Fréttablaðið - 20.01.2008, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
SUNNUDAGUR
20. janúar 2008 — 19. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
MENNTADAGUR
IÐNAÐARINS 2008
Ráðstefna um
námsefnisgerð
fyrir iðn- og
starfsnám
Miðvikudaginn
23. janúar
frá kl. 9.00 til 12.00
í nýju Íþrótta- og
sýningarhöllinni Laugardal
Skráning á www.si.is Hjólhýsasýning
Við frumsýnum 2008 árgerðina af stórglæsilegum Polar
hjólhýsum helgina 19.-20. janúar í verslun okkar að
Fosshálsi 5-7. Léttar veitingar í boði!
Lau kl. 10.00-17.00
Sun kl. 12.00-16.00
ALLA SUNNUDAGA
SÍÐUR
20
Pólitískar ráðningar
„Þetta snýst ekki um þann sem er
ráðinn, heldur um hina sem ekki
fá að njóta sannmælis“, skrifar
Ellert B. Schram.
Í DAG 11
SJÓNVARP Íslenskir sjónvarpsáhorf-
endur eiga á næstu misserum von á
mun meira framboði af leiknu
íslensku sjónvarpsefni en hingað til
hefur verið. Að minnsta kosti fimm
leiknir sjónvarpsþættir eru í bígerð
og fleiri á teikniborðinu.
Stöð 2 sýndi Næturvaktina fyrri
hluta vetrar við góðar undirtektir
og nú standa yfir sýningar á Press-
unni. Á teikniborðinu er svo Dag-
vaktin, framhald Næturvaktarinnar.
Þá undirbýr stöðin réttardrama
sem kallast Réttur og þriðja leikna
þáttaröðin sem búið er að taka
ákvörðun um að framleiða er gam-
anþáttaröðin Sylgja með Ilmi Kristj-
ánsdóttur í aðalhlutverki. Pálmi
Guðmundsson, sjónvarpsstjóri á
Stöð 2, segir ætlunina að leggja um
300 milljónir í leikna innlenda þætti
á næstu misserum.
Í Sjónvarpinu verða Mannaveiðar
frumsýndar um páskana en þætt-
irnir byggja á Aftureldingu, sögu
Viktors Arnar Ingólfssonar. Þá eru
á komandi hausti fyrirhugaðar sýn-
ingar á þáttaröðinni Svörtum engl-
um sem byggir á sögum Ævars
Arnar Jósepssonar. Þórhallur
Gunnarsson, dagskrárstjóri á RÚV,
gerir ráð fyrir að á næstu misser-
um verði á vetrardagskrá leikið
innlent efni í rúmar tuttugu vikur
af þeim rétt þrjátíu sem vetrar-
dagskráin varir. sjá Menningarblað
Mikil gróska í dagskrárgerð hjá íslensku sjónvarpsstöðvunum:
Aldrei meira af leiknu efni
FÓLK Gengið hefur verið við
samninga um útgáfu á Skipinu,
bók Stefáns
Mána, við helstu
forlög í Evrópu.
Má þar nefna hið
þýska Ullstein,
franska forlagið
Gallimard og
sænska forlagið
Albert Bonnier
en áður hafði
útgáfurisinn Gyldendal keypt
útgáfurétt bókarinnar í Danmörku.
- jbg / sjá síðu 38
Stefán Máni í útrás:
Slegist um út-
gáfu Skipsins
STEFÁN MÁNI
STJÓRNMÁL „Ég tel að ef við losnum
ekki undan þeirri áþján að þurfa að
eiga í deilum innan okkar eigin
raða þá treysti ég mér varla til að
halda þessu áfram,“ segir Björn
Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi
Framsóknarflokksins.
Nýverið sendi Guðjón Ólafur
Jónsson, fyrrum þingmaður
flokksins, bréf þar sem hann sagði
flokksstarfið einkennast af
áhugaleysi og nefndi gróusögur um
misnotkun forystumanna flokks-
ins. Guðjón Ólafur segist hafa sent
bréfið í stað jólakorta sem hann
gat ekki gert vegna annríkis.
„Þetta eru einhverjar skrítnustu
jólakveðjur sem ég veit um,“ segir
Björn Ingi. - jse / sjá síðu 4
Björn Ingi Hrafnsson:
Íhugar stöðu
sína í Framsókn
SAMFÉLAGSMÁL „Við höfum varpað
fram þeirri hugmynd að hann verði
jarðaður í þjóðargrafreitnum á
Þingvöllum,“ segir Einar S. Einars-
son, einn forsvarsmanna RJF-
stuðningshópsins.
Einar segir að hópurinn hafi
fundað um það hvernig skuli að
útförinni staðið og hafi allir verið
sammála um að hann fengi að hvíla
í íslenskri jörð. „Það verður náttúr-
lega að huga að því að það þarf gott
aðgengi að legstað jafn frægs
manns og Fischer var og það er
ekki ólíklegt að þangað muni ferða-
menn leggja leið sína um ókomin
ár.“ Einar leggur þó áherslu á að
ekkert hafi verið ákveðið. Hann
segir einnig að rætt hafi verið um
að útförin verði að hluta opinber.
Unnusta Bobbys Fischer er
væntanleg til landsins í byrjun
næstu viku. „Hann átti líka systur-
dætur í Bandaríkjunum sem hafa
sitt að segja í þessu líka en við
höfum enn ekki heyrt neinar óskir
frá þeim.“
Kristján Valur Ingólfsson Þing-
vallaprestur segir að málið þyrfti
fyrst að fara til umfjöllunar hjá
Þingvallanefnd en síðar yrði að
taka ákvörðun um það á Alþingi.
„Það tók nú engan tíma að útvega
Bobby Fischer ríkisborgararétt
þannig að það þyrfti sennilega ekki
svo langan tíma að ákveða hvar
hann ætti að liggja ef það verður
gert hér á landi,“ segir Þingvalla-
prestur. En hvernig líst honum á
hugmyndina? „Mér finnst svona í
fljótu bragði ekki líklegt að Bobby
Fischer hefði sjálfur viljað liggja á
Þingvöllum og við prestarnir reyn-
um fyrst og fremst að taka mið af
því sem hinn látni hefði valið. En
ég væri vissulega til í að koma að
þessu ef til þess kæmi.“
Ef að þessum hugmyndum verð-
ur mun Fischer hvíla við hlið þjóð-
skáldanna Einars Benediktssonar
og Jónasar Hallgrímssonar. - jse
Vilja að Fischer verði
grafinn á Þingvöllum
Þeirri hugmynd að Bobby Fischer fái að hvíla í þjóðargrafreitnum á Þingvöllum
hefur verið varpað fram í RJF-hópnum. Hann myndi þá hvíla við hlið þjóð-
skáldanna Einars Benediktssonar og Jónasar Hallgrímssonar.
UMRÆÐA Valgerður Sverrisdóttir,
þingmaður Framsóknarflokksins,
og Árni Páll Árnason, þingmaður
Samfylkingarinnar, bætast í hóp
fastra penna hjá Fréttablaðinu í
dag. Þau skiptast á skoðunum í
þættinum Bitbein á leiðarasíðu,
annan hvorn sunnudag.
Árni Páll ríður á vaðið og spyr
hvort breyta eigi reglum um
heimildir fyrirtækja til að gera
upp í erlendri mynt. - bs / sjá síðu 10
Nýir pennar hjá Fréttablaðinu:
Valgerður og
Árni Páll takast á
FYRIRLIÐINN FÓR FYRIR LIÐINU Guðjón Valur Sigurðsson tók við fyrirliðabandinu af Ólafi Stefánssyni og leiddi íslenska handboltalands-
liðið til sex marka sigurs á Slóvakíu á EM í handbolta í gær. Guðjón Valur fagnar hér einu af sjö mörkum sínum. Íslenska liðið er komið
með annan fótinn í milliriðil eftir sigurinn en liðið mætir Frökkum í lokaleik riðilsins í kvöld. Sjá síðu 34-35 FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Spillti fyrir
Keegan
Grétar Rafn
Steinsson var í
byrjunarliði Bolt-
on í ensku úrvals-
deildinni í gær.
ÍÞRÓTTIR 32
Síðustu dagar Sirkuss
FRÆGASTI BAR REYKJAVÍKUR SYNGUR SITT SÍÐASTA
22
Skrifar um smákrimma
Söngvarinn og hönn-
uðurinn Karl Örvars-
son hefur skrifað
kvikmyndahandrit
um íslenska
smákrimma.
FÓLK 38
Bakkus erfiður
andstæðingur
Þrjátíu ár eru frá
stofnun áfanga heimil-
isins Ris. Guðlaugur
Sveinsson hefur veitt
heimilinu forstöðu
frá upphafi.
TÍMAMÓT 14
LÆGIR Á LANDINU - Minnkandi
norðanátt, 3-10 m/s, stífastur aust-
an til. Snjókoma eða él á norðan-
og austanverðu landinu, annars
fremur bjart. Hiti nálægt frostmarki.
VEÐUR 4