Fréttablaðið - 20.01.2008, Qupperneq 88
28 20. janúar 2008 SUNNUDAGUR
folk@frettabladid.is
Ghostface Killah var maður
ársins í hip-hoppinu árið 2006
þegar hann sendi frá sér tvær
fínar plötur, meistaraverkið
Fishscale og viðbótina More Fish.
The Big Doe Rehab kom út í lok
síðasta árs og er sjöunda plata
Ghostface, eða Tony Starks eins
og hann heitir réttu nafni. Hún er
fín, ein af betri rappplötum
síðasta árs, en stenst ekki alveg
samanburðinn við Fishscale.
Það er allt eins og það á að vera
á The Big Doe Rehab. Plötu-
bæklingurinn er þakinn myndum
af 100 dollara-seðlum, á framhlið
umslagsins er huggulegur og
léttklæddur kvenkyns meðferðar-
fulltrúi að láta vel að Ghostface og ég taldi a.m.k. 23 „fuck“ í
upphafslaginu sem er rúm mínúta.
Ghostface er ein af flottari röddunum í rappheiminum og hann
klikkar ekkert á The Big Doe Rehab frekar en fyrri daginn.
Tónlistarlega hljómar þetta kunnuglega, soul-skotnir taktar og
grípandi viðlög. Fimm laganna á plötunni eru gerð af Sean C og LV
sem eru meðlimir í Hitmen-genginu hans P Diddy, en þeir komu
einmitt sterkir inn á bestu hip-hopp-plötu síðasta árs að margra
mati, American Gangster með Jay-Z.
Það eru nokkur frábær lög á The Big Doe Rehab, t.d. Walk
Around, We Celebrate, Tony Sigel a.k.a. the Barrel Brothers,
Yolanda‘s House og Supa GFK. Á heildina litið fín plata.
Trausti Júlíusson
Allt eftir bókinni
TÓNLIST
The Big
Doe
Rehab
Ghostface
Killah
★★★★
Wu-Ta ng
meðlimurinn Ghostface Killah fylgir
eftir plötutvennunni Fishscale og
More Fish með ágætis plötu sem
stenst þó ekki samanburð við meist-
araverkið Fishscale.
> PHARRELL OG VUITTON
Pharrell Williams mun hanna
skartgripalínu fyrir tískumerk-
ið virta Louis Vuitton. Williams
hefur áður gert sólgleraugnalínu
fyrir tískuhúsið, sem naut mikilla
vinsælda. Skartgripalínan mun
heita Blason. Gripirnir verða
verðlagðir á allt frá 130.000 til
40 milljóna króna.
Það er ekki hægt að segja
annað en að ofurfyrirsætan
Kate Moss kunni að lyfta sér
upp. Hún varð 34 ára gömul
síðastliðinn miðvikudag, og
hafði fyrirfram lofað því að
fagna tímamótunum með 34
klukkutíma veisluhöldum.
Veislan hófst klukkan tvö
um eftirmiðdaginn, þegar
Moss skálaði í kampavíni við
vinkonur sínar á Dorchester-
hótelinu í London. Hún hafði
leigt tvær hæðir á um tvær og
hálfa milljón króna. Kvöld-
maturinn var snæddur á veit-
ingastað hótelsins, China Tang,
í félagsskap vina og vanda-
manna, en þaðan lá leiðin í
einkapartí á skemmtistaðnum
Punk. Fjölmargar stjörnur
fögnuðu með fyrirsætunni, en
á meðal gesta voru Kelly
Osbourne, David Williams úr
Little Britain og Ronnie Wood
úr Rolling Stones.
Kate klæddist stjörnuprýdd-
um samfestingi frá Chanel og
skartaði gullstjörnu yfir aug-
anu í partíinu. Hún passaði
þannig ágætlega inn í yfirlýst
þema partísins, sem var glys-
rokk. Moss yfirgaf Punk um
þrjúleytið og hélt aftur á Dor-
chester-hótelið, en í þetta sinn
í Royal Penthouse svítuna. Sú
svíta var áður heimili soldáns-
ins af Brúnei þegar hann
dvaldist í London, og er á
meðal dýrustu hótelsvíta í
heimi. Nóttin kostar ríflega 17
þúsund pund, eða yfir tvær
milljónir króna.
Fyrirsætan yfirgaf svo Dor-
chester-hótelið um sexleytið,
og hélt á heimili vinkonu sinn-
ar, Rose Ferguson. Þaðan fór
hún um átta að morgni, og hélt
á heimili sitt í St. John’s Wood
með nokkra vini og nokkrar
vodkaflöskur í farteskinu.
Þrátt fyrir að hafa ekki náð 34
tíma veislu stóð fyrirsætan sig
því annars harla vel.
Íburður í afmælisveislu Kate
DÝRT AÐ VERA KATE Kate Moss
kann að halda upp á afmælið sitt.
Hún eyddi að minnsta kosti 4,5
milljónum króna á Dorchester-
hótelinu í London.
Óli Geir er á góðri leið með að
verða partíkóngur Íslands.
Hann er skemmtanastjóri á
Trix í Keflavík og á Breið-
inni á Akranesi. Þá rekur
hann partífyrirtækið Agent.
is sem heldur upp á eins árs
afmæli sitt á Nasa 1. febrúar
og á Sjallanum 2. febrúar.
„Þetta byrjaði rólega hjá mér,“
segir Óli, „en nú er þetta orðið
„fúltæm djobb“. Ég er bæði að
halda partí, flytja inn tónlistar-
menn og að sjá um umboðs-
mennsku. Ég hef sem dæmi verið
með XXX kvöld víðs vegar um
land. Þar er boðið upp á gæða
plötusnúða, frítt áfengi, breikara
og undirfatasýningu.“
Skemmtanalífið í Keflavík
hefur oft verið með skrautlegra
móti, en Óli segir það vera orðið
dannaðra en það var. „Þetta er
orðið rólegra enda eru núna átta
staðir hérna í bænum. Djammið
dreifist því á marga staði, en það
er náttúrlega alltaf troðfullt á
Trix.“
Eins árs afmæli Agent.is verð-
ur fagnað með hingaðkomu enska
plötusnúðsins Dave Spoon, sem er
stórt nafn í bresku house- og elect-
ronic-senunni og vel þekktur fyrir
lag sitt „At Night“. „Þetta er meiri
háttar flottur tónlistarmaður og
lög með honum eru í spilun á Flash
og Voice á Akureyri,“ segir Óli.
„Hann er eitt virtasta, ferskasta
og besta nafnið í þessum geira í
dag.“ Forsala er hafin í Levis-búð-
unum í Reykjavík og í Gallerý 17 í
Keflavík og á Akranesi.
Síðasta sumar stóð Óli fyrir
froðupartíum. „Það var tilraun
sem gafst vel,“ segir hann. „Fólk
hér vill fá fjölbreytni í skemmt-
analífið og þessi Íbíza-stemning
sem froðuvélin býr til hitti í mark.
Ég er að flytja inn enn öflugri
froðuvél frá Bandaríkjunum fyrir
næsta sumar.“
Óli segir mikla töfrasápu notaða
í froðuvélina. „Þetta er sérstök
froðuvélasápa og ég þarf að kaupa
hana inn með. Að sjálfsögðu
skemmir hún ekki föt og fer ekki í
augun. Það er mikið maus í kring-
um þetta. Í eitt gott partí fara
kannski tíu stórar frystihúsatunn-
ur af blandaðri sápu. Við erum að
tala um eitt tonn. Eftir partíin
liggur froðan um allt eins og snjó-
skaflar, en það er ekkert mál að
moka henni í burtu. Ég er líka að
leigja vélarnar út og er búinn að
fylla ófáa skóla af froðu.“
Það er ýmislegt spennandi í
bígerð hjá Agent.is og í maí er til
dæmis von á einu stærsta nafninu
í R&B hipp hoppinu. Óli er þó
ófáanlegur til að gefa upp hver
þetta er fyrr en dæmið er komið í
höfn. gunnarh@frettabladid.is
Enn öflugri froðuvél
FROÐUKÓNGUR ÍSLANDS Óli Geir heldur upp á eins árs afmæli Agent.is. Hér er hann
með vinum sínum á góðri stund.
Penninn hefur keypt ráðandi hluta
í írsku kaffihúsakeðjunni Insomnia
fyrir 16 milljónir evra, eða um 1,5
milljarða íslenskra króna. Þetta
kom fram í Irish Times í gær.
Fyrirtækið haslar sér þar með enn
frekari völl í kaffibransanum, því
auk írsku keðjunnar á Penninn nú
Te og kaffi á Íslandi, kaffihús og
teframleiðslufyrirtæki í Litháen
og kaffibrennslu í Lettlandi.
Insomnia er stærsta kaffikeðj-
an á Írlandi með fjörutíu útibú í
stærstu borgunum. Meira að segja
risakaffihúsakeðjan Starbucks á
ekki roð í fyrirtækið. Pennamenn
hyggja á útrás með andvökukaff-
ið, bæði á að opna tuttugu útibú til
viðbótar á Írlandi og koma keðj-
unni á markað í öðrum löndum.
Ekki er þó fyrirhugað að opna
útibú frá Insomnia hérlendis, enda
kaffimarkaðurinn líklega full-
mettaður hér með Kaffitári, Te og
kaffi og fleiri fyrirtækjum sem
seðja kaffiþorsta landsmanna.
Penninn kaupir
andvökukaffi
HASLAR SÉR VÖLL Í KAFFIBRANSANUM
Kristinn Vilbergsson, til vinstri, er eigandi
Pennans.
Lindsay Lohan mun vinna nokkrar
vaktir á bráðamóttöku og í
líkhúsi. Þetta er hluti af
refsingu hennar fyrir að
hafa ekið undir áhrifum
áfengis. Lohan var hand-
tekin í tvígang á síðasta
ári, fyrir að aka undir
áhrifum áfengis og kókaíns
og að aka ógætilega.
Hún náði samningum
við ákæruvaldið og
hlaut því skilorðs-
bundinn 36 mánaða
dóm, og afplánaði 24
tíma í fangelsi.
Lohan var einnig
gert að fara á 18
mánaða námskeið
um áfengi og vinna í tíu daga í sam-
félagsþjónustu.
Lohan hefur þegar skilað ein-
hverjum tímum í samfélags-
þjónustu hjá Rauða krossin-
um, en til að uppfylla skilyrði
dómsins mun hún þurfa að
vinna tvær fjögurra tíma
vaktir á neyðarmóttöku á
sjúkrahúsi, og í tvo daga í
líkhúsi.
Lindsay í líkhúsið
SAMFÉLAGSÞJÓNUSTA Í LÍK-
HÚSI Lindsay Lohan mun
þurfa að vinna í líkhúsi og
á neyðarmóttöku sjúkra-
húss til að uppfylla skilyrði
dóms sem hún hlaut fyrir
ölvunarakstur á síðasta ári.
Innritun í símum 588-3630 og 588-3730, eða í skólanum að Síðumúla 17, tölvu-
póstur: ol-gaukur@islandia.is Í boði er fjölbreytt nám með vönduðu námsefni
fyrir alla aldursflokka, bæði byrjendur og þá sem kunna eitthvað fyrir sér.
Nánari upplýsingar um skólann og námsleiðir er að fá á heimasíðunni:
www.gitarskoli-olgauks.is eða í skólanum á innrit-
unartíma, en innritað er alla virka daga kl. 14:00
til 17:00.
ww
w.g
itar
sko
li-o
lga
uks
.is
Hægt að fá leigða
HEIMAGÍTARA
kr. 3500 á önn
INNRITUN DAGLEGA KL. 14-17
G
A
U
K
U
R
–
G
U
T
E
N
B
E
R
G
Heimasíða:
www.gitarskoli-olgauks.is
588-3630
588-3730
síða
sta i
nnri
tuna
rvik
a