Fréttablaðið - 20.01.2008, Qupperneq 6
6 20. janúar 2008 SUNNUDAGUR
DÓMSMÁL „Ég tel að það sé mjög
skynsamlegur kostur,“ segir
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri
höfuðborgarsvæðisins, um að
vísa erlendum brotamönnum,
sem fengið hafa refsidóm hér,
til afplánunar í heimalandinu.
Eins og Fréttablaðið greindi
frá í fyrradag er hafin vinna að
þessu markmiði í dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu. Nokkur
hópur erlendra ríkisborgara er í
rannsóknarmeðferð og ákæru-
stigi á höfuðborgarsvæðinu
vegna ætlaðra brota.
„Þetta er meðal annars spurn-
ing um að vera ekki að auka og
efla tengsl milli innlendra og
erlendra brotamanna, sem óhjá-
kvæmilega gerist þegar menn
dvelja í lengri tíma saman í
fangelsi,“ segir Stefán enn frem-
ur.
Jóhann R. Benediktsson, lög-
reglustjóri á Suðurnesjum,
tekur í sama streng, en þar sætir
einnig hópur erlendra ríkisborg-
ara rannsókn lögreglu.
„Ég tel að það sé margfaldur
ávinningur af slíku fyrirkomu-
lagi,“ segir Jóhann. „Í fyrsta
lagi höfum því miður reynslu af
því að sambönd hafa myndast í
fangelsi, sem menn hafa nýtt
sér. Þetta er mjög fyrirbyggj-
andi ráðstöfun hvað það varðar.
Í öðru lagi er þetta spurning um
útgjöld ríkisins. Ég fagna þessu
frumkvæði ráðherra mjög.“ - jss
Fangelsisvist erlendra ríkisborgara sem brjóta af sér hérlendis:
Skynsamlegt að senda fanga út
JÓHANN R. BENEDIKTSSON
Margfaldur ávinningur.
BANDARÍKIN, AP Nicholas Burns,
aðstoðarutanríkisráðherra
Bandaríkjanna, er á förum úr
ráðuneytinu. Þetta tilkynnti
Condoleezza Rice utanríkisráð-
herra í Washington í fyrradag.
Það var Burns sem fyrir hönd
Bandaríkjastjórnar hringdi í Geir
Haarde, þáverandi utanríkisráð-
herra, í mars 2006 til að tilkynna
um brottför varnarliðsins. Burns
hefur ráðið sig til starfa hjá
fyrirtæki í einkageiranum.
William Burns, sendiherra í
Moskvu, tekur við af Burns. - aa
Aðstoðarráðherra hættir:
Burns víkur úr
ráðuneyti Rice
Á ÍSLANDI Nicholas Burns ásamt Carol
van Voorst sendiherra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
DÓMSMÁL Sextán ára stúlka hefur
verið sakfelld í Héraðsdómi
Norðurlands eystra fyrir að
skvetta gosbjór yfir lögregluþjón.
Vegna aldurs var henni ekki gerð
sérstök refsing, og fellur hún
niður ef stúlkan kemst ekki í kast
við lögin á næstu tveimur árum.
Skvettan átti sér stað við
Geislagötu á Akureyri í maí í
fyrra þegar hópur fólks gerði
aðsúg að lögreglubíl með tveimur
lögregluþjónum. Þegar þeir
reyndu að skakka leikinn greip
rúmlega tvítugur maður utan um
annan lögregluþjóninn og hélt
honum á meðan stúlkan skvetti
yfir hann bjórnum. - sþs
Sextán ára stúlka sakfelld:
Skvetti gosbjór
yfir lögreglu
AUSTURRÍKI, AP Öryggis- og
samvinnustofnun Evrópu hefur
sent stjórnvöldum í Hvíta-
Rússlandi andmæli gegn fangels-
un fyrrverandi aðstoðarritstjóra
dagblaðsins Zhoda.
Aðstoðarritstjórinn, Alexander
Zdvizhkov, hlaut nýverið þriggja
ára fangelsisdóm fyrir að hafa
endurbirt í blaðinu skopmyndir af
Múhameð spámanni, sömu
myndir og áður höfðu vakið mikið
fjaðrafok eftir að þær birtust í
danska Jótlandspóstinum.
Miklos Haraszti hjá ÖSE segir
stjórnvöld í Hvíta-Rússlandi hafa
notfært sér skopmyndadeilurnar
til að losna við gagnrýnisrödd úr
fjölmiðlum. - gb
Skopmyndadeila misnotuð:
Fangelsi fyrir
endurbirtingu
SKIPULAGSMÁL „Hér í reitnum hefur
ríkt hin svokallaða dópgrenndar-
aðferð byggingaverktakans, þar
sem slíkum lýð er leigt húsnæði
öðrum nágrönnum til skelfingar
og lífsraunar meðan verktakinn
bíður þess átekta að óskir hans
verði uppfylltar í kerfinu,“ segir í
harðorðu mótmælabréfi íbúa á
Baldursgötureit til Skipulags- og
byggingasviðs Reykjavíkurborg-
ar en nýlega kynnti sviðið tillögu
að deiliskipulagi Baldursgötu-
reits.
Vilja íbúarnir meina að tillagan
sé runnin undan rifjum verktaka
sem keypt hefur tvö hús á svæðinu
með þau áform að rífa þau og
byggja ný. Í bréfinu krefja íbúarnir
borgaryfirvöld um að þau gæti
hagsmuna þeirra en þeim finnst að
borgin meti fjárfestingar verk-
takans meira en þeirra eigin.
Þá er í bréfinu farið yfir mót-
mæli íbúanna lið fyrir lið og gera
þeir meðal annars athugasemdir
við að húsakönnun hafi ekki farið
fram á vegum borgarminjavarðar
eins og þeir telja að eigi að gera.
„Ég held að þarna sé einhver
tóm þvæla á ferðinni,“ segir Arnar
Sigtryggsson, framkvæmdastjóri
Baldursgötu ehf. sem á umrædd
hús, um gagnrýni bréfsins á verk-
takafyrirtækið. Hann segir að
búið sé í öðru húsinu en hitt standi
autt enda ónýtt.
Aðspurður hvort þeir hafi orðið
varir við óánægju íbúanna segir
hann þá hafa reynt að bregðast við
henni jafn óðum, til dæmis með
því að loka auða húsinu þegar inn í
það hefur verið brotist. „Það hefur
verið hringt nokkrum sinnum í
mig út af þessu.“ Hann segir engar
kvartanir hafa borist sér vegna
leigjenda í hinu húsinu og vísar
því á bug að leigjendur séu ein-
hverjir vafasamir karakterar.
„Þetta er bara í ferli hjá borginni,“
segir hann um framhaldið.
Hjá lögreglu fengust þær upp-
lýsingar að einu sinni hefði borist
kvörtun vegna húss númer 34 og
var það vegna hávaða. Tvær kvart-
anir hefðu svo borist vegna inn-
brota í auða húsið.
Nokkur hópur íbúanna átti fund
með Svandísi Svavarsdóttur, for-
manni Skipulagsráðs Reykjavík-
urborgar og segir Harpa
Þórsdóttir, íbúi á Þórsgötu, fund-
inn hafa verið ágætan. „Við fórum
yfir velflest þau atriði sem
óánægja okkar elur á og skoðuð-
um mjög vel þær teikningar sem
við höfðum, sem og umsagnir um
reitinn frá Skipulags- og bygg-
ingasviði,“ segir Harpa en „það
voru ákveðin vonbrigði að hún
sagðist engu geta lofað.“
olav@frettabladid.is
Íbúarnir saka verk-
taka um þvinganir
Íbúar á Baldursgötureit krefjast þess að Reykjavíkurborg gæti hagsmuna
þeirra. Verktakinn bíður þess að málið ljúki sínum ferli hjá borginni.
BALDURSGATA 34 OG 32 Hús í eigu Baldursgötu ehf. sem styrinn stendur um en
íbúar á reitnum segja deiliskipulagstillögurnar komnar frá eigendum húsanna sem
beiti brögðum við að koma málinu í gegn. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
UTANRÍKISMÁL Starfsmenn Þróunar-
samvinnustofnunar (ÞSSÍ) sem
nú starfa á Srí Lanka verða ekki
kallaðir heim að sinni, þrátt fyrir
að vopnahlé sé runnið úr gildi og
íslenskir og norskir friðargæslu-
liðar búnir að yfirgefa landið.
Þetta kom fram í máli Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur
utanríkisráðherra á fundi með
fréttamönnum um ástandið á Srí
Lanka í kjölfar brotthvarfs friðar-
gæsluliða frá landinu.
Tveir íslenskir starfsmenn ÞSSÍ
eru í landinu auk fjögurra heima-
manna. Ingibjörg segir stöðu mála
í landinu í dag ekki kalla á það að
þessari starfsemi verði hætt, en
ef landið fari í „stríðsham“ verði
staðan endurmetin.
Átta íslenskir friðargæsluliðar
af þeim níu sem voru í landinu eru
nú farnir þaðan, aðeins yfirmaður
friðargæslunnar þar í landi varð
eftir ásamt tíu Norðmönnum til að
sinna frágangi.
Ingibjörg segir að á fundi með
þeim friðargæsluliðum sem nú
séu komnir heim hafi þeir látið í
ljós áhyggjur af ástandinu í land-
inu, ekki síst lífi og aðbúnaði
almennra borgara.
Á næstunni verða verkefni
Íslensku friðargæslunnar metin.
Ingibjörg segir að brotthvarfið
frá Srí Lanka gæti opnað fyrir
möguleika á því að taka við nýjum
verkefnum eða að styrkja verk-
efni sem þegar eru í gangi.
- bj
Starfsmenn Þróunarsamvinnustofnunar munu verða enn um sinn á Srí Lanka:
Endurskoðað ef stríð brýst út
ERFIÐ STAÐA Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra ræddi stöðuna á Srí Lanka
við fréttamenn í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SÖFN Bæjarstjórn Hveragerðis
hefur samþykkt samkomulag við
einkahlutafélagið Dulheima um
uppbyggingu á skemmti- og
fræðslugarði um ásatrú.
Að því er segir í fundargerð
bæjarstjórnar mun garðurinn
bera nafnið Auga Óðins. Þar verði
forn heimsmynd germanskra
manna, ásatrú, gerð ljóslifandi
með nútímatækni. Samstaða var
um málið í bæjarstjórn og munu
forsvarsmenn Dulheima halda
kynningarfund fyrir bæjarbúa á
næstunni.
Auga Óðins hefur verið valinn
staður undir Hamrinum í
Hveragerði. - gar
Dulheimar opna Auga Óðins:
Hvergerðingar
fá ásatrúarsafn
ALLSHERJARGOÐI Skemmtigarður um
ásatrú er í burðarliðnum.
ÁTVR Á SEYÐISFIRÐI
Vill vita um verndunaráform
Arnbjörg Sveinsdóttir, Sjálfstæðisflokki,
hefur lagt fram fyrirspurn til fjármála-
ráðherra um hvaða áform séu uppi
um innréttingarnar í fyrrum verslun
ÁTVR á Seyðisfirði. Vill hún vita hvort
fyrirtækið eða ráðuneytið hyggist beita
sér fyrir verndun innréttinganna.
Aflaverðmæti eykst milli ára
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 68,5
milljörðum króna á fyrstu tíu mán-
uðum ársins 2007 samanborið við
64,3 milljarða á sama tímabili 2006.
Aukningin nemur 4 milljörðum króna
eða 6,5 prósentum milli ára. Aflaverð-
mæti í október var 6 milljarðar sem er
sambærilegt við október 2006.
SJÁVARÚTVEGUR
Ert þú á vetrardekkjum?
Já 79%
Nei 21%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Fylgist þú með Evrópumótinu í
handbolta?
Segðu skoðun þína á visir.is
KJÖRKASSINN