Fréttablaðið - 20.01.2008, Qupperneq 78
MENNING 58
Hún hljóðar svona: „Þeim sem sækir um
vegabréfsáritun má neita ef viðkomandi
hefur skrifað eða sagt eitthvað niðrandi um
Rússland eða stjórn þess.“ Rúmlega þrjátíu
erlendum blaðamönnum hefur verið neitað
um vegabréfsáritun í skjóli þessarar nýju
greinar laganna. Ástæðan sú að þeir hafa ein-
hvern tíma skrifað grein sem stjórnvöldum
er ekki að skapi.
Nýjasta dæmið er Natalia Morar sem bjó
og vann í Moskvu en var neitað um að koma
inn landið í desember. Hún er enn í Moldavíu
og ekkert gerist í hennar máli og á meðan
heldur hún áfram að búa hjá móður sinni í
Moldavíu.“
Hvað gerist með erlenda blaðamenn í
Rússlandi?
„Vinur minn Boris Reichester í Moskvu
skrifar fyrir þýska vikuritið Focus. Lögregl-
an lemur hann af og til.“
Hvernig þá?
„Þeir handtaka hann, fara með hann á stöð-
ina og berja hann hressilega. Síðan er honum
sleppt. Ég hef tekið eftir því að þýsku blaða-
mennirnir virðast vera þeir sem eru hvað
hugrakkastir í skrifum sínum. Það er almennt
vitað að Pútín elskar Þýskaland og því mun
enginn þora að reka þýska blaðamenn frá
Rússlandi. Af því „okkur líkar Þýskaland“ er
minni hætta á því að þeim verði kastað út,
þeir eru bara lamdir af og til.
Þetta var bara eitt dæmi um nýju lögin,“
heldur Pasko ákveðinn áfram: „Það eru önnur
lög sem eru algerlega hræðileg og þau eru
kölluð andsvarslög gegn hryðjuverkum og
hryðjuverkastarfsemi.“
Hvernig virka þau?
„Ef ég til dæmis skrifa að Pútín sé þjófur og
slæmur fyrir Rússland og sé að láta myrða
Rússa og hafi hafið glæpsamlegt stríð í Tsjet-
sjeníu, þá er hægt að ákæra mig samkvæmt
þessum nýju lögum fyrir hryðjuverk og dæma
í fangelsi.“
En nú birtast skrif þín bara á netinu á ensku.
Er það ekki öruggara?
„Anna (Politkovskaja) hélt hún væri óhult
vegna þess að hún væri þekkt á Vesturlöndum
en svo reyndist ekki. (Anna var myrt fyrir
utan heimili sitt í Moskvu árið 2006.) Pútín
hafði rétt fyrir sér þegar hann sagði að hún
væri ekki þekkt í Rússlandi. Þegar hún var
myrt var hún að vinna að grein um fjármála-
starfsemi sem tengdist stríðinu í Tsjetsjeníu
og þá var greinilega tekin ákvörðun um að
taka hana af lífi. Og ég veit að ef þeir ákveða
að stöðva mig þá munu þeir ekki vara mig
við.“
Heldur?
„Heldur drepa mig beint.“
Nú þegjum við um stund því það er ekkert
hægt að segja, þar til Pasko segir: „Skrifaðu
vinsamlegast ekki í greinina þína það sem
franskur blaðamaður gerði um daginn.“
Hvað skrifaði hann?
„Að ég birti greinar mína á and-rússnesku
síðunni www.robertamsterdam.com. Þetta er
ekki and-rússneskt heldur bara staður þar
sem nýjustu greinar, kvikmyndir og upplýs-
ingar um það sem er að gerast í Rússlandi
birtast á fimm tungumálum. Ég hef verið
beðinn um að skrifa greinar í rússnesk blöð
undir dulnefni en það vil ég ekki.“
Nú hefur fjöldi Rússa yfirgefið landið. Hefur
þú ekki hugleitt það?
„Ef fjölskyldu minni verður hótað þá mun
ég gera það. En ég er blaðamaður og Rússland
og rússneska er mitt mál. Þetta er stórt land
og svo mikið meira en bara Pétursborg og
Moskva. Þótt ég skrifi núna fyrir þessa net-
síðu þar sem greinar mínar birtast á ensku þá
er ég alltaf að skrifa um Rússland.“
Á Amnestyfundinum talaðir þú um að sam-
tökin ættu að taka mál Mikhaíls Khodorkov-
skí upp á sína arma, hvers vegna?
„Vegna þess að hann hefur ekki fengið
réttláta meðferð. Allt málið gegn honum er
gegnumsýrt af andúð Pútíns á honum og
hvert lögbrotið fylgt á fætur öðru. Amnesty
skilgreinir samviskufanga á sérstakan hátt
en ég vona samt að í anda þessara mikilvægu
mannréttindasamtaka sé hægt að veita
honum og fleirum í Rússlandi aðstoð. Það er
mikilvægt að vekja athygli á því að mann-
réttindi þeirra séu brotin,“ segir Grigory
Pasko sem er þakklátur fyrir stuðninginn frá
Amnesty og tuttugu og fjögur þúsund bréf
sem meðlimir samtakanna um allan heim
skrifuðu á meðan hann sat í fangelsi.
Hvers vegna skrifaðir þú þessar tvær
bækur um lífið í fangelsum?
„Ég skrifaði bækurnar til þess að veita
innsýn í þennan heim og hvernig maður
breytist við þessa reynslu. Þrátt fyrir að
svipaðar sögur hafi verið sagðar fyrr.“ Hann
segir að lokum alvarlegur: „Einhver sagði að
fangelsi í Rússlandi væru eins og helvíti á
jörð en það er ekki rétt. Þau eru helvíti á
jörð.“
... gömlum prófess-
orum og deildar-
stjórum í háskólun-
um er hent út og KGB-menn
settir í staðinn. Stjórnendur
og stjórnir háskóla og stofn-
ana eru að fyllast af þeim.
Ljósmyndaspjald á götu
í Moskvu en enginn
glímir við Pútín.
M
YN
D
: H
EL
G
A
B
RE
KK
A
N
H Á S K Ó L A Ú T G Á F A N
www.haskolautgafan.hi.is - s. 525 4003
HEGRAVARPIÐ
Lise Tremblay
Smásagnasafn sem vakið hefur mikla
athygli í heimalandi höfundar Kanada fyrir
einfaldan og beinskeyttan stíl. Sögurnar lýsa
lífi íbúa í smábæ í Québec-fylki, sem byggja
afkomu sína á veiðimönnum, fuglafræð-
ingum og borgarbörnum í leit að ró. Fyrir
þetta verk hlaut höfundurinn ein merkustu
bókmenntaverðlaun sem veitt eru í Kanada.
2.800,- kr.
Afburðaárangur
Agnes Hólm Gunnarsdóttir og
Helgi Þór Ingason
Um stjórnunaraðferðir sem grundvallast á
gæðastjórnun og rannsóknir á fyrirtækjum
sem náð hafa afburðaárangri. Hvaða
aðgerðir og aðferðir eru líklegar til að
stuðla að afburðaárangri í rekstri fyrirtækis
eða stofnuna. Í þessari bók er leitast við
að skapa yfi rsýn yfi r nokkrar vel þekktar
rannsóknir á þessu sviði, sem og nokkrar
vinsælar stjórnunaraðferðir. 139 bls.
3.990,- kr.
Ljóðmæli
Einars Sigurðssonar í Eydölum
Einar Sigurðsson var höfuðskáld þjóðarinnar
í árdaga lúthersks siðar hér á landi.Bókin
skiptast í þrjá hluta. Inngangur fjallar um
sálmakveðskap í lútherskum sið og ævi
Einars í Eydölum. Þá tekur við kveðskapur
Einars, alls 45 sálmar og kvæði. Í síðasta
hluta, Skýringum og athugasemdum, er
gerð rækileg grein fyrir einstökum sálmum
og kvæðum og varðveislu þeirra. Bókinni
fylgja heimildaskrá, handritaskrá og
nafnaskrá.
5.600 kr.
Villa á öræfum
/ Allein durch die Einöde
eftir Pálma Hannesson
Tvímála útgáfa á sívinsælum hrakningasögum
Pálma Hannessonar, f.v. rektors MR og alþing-
ismanns. Þær leika meira að segja hlutverk í
glæpasögum Arnaldar Indriðasonar þar sem
söguhetjan Erlendur er sífellt að lesa þær og
má kannski halda því fram að þær gegni því
hlutverki þar að undirstrika íslensk sérkenni
þessa rannsóknalögreglumanns.
Bókin er á tveimur tungumálum, íslensku og
þýsku, og er mikill fengur að þessu verki fyrir
áhugamenn um hálendið og þessar hrakninga-
sögur sem hafa verið ófáanlegar árum saman.
3.300,- kr.
Söngvarnir frá Písa
Ezra Pound
Söngvarnir frá Písa teljast til stórvirkja í ljóða-
bókmenntum Vesturlanda og eru að margra
mati hápunkturinn í hinu mikla æviverki Ezra
Pound sem hann nefnir Cantos. Ljóðafl okk-
urinn er ortur í fangabúðum Bandaríkjahers
norðan við Písa á Ítalíu 1945, en þar sat Pound
um nokkurra mánaða skeið, ákærður fyrir
landráð og með dauðadóm vokandi yfi r sér.
Hann gerir upp líf sitt og les brot úr því saman
við rústir Evrópu sem og við leiftur úr liðinni
sögu og þá goðsagnakjarna sem hann taldi
óforgengilega.
3.400,-kr.
Leitin lifandi
Líf og störf sextán kvenna
Sextán konur, sem allar hafa lokið doktors-
námi við erlenda háskóla, eiga kafl a í bókinni.
Þær starfa við ýmsa háskóla landsinss og hafa
allar, um lengri eða skemmri tíma, stundað
eigin rannsóknir og miðlað þeim ríkulega
í ræðu, kennslu og riti. Í bókinni greina
konurnar frá eigin fræða- og rannsóknarsviði,
hvernig áhugi þeirra á því vaknaði og hvernig
þeirra eigin lífssaga og persónuleg reynsla
hafði áhrif á starfsval þeirra. Þær fjalla einnig
um hugmyndafræðilega þróun innan síns
fræðasviðs og hvernig hún hefur endurspegl-
ast í lífi þeirra, störfum og rannsóknum.
3.500,- kr.
Félagsfræði rótfestunnar
Kenningar um uppruna og eðli borgarsam-
félagsins
Enriques del Acebo Ibáñez
Hér er gerð grein fyrir þróun borgarsamfélaga
sem fyrirbæri nútímans en um leið sem
afsprengi fyrri samfélagshátta. Fjallað er um
helstu kenningar frumkvöðla félagsfræðinnar
sem snúa að þróun samfélagsins. Höfundurinn
fl éttar saman kenningum sínum og túlkunum
um rótfestu og rótleysi við myndun borgar-
samfélagsins og sýnir hvernig brautryðjendur
félagsfræðinnar á 19. og 20. öld tókust á
við félagslegt eðli nýja samfélagsins sem
einkenndist m.a. af stórborginni.
3.500,- kr.
Menntun, forysta
og kynferði
Guðný Guðbjörnsdóttir, prófessor
Hvaða máli skiptir menntun fyrir framgang
kvenna og karla til forystustarfa? Er það
ekki þeirra sjálfra að stýra menntun sinni?
Hvers vegna beindist umræðan um jafn-
rétti kynjanna í skólum nýverið og óvænt
að stöðu drengja?.
325 bls.
4.300,- kr
Almanak HÍ 2008
Dr. Þorsteinn Sæmundsson stjörnufræð-
ingur reiknaði og bjó til prentunar.
Auk dagatals eru margvíslegar upplýs-
ingar, svo sem um sjávarföll og gang
himintungla, yfi rlit um hnetti himin-
geimsins, mælieiningar, veðurfar, stærð
og mannfjölda allra sjálfstæðra ríkja og
tímann í höfuðborgum þeirra.
96 bls.
1.285,- kr