Fréttablaðið - 20.01.2008, Side 84
24 20. janúar 2008 SUNNUDAGUR
➜
VIKAN
■ Á uppleið
Snjósport. Jibbí! Nú kyngir niður
snjó og allir geta skellt sér á skíði,
bretti og snjóþotur.
Haframjöl og kartöflur. Uppistaða
matseldar á krepputímum.
Skautatískan. Þröngar ullarpeysur,
víð pils og eyrnahlífar.
Matarboð. Of kalt
til að fara í bæinn og
ekkert skemmtilegra en
að sitja með vinum yfir
rauðvíni og góðri súpu.
Gáfuleg tímarit. Mun
smartara að sjást lesa
Sjónaukann eða TMM
heldur en slúður um
hverjir voru hvar.
Hverjum er ekki
sama.
Sjónvarpsdag-
skráin. Nú er
virkilega hægt að sitja
fyrir framan kassann á
síðkvöldum þegar þættir
eins og Dexter eru að
koma aftur.
■ Á niðurleið
Allt tal um
megrun og föst-
ur. Ef þið nennið
virkilega að standa
í þessu þá skuluð
þið hætta að
drepa aðra úr leiðindum.
Þröng belti í mittið. Okkur fannst
þetta frábær hugmynd í byrjun
desember en virkar ekki eftir jóla-
svallið.
Jólaseríur. „Æ þetta er svo sætt,
eigum við ekki að
hafa þær áfram?“
Svarið er nei.
Gyllt og silfur-
litað. Við erum
komin með ógeð
á glamúrnum eftir
áramótin.
Bindi og skyrta
við gallabuxur.
Nei strákar, þetta er
ekki töff.
Miðbærinn. Fara ekki öll kenni-
leiti að hverfa? Greinilega enginn
sem veit hvað þeir eru að gera i
skipulagsmálunum.
MÆLISTIKAN
Mánudagur og þriðjudagur
Frívakt hjá Kristjáni Þór. „Þá tekur
maður það bara rólega og sinnir
fjölskyldunni,“ segir Kristján Þór.
Slökkviliðsmenn eru þó alltaf til
taks ef á þarf að halda. Stundum
krefjast aðstæður þess að allir
starfsmenn hjálpi til.
Miðvikudagur
Kristján Þór á dagvakt. Vaktin hefst
hálf átta að morgni og lýkur hálf
átta að kvöldi. Slökkviliðsmenn
fara í ræktina um tíuleytið og
sinna útköllum, sjúkraflutningum
og öðru yfir daginn.
Fimmtudagur
Dagvakt. Líkt og daginn á undan
er Kristján Þór mættur á vaktina
klukkan hálf átta. Blaðamaður og
ljósmyndari hitta hann áður en
slökkviliðið fer saman í ræktina
um tíu. Starfsaðstæður er skoð-
aðar hátt og lágt. Eftir hádegið
taka Kristján Þór og Guðmundur
varðstjóri á móti blaðamanni og
ljósmyndara að nýju og kynna fyrir
þeim undirstöðuatriði reykköfunar.
Föstudagur
Næturvakt. Vinna slökkviliðsins er
vaktavinna. Unnið er á tveimur tólf
tíma vöktum. Kristján Þór er nú
kominn á næturvakt. Ljósmynd-
ari hittir hann fyrir á heimili sínu
áður en hann fer á næturvaktina.
Borðað er í fyrra fallinu þar sem
vaktin hefst hálf átta. Unnið er alla
nóttina og fram á morgun.
Laugardagur
Næturvakt. Oftar en ekki er meira
að gera hjá slökkviliðinu um
helgar en aðra daga. Stórslysalaust
hafði verið hjá slökkviliðinu þegar
Fréttablaðið fór í prentun.
VIKA Í LÍFI REYKKAFARA
„Þetta getur verið svolítið puð í nokkurra hundraða
gráðu hita,“ segir Kristján Þór Henrysson, slökkviliðs-
maður og reykkafari í Slökkviliði höfuðborgarsvæðis-
ins, að lokinni örstuttri æfingu þar sem hann leiddi
blaðamann um húsakynni slökkviliðsins í fullum
reykkafaraskrúða. Með fimmtán til tuttugu kílóa
súrefniskút á bakinu og hlíf fyrir augum, fékk
blaðamaður smjörþefinn af starfinu.
Starfsumhverfi reykkafara er lífshættulegt öllum
öðrum en fagmönnum á sviði björgunar. Agað starfs-
lag, yfirvegun og vilji til þess að bjarga mannslífum
drífur menn áfram, oft við óbærilegar aðstæður. Oftar
en ekki fá menn reykinn í fangið, þegar hafist er
handa. „Vaktin byggist meira og minna á því að vera í
viðbragðsstöðu enda veit maður aldrei hvenær kallið
kemur. Allt byggist því á að vera viðbúinn kallinu.
Slökkviliðsgallinn er því alltaf klár og bílarnir einnig,“
segir Kristján Þór.
Menntun slökkviliðsmanna er talsvert mikil.
Fornámið er áttatíu stundir en til þess að verða
atvinnuslökkviliðsmaður þarf að lágmarki hálfs árs
starfsreynslu og skyldunám sem er um 540 stundir. Því
þarf að ljúka innan þriggja ára. „Námskeiðahald og
viðbótarnám er algengt í þessu starfi og maður sækir
sér þekkingu eins og maður hefur tíma til,“ segir
Kristján um leið og hann fer ásamt Guðmundi
Halldórssyni varðstjóra í útkall niður í Nauthólsvík.
Það reyndist sem betur fer ekki vera neitt.
Með reykinn í fangið
Slökkviliðsmenn hafa staðið í ströngu undanfarna mánuði en jólahátíðarnar eru oftar en ekki mikill
annatími hjá slökkviliðsmönnum. Magnús Halldórsson blaðamaður og Eyþór Árnason ljósmyndari fylgd-
ust með Kristjáni Þór Henryssyni, reykkafara í Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, á vaktinni í vikutíma.
KRISTJÁN ÞÓR OG GUÐMUNDUR Kristján Þór og Guðmundur varðstjóri sjást hér við
sérútbúinn köfunarbíl sem ávallt er til taks ef á þarf að halda. Hann var ræstur út
vegna gruns um að maður hefði farið í sjóinn í Nauthólsvík þegar blaðamaður og
ljósmyndari voru í heimsókn.
Í RÆKTINNI Slökkviliðsmenn reyna að fara í líkamsrækt einu sinni á hverri vakt, ef tími gefst til. Slökkviliðið er með samning
við líkamsræktarstöðina Hreyfingu þar sem þessi mynd er tekin. Auk þess er góð líkamsræktaraðstaða í Skógarhlíðinni. Kristján
Þór sést hér einbeittur við æfingar í fótpressu. Guðmundur Halldórsson varðstjóri stendur skammt undan og fylgis með félaga
Kristjáns Þórs í bekkpressu. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Í FAÐMI FJÖLSKYLDUNNAR Kristján Þór sést hér við matarborðið ásamt Ásgerði H.
Jóhannsdóttur konu sinni og börnum þeirra fjórum, Sandra Björt níu ára, Janus Þór
þrettán ára, Aron fjögurra ára og við hlið mömmu sinnar sést glitta í Ara sem er
tveggja ára. Á boðstólum er hefðbundinn og næringarríkur matur; hakk og spagettí.
Að honum loknum var tólf tíma næturvakt framundan.
MEÐ BLAÐAMANN Í ÓGÖNGUM Kristján Þór sést hér leiða blaðamann um ímynd-
aðar hættuslóðir. Reykkafarar í slökkviliðinu fara reglulega á einfaldar æfingar til
þess að halda sér við. „Það er ekki síst mikilvægt til þess að fá góða tilfinningu fyrir
tækjunum,“ sagði Kristján Þór áður en lagt var í hann. Eins og sést á myndinni lætur
Kristján Þór þungann hvíla á aftari fæti þegar hann fikrar sig áfram. Sá fremri er
notaður til þess að kanna hvort undirlagið sé traust en í brennandi húsum, þar sem
skyggni er ekkert og hitinn óbærilegur, getur ótraust gólf verið stórhættulegt.