Fréttablaðið - 20.12.2007, Page 75

Fréttablaðið - 20.12.2007, Page 75
FIMMTUDAGUR 20. desember 2007 63 Mugison, Sprengjuhöllin, Hjaltalín og Jakobínarína verða á meðal þeirra sem koma fram á níundu jólatónleikum X-ins 977, X-mas, á Gauki á Stöng í kvöld. Eins og áður er miðaverð 977 krónur og rennur allur ágóðinn til samtakanna Foreldrahús. „Þetta er með því glæsilegra sem hefur verið boðið upp á. Þessir tónleikar hafa alltaf verið gríðarlega vel sóttir og það er klárt mál að það verður einnig núna. Menn hafa horft afbrýðisemis- augum á þennan glæsilega viðburð í gegnum árin enda klikkar X-mas aldrei,“ segir Þorkell Máni Pétursson á X-inu. Allar hljómsveitirnar sem koma fram spila jólalag og þau eru tekin upp og spiluð daginn eftir á X-inu. „Sprengjuhöllin verður með frumsamið lag og svo gerði Lada Sport jólalag í fyrra sem Lödumenn ætla að spila í fyrsta skipti á X-mas. Það er einstaklega vel heppnað og svo býst ég við „massífu“ frá Ultra Mega Technobandinu Stefáni og Muga, enda er Mugison með langbestu plötu ársins ásamt Sprengjuhöllinni,“ segir Þorkell Máni. - fb X-mas í níunda sinn í kvöld SPRENGJUHÖLLIN Hljómsveitin Sprengjuhöllin spilar á árleg- um jólatónleikum X-ins á Gauki á Stöng. Heather Mills, sem á í harðvítugum skilnaði við Paul McCartney, ætlar að semja kynlífshandbók fyrir konur. Mills, sem er fyrrverandi nærfatafyrirsæta, vonast til að miðla af reynslu sinni til annarra kvenna með bókinni. „Heather telur að það sé markaður fyrir góða kynlífshandbók,“ sagði kunningi hennar. „Hún sagði að kynlífshandbækur séu venjulega skrifaðar frá sjónarhóli karla og telur að hún geti samið eina góða fyrir konur.“ Mills er sögð hafa áhyggjur af viðbrögðum almennings vegna deilu sinnar við McCartney og ætlar hugsanlega að gefa bókina út undir fölsku nafni. „Hún vill miðla leyndarmálum sínum um það hvernig á að laða til sín mann og halda honum ánægðum í svefnherberginu,“ sagði kunninginn. Mills hefur áður gefið út tvær sjálfsævisög- ur sem komu út 1994 og 2002. Skrifar um kynlíf HEATHER MILLS Mills vill skrifa kynlífshandbók handa konum. Ómar Ragnarsson verður á meðal þeirra sem taka lagið með Ullarhöttunum í tilefni af tíundu Þorláksmessutónleikum þeirra á sunnudaginn. Í þetta sinn verða þeir haldnir á skemmtistaðnum Domo, sem er í sama húsi og Sportkaffi var, þar sem Ullarhatt- arnir spiluðu fyrst 1998. „Það verður miklu tjaldað til í þetta skiptið. Við verðum með nokkra góða gesti sem heiðra okkur með nærveru sinni. Þetta er fólk sem hefur tengst jólunum dálítið og Ómar Ragnarsson tekur lagið með okkur. Hann hefur aldrei gert það áður,“ segir Eyjólfur Kristjánsson. Auk hans skipa hljómsveitina þeir Stefán Hilmars- son, Jón Ólafsson, Friðrik Sturlu- son og Jóhann Hjörleifsson. „Þetta hefur alltaf verið alveg meiri háttar og gengið rosalega vel. Við flytjum aðallega íslensk dægur- og jólalög og ég veit að þetta setur punktinn yfir i-ið hjá sumum í jólastemningunni. Við byrjum um leið og búðirnar loka á Þorláksmessunni,“ segir Eyjólfur. Forsala miða á tónleikana fer fram á Domo á föstudag á milli 15 og 17. Ómar með Ull- arhöttunum ULLARHATTARNIR Ullarhattarnir halda sína tíundu Þorláksmessutónleika á sunnudaginn. ÓMAR RAGNARSSON Ómar ætlar að syngja í fyrsta sinn með Ullarhöttunum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.