Fréttablaðið - 20.12.2007, Síða 68

Fréttablaðið - 20.12.2007, Síða 68
56 20. desember 2007 FIMMTUDAGUR bio@frettabladid.is Hefðin ræður ríkjum þegar jólin eru annars vegar. Allur aðdragandi jólanna er hjá flestum í föstum skorð- um og lítið má út af bregða til að allt verði ómögulegt. Kvikmyndirnar eiga þar sína fulltrúa en í hugum margra eru varla komin jól án þess að fólk hafi horft á eftirlætisjólamyndina sína. Þrátt fyrir að jólin séu haldin til minningar um fæðingu frelsarans í fjósinu í Betlehem þá eiga vin- sælustu jólamyndirnar fátt sam- eiginlegt með frásögn Lúkasar- guðspjallsins eins og það birtist í Nýja testamentinu. En inntöku- skilyrðin í jólamyndaflokkinn eru hvorki ströng né háð því að hafa einhvern jólaboðskap heldur verð- ur myndin einfaldlega að gerast þegar hátíð ljóss og friðar er á næsta leiti. Yndislegt líf Sú kvikmynd sem flestir Banda- ríkjamenn tengja við jólin er It’s a Wonderful Life eða Yndislegt líf eftir Frank Capra sem frumsýnd var árið 1946 í Hollywood. Miklar væntingar voru gerðar til mynd- arinnar á sínum tíma en hún stóð ekki undir væntingum í miðasölu og reyndist hálfgert flopp. Kostn- aður við gerð hennar var ógnarhár og framleiðendurnir eyddu fúlg- um fjár í að koma henni á fram- færi. En allt kom fyrir ekki. Myndin féll í skuggann af stríðsmyndinni The Best Years of Our Lives, um hermenn sem reyna að taka upp sitt fyrra líf eftir seinna stríð, saga sem átti að ein- hverju leyti betur við bandarískt þjóðfélag skömmu eftir að Rúss- arnir höfðu fellt Hitler af stall sínum. Óskarsverðlaunahátíðin staðfesti þetta síðar þegar stríðs- myndin rúllaði yfir Capra í Kodak- höllinni og fékk fjögur stærstu verðlaunin. Trónir á toppnum En sagan átti eftir að fella sinn dóm og á meðan The Best Years of Our Lives hefur fallið í gleymsk- unnar dá lifir kvikmynd Capra. Og virðist alltaf hafa einhverjar skír- skotanir í þjóðfélagið. Myndin, sem byggð er á smásögu rithöf- undarins Philip Van Doren Stern, fjallar um George Bailey sem finnst líf sitt heldur ómögulegt og telur sig vera byrði á öllum í kring- um sig. Hann óskar þess einskis meir en að hann hefði aldrei stigið fæti á jörðina og ákveður að taka eigið líf á jólanóttinni. En á síð- ustu stundu er honum bjargað af verndarengli sem tekur Bailey með sér í ferðalag um lífskeið hans. Og þótt Yndislegu lífi svipi óneitanlega til ævintýris Charles Dickens um Skrögg hefur engri kvikmyndaútgáfu af þeirri sögu tekist að komast með tærnar þar sem Yndislegt líf hefur hælana. Þótt áhorfendur hafi í fyrstu ekki flykkst á myndina þá eru áhrif Yndislegs lífs ótvíræð. Myndin þykir sú áhrifamesta í sögu bandarískrar kvikmynda- gerðar að mati AFI og er meðal tuttugu bestu kvikmynda í sög- unni samkvæmt niðurstöðu sömu samtaka. Frammistaða James Stewart í hlutverki Baileys þykir jafnframt ein af þeim tíu bestu á hvíta tjaldinu. Jólasveinninn og McClane En það er ekki bara sagan af Bailey sem er hafin upp til skýjanna yfir jólahaldið. Miracle on 34th Street með Natalie Wood í aðal- hlutverki er einnig vinsæl yfir hátíðarn- ar beggja vegna Atl- antshafsins. Sagan um stúlkuna sem trúir því ekki að jóla- sveinninn sé til er í huga margra holdgervingur jólanna; að stundum verði maður að trúa án þess að hafa sönnun fyrir því. Hin unga Susan Walker á erfitt með að trúa því að maðurinn sem mamma hennar réð til að vera jólasveinn í búðinni sinni sé í raun jólasveinn- inn holdi klæddur. En þegar jólin sjálf nálgast fara að renna á hana tvær grímur og hún kemst að hinu sanna um Kris Kringle. Kvik- myndin, sem er frá árinu 1947, þykir einstakur jólagullmoli og fékk á sínum tíma þrenn Óskars- verðlaun. Þriðja myndin sem oft kemst inn á lista yfir bestu bíómynd aðventunnar verður seint talin fanga hinn sanna jólaanda (ef undan skilin er setningin „Ho, ho, ho, now I have a machine gun“). Fyrsta Die Hard-kvikmyndin með Bruce Willis í hlutverki John McClane nýtur yfirleitt mik- illa vinsælda þegar nær dregur aðfangadegi. Marg- ir geta hreinlega ekki hugs- að sér aðfangadag án þess að hafa horft á New York-lögguna berja þýska þjófa sundur og saman í Nakatomi-bygging- unni. Nauðsynlegar kvikmyndir fyrir jólahald þjóðarinnar WILLIS OG JÓLIN John McClane er kannski ekki beint jólalegur að sjá en er engu að síður stór hluti af jólahaldinu. TRÚIN BÝR TIL JÓLASVEIN Sagan um Susan Walker sem trúir ekki á jólasveininn þykir fanga hinn sanna jólaanda. Bræðurnir Joel og Ethan Coen eru fremstir í kapphlaupinu um Óskarinn eins og staðan er í dag. Kvikmynd þeirra, No Country for Old Men, hefur nú þegar tekið til sín helstu verðlaunin sem nú er deilt út eins og sælgæti í skóinn. Myndin trónir í efsta sæti á lista AFI, American Film Institue, yfir bestu myndir ársins og hirti aðalverðlaun gagnrýnenda í New York, sem þykja yfirleitt nokkuð spekings- lega vaxnir þegar kemur að verðlaunum. Myndin fékk fjórar tilnefningar til Golden Globe-verðlaunanna en hún segir frá veiðimanni sem kemur sér í mikið klandur eftir að hafa rambað á nokkur lík, töluvert magn af heróíni og tvær milljónir dollara. Með helstu hlutverk fara þeir Woody Harrelson og Tommy Lee Jones en stjarna myndar- innar þykir vera spænski leikarinn Javier Bardem. Myndin verður væntanlega frumsýnd í febrúar hér á landi. Coen-bræður sigur- sælir á hátíðum Síðasta helgin fyrir jólin einkennist nokkuð af því að kvikmyndahúsin eru að að geyma síðustu konfektmolana þar til þjóðin mætir útþanin eftir reykt kjöt og upp- stúf, reiðubúin fyrir eftirrétt- inn. Frumsýndar verða The Golden Compass með Nicole Kidman og Daniel Craig í aðalhlutverki og I Am Legend með Will Smith í aðalhlutverki. Þó vekur ein kvikmynd athygli sem tekin verður til sýningar um helgina en það er We Own the Night með þeim Mark Wahlberg, Joaquin Phoenix og Robert Duvall í aðalhlutverkum. Myndin er byggð á sannsögulegum atburðum sem áttu sér stað í New York um miðjan níunda áratuginn þegar rússneska mafían og lögreglan í Stóra eplinu áttu í blóðugu og miskunnarlausu stríði. Leikstjóri myndarinnar er James Gray sem virðist hafa tekið miklu ástfóstri við þá Wahlberg og Phoenix en þeir léku einnig aðalhlut- verkin í síðustu mynd hans, The Yards, sem frumsýnd var fyrir sjö árum og var þá tilefnd til Gullna pálmans á Cannes. Phoenix hlaut þá einnig gagnrýnenda- verðlaunin eftirsóttu fyrir leik sinn í þeirri mynd auk The Gladiator og Quills. Af öðrum myndum sem frumsýndar verða um þessa helgi má nefna Enchanted með Grey‘s Anatomy- stjörnunni Patrick Dempsey í aðalhlutverki. Rússneska stríðið í New York STJARNA Patrick Dempsey er að verða jafn vinsæll fyrir leik sinní Grey‘s Anatomy og George Clooney varð á sínum tíma í E.R. PHONIX Leikur aðalhlutverkið í We Own the Night eftir leikstjór- ann James Gray > LEÐURBLÖKUÆÐI Sannkallað Leðurblökuæði, eða réttara sagt, Jókeræði, ríkir nú á netinu eftir að fyrstu myndbrotin úr næstu Batman-mynd láku á netið. Þar má sjá Heath Ledger í hlutverki Jókersins og eru flestir sammála um að þessi stutta frammistaða lofi mjög góðu. ÁHRIFAMIKIL Yndislegt líf með James Stewart er í huga margra hin eina og sanna jólamynd. LÍKLEGIR TIL AFREKA Coen- bræður virðast hafa gert enn eitt meistarastykkið en nýjasta kvikmynd þeirra sópar að sér verðlaunum. SENDU SMS JA ACF Á NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ! Vinningar eru Bíómiðar fyrir tvo, DVD myndir, varningur tengdur myndinni og margt fleira! SMS LEIKUR Vi nn in ga r v er ða a fh en di r h já B T Sm ár al in d. K óp av og i. M eð þ ví a ð ta ka þ át t e rt u ko m in n í S M S kl úb b. 9 9 kr /s ke yt ið . JÓLAMYNDIN Í ÁR! STÓRSKEMMTILEG GAMANMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA! SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.