Fréttablaðið - 20.01.2008, Side 2
2 20. janúar 2008 SUNNUDAGUR
frábær verð um veröldina
- bókaðu í dag!
Kairó
Dubai
Bankok
Manila
Verð eru flug fram og til baka frá Reykjavík (4 flug á viku) og fela í sér þjónustugjald, skatta og flugvallargjöld. Einn smellur
á www.klmiceland.is fyrir besta miðaverðið, bókun á netinu, upplýsingar um flug, flugpunkta og þar fram eftir götunum.
Rafræn miðakaup gera ferðalagið þitt auðveldara.
klmiceland.is
frá ISK 68.900
frá ISK 85.400
frá ISK 101.500
frá ISK 110.700
Stöðvaður tvær nætur í röð
Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði tvo
ökumenn í fyrrinótt sem grunaðir eru
um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Annar mannanna, 18 ára piltur, hafði
einnig verið stöðvaður nóttina á
undan grunaður um sama athæfi.
LÖGREGLUMÁL Fimm erlendir
karlmenn, sem réðust á lögreglu-
menn við skyldustörf aðfaranótt
11. janúar síðastliðins, hafa verið
úrskurðaðir í farbann til 1.
febrúar. Áður höfðu mennirnir
setið í gæsluvarðhaldi í viku.
Mennirnir, sem eru á aldrinum
19 til 25 ára, veittust að hópi
lögregluþjóna sem voru við
fíkniefnaeftirlit í miðborginni.
Lögreglumennirnir höfðu ekki
haft afskipti af mönnunum.
Fjórir lögregluþjónar leituðu sér
aðhlynningar á slysadeild eftir
árásina og er einn þeirra enn frá
vinnu.
- þo
Árás á lögregluþjóna:
Fimm menn
settir í farbann
Brutust inn í Eden
Brotist var inn í Eden í Hveragerði
í fyrrinótt. Að sögn lögreglunnar á
Selfossi fóru innbrotsþjófarnir inn
um glugga á salerni. Unnið er að
endurbótum á húsinu um þessar
mundir og því var lítið um verðmæti
þar. Þjófarnir eru ófundnir.
LÖGREGLUFRÉTTIR
SPÁNN Spænska lögreglan hand-
tók í gær fjórtán meinta hryðju-
verkamenn í Barcelona. Efni til
sprengjugerðar fundust við hús-
leit á heimilum þeirra. Lögregla
lagði hald á tölvur mannanna, far-
síma og fleira sem talið er að geti
varpað ljósi á fyrirætlanir þeirra.
Tólf mannanna eru frá Pakistan
en tveir frá Indlandi.
Spænska leyniþjónustan hefur
varað Portúgala, Frakka og Breta
við því að hryðjuverkaalda sé
yfirvofandi. Málið er enn í rann-
sókn og ekki er útilokað að fleiri
verði handteknir.
Alfredo Perez Rubalcaba, inn-
anríkisráðherra Spánar, segir
margt benda til þess að hinir
handteknu hafi lagt á ráðin um
hryðjuverk í landinu og að þeir
tengist alþjóðlegum hryðjuverka-
samtökum.
Á síðastliðnum fjórum árum
hafa um þrjú hundruð meintir
hryðjuverkamenn verið hand-
teknir í landinu. Tuttugu og einn
hryðjuverkamaður situr inni fyrir
aðild að hryðjuverkunum sem
framin voru í Madríd árið 2004.
- ve
Fjórtán meintir hryðjuverkamenn handteknir í Barcelona:
Ótti við hryðjuverkaöldu
EINN HINNA GRUNUÐU Spænska
lögreglan handtók fjórtán menn eftir
að efni til sprengjugerðar fundust við
húsleit. NORDICPHOTOS/AFP
VINNUMARKAÐUR Rafiðnaðarmenn
féllust á að leggja til hliðar fram
yfir helgi fullbúinn kjarasamning
sem þeir lögðu fram og kröfðust
að skrifað yrði undir á fundi með
Samtökum atvinnulífsins (SA)
fyrir helgi. Vilhjálmur Egilsson,
framkvæmdastjóri SA, segir að
viðræðurnar „nuddist áfram.“
Í samningnum er gert ráð fyrir
að lægstu taxtar hækki um 20 þús-
und, almenn launahækkun verði
3,5 prósent og að orlofsdögum
fjölgi um tvo. Samningurinn gildi
fram í nóvember eða janúar á
næsta ári.
Guðmundur Gunnarsson, for-
maður Rafiðnaðarsambandsins,
segir að atvinnurekendur grát-
biðji rafiðnaðarmenn um að fara
inn á sömu braut og áður en ríkis-
stjórnin hafnaði skattatillögum
ASÍ. Rafiðnaðarmenn dragi í efa
að þeim sé alvara og hafi því farið
fram á að þeir leggi eitthvað fram
sem geti vakið traust. Samningur-
inn hafi verið lagður til hliðar
meðan atvinnurekendur safni
saman gögnum.
Vilhjálmur Egilsson segir að
fundað hafi verið sitt á hvað síð-
ustu daga og uppbyggilegar og
nauðsynlegar viðræður átt sér
stað. Umræðurnar snúist um
samningslengd.
„Ef einhver samstaða næst um
lengri samning þá vona ég að
menn fari að ræða þetta í stærri
hóp. Við höfum alltaf sagt að við
viljum gjarnan leysa láglauna-
málin eins og kostur er og eyða
öllu púðrinu sem við höfum í það.
Þá þurfum við að sjá fram á að
stöðugleiki sé fram undan og að
við séum að komast inn í umhverfi
þar sem verðbólgan fer niður. Það
er okkar óskastaða,“ segir
Vilhjálmur. - ghs
Kjaraviðræðurnar einkennast af karpi um samningslengd:
Viðræðurnar nuddast áfram
PIRRAÐIR OG ÞREYTTIR Atvinnurek-
endur grátbiðja rafiðnaðarmenn að
fara inn á sömu braut og áður, að mati
Guðmundar Gunnarssonar, formanns
Rafiðnaðarsambandsins.
LÖGREGLUMÁL Tveir starfsmenn
Tollgæslunnar eru grunaðir um að
hafa stolið veski af konu á
skemmtistað í Reykjavík í
fyrrinótt. Frá þessu er greint á
fréttavef Vísis.
Mennirnir tveir viku sér að
konunni og sögðust vera að sinna
fíkniefnaeftirliti á vegum Toll-
gæslunnar. Þeir vildu fá að skoða í
veski hennar en áður en hún vissi
af hlupu þeir á brott með veskið.
Konan og vinir hennar náðu að
handsama annan manninn og kalla
á lögreglu sem handtók manninn.
Lögreglan rannsakar málið og
staðfestir að mennirnir hafi verið
með einkennisbúnað merktan
Tollgæslunni. Fíkniefnaeftirlit í
miðborginni er ekki í höndum
Tollgæslunnar. - þo
Þjófar á ferð á skemmtistað:
Tollgæslumenn
stálu veski
PERSÓNUVERND Breska persónuverndarstofnunin ICO
(The Information Commissioner´s Office) hyggst kanna
hvernig persónuupplýsingar eru geymdar og varðar á
vef Facebook. Rannsóknin kemur í kjölfar athugasemda
frá breskum notanda Facebook sem lokaði Facebook-
síðunni sinni en komst að því að
hann gat ekki eytt að fullu upplýs-
ingum um sig sem hann hafði skráð
þar. Þótt upplýsingarnar séu ekki
lengur sýnilegar öðrum Facebook-
notendum eru þær ennþá vistaðar á
netþjónum Facebook.
Samkvæmt upplýsingum frá
Facebook geta notendur eytt öllum
sínum upplýsingum af netþjónum
Facebook með því að skrá sig inn og
eyða upplýsingunum lið fyrir lið sem
kann þó að reynast seinlegt.
„Eitt af því sem við höfum
áhyggjur af er að ábyrgðin virðist
vera notendanna að eyða sínum gögnum,“ sagði Dave
Evans, sérfræðingur hjá ICO, í viðtali við BBC.
Facebook-vefurinn er vistaður í Bandaríkjunum en
Evans telur engu að síður að bresk lög kunni að eiga við.
Sigrún Jóhannesdóttir, forstjóri Persónuverndar,
segir að stofnunin hafi ekki í hyggju að skoða Facebook-
vefinn þótt hundruð Íslendinga séu þar með síður.
„Jafnvel þótt við hefðum skoðun á meðferð persónuupp-
lýsinga á Facebook þá er það ekki okkar hlutverk að
hafa afskipti af því. Dómstólar meta hvort menn fari
yfir strikið og íslensk lög ná ekki yfir vefi sem vistaðir
eru erlendis,“ segir Sigrún og bætir því við að lög um
persónuvernd í Bretlandi séu talsvert frábrugðin því
sem þekkist hér á landi.
Sigrún bendir á að það sé ekkert einsdæmi að
upplýsingar sem fólk telji sig hafa eytt leynist lengi á
veraldarvefnum. „Þetta er vissulega áhyggjuefni og
hlutur sem fólk verður að vera meðvitað um. Norðmenn
hafa til dæmis farið þá leið að gefa út kynningarefni
fyrir ungt fólk þar sem það er hvatt til þess að hugsa
betur um það hvaða upplýsingar það setur á netið. Við
höfum hugleitt svipaðar leiðir,“ segir Sigrún en aukin
fræðsla er eitt af meginmarkmiðum Persónuverndar á
árinu 2008. thorgunnur@frettabladid.is
Bresk persónuvernd
skoðar Facebook
Bretar hafa áhyggjur af því að óþarfa persónuupplýsingar séu vistaðar á net-
þjónum Facebook. Forstjóri hinnar íslensku Persónuverndar segir að fólk þurfi
að vera meðvitað um hvaða upplýsingar það setur á netið.
SIGRÚN JÓHANNES-
DÓTTIR FORSTJÓRI
PERSÓNUVERNDAR
VINSÆLL VEFUR Bretar hafa áhyggjur af því að netþjónar
Facebook geymi áfram persónuupplýsingar sem fólk telur
sig hafa eytt.
Facebook er netsamfélag eða tengslanet á veraldar-
vefnum þar sem fólk getur skráð inn upplýsingar
um sig og tengst öðrum notendum víða um heim.
Vefurinn er tilvalinn fyrir þá sem vilja endurnýja kynni
við gamla vini eða leita uppi gamla skólafélaga og
samstarfsmenn.
Facebook var stofnað í Bandaríkjunum árið 2004
og náði fljótt gríðarlegum vinsældum. Árið 2007 var
Facebook vinsælasti vefurinn meðal bandarískra
ungmenna.
Virkir notendur Facebook eru fleiri en 60 milljónir
og talið er að á hverjum degi bætist 250.000 nýir
notendur í hópinn.
HVAÐ ER FACEBOOK?
SLYS „Þetta er í rannsókn hjá
okkur en að svo stöddu er ekki
vitað hvað gerðist eða hvers
vegna sætið losnaði,“ segir Árni
Gunnarsson,
framkvæmda-
stjóri Flugfé-
lags Íslands, en
sæti í Dash 8-
100 flugvél
flugfélagsins
losnaði í
ókyrrð í
aðflugi til
Egilsstaða á
föstudag.
Árni segir að í kjölfar slyssins
hafi sæti í dash-vélum flugfélags-
ins verið skoðuð.
Svandís Svavarsdóttir borgar-
fulltrúi sat í sætinu sem losnaði.
Hún fékk höfuðhögg og tognaði á
hálsi. „Þetta var óskemmtileg
lífsreynsla en mér líður ágæt-
lega,“ sagði Svandís í samtali við
Fréttablaðið í gær. - þo
Sæti losnaði í flugvél:
Skoðuðu vélar í
kjölfar slyssins
SVANDÍS
SVAVARSDÓTTIR
Fartölvu stolið af heimili
Brotist var inn á heimili í austurborg-
inni síðdegis í gær og stolið þaðan
fartölvu. Gluggi hafði verið spenntur
upp meðan húsráðendur voru að
heiman. Þjófurinn er ófundinn.
BANDARÍKIN, AP Michael Bloom-
berg, borgarstjóri í New York, er
sagður velta því
fyrir sér af
fullri alvöru að
sækjast eftir að
verða forseta-
efni Repúblik-
anaflokksins í
kosningunum í
nóvember, þrátt
fyrir að
forkosningar
séu þegar
hafnar.
Sjálfur hefur hann ítrekað
sagst ekki vera í framboði, en
lætur þó stöðugt kanna hvaða
möguleika hann hefði á sigri.
Nýjustu áform hans um að lækka
fasteignagjöld í New York um 65
milljarða króna eru sögð auka
líkur hans á að ná til kjósenda. Í
næstu viku fer hann til Texas og
Flórída, sem eru meðal fjölmenn-
ustu ríkja Bandaríkjanna. - gb
Borgarstjórinn í New York:
Sagður búa sig
undir framboð
MICHAEL
BLOOMBERG
Guðjón Ólafur, skapa fötin
flokkinn?
Karnabær og co, pottþétt!
Guðjón Ólafur Jónsson segir í bréfi, sem
hann sendi framsóknarmönnum í Reykja-
vík, frá gróusögum um forystumenn
flokksins sem hefðu notað sjóði Fram-
sóknarflokksins í fatakaup fyrir síðustu
borgarstjórnarkosningar.
SPURNING DAGSINS