnir eru baktal/róg- burður, að sniðganga, einangra og hafna aðila. Einnig ítrekuð gagn- rýni, athugasemdir, aðfinnslur og ásakanir. Einelti, eins og allt annað ofbeldi, finnst hjá einstaklingum án tillits til efnahags, stéttar, stöðu eða búsetu. Fullorðnir gerendur eineltis eru bæði karlar og konur. Vísbendingar eru um að gerendurnir sjálfir hafi brotna sjálfsmynd og séu ekki allt of öruggir með sjálfa sig. Hvort þeir sjálfir hafi verið lagðir í einelti í bernsku er ekki sjálfgefið. Eins er ekki algilt að gerandinn safni liði. Algengara er þó að hann leggi sig fram um að sannfæra félaga sína um að gerast líka þátttakendur. Við- mót og framkoma gerenda er í mörgum alvarlegustu eineltismál- unum sneydd allri samkennd í garð þolandans. Sé ekki um vinnustaðaeinelti að ræða er markmið gerandans ekki endilega að losna við viðkomandi úr hópnum. Hverfi þolandinn af vett- vangi en gerandinn ekki er ekki óal- gengt að nýr einstaklingur taki stöðu þolanda. Þolendur geta verið af báðum kynjum. Flestir eiga það sameiginlegt að upplifa skömm og finnast þeir jafnvel með einhverj- um hætti hafa kallað þetta yfir sig. Talverðra fordóma gætir í þjóð- félaginu en þeir lýsa sér t.a.m. þannig að sumt fólk hefur tilhneig- ingu til að álykta að sökin liggi að mestu hjá þolandanum. Á meðan fordóma er að finna í samfélaginu er líklegt að einelti meðal fullorðinna haldi áfram að vera falið vandamál. Forvarnir gegn einelti geta verið margvíslegar. Ein hugmynd er sú að mynda samtök sem hafa það að markmiði sínu að sporna gegn og uppræta einelti meðal fullorðinna. Slík samtök gætu haft ýmis hlutverk s.s. að búa til fræðsluefni, standa að fyrirlestrum og halda fundi svo fátt eitt sé nefnt. Ef samtök sem þessi eiga að þrífast þurfa þau helst að samanstanda af einstaklingum með mismunandi bakgrunn og fjölbreytta reynslu. Um getur verið að ræða einstakl- inga sem hafa brennandi áhuga á að uppræta þennan vanda, fólk sem hefur reynslu af því að vera lagt í einelti, aðstandendur þeirra og jafn- vel fyrrum gerendur. Ef samtök sem hér er lýst eiga að geta sinnt svo víðtæku hlutverki er nauðsynlegt að þau starfi í náinni samvinnu við stjórnvöld. Höfundur er sálfræðingur. Einelti fullorðinna ekki bundið við vinnustaði UMRÆÐAN Húsafriðun Það er ekkert nýtt að deilt sé um miðbæ Reykja- víkur. Við munum deilurnar um húsin við bak- arabrekk- una og Amtmannsstíg, sem leiddu til stofnunar Torfusamtakanna. Við munum deilurnar um Smjörhúsið við Hafnarstræti og við skulum ekki gleyma Dillonshúsi sem flutt var frá horni Suðurgötu og Tún- götu og upp á Árbæjarsafn. Þar stendur ekkert hús í dag. Væri ekki ráð að flytja það til baka aftur? Einu sinni sögðu menn að kom- inn væri tími til að setja stífelsi í Tjörnina og flytja hana upp á Árbæjarsafn. Auðvitað var það sagt í gamansömum tón, en segir samt sína sögu um tíðarandann þá. Nú er tekist á um hús á Laugaveg- inum. Hús, sem að margra mati voru byggð af vanefnum. Fyrir utan það að þessi hús eru fjarri því að líkjast sinni upprunalegu mynd. Látum það vera. En þegar við metum, hvort við eigum að halda í hús, eða hafna þeim, verð- um við líka að horfa til þess í hvaða samhengi þau voru byggð og hvaða saga stendur að bygg- ingu þeirra. Það eru mörg hús í nútímanum sem eiga líka skilið að þeim sé sinnt. Ég nefni sérstaklega Nor- ræna húsið í Reykjavík. Það er vel teiknað hús, vel byggt og vel í sveit sett. Samt sem áður hafa menn þrengt verulega að húsinu. Sumir segðu jafnvel að það sé orðið að bílskúr nærliggjandi húsa. Það skiptir ekki meginmáli. Hitt skiptir miklu meira máli, að aldur húsa segir ekkert endilega allt um varðveislugildi þeirra og jafnvel staðsetning þeirra hefur heldur ekki úrslitaþýðingu. Þess vegna var það dálítið sérkennilegt að fundur verndarsamtaka húsa við Laugaveg skyldi haldinn í Boston. Tímanna tákn? Höfundur er þingmaður Sjálfstæðis flokksins í Norðausturkjördæmi. Verndum Lauga- veginn í Boston KOLBRÚN BALDURSDÓTTIR ÓLÖF NORDAL Það eru mörg hús í nútímanum sem eiga líka skilið að þeim sé sinnt. Ég nefni sérstaklega Norræna húsið í Reykjavík. ® ...um land allt!Office 1 Skeifunni17 • Smáralind • Akureyri • Ísafirði • Egilsstöðum • Vestmannaeyjum • Selfossi • Hafnarfirði (Bókabúð Böðvars) Jólaopnunartímar verslana Office 1* *nema í Smáralind - opið samkvæmt opnunartímum Smáralindar 20. des. Fimmtudagur 09:00-22:00 21. des. Föstudagur 09:00-22:00 22. des. Laugardagur 10:00-22:00 23. des. Sunnudagur 10:00-23:00 24. des. Mánudagur 09:00-13:00 Þeir sem versla fyrir 20.000 krónur eða meir í dag fimmtudaginn 20. desember 2007 hjá okkur í Office 1 fá 1GB MP3 spilara að verðmæti 4990 kr. á meðan birgðir endast. FYLGIR FRÍTT MEÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.