Fréttablaðið - 20.01.2008, Síða 76

Fréttablaðið - 20.01.2008, Síða 76
MENNING 56 G rigory Pasko vinnur oftast einn án verndar gegn stöðugum hót- unum. Með því að skrifa um ástand mannréttinda og umhverf- ismála í Rússlandi í dag tekur hann mikla áhættu. Hann hefur starfað sem blaðamaður undanfarin tuttugu og fimm ár og upplifað miklar breytingar í kjölfar Per- estrojku Gorbatsjovs og falls Sovétríkjanna, þíðu og aukið frelsi fjölmiðla og síðan aftur hertar reglur í ríki Pútíns. Pasko fæddist í Úkraínu árið 1962 og stundaði nám í blaðamennsku við herflota- háskólann í Lvov. Hann flutti til Valdivostok og skrifaði fyrir flotablaðið Vojeva Vachta (Varðturninn). Í október 1997 var hann hand- tekinn við heimkomu frá Japan og sakaður um njósnir. Sannleikurinn var sá að Pasko hafði kvikmyndað starfsmenn rússneska flotans varpa kjarnorkuúrgangi í hafið þrátt fyrir alþjóðlegt bann við því. Í kjölfarið var honum varpað í fangelsi en sleppt árið 2003 en þó aðeins skilorðsbundið. Hann var svipt- ur gráðum sínum hjá flotanum og margar lygar birtar um hann sem „svikara og njósnara“ í opinberum fjölmiðlum. Nú berst hann fyrir máli sínu hjá mannréttindadóm- stólnum í Strassbourg. Grigory Pasko hefur m.a. fengið Human Rights Watch verðlaun árið 2002 og í sept- ember 2007 hlaut hann þýsku friðarverð- launin sem kennd eru við rithöfundinn Erich- Maria Remarque. Í yfirlýsingu dómnefndar sagði að Pasko hlyti verðlaunin fyrir bók sína Rauða svæðið og vegna þess að hann væri „virkur baráttumaður frelsis og mann- réttinda“. Bókin Rauða svæðið fjallar um dvöl Pask- os í fangelsi og vinnubúðum norðvestur af Vladivostok. Hún byggir að stórum hluta á dagbók sem hann skrifaði með örsmárri skrift á ýmsa miða. Sagan minnir um margt á bók Solschenitsyns, Dagur í lífi Iwans Den- issowits. Pasko segir frá ómanneskjulegum aðstæðum og yfirvöldum. Hvernig 35 menn skiptust á að sofa í hörðum rúmum í þröng- um klefa þar sem lífið var háð geði yfir- manna og varða. Pasko veiktist og skilaboðin frá lögfræðingum, þegar þeir loks fengu að koma til hans, voru ekki uppörvandi. Hann skrifar um angist, von og algera örvæntingu á mjög ljóðrænan og sterkan hátt. Lýsingar hans á lofti eða fremur skorti á því í yfirfull- um fangaklefum eru oft yfirþyrmandi og ekki auðveldar aflestrar. Aftur á móti er ein- lægni höfundar og hugleiðingar um lífið og manneskjurnar fullar lífi og kímnigáfu. Létt- ur og lifandi stíll Paskos er eflaust ein af ástæðum þess að bókin hefur hlotið góðar viðtökur í Þýskalandi. Nú er verið að þýða bókina á ensku og fyrirhugaðar útgáfur á fleiri tungumálum. Hann skrifaði einnig aðra bók um lífið í fangelsi sem heitir Hun- angskakan. Bæði verkin voru prentuð í einni bók á rússnesku fyrir tveimur árum. En flutningabíllinn sem ók öllu upplaginu úr prentsmiðjunni „hvarf“ ofan í stórfljót á leiðinni til Moskvu. Þannig misstu lesendur í Rússlandi af því að fá að lesa sögur Paskos úr fangelsi Rússlands í dag. Áhrifaríkar frá- sagnir sem gætu allt eins verið frá tímum Dostojevskís eða úr Gúlagi Stalíns. Í Stokkhólmi talaði Pasko meðal annars á fundi á vegum Amnesty um líf hundraða þúsunda fanga í Rússlandi í dag og „steinald- arstig“ reglnanna sem þar gilda. „Fangar mega til dæmis aðeins hringja heim fjórum sinnum á ári,“ sagði hann. Við setjumst niður saman eftir kvöldfund- inn hjá Amnesty og ég get ekki stillt mig um að kvarta yfir einum fundargesta: Rúss- neskumælandi konu sem stöðugt spurði Pasko frekjulega eins og hann væri í yfir- heyrslu. Pasko lítur á mig öruggur og segir: „Þessi kona var frá leyniþjónustunni, FSB.“ Ertu viss? „Já,“ segir hann án þess að brosa: „Þegar ég er í útlöndum að tala, til dæmis í Banda- ríkjunum, þá skoða ég hópinn og get alltaf séð strax hverjir eru frá sendiráði Rússlands eða FSB.“ Ertu ekki hræddur við að halda áfram að skrifa? „Ég skrifa um staðreyndir. Fyrir mig er bara til eitt yfirvald og það er sannleikurinn. Ég er ekki meðlimur í neinum stjórnmála- flokki eða nokkrum samtökum. Það sem ég geri og hef verið að gera þessi tuttugu og fimm ár sem ég hef starfað sem blaðamaður er að segja sannleikann.“ Eftir dvölina í fangelsi og vinnubúðum var þér boðið að ritstýra tímariti fyrir fanga. Hvernig stóð á því? „Það var viðskiptajöfur í Moskvu sem langaði til að leggja peninga í þannig blað og þá var farið að leita að blaðamanni með háskólamenntun, reynslu af ritstjórn og sem hafði setið í fangelsi. Og ég var eini maður- inn sem kom til greina. Ég ritstýrði þessu tímariti í eitt ár og það naut mikilla vinsælda meðal fanga. Þeir sendu okkur sögur, ljóð og annað í þúsundatali. En eftir eitt ár var blað- ið skyndilega lagt niður.“ Pasko starfaði síðan á blaðinu Novaya Gazeta og deildi skrifstofu með Önnu Polit- kovskaju í þrjú ár. Þau ferðuðust oft saman um Rússland eða til útlanda: „Síðan var ég ritstjóri tímaritsins Ecologia i Pravo. Tíma- ritið, sem var fjármagnað með erlendu fé, fjallaði um umhverfismál og mannréttindi. En vegna hinna nýju laga um óháð félaga- samtök sem komu í veg fyrir erlenda fjár- mögnun varð ég að leggja blaðið niður vorið 2007.“ Nú birtast greinar Paskos um Rússland á ensku á internetinu. Jafnvel þótt hann skrifi um grafalvarleg efni þá er stíll hans oft skemmtilega írónískur og hittinn. Allar greinar hans má lesa á blogginu: www. robertamsterdam.com Nú ertu að skrifa um gasleiðsluna sem Nord Stream áætlar að leggja gegnum Eystrasalt. „Já, ég kvikmynda líka og tek viðtöl við fólk í löndunum sem þetta verkefni snertir.“ Er það ekki líka hættulegt, hið ríkisrekna Gasprom á jú 51 prósent í verkefninu? „Ef ég skrifa um það að gamlar ömmur í Rússlandi fái ekki gas inn í húsin sín þar sem leiðslan er lögð, þrátt fyrir að þeim hafi verið lofað því, þá er það ekki hættulegt. En..“ segir hann alvarlegri: „Ef ég fer að grafast fyrir um það hvers vegna kostnaður við leiðsluna hefur margfaldast frá því fyrstu áætlanir voru kynntar, já, þá getur það orðið hættulegt fyrir mig.“ Æ færri blaðamenn í Rússlandi vinna eins og þú? „Þeir eru enn til eins og til dæmis Andrey Novonkov frá Ribinsk. Það eru um það bil einn eða tveir þannig blaðamenn í hverjum landshluta og auðvitað fleiri í Moskvu. Pasko skiptir nú um umræðuefni: „Ég hef tekið eftir því í Rússlandi að í fyrsta lagi er verið að setja æ fleiri fyrrverandi KGB menn á dómarastóla. Annað sem ég hef tekið eftir er að gömlum prófessorum og deildar- stjórum í háskólunum er hent út og KGB- menn settir í staðinn. Stjórnendur og stjórn- ir háskóla og stofnana eru að fyllast af þeim sem eru hliðhollir Pútín.“ Og hvað gera þeir? „Þeir eru að endurrita skólabækurnar. Ekki bara söguna. Þeir breyta áherslum.“ Hvernig? „Á níunda áratugnum kom bylgja af nýjum lögum um frjálsara markaðskerfi í Rúss- landi, sem komu í staðinn fyrir gömlu sov- ésku lögin. En um leið og Pútíntímabilið hófst fóru þeir að „lagfæra“ þessi lög. Þess- ar breytingar eru ekki slæmar af því að þær séu vondar heldur vegna þess að þær eru lögfræðilega slæmar. Þeir byrjuðu á breyt- ingum en nú eru þeir farnir að henda þessum tuttugu ára gömlu lögum og einfaldlega semja ný sem henta þeim. Og þetta geta þeir gert vegna þess að Dúman er algerlega undir valdi þeirra.“ Og hvað er svona slæmt við þessi nýju lög? „Til dæmis nýju lögin um ferðir til og frá Rússlandi, innflytjendalög. Þeir bættu aðeins einni grein við. HELVÍTI Á JÖRÐ Staða frjálsra fjölmiðla í Rússlandi veldur víða áhyggjum en hags- munaaðilar tengdir ríki og valdablokkum í landinu hafa tangarhald á fjölmiðlum. FJÖLMIÐLAR HELGA BREKKAN Kunnur baráttu- maður fyrir ritfrelsi í Rússlandi Pútíns, Grigory Pasko. M YN D : H EL G A B RE KK A N
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.