Fréttablaðið - 20.01.2008, Síða 14

Fréttablaðið - 20.01.2008, Síða 14
14 20. janúar 2008 SUNNUDAGUR IVANA TRUMP ATHAFNAKONA ER 59 ÁRA Í DAG „Að líta glæsilega út er besta hefndin.“ Ivana Trump var gift millj- arðamæringnum Donald Trump en skildi við hann eftir að upp komst um fram- hjáhald hans. Núverandi elskhugi Ivönu er 36 ára. Audrey Hepburn fæddist í Belgíu 1929. í seinni heims- styrjöldinni flutti fjölskyldan til bæjarins Arnhem í Hollandi undan ágangi nasista og tók Audrey upp nafnið Edda van Heemstra svo enskt nafn hennar vekti ekki athygli nas- ista. Hún lærði ballett í Hollandi og dansaði á uppákomum til styrktar hollensku andspyrnu- hreyfingunni. Hún sá daglega lestarvagna hlaðna gyðingum fara um lestarstöðina í Arnhem sem hafði djúp áhrif á hana. Eftir stríð flutti hún til Amsterdam og þaðan til London til að læra dans en snéri sér að leiklistinni því það gaf meira í aðra hönd. Hepburn átti glæstan feril sem kvikmyndaleikkona og nægir að nefna Breakfast at Tiffany‘s og My Fair Lady. Hún var tvígift og tvískilin og átti tvo syni. Þegar hún lést í Sviss árið 1993 hafði hún átt í áralöngu sambandi við Robert Wolders, hollenskan leik- ara, en þau giftust aldrei. ÞETTA GERÐIST: 20 JANÚAR 1993 Audrey Hepburn kveður Ris, áfangaheimili fyrir alkóhólista, var stofnað fyrir rúmlega þrjátíu árum og gaf út af því tilefni afmælisritið Ljósaskil eftir Þóri S. Guðbergsson. „Við gáfum út þessa sögu okkar því við vildum ekki láta þennan tíma glatast,“ segir Guðlaugur Sveinsson, forstöðu- maður Rissins, en hann hefur veitt heimilinu forstöðu frá upphafi. Guðlaugur rifjar upp þegar nokkr- ir eldhugar tóku sig saman og leigðu hluta af húsnæði í Brautarholti fyrir þá sem hvergi gátu höfði sínu hallað. „Á þessum tíma voru menn að ræða mál þeirra sem voru hingað og þang- að í afvötnun, þetta var um svipað leyti og SÁÁ var að fara af stað og það var vakning í þessum málum, nýbúið að opna afvötnunarstöð á Vífilsstöðum og þar voru nokkrir framtakssamir menn sem vildu opna stað fyrir þá sem áttu hvergi höfði sínu að halla,“ segir hann og heldur áfram. „Þetta hékk illa saman til að byrja með. Þetta var gras- rótarhópur og menn voru í vandræðum með fjármagn, við vorum að fara út í eitthvað sem við áttuðum okkur ekki á að þyrfti mikla peninga til að reka. Það var til dæmis stofnað til happa- drættis með bíl í verðlaun og það var alls konar basl og vitleysa í byrjun en það var farið af stað af hugsjón,“ segir Guðlaugur. Til að byrja með fékk heimilið inni á hóteli í Brautarholti en þurfti að víkja þegar sumargestirnir komu. Þá lá leið- in niður á Tryggvagötu þar sem heim- ilið var í þrjú ár áður en það flutti upp í Stakkholt, en er nú staðsett á Snorra- braut 52. Um tuttugu manna hópur gistir heimilið og segir Guðlaugur þetta vera fastan kjarna en einn til tveir innritast hjá honum á mánuði. „Dvalartíminn átti að vera til þriggja mánaða en það hafði bara ekkert upp á sig því menn fóru að kvíða brottfarar- deginum strax. Þá lengdum við tímann í hálft ár en síðan hættum við bara að setja tímamörk og menn hafa ílengst hér mislengi. Það má segja að kjarninn sé árangur heimilisins í raun,“ úskýrir Guðlaugur og segir svona starfsemi forsendu þess að menn geti lifað eðli- legu lífi eftir að hafa misst allt. „Þetta sáum við frá upphafi, menn komu úr meðferð, sátu niðri á Umferð- armiðstöð og vissu ekkert hvert þeir áttu að fara og sumir hverjir búnir að drekka frá sér allt. Þessi staður hefur bjargað mörgum frá því að hrein- lega drepast. Það er ekkert flóknara en það,“ segir Guðlaugur. „Bakkus er grimmur, það þýðir ekkert að semja við hann og eina ráðið er að gefast upp. Ef menn gera það ekki þá drepur hann bara,“ bætir hann við með þunga. Hann segir framtíð heimilisins óljósa en þörfin sé fyrir hendi sem aldrei fyrr. Skilning vanti hins vegar hjá þeim sem fari með peningavöldin. „Okkur vantar klárlega meira fjár- magn enda ekki hægt að standa í þessu af eldhuga einum saman. Hins vegar höfum við verið að skila góðu starfi og eigum góða bandamenn og ætlum að reyna að halda þessu starfi áfram í einhverri mynd enda þannig mála- flokkur að hann á ekki að hafa neitt í flimtingum,“ segir Guðlaugur Sveins- son, forstöðumaður Rissins, að lokum. heida@frettabladid.is ÁFANGAHEIMILIÐ RIS: ÞRJÁTÍU ÁR FRÁ STOFNUN HEIMILISINS Bakkus erfiður andstæðingur FORSTÖÐUMAÐUR FRÁ UPPHAFI Guðlaugur Sveinsson segir heimilið hafa bjargað mörgum frá því að hreinlega drepast. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR timamot@frettabladid.is Ástkær móðir okkar og tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Svava Stefánsdóttir frá Fáskrúðsfirði, Hjallaseli 55, áður Mjóstræti 4, andaðist í Seljahlíð föstudaginn 11. janúar. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 22. janúar kl. 13.00. Snæbjörn Aðalsteinsson Kristín Lárusdóttir Þórdís Aðalsteinsdóttir Gísli Guðnason Kristborg G. Aðalsteinsdóttir Rafn Guðmundsson Stefán Aðalsteinsson Elín Geira Óladóttir Anna Aðalsteinsdóttir Robert Molodziejko barnabörn, langömmubörn og langalangömmubörn. Okkar elskulegi eiginmaður, faðir, tengda- faðir og afi, Richard Svendsen (Rikki) Suðurhólum 24, Reykjavík, lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtu- daginn 17. janúar. Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík 24. janúar kl. 15.00. Úlfheiður Ingvarsdóttir Ingvar Hinrik Svendsen Iðunn Vaka Reynisdóttir Hermann Markús Svendsen Elísabet Alma Svendsen og barnabörn. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug vegna fráfalls elskulegs eigin- manns, föður, tengdaföður, afa og langafa, Stefáns Hermanns Eyfjörð Jónssonar Dalbraut 14, Reykjavík. Hjartans þakkir færum við starfsfólki deildar H-2 á Hrafnistu í Reykjavík fyrir góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. Þórey Gísladóttir Jón Bjarni Eyfjörð Stefánsson Svanborg Oddsdóttir Elís Stefán Eyfjörð Stefánsson Sigríður Albertsdóttir Jóna Gísley Eyfjörð Stefánsdóttir Geirmundur Geirmundsson barnabörn og barnabarnabörn. Við þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og útför elskulegs sonar okkar og bróður, Jakobs Hrafns Höskuldssonar Bröndukvísl 14, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við Björgunarsveitum Landsbjargar. Höskuldur Höskuldsson Aðalheiður Ríkarðsdóttir Rakel Sara Höskuldsdóttir Lea Ösp Höskuldsdóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Þórður Jón Pálsson kennari, Aflagranda 40, áður Melhaga 5, Reykjavík, sem lést 12. janúar síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Neskirkju kl. 13.00 þriðjudaginn 22. janúar. Elín Þórðardóttir Reinhold Kristjánsson Steinunn Þórðardóttir Hrafn Bachmann Aðalsteinn Þórðarson Guðrún Jóhannesdóttir Kjartan Þórðarson Helga Kristín Einarsdóttir Gunnar Þórðarson Hafdís Kjartansdóttir Barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur. Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma okkar og langamma, Elín Oddný Halldórsdóttir Einilundi 10a, Akureyri, lést á Dvalarheimilinu Hlíð þriðjudaginn 15. janúar. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 21. janúar kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á minningarkort Öldrunarheimila Akureyrar eða önnur líknarfélög. Svanhvít Jónsdóttir Herbert Herbertsson Elín Anna Guðmundsdóttir Sigurður Gunnarsson Brynja Guðmundsdóttir Jóhann Pétur Herbertsson Guðrún Elín Herbertsdóttir og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Kristín Jóhannsdóttir Árskógum 6, Reykjavík, verður jarðsungin frá Seljakirkju 21. janúar kl. 13.00. Jóhann Sævar Erlendsson Þuríður E. Baldursdóttir Anna Rósa Erlendsdóttir Guðni Ágústsson Kristín Erla Guðnadóttir Brynjar Víðisson Arnar Páll Jóhannsson Jóhann Baldur Jóhannsson Magnea Mjöll Ingimarsdóttir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.