Fréttablaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 72
60 20. desember 2007 FIMMTUDAGUR folk@frettabladid.is > EINS OG SPICE GIRLS Beyoncé og stöllur hennar úr Destiny‘s Child gætu fetað í fót- spor kryddstúlknanna og komið saman á ný. Kelly Rowland sagði á dögunum að endur- koma þeirra hefði vakið þær til umhugsunar. Þær ætla að nýta jólin til að hugsa málin. Enn fjölgar í Spears-fjölskyldunni en í þetta sinn er það ekki popp- prinsessan Britney sem á von á barni, heldur sextán ára systir hennar, Jamie Lynn. Jamie Lynn opinberar þungun- ina í viðtali við tímaritið OK! og segist vera komin þrjá mánuði á leið. „Þetta var mjög óvænt og algjört áfall,“ segir Jamie Lynn. „Þegar ég hafði fengið þungunina staðfesta hjá lækni sagði ég engum frá henni í tvær vikur. Ég vildi sjálf ákveða næsta skref án áhrifa frá öðrum. Ég var hrædd en varð að gera það sem var rétt fyrir mig,“ segir Jamie Lynn. Barnsfaðir Jamie Lynn er kær- asti hennar til langs tíma, Casey Aldridge. Skömmu áður en þungunin kom í ljós sagð- ist Jamie Lynn reyndar í viðtali ekki eiga neinn fastan kærasta en vilja heldur halda möguleik- um sínum opnum. Móðir systranna, Lynne Spears, átti erf- itt með að kyngja frétt- unum. „Ég trúði þessu ekki því hún hefur alltaf verið svo var- kár, brýtur ekki einu sinni úti- vistarreglurn- ar sínar. Ég fékk sjokk. Ég meina, þetta er litla sextán ára barnið mitt,“ segir Lynne. Þetta verður þriðja barnabarn hennar en Britney Spears á tvo syni. „Eftir viku hafði hún náð að meðtaka fréttirnar og sýndi mér mikinn stuðning,“ segir Jamie Lynn. Britney Spears fékk ekki að vita af þungun litlu systur um þakkar- gjörðarhátíðina líkt og aðrir fjöl- skyldumeðlimir, heldur frétti það fyrst í gegnum fjölmiðla. Jamie Lynn Spears leikur aðal- hlutverkið í sjónvarpsþáttunum Zoey 101 sem sjónvarpsstöðin Nickolodeon sýnir. Enn er óvíst hvernig þungunin mun hafa áhrif á sjónvarpsþáttinn. Yfirmenn Nickolodeon segjast í fréttayfir- lýsingu virða ákvörðun Jamie Lynn um að taka ábyrgð, og að þessa stundina skipti ekkert máli nema velferð hennar. „Það er pottþétt eitt- hvað sem þið ættuð ekki að gera, það er betra að bíða,“ eru skilaboð Jamie Lynn til annarra unglinga um kynlíf fyrir hjónaband. „En ég get ekki dæmt þegar ég hef sjálf komið mér í þessa stöðu.“ Systir Britney ólétt JAMIE LYNN SPEARS Á von á barni sex- tán ára gömul. Einar Örn Einarsson hefur síð- astliðin tvö ár boðið upp ýmis- legt dót úr eigin handraða á internetinu í aðdraganda jólanna. Ágóðinn hefur runnið óskiptur til góðgerðasamtak- anna Oxfam, og þannig orðið börnum í Mið- og Suður-Amer- íku að liði. Einar Örn hefur endurtekið leikinn í ár, en segir þó að uppboðsmuni fari brátt að skorta. „Fyrsta árið fór alveg rosalega mikið. Þá seldi ég einhverja þrjú hundruð geisladiska, til dæmis. Svo kláraðist ansi mikið í fyrra, og í ár er þetta eiginlega bara komið,“ segir hann og hlær við. Einar Örn segir það samt hafa komið á óvart hversu miklu hann náði að safna úr eigin hirslum í ár. „Það er eig- inlega alveg ótrúlegt hverju maður sankar að sér á einu ári,“ segir Einar, sem hefur einnig beðið nokkur fyrirtæki um að leggja sér lið. Hann býst við því að ná að safna um tvö hundruð þúsundum í ár, en fyrsta uppboðið gaf af sér um hálfa milljón. Ofan á upphæð- ina úr uppboðunum bætast svo afmælisgjafir Einars Arnar. „Ég varð þrítugur í ár og benti fólki á að gefa í þetta,“ útskýr- ir hann. Einar Örn kveðst ekki viss um að hann geti endurtekið leikinn að ári. „Í fyrra hélt ég að það yrði síðasta skiptið. En ég gæti reynt að fara einhverj- ar aðrar leiðir á næsta ári,“ segir Einar Örn, sem væri afar hlynntur því ef einhver vildi stela hugmyndinni. „Alveg endilega, bara,“ segir hann. Uppboðum ársins fer að ljúka, en þeir sem vilja kynna sér vörurnar nánar, eða leggja Einari lið með öðrum hætti, geta kíkt á eoe.is/uppbod2007. - sun Fer að skorta uppboðsmuni GEYMSLAN AÐ TÆMAST Einar Örn Einarsson hefur síðastliðin tvö ár boðið upp dót úr eigin handraða til styrktar börnum í Mið- og Suður-Ameríku, en nú fer að verða fátt um fína drætti í geymslunni. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR Klaufar fá helming upphæðar reikninga sinna greidda. Aukin framlög verða til Rásar 2 strax 1. apríl en þá losnar Ríkisút- varpið undan biðlaunaákvæðum rúmlega 40 starfsmanna. „Ég átti mjög góðan fund með útvarpsstjóra. Fyrst ber að telja að hann er búinn að leysa Stóra Klaufamálið,“ sagði Jakob Frímann Magnússon í gær. „Já, því er blessunarlega lokið,“ segir Páll Magnús- son útvarpsstjóri. „Þeir hjá FÍH og risarnir í Efstaleitinu eru búnir að tala saman. Allir vilja leysa málið og Klaufar vilja enga óvini eiga. RÚV vill greiða helming upphæðarinnar sem reikningar kveða á um, eða 200 þúsund krónur, og við göngum að því,“ segir Birgir Nielsen, trymbill í kántríhljómsveitinni Klaufum. Þar með er Stóra Klaufamálinu lokið sem slíku en það gekk út á deilur um réttmæti reikninga sem Klauf- ar og aðstoðarmenn lögðu inn til RÚV vegna útsend- ingar frá kántrídansleik þeirra í Hafnarfirði. En Klaufamálið velti þyngra hlassi. Jakob er alsæll með fund sinn og Páls, segir þjóðina heppna að eiga nútíma- legan og víðsýnan útvarpsstjóra. Nú geti tónlistar- menn, í það minnsta hann sjálfur, þegar tekið til við að halda gleðileg jól. „Mitt erindi laut að stóru myndinni, almennum aðbúnaði Rásar 2 og starfsfólks. Og hvernig tónlistar- mönnum er iðulega gert að koma fram án endurgjalds sökum fjárskorts rásarinnar. Skemmst er frá að segja að hann meðtók allt sem ég hafði fram að færa og lýsti yfir fullum vilja til að efla Rás 2 á nýju ári.“ Jakob útskýrir að um mánaðamót mars/apríl gangi í garð nýtt fjárhagsár og þá skapist svigrúm til að efla Rás 2 og gera löngu tímabæra bragarbót á. „Útvarpsstjóri skilur mætavel mikilvægi Rásar 2 í menningarlífinu. Hvernig hún hefur frá fyrstu tíð hlúð að nýgræðingunum og grasrót tónlistarlífsins sem hefur dafnað jafn farsællega og raun ber vitni,“ segir Jakob. „Hann sagði blátt áfram að hann gæti aukið framlög til Rásar 2 frá og með apríl 2008. Það eru góðar fréttir og dugar mér að heyra í bili.“ Páll Magnússon staðfestir þennan skilning Jakobs. Segir þá hafa rætt dágóða stund saman einkum um Rás 2 og hlutverk hennar í menningarlífi þjóðarinnar. „Hugmyndir okkar eru ekki ósvipaðar þannig að ekki voru þetta harðar deilur. Staðreyndin er sú að Ríkisút- varpið gengur nú í gegnum erfitt skeið. Vitað var að fyrstu tólf mánuðir hins nýstofnaða opinbera hlutafé- lags yrði eyðimerkurganga. Sem er einkum vegna bið- launaákvæðis en rúmlega 40 manns eru á biðlaunum. Það er dýrt fyrir RÚV. Þessu tímabili lýkur 1. apríl en þá eru liðnir 12 mánuðir frá stofnun félagsins. Þá mun okkar hagur vænkast auk þess sem við erum að færa mest af ráðstöfunarfé í dagskrána sjálfa. Rás 2 mun njóta góðs af því.“ jakob@frettabladid.is Stóra Klaufamálinu lokið PÁLL MAGN- ÚSSON Hagur Ríkisútvarpsins vænkast 1. apríl en þá hverfa rúmlega 40 manns af biðlaunum. JAKOB FRÍ- MANN Fagnar því ákaft að fyrir liggi að efla Rás 2. BIRGIR NIELSEN Klaufar vilja ein- skis óvinir vera og ætla að ganga að tilboði RÚV. Sendu sms BTC KUF á númerið 1900og þú gætir unnið! Vinningar eru DVD myndir, varningur tengdur myndinni og margt fleira! SMS LEIKUR Vi nn in ga r v er ða a fh en di r h já B T Sm ár al in d. K óp av og i. M eð þ ví a ð ta ka þ át t e rt u ko m in n í S M S kl úb b. 1 49 k r/ sk ey tið . KOMIN Í VERSLANIR!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.