Fréttablaðið - 20.12.2007, Page 62
50 20. desember 2007 FIMMTUDAGUR
menning@frettabladid.is
Bókakaffihúsið Glætan var opnað
nýlega í Aðalstræti. Markmiðið er
að bjóða upp á jákvæðan, skemmti-
legan og uppbyggilegan fróðleik
yfir kaffinu.
„Ég gekk með hugmyndina að
bókakaffi í maganum í nokkur ár.
Síðan tók ég þátt í frumkvöðla-
námskeiði fyrir konur hjá Iðn-
tæknistofnun í fyrra, sem nefnist
Brautargengi. Þar gat ég látið
reyna á hugmyndina, þróað hana
og fengið innblástur frá íslensk-
um athafnakonum. Þar varð hug-
myndin enn betri og síðan að veru-
leika,“ segir Sæunn Þórisdóttir,
stofnandi og framkvæmdastjóri
Glætunnar, bókakaffi sem opnaði
nýlega í Aðalstrætinu í miðborg
Reykjavíkur.
„Markmiðið er að bjóða upp á
notalegt umhverfi þar sem jákvæð-
ar, skemmtilegar og uppbyggileg-
ar bækur eru í boði með kaffinu.
Enda þekkja flestir Íslendingar
hvað er gott að drekka gott kaffi
yfir góðri bók,“ segir Sæunn sem
býður upp á fjöldann allan af ensk-
um og íslenskum titlum. „Við erum
til dæmis með mikið af tómstundar-
, lista- og matreiðslubókum. En líka
skáldsögur og barnaefni þar sem
ég er meðal annars að stíla inn á
enskukennslu fyrir krakka. Einnig
erum við með hljóðbækur, mynd-
diska og geisladisk. Síðast en ekki
síst er ég með heilmikið efni fyrir
leiðtoga og stjórnendur og fólk í
viðskiptum. Sú deild á líka eftir að
vaxa því það er fólk sem er sífellt
að reyna að bæta sig,“ segir Sæunn,
en allar bækurnar sem eru til sölu
eru einnig í boði fyrir gesti sem
vilja glugga í bók með kaffinu.
Á neðri hæðinni er að sögn
Sæunnar notaleg setustofa þar sem
hægt er að halda fundi, en þar er
einnig gott úrval af notuðum titlum
á bæði ensku og íslensku.
Auk þess að bjóða upp á kaffi og
bækur eru einnig fjölbreyttar
uppákomur á fimmtudögum, ýmist
tónlist, ljóðalestur eða annað til
skemmtunar. Einnig stefnir Sæunn
á námskeiðahald eftir áramót. „Ég
er með ýmiskonar efni sem tengist
bæn, hugleiðslu og „soaking“ sem
er nýtt form af hugleiðslu. Því er
best lýst sem hugleiðslu með tón-
list og stefnan er að bjóða upp á
námskeið í því eftir áramót.“
Nafn staðarins er að sögn Sæunn-
ar hugarsmíð þriggja kynslóða.
„Við sátum saman og veltum fyrir
okkur nafni þegar einni dætra
minni varð að orði „Glætan“. Afi
hennar var ekki lengi að grípa það
á lofti og eftir stutta umhugsun
voru við öll sátt við nafnið. Enda er
þetta nafn sem fær fólk til að brosa
sem er einmitt eitt af markmiðum
Glætunnar,“ segir Sæunn.
Ásamt kaffi og meðlæti er einn-
ig súpa og brauð í hádeginu og
þráðlaust net. Afgreiðslutími Glæt-
unnar er kl. 8-18 nema á fimmtu-
dögum þegar er opið til 22. Auk
þess verður búðin opin lengur á
aðventunni. Einnig eru fjölmargar
uppákomur í desember að sögn
Sæunnar, bæði tónlist og upplest-
ur.
Glætan er til húsa í Aðalstræti
9. rh@frettabladid.is
Kaffi yfir bók-
unum í bænum
Í miðjum erli aðventunnar býður blússveitin Vinir Dóra upp á
tækifæri til að slaka á og njóta þess að hlusta á lifandi blús. Við fyrstu
sýn kann að virðast sem blúsinn sé ekki sérlega viðeigandi jólatónlist,
en þegar nánar er að gáð er ljóst að í blúsnum býr ekki aðeins treginn
og ómur af svita og tárum, heldur einnig gleðin og hamingja þeirra
sem rísa úr fjötrum og fjárhúsum heimsins til frelsis og birtu. Það
mætti því segja að blúsinn sé óðurinn til lífsins með öllum þess
hæðum og lægðum.
Það má því gera ráð fyrir að jólablús Vina Dóra verði öðruvísi
aðventutónleikar. Vinir Dóra er sem fyrr skipuð þeim Halldóri
Bragasyni gítarleikara og söngvara, Guðmundi Péturssyni gítarleik-
ara, Ásgeiri Óskarssyni trommuleikara og Jóni Ólafssyni bassaleik-
ara. Hljómsveitin fær til sín góða gesti á tónleikunum, þá Kristján
Kristjánsson, betur þekktan sem KK, og Björgvin Gíslason gítarleik-
ara, ásamt fleirum. Það má til gamans geta þess að þeir KK og
Björgvin eru báðir sérlegir heiðursfélagar Blúsfélags Reykjavíkur, en
þá nafnbót hljóta þeir tónlistarmenn sem hafa unnið gott starf í þágu
blústónlistar hér á landi.
Tónleikarnir fara fram annað kvöld á skemmtistaðnum Rúbín í
Öskjuhlíð og hefjast kl. 21. Miðaverð er 2.000 kr. og opnar miðasalan í
Rúbín kl. 19. Þessir tónleikar eru einstakt tækifæri til að hvíla sig á
veraldlegu amstri aðventunnar, og hlusta á fremstu blústónlistarmenn
landsins miðla tilfinningaþrunginni tónlist af sinni alkunnu snilld. - vþ
Kl. 20.30
Sönghópurinn Reykjavík 5 heldur
sína árlegu jólatónleika í
Fríkirkjunni í Reykjavík í kvöld
kl. 20.30. Sönghópinn skipa þau
Aðalheiður Þorsteinsdóttir, Gísli
Magnason, Hera Björk Þórhalls-
dóttir, Kristjana Stefánsdóttir og
Þorvaldur Þorvaldsson.
Nú þegar jólahátíðin er við það að ganga í
garð er undirbúningur á flestum landsins
heimilum í algleymi. Jólatréð er ómissandi
hluti af jólunum í huga margra Íslendinga þar
sem það stendur ljósum prýtt í stofunni um
nokkra stund. Eins og okkur þykir nú vænt
um prúðbúnu jólatrén okkar þegar leikar
standa sem hæst eru það færri sem láta sig
varða örlög þeirra þegar þrettándinn er liðinn.
Trjánum er kastað út af heimilum landsmanna
eins og innbrotsþjófum um nótt og svo eru
þau til ama langt fram í febrúarmánuð þar
sem þau fjúka nakin og barrlaus um göturnar
og þvælast fyrir ökumönnum og gangandi
vegfarendum.
Örlög jólatrjáanna hafa þó ekki farið fram
hjá öllum. Ljósmyndarinn og Reykvíkingur-
inn Kristín Hauksdóttir opnar í dag sýningu
í Ljósmyndasafni Reykjavíkur sem ber heitið
Greni/Tannenbaum. Sýningin er hugleiðing
Kristínar um skógrækt og grenitré. Einkum er
henni hugleikið hlutverk grenisins í tengslum
við jólahátíðina og ekki síður það heimilis-
leysi sem tekur við hjá trjánum að jólunum
loknum. Hvort sýningin er ádeila á neyslu-
hyggju íslensku jólanna skal ósagt látið, en á
ljósmyndum Kristínar er ferðast um Reykjavík
og nágrenni þar sem ýmislegt forvitnilegt og
spaugilegt ber fyrir augu.
Kristín Hauksdóttir er menntuð í myndlist
og ljósmyndun frá Myndlista- og handíða-
skólanum og frá Pratt Institute í New York.
Sýningin Greni/Tannenbaum stendur yfir í
Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Tryggvagötu 15,
frá og með deginum í dag og fram til 12.
febrúar næstkomandi. - vþ
Örlög grenitrjáa
Sæunn Þórisdóttir lét gamlan draum verða að veruleika þegar hún opnaði bókakaff-
ið Glætuna í Aðalstræti.
HEIÐURSBLÚSARI
KK kemur fram
á blústónleikum
annað kvöld.
Jólablús með vinum
ILLA FARIÐ MEÐ GOTT TRÉ Ljósmynd eftir Krist-
ínu Hauksdóttur.
Salurinn
2. prentun
komin
í verslanir
Auglýsingasími
– Mest lesið