Fréttablaðið - 20.01.2008, Qupperneq 12
12 20. janúar 2008 SUNNUDAGUR
UMRÆÐAN
Skipulagsmál
Hugmyndir um að reisa þjónustukjarna
á Álftanesi hefur verið
lengi í mótun. Nú hillir í
að úr rætist og fram-
kvæmdir hefjist sam-
kvæmt skipulagstillögu
að „Grænum miðbæ“.
Byggðin á nesinu hefur
vaxið ört síðan áform um
alþjóðaflugvöll voru slegin af 1973.
Hér er gott að búa, fjöldi íbúa
hefur tvöfaldast á hverjum áratug
sem kallar á ýmsa þjónustu.
Opin arkitektasamkeppni um
skipulag miðsvæðis 1991 skilaði
tólf tillögum og var tveimur skip-
að í verðlaunasætið, en tími fram-
kvæmda var ekki kominn. Megnið
af svæðinu er óhentugt byggingar-
land, fyrrum mýri sem skiptist á
marga landeigendur sem samein-
uðust um framræstinguna. Áform
um framkvæmdir lágu niðri þar til
önnur verðlaunatillagan var
útfærð í samvinnu við höfundana
og samþykkt af sveitarstjórn 1999.
Þar var gert ráð fyrir lágreistri,
strjálli byggð með litlum afmörk-
uðum þjónustukjarna og góðu
vegasambandi. Enn strönduðu
framkvæmdirnar, m.a. á óljósri
eignaskiptingu á svæðinu.
Þegar einkaaðilar náðu síðar að
kaupa stærsta hluta svæðisins
komst á ný skriður á undirbúning
framkvæmda, en nýir eigendur
þrýstu á um meira byggingar-
magn. Árið 2003 var höfundur að
hinni verðlaunatillögunni frá arki-
tektasamkeppninni 1991 fenginn
til að vinna aðra skipulagstillögu.
Þegar ný tillaga með þéttri byggð
var kynnt á íbúafundi sama ár
mætti hún allharðri andstöðu. Mót-
mælin risu hátt og þegar tillagan
var tilbúin í formlegt kynningar-
ferli hafði öflug grasrótahreyfing
myndast. Stuttu fyrir síðustu
sveitar stjórnarkosningar var
skipu lagið engu að síður sam-
þykkt, en meirihluti bæjarstjórnar
ákvað að bíða með framkvæmdar-
leyfi þar til úrslit kosninganna
lægju fyrir.
Skemmst er frá því að segja að
nýskipuð bæjarstjórn leitaði sátta
og samþykkti einróma að efna til
nýrrar arkitektasamkeppni, svo-
kallaðrar framkvæmdakeppni,
enda allir sammála um að draga
ekki öllu lengur uppbyggingu þjón-
ustukjarna. Undirbúningsnefnd
útbjó í samvinnu við Arkitektafélag
Íslands vandaða keppnislýsingu
byggða á þarfagreiningum, fyrri
samþykktum og væntingum Álft-
nesinga á íbúaþingum. Dómnefnd-
in, sem skipuð var þremur fag-
mönnum og einum fulltrúa frá
hvoru framboði, var einróma í nið-
urstöðu sinni um að tillaga frá
GASSA arkitekter uppfyllti best
þær forsendur sem gefn-
ar voru, af þeim átta sem
skilað var inn. Í áliti
nefndarinnar var tillög-
unni m.a. hampað fyrir
góða lausn á umferðar-
flæði um miðsvæðið og að
skólasvæðinu, að helm-
ingur bílastæða verði í
bílageymslum neðanjarð-
ar og að áhersla er lögð á
óhefta ferð gangandi um
svæðið og um leið víkj-
andi umferð ökutækja.
Sérstaða landslagsins er undir-
strikuð með samhangandi grænu
yfirbragði, sem næst fram með
skipulagi sameignarlóða í stað
afgirtra einkalóða og að hús standa
út yfir sökkulinn, sem lyftir þeim
frá fletinum. Opin stölluð vatnsrás
þvert og endilangt um miðsvæðið,
með rólegu streymi grunnvatns,
minnir á framræstar mýrar og
tjarnir á nesinu. Tillagan gerir
skýra kröfu um vandaða hönnun
bygginga og forðast einhæfar
staðlaðar einingar og hæfilegt
rými, sem er haganlega fyrir
komið við eina aðalgötu, er ætlað
undir þjónustubyggingar. Syðst á
svæðinu er gert ráð fyrir veglegu
menningar- og náttúrusetri ásamt
tengdri atvinnustarfsemi, sem
væntanlega á eftir að skapa mörg
tækifæri fyrir íbúa í bæjarfélag-
inu og stuðla að blómlegu mann-
lífi, eða eins og segir í dómnefnd-
arálitinu: „Tillagan endurspeglar
sérstakar og framsýnar hugmyndir
um miðsvæði, sem á trúverðugan
máta sýnir hvernig móta megi
manneskjulegt umhverfi, með
hliðsjón af þeim náttúrulegu
gæðum sem svæðið býður upp á.”
Verðlaunatillagan hangir nú
uppi til kynningar og afgreiðslu.
Þrátt fyrir vandaða vinnu er
vitanlega eitt og annað sem mætti
óska sér öðruvísi. Eitt af þeim
atriðum sem hefur eðlilega fengið
sérstaka athygli er bílaumferð í
námunda við skólana, enda liggja
mörk skipulagsins að skólasvæð-
inu, þar er daglega mesta
umferðarálagið við stærsta vinnu-
stað samfélagsins og vegfarendur
flestir börn. En það þarf að gera
ráð fyrir notkun bíla og því hefur
gatan meðfram skólalóðinni verið
hönnuð með það í huga að aksturs-
hraði verði lítill en yfirsýnin góð.
Lengi má gott bæta og til þess er
kynningarferlið að kalla eftir
athugasemdum og ábendingum
um betri lausnir.
Það er ekki laust við að eftir-
væntingar gæti á Álftnesi. Tillag-
an er óvenjuleg og miklar kröfur
gerðar til allra sem að þessu koma.
En nú þegar óvissa ríkir í fjár-
málaheiminum eygja margir
möguleika í því sem ber af og
vekur athygli. Fyrirhugaður
„Grænn miðbær“ á Álftanesi og
áform sveitarfélagsins um friðun
stórra opinna svæða, með skír-
skotun til verndun Skerjafjarðar,
er dæmi um bjarta framtíðarsýn
heima í sveitinni sem Álftnesingar
eru stoltir af.
Höfundur er formaður skipulags-
og byggingarnefndar á Álftanesi.
UMRÆÐAN
Forsetakosningar
Nokkur endurstokkun varð í stjórnarliðinu
við síðustu alþingiskosn-
ingar, mörg ný andlit
komin á þing og í ráð-
herrastóla. Á meðal nýlið-
anna eru einstaklingar
sem hafa talað fyrir auknu
lýðræði í landinu og þróun
til beins lýðræðis. Ég
skora á þessa einstaklinga og
íslensk stjórnvöld að standa vörð
um lýðræðið og sofna ekki á verð-
inum hvorki í alþingis-, sveitar-
stjórna- eða forsetakosningum
þjóðar innar.
Hollt væri íslensku lýðræði
áður en stjórnvöld boða aftur til
forsetakosninga að fá óhlutdræga
skýrslu unna af Öryggis- og Sam-
vinnustofnun Evrópu um aðdrag-
anda kosninganna 2004. Því miður
óttast ég að þá renni tvær grímur
á þessa ágætu eftirlitsstofnun.
Leiðarahöfundar íslenskra fjöl-
miðla hafa lýst áhyggjum yfir
sviðsettu lýðræði í Rúss-
landi og sagt rússneskar
forsetakosningar ólýð-
ræðislegar vegna óhóf-
legrar umfjöllunar fjöl-
miðla þar um forsetann og
embættisverk hans í
aðdraganda kosninganna,
meðan öðrum frambjóð-
endum var gefinn lítinn
kostur á að kynna sín
stefnumál. Ég minni á
göngu mína til ritstjóra
Morgunblaðsins 7. maí
2004 er ég færði honum meira en
mannhæðarhátt spjald þakið
úrklippum blaðsins, tugi síðna um
störf og baráttumál sitjandi for-
seta og í hinni hendinni agnarlitla
grein, nánast á stærð við gott frí-
merki, sem var frétt Morgunblaðs-
ins um mitt framboð til Forseta
Íslands. Óhjáhvæmilega minnir
þetta á „rússneskt lýðræði“.
Heimsfrægur prófessor, sem kom
úr Kastljósi RÚV þannig klipptur
að allar tilvitnanir um mitt for-
setaframboð, embætti forseta
Íslands og friðarmál var horfið,
líkti þessu við það sem gerðist í
Júgóslavíu undir einræðisherran-
um Slobodan Milosevic.
Kosningaárið 2008 hófst með
endurtekningu frá 2004 á öfgafull-
um hræðsluáróðri stuðningsmanna
Ólafs Ragnars Grímssonar um
kostnað við kosningar. Ég fæ ekki
betur séð en að forsetakosningar
gætu orðið tekjulind fyrir einstök
sveitarfélög því samkvæmt nýjum
fjárlögum fá þau fasta upphæð kr.
430 á hvern kjörgengan mann úr
ríkissjóði og 300 þús. fyrir hvern
kjörstað. Sveitarfélög er gæta
aðhalds í kostnaði gætu í raun
hagnast á kosningum. Þar að auki
fer allt kosningafé strax í umferð
hérlendis og kemur þannig að
mestu til baka í sköttum og gjöld-
um. Ekki úr vegi að Alþingi kynni
sér tækniþróun samtímans með til-
liti til rafrænna kosninga og þannig
má í framtíðinni kjósa um forseta
og önnur þjóðþrifamál með litlum
tilkostnaði. Fjarstæða er að halda
því fram að kosningar séu þungur
baggi á þjóðarbúinu og slíkur mál-
flutningur er bein aðför að undir-
stöðum lýðræðisins. Ótækt er að
öskurapar ljósvakans í blogg-
heimum og fjölmiðlum í eigu eða
undir stjórn stuðningsmanna ein-
stakra stjórnmálamanna eða skoð-
ana komist upp með að éta lýðræðið
til agna.
Oddviti yfirkjörstjórnar eins
stærsta kjördæmis landsins, Þór-
unn Guðmundsdóttir gerðist beinn
þátttakandi á Stöð2 í aðför gegn
íslensku lýðræði. Ég spyr oddvit-
ann 9 spurninga sem ég bíð eftir
svörum við og vona að hún sjái
sóma sinn í að svara. Eftir
uppákomu Þórunnar á Stöð2 eiga
spurningarnar fullt erindi til odd-
vita yfirkjörstjórnar síðustu
forsetakosninga.
Ég tók að mér að kynna íslensku
þjóðinni nýja hugmyndafræði í
friðarmálum. Ég tala af einlægni
fyrir breyttum áherslum hjá emb-
ætti Forseta Íslands. Nokkrar hug-
myndanna hafa nú séð dagsins ljós
þótt Forsetinn hafi því miður ekki
ljáð málinu lið. Friðarstofnun
Reykjavíkur var stofnuð af Borg-
arstjóra árið 2006 og mér skilst að
háskóladeild í friðarmálum rísi á
Keflavíkurflugvelli.
Sitjandi forseti hefur ekki tekið
friðarmálin upp eins og hann
marglofaði í kosningasjónvarpi
árið 1996 að ónefndum loforðum
til mín persónulega. Það er
áhyggjuefni ef næstu 4 ár tapast
með áframhaldandi aðgerðaleysi
manns sem virðist ætla að sitja til
eilífðarnóns.
Strax 1996 lýsti ég því yfir að ég
sækist ekki sérstaklega eftir starfi
forsetans nema til að vinna friðar-
málum brautargengi. Ég hét
hverjum þeim frambjóðanda
stuðning sem tæki að sér baráttu-
mál Friðar 2000. Tilboðið stendur
enn. Ég vona að ég þurfi ekki enda-
laust að ganga friðargönguna til
Bessastaða og íslensk þjóð geti
komið sér saman um frambjóðend-
ur sem ekki tala tungum tveim og
sem af einlægni taka friðarmálin
uppá arma sína. Þeir sem vilja
kynna sér hugmyndir okkar um
breyttar áherslur hjá Forseta
Íslands geta kynnt sér vefinn www.
forsetakosningar.is
Höfundur er formaður Friðar
2000.
ÁSTÞÓR
MAGNÚSSON
Sviðsett lýðræði á Íslandi
KRISTINN
GUÐMUNDSSON
Hillir undir „grænan miðbæ“ á Álftanesi