Fréttablaðið - 20.01.2008, Blaðsíða 58
ATVINNA
20. janúar 2008 SUNNUDAGUR38
Einar Skúlason hefur
sinnt starfi framkvæmda-
stjóra Alþjóðahússins í
Reykjavík síðastliðin tæp
fimm ár.
„Starfið mitt gengur út á
að stýra daglegu starfi Al-
þjóðahússins og sjá til þess
að starfsemin sé í sam-
ræmi við vilja stjórnarinn-
ar. Standa við þá samninga
sem við höfum gert við sam-
starfsaðila og stjórna þess-
um tuttugu starfsmönnum
sem starfa hér ásamt um
240 verktökum,“ segir Einar
Skúlason, framkvæmda-
stjóri Alþjóðahússins. Einar
er með BA-gráðu í stjórn-
málafræði auk þess sem
hann lauk MBA-námi frá
Edinborgarháskóla í Skot-
landi skömmu áður en hann
tók við starfinu árið 2003.
Alþjóðahúsið er einka-
hlutafélag og sjálfseignar-
stofnun. Húsið er í senn
upplýsingamiðstöð og mál-
svari fyrir innflytjendur,
jafnframt sem veittar eru
upplýsingar um málefni inn-
flytjenda. „Við erum með
tvo ráðgjafa í fullu starfi
auk lögfræðings sem veitir
innflytjendum upplýsingar
og aðstoð við ýmis mál,“ út-
skýrir Einar, og segir frum-
kvæðið að stofnun húss-
ins hafa komið frá Reykja-
víkurborg. „Borgin rak á
sínum tíma nýbúamiðstöð
í Skerjafirði sem var undir
Íþrótta- og tómstundaráði.
Síðan vildu menn víkka út
starfsemina og þá komu
inn sveitarfélögin á höfuð-
borgarsvæðinu: Kópavogur
Hafnarfjörður, Seltjarnar-
nes og Reykjavíkurdeild
Rauða kross Íslands. Ríkið
var einnig með í undirbún-
ingsferlinu en dró sig út og
síðan stofnaði félagsmála-
ráðuneytið Fjölmenningar-
setur á Ísafirði í staðinn.
Hins vegar kom ríkið að Al-
þjóðahúsinu í fyrsta sinn í
fyrra. Þá fengu við örlítið af
fjárlögum og gerðum samn-
ing við félagsmálaráðuneyt-
ið,“ segir Einar.
Týpískur dagur hjá Ein-
ari snýst mikið um fundar-
hald, bæði innanhúss og
utan. „Innanhúsfundirnir
snúast til dæmis um starfs-
mannamál og þau verkefni
sem við erum með í gangi
hverju sinni. Utanhúsfund-
irnir eru síðan um ýmis sam-
starfsverkefni, stefnumótun
og upplýsingamiðlun. Þetta
er umsvifamikil starfsemi
og heilmikið umstang bæði
varðandi rekstur og starfs-
mannahald. Síðan er þetta
mikil pólitík og hugmynda-
fræði. Þess vegna er líka
mikilvægt að átta sig á því
hvað er að gerast í samfélag-
inu hverju sinni,“ segir Einar
og bætir við: „Samfélagsleg
verkefni eru það skemmti-
legasta við starfið. Og ég
vildi að ég hefði meiri tíma
til þess að velta fyrir mér
hvað er að gerast, sjá fyrir
ákveðna þróun og reyna að
hafa jákvæð áhrif á mál inn-
flytjenda á Íslandi. Enda er
margt sem þarf að breyta til
að ná jöfnum rétti,“ útskýrir
Einar og segir það leiðinleg-
asta við starfið að hafa ekki
nægilegt fjármagn. „Það
versta er að geta ekki fram-
kvæmt allar þær góðu hug-
myndir sem rata inn á borð
til mín og þurfa sífellt að
vera stífur í peningamálum
og halda aftur, til að rekstur-
inn gangi upp.“
Alþjóðahúsið er að sögn
Einars fjármagnað með 25
prósenta framlagi frá ríki
og sveitarfélögum sem eru
í samstarfi við húsið. Rest-
inni er sjálfaflað með sölu
á þjónustu á borð við nám-
skeiðahald og túlkaþjónustu.
„Við túlkum á 60 tungumál-
um og ráðum til þess verk-
taka og tökum umboðslaun.
Síðan erum við með ýmis
námskeið, meðal annars ís-
lenskunámskeið fyrir útlend-
inga og námskeið fyrir fyr-
irtæki og stofnanir um fjöl-
menningarleg samskipti sem
við sérsníðum að starfsemi
hvers og eins,“ segir Einar
sem er á leið til Danmerkur
eftir helgi í spennandi erinda-
gjörðum. „Fram undan er
fundur hjá nýskipaðri nefnd
með fulltrúum allra Norður-
landanna. Þessi nefnd mun
síðan veita norræna menn-
ingarsjóðnum ráðgjöf um
hvernig nálgast megi betur
nýja íbúa Norðurlandanna
og það verður spennandi að
sjá hvað kemur fram á þess-
um fundi,“ segir Einar.
rh@frettabladid.is
Í spennandi
erindagjörðum
Einar Skúlason segir að sér finnist samfélagsleg verkefni skemmti-
legust.
0
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.I
S
L
Y
F
4
06
07
0
1.
20
08
- Lifið heil
www.lyfja.is
Hlutverk Lyfju er að stuðla að góðri heilsu og vellíðan. Frá upphafi hefur Lyfja verið brautryðjandi í lækkun lyfjaverðs og
boðið upp á ýmsar nýjungar í faglegri þjónustu. Fyrirtækið rekur apótek og heilsubúðir víðs vegar um landið ásamt því
að starfrækja lyfjaskömmtun til einstaklinga og stofnana. Hjá fyrirtækinu starfa um 300 manns. Lykillinn að árangri er
starfsfólkið okkar og því höfum við það að markmiði að fá hæft fólk til liðs við okkur, skapa eftirsóknarverða vinnustaði
þar sem góður starfsandi ríkir og að starfsfólk fái tækifæri til að öðlast faglegan og persónulegan þroska í starfi.
Einkunnarorð okkar eru áreiðanleiki, umhyggja og metnaður.
Við leitum að sjálfstæðu,
skipulögðu og metnaðar-
fullu starfsfólki sem hefur
áhuga á að ganga til liðs
við framsækið og
spennandi fyrirtæki.
Lyfja hf. leitar að metnaðarfullum og drífandi starfsmanni í starf forstöðumanns Verslana-
og markaðssviðs. Á verslana- og markaðssviði eru 5 starfsmenn.
Starfs- og ábyrgðarsvið
Yfirumsjón með daglegum rekstri verslana Lyfju, Apóteksins og Heilsuhússins, sölu- og
markaðsmálum, útliti verslana og vöruframsetningu.
Mótun markaðsstefnu, framkvæmd hennar og gerð sölu- og markaðsáætlana.
Yfirumsjón með innkaupum annarra vara en lyfseðilsskyldra lyfja og birgðastýring.
Eftirlit með að rekstur verslana Lyfju hf. sé samkvæmt áætlun og brugðist sé við frávikum.
Sýna frumkvæði að nýjungum í rekstri og leita leiða til hagræðingar.
Seta í framkvæmdastjórn Lyfju hf.
Menntun og hæfniskröfur
Háskólapróf á sviði viðskipta.
Menntun og/eða þekking í lyfjafræði er kostur.
Reynsla af rekstri er æskileg.
Reynsla og þekking á markaðsmálum.
Færni í mannlegum samskiptum og geta til að vinna með ólíkum hópum fólks.
Öryggi í framkomu og geta til að halda kynningar á yfirvegaðan og skipulagðan hátt.
Góð yfirsýn yfir smásölumarkaðinn, reynsla á því sviði er æskileg.
Geta til að taka skjótar ákvarðanir.
Góð tölvukunnátta og gott vald á töluðu og rituðu máli.
Í boði er stjórnunarstarf hjá leiðandi fyrirtæki, starf sem hentar metnaðarfullum einstaklingi
sem vill ná árangri í starfi.
Nánari upplýsingar veitir Hallur Guðjónsson, starfsmannasviði,
sími 530-3800, hallur@lyfja.is og skal senda umsóknir ásamt ferilskrá til hans.
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Umsóknarfrestur er til 1. febrúar nk.
Forstöðumaður Verslana- og markaðssviðs