Fréttablaðið - 20.01.2008, Blaðsíða 44
ATVINNA
20. janúar 2008 SUNNUDAGUR2416
Hafnarfjarðarbær leitar eftir
samstarfsaðila til að stýra undirbúningi
og framkvæmd viðburða
afmælishelgina 29. maí – 1. júní
Hafnarfjarðarkaupstaður verður 100 ára þann 1. júní
2008. Afmælisárið verður ein samfelld afmælishátíð
með fjöldanum öllum af uppákomum og viðburðum
en ætlunin er að halda veglega afmælishátíð í kringum
afmælisdaginn sjálfan.
Afmælisnefnd bæjarins leitar nú að samstarfsaðila við
undirbúning, stýringu og framkvæmd viðburða um
afmælishelgina. Leitað er að fyrirtæki með langa reynslu
af stjórnun og framkvæmd stærri viðburða og þurfa
áhugasamir að senda inn yfirlit yfir þá viðburði sem þeir
hafa staðið fyrir, drög að dagskrá afmælishelgarinnar,
útfærslu á útitónleikum, markaðsetningu og kostnaði.
Viðkomandi sér um undirbúning, framkvæmd, ráðgjöf
og tæknilega útfærslu afmælishelgarinnar í samstarfi við
starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar og þá aðila sem þegar
hafa verið gerðir samningar við.
Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband við
Steinunni Þorsteinsdóttur upplýsingafulltrúa (steinunn@
hafnarfjordur.is – gsm. 664 5521) eða Marín Hrafnsdóttur
menningar- og ferðamálafulltrúa (marin@hafnarfjordur.
is – gsm. 664 5776) til að fá nánari upplýsingar og þau
gögn sem liggja til grundvallar hátíðarhöldunum.
Gögnum skal skilað til Þjónustuvers Hafnarfjarðarbæjar í
síðasta lagi 8.febrúar 2008.
Merkt:
Hafnarfjarðarkaupstaður 100 ára
Þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar
Strandgata 6
220 Hafnarfjörður.
Hafnarfjörður fékk kaupstaðarréttindi 1. júní 1908. Sama dag var
fyrsti kjörfundurinn haldinn í Góðtemplarahúsinu, hófst hann kl.
12.00 á hádegi og lauk þremur klukkutímum síðar. 25 manns komu
á kjörstað en talið er að um 400 manns hafi verið á kjörskrá. Þá
bjuggu 1469 manns í bænum og 109 börn voru í barnaskóla bæjarins
og Ungmennafélagið 17. júní æfði og sýndi glímu að kappi. Fyrstu
lögregluþjónarnir voru ráðnir – báðir heljarmenni að burðum og
vöktu lögreglubúningarnir mikla athygli. Síðan eru liðin hundrað ár
og bæjarbúar orðnir hátt í 25.000 og löngu hættir að sýna glímu –
sér og öðrum til skemmtunar
100 ÁRA AFMÆLI
HAFNARFJARÐARKAUPSTAÐAR
ÞJÓNUSTUVER HAFNARFJARÐAR S ÍMI 585 5500
WWW.HAFNARFJORDUR. IS
ÞJÓNUSTUVER HAFNARFJARÐAR S ÍMI 585 5500
WWW.HAFNARFJORDUR. IS
STYRKIR TIL LISTA- OG
MENNINGARSTARFSEMI
Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar
auglýsir eftir styrkumsóknum
til lista- og menningarstarfsemi.
1. Í umsókn skal lýsa markmiði verkefnis vel og skila
kostnaðaráætlun ásamt öðrum fylgigögnum sem máli
skipta fyrir viðkomandi umsóknaraðila
2. Listamenn, félagasamtök eða menningarviðburðir
skulu tengjast Hafnarfirði
3. Ekki er styrkt til náms eða rekstrar (t.d. húsaleigu)
4. Nefndin áskilur sér rétt til að krefjast endurgreiðslu
styrkja, komi ekki til verkefna sem sótt er til
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar er að finna
á www.hafnarfjordur.is. Einnig má nálgast eyðublöðin í
Þjónustuveri Hafnarfjarðar að Strandgötu 6, og á Skrif-
stofu menningar- og ferðamála að Vesturgötu 8.
Ef ekki er sótt um með rafrænum hætti skal merkja
umsóknir Styrkir til lista- og menningarstarfsemi
2008, Strandgata 6, 220 Hafnarfirði. Skilafrestur er til
15. febrúar 2008.
Í skóbúð okkar að Grettisgötu 3, Reykjavík
vantar okkurstafsmann sem hefur áhuga á að
vinna með hágæða skófatnað.
Um er að ræða skófatnað frá
Taryn Rose-Allen Edmonds-Stuart Weitzman ofl .
Stafsmaður þarf að geta hafi ð störf sem fyrst.
Um er að ræða 50-70% starf.
Uppl óskast sendar á skoari@islandia.is
Þráinn skóari
-skóbúð
Yfiriðjuþjálfi
Það vantar áhugasaman og kraftmikinn iðjuþjálfa til að leiða iðjuþjálfun hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS). HSS er vaxandi sjúkrastofnun í
markvissri sókn. Þjónusta stofnunarinnar er mjög fjölbreytt á öllum sviðum. Hér ríkir afbragðsgóður starfsandi og góðum hugmyndum og
framtakssemi starfsmanna er tekið fagnandi. Iðjuþjálfunin er í nýrri og glæsilegri aðstöðu og er allur aðbúnaður til fyrirmyndar.
Yfi riðjuþjálfi sinnir öllu starfi á sviði iðjuþjálfunar hjá HSS, almennri sjúkradeild (lyfl ækningar, skurðlækningar, bæklun), endurhæfi ngardeild,
fæðingardeild, heimahjúkrun og heilsugæslu þ.m.t. barna og unglingageðteymi. Skjólstæðingar eru á öllum aldri. Yfi riðjuþjálfi sér um stefnu-
mótun og þróun iðjuþjálfunar og er faglegt sjálfstæði og ábyrgð mjög mikil.
Um er ræða 100% stöðu en möguleiki er á hlutastarfi minnst 60%. Æskilegt er að umsækjandi geti hafi ð störf sem fyrst. Upplýsingar veitir
Sigurður Þór Sigurðarson, yfi rlæknir, sigurdur@hss.is, sími 422-0500. Umsóknir sem greina frá menntun, fyrri störfum og meðmælendum skulu
berast til Bjarnfríðar Bjarnadóttur starfsmannstjóra , Mánagötu 9, 230 Reykjanesbæ eða með tölvupósti á netfangið bjarnfridur@hss.is.
Umsóknarfrestur er til og með 10. febrúar, 2007. Öllum umsóknum verður svarað.