Fréttablaðið - 01.02.2008, Page 8
8 1. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR
1. Skólameistarar hvaða
tveggja framhaldsskóla voru
áminntir fyrir að ýkja fjölda
eininga sem nemendur luku?
2. Hver er nú talinn líklegastur
til að tryggja sér útnefningu
repúblikana fyrir forsetakosn-
ingarnar í Bandaríkjunum?
3. Hversu margir skrifuðu und-
ir mótmæli til borgaryfirvalda
vegna fyrirhugaðs niðurrifs
húsa í miðborginni?
SJÁ SVÖR Á SÍÐU 42
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
4
07
10
0
1/
08
Óþarfa gluggapóstur finnur sér leið inn á of mörg heimili í dag.
Á tímum rafrænna greiðslna og vefvæðingar ætti gluggapóstur
fyrir löngu að vera leifar gamals tíma, sóunar og óskynsemi.
Svo ekki sé minnst á umhverfisspjöllin.
Með því að fara inn á www.or.is/bodgreidslur getur þú lagt þitt af mörkum
til umhverfisverndar og borgað reikningana þína með boðgreiðslum.
Enginn pappír, enginn gluggapóstur, ekkert vesen.
Skiptu yfir í boðgreiðslur
• Ef allir viðskiptavinir OR skipta yfir í boðgreiðslur sparast 7068 kg
af pappír á ári eða 295 tré.
www.or.is
Fyrstu 100 sem skipta
yfir í boðgreiðslur
fá glaðning frá
Orkuveitu Reykjavíkur
Er þetta
ekki orðið
ágætt?
MENNTAMÁL Baldur Gíslason, skóla-
meistari Iðnskólans í Reykjavík,
kynnti kennurum áminningu sem
menntamálaráðuneytið hefur veitt
honum fyrir að oftelja fjölda nem-
enda sem lokið hafa prófi, á fundi á
kennarastofu skólans eftir hádegi í
gær.
„Ég var bara að segja kennurun-
um af þessu, og svo voru fleiri mál
sem ég tók fyrir,“ segir Baldur.
Menntamálaráðuneytið áminnti
einnig Gísla Ragnarsson, skóla-
meistara Fjölbrautaskólans við
Ármúla, í síðustu viku. Þá var
einnig skólameisturum þriggja
annarra skóla veitt tiltal.
Ástæðan er sú að ráðuneytið
telur skólameistarana fimm hafa
ýkt tölur yfir fjölda nemenda sem
luku áföngum í skólunum með
prófi. Afleiðingar þess voru þær
að skólarnir fengu framlög úr
ríkissjóði sem námu nokkrum
milljónum króna umfram það sem
þeim bar, á kostnað annarra skóla,
eins og fram kom í Fréttablaðinu í
gær.
Hvorki Baldur né Gísli vilja tjá
sig um málið, en þeir segjast báðir
líta svo á að málinu sé ekki lokið. Í
gær sagði Baldur að enn væri beðið
svars frá menntamálaráðuneytinu
vegna bréfs sem þeir sendu. Þar til
það svar berist muni hann ekki tjá
sig um málið við fjölmiðla. - bj
Skólameistari Iðnskólans bíður enn svars ráðuneytis við bréfi vegna áminningar:
Kynnti kennurum áminningu
IÐNSKÓLINN Í REYKJAVÍK Menntamála-
ráðuneytið telur ljóst að fjöldi nemenda
sem luku áföngum með prófi hafi verið
ýktur hjá fimm framhaldsskólum.
EVRÓPUMÁL Íslendingar hafa ekki
nýtt til fullnustu þá möguleika sem
þeir þó hafa til að hafa áhrif á
mótun og útfærslu nýrrar Evrópu-
löggjafar sem þeir síðan sam-
kvæmt EES-samningnum eru
skuldbundnir til að innleiða í lands-
lög. Þetta kom fram í máli Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur utan-
ríkisráðherra er hún mælti í gær
fyrir fyrstu árlegu sérskýrslunni
um Evrópumál sem utanríkisráðu-
neytið gerir fyrir Alþingi í stað
þess að þau séu afgreidd sem hluti
af hefðbundinni haustskýrslu ráð-
herra til þingsins um utanríkismál.
Mælst er til þess í skýrslunni að
Alþingi og fulltrúar á löggjafar-
þingi Íslendinga hafi vakandi auga
á málefnum innri markaðarins
„mun fyrr í stefnumótunar- og lög-
gjafarferlinu en hingað til hefur
tíðkast“. „Það er rétt og eðlilegt að
nálgast verkefni okkar á Evrópu-
vettvangi sem eitt mikilvægasta
hagsmunamál Íslands þar sem ríði
á að sýna árvekni og meta alla stöðu
rétt,“ sagði Ingibjörg Sólrún í fram-
sögu sinni.
„Margir hafa orðið til þess að
harma á liðnum árum áhrifaleysi
Alþingis sem einhvers konar stimp-
ilstofnunar EES-gerða. Í því felst
vanmat á möguleikum íslenskrar
stjórnsýslu og alþingismanna til að
hafa áhrif og til að nýta sér val sem
löggjöf Evrópusambandsins oftar
en ekki gefur aðildarríkjum innri
markaðarins við útfærslu EES-
gerða í innlendri lagasetningu,“
sagði ráðherrann.
Björn Bjarnason dóms- og kirkju-
málaráðherra tók undir þetta og
vísaði í ráðleggingar í skýrslu Evr-
ópunefndarinnar sem hann fór
fyrir og birt var í mars í fyrra, þar
á meðal að Alþingi hafi fastafull-
trúa í Brussel og þingflokkar
Alþingis komi á beinum tengslum
við þingflokkana á Evrópuþinginu.
Það er ein þeirra stofnana Evrópu-
sambandsins sem hefur stóraukið
áhrif sín á löggjafarferli ESB en
fulltrúar Íslands og annarra EES-
EFTA-ríkja hafa engan beinan
aðgang að samkvæmt EES-samn-
ingnum.
Bjarni Benediktsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks og formaður
utanríkismálanefndar, brýndi
Alþingi til dáða að beita sér með
virkari hætti á þessu sviði.
Ingibjörg Sólrún tók aftur á móti
fram að nauðsynleg forsenda skyn-
samlegrar umræðu væri að allir
gerðu sér „fullkomlega ljóst að með
því að kjósa EES-aðild kýs Alþingi
að halda Evrópusamstarfi á stjórn-
sýslustigi en kýs ekki þátttöku í
pólitísku samstarfi Evrópuþjóða“.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, og fleiri fulltrú-
ar stjórnarandstöðunnar fögnuðu
því að til þessarar umræðu væri
efnt á þingi. Steingrímur sagðist
þó hafa óskað sér að hún væri víð-
tækari en það sem varðaði þátt-
tökuna í innri markaði Evrópu.
Hann þóttist líka greina talsverð-
an áherslumun á málflutningi ráð-
herra eftir því hvorum stjórnar-
flokknum þeir kæmu úr. Tónninn í
máli utanríkisráðherrans væri að
hans mati allur í þá átt að Íslend-
ingum væri fyrir bestu að ganga
alla leið í Evrópusambandið, jafn-
vel þótt það væri ekki á stefnu-
skrá ríkisstjórnarinnar.
audunn@frettabladid.is
EVRÓPUMÁLIN RÆDD Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra mælir fyrir skýrsl-
unni á þingi í gær. Í umræðunni, sem stóð allan daginn, var sjónum beint að möguleik-
um Alþingis til áhrifa á mótun og útfærslu EES-gerða. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Alþingi verði
skilvirkara í
EES-málum
Í þingumræðu um skýrslu utanríkisráðherra um
Ísland á innri markaði Evrópu kom fram að Alþingi
gæti beitt sér með mun markvissari hætti til áhrifa á
mótun og útfærslu EES-löggjafar en gert hefur verið.
EVRÓPUMÁL Tiltölulega einfalt yrði
að semja um aðild Íslands að Evr-
ópusambandinu og gera má ráð
fyrir að það tæki stuttan tíma þar
sem Ísland er nú þegar, í gegnum
aðildina að EES- og Schengen-
samningunum, mjög náið aðlagað
Evrópusambandinu. Þetta er álit
Michaels Emerson, sérfræðings í
stækkunarmálum ESB við
Evrópumála-ráðgjafarstofnunina
Center for European Policy
Studies í Brussel.
Emerson var meðal framsögu-
manna á lokuðum fundi Samtaka
atvinnulífsins um Ísland og Evr-
ópusambandið á Hótel Loftleiðum
í gær. Í erindi sínu á fundinum tal-
aði hann annars aðallega um þær
breytingar sem hafa orðið og eru
að verða á stofnanauppbyggingu
og starfsháttum Evrópusambands-
ins og hvernig búast má við að
þær munu hafa áhrif á EES-sam-
starfið.
„Sé framkvæmdastjórn ESB
spurð hvernig EES-samstarfið
gangi mun hún segja: bara vel,“
segir Emerson aðspurður. „Fram-
kvæmdastjórnin er þannig fylgj-
andi óbreyttu ástandi. En kerfið
sjálft stefnir í að verða æ órök-
réttara,“ segir hann. Óljós skil
milli málefnasviða og hinn gríðar-
legi stærðarmunur aðila valdi því
að það verði í æ ríkari mæli fram-
kvæmdastjórnin ein sem ákveði
hvaða mál beri að skilgreina sem
mál sem varða gildissvið EES-
samningsins og fulltrúar Íslands
og hinna EES-EFTA-ríkjanna muni
hafa æ minna um það að segja. - aa
Álit sérfræðings við Evrópumálastofnun í Brussel:
Einfalt yrði að semja
um ESB-aðildFJARSKIPTI „Ég er komin með síma og þar með inn í nútímann,“ segir
Bára Hjaltadóttir, ábúandi á
Fellsenda í Dölum. Eins og Frétta-
blaðið greindi frá sótti Bára um
flutning á síma 8. desember í
fyrra. Mikill dráttur varð á að
Bára fengi símann færðan milli
húsa á jörðinni.
Bára segir símastrenginn
liggja ofanjarðar en hann verði
plægður í jörð í vor. Hún þakkar
það Bændasamtökunum að málið
var afgreitt í hvelli. Bára segist
aldrei hafa verið krafin um
sannanir fyrir því að hún ætti
lögheimili í húsinu. „Það var farið
að bera það á mig að við ættum
ekki lögheimili þarna. Þá
athugaði ég málið og komst að því
að það hafði klúðrast hjá mínu
sveitarfélagi að tilkynna flutning-
inn. Þannig að þetta var svona
allsherjar klúður.“ - ovd
Dalakonan komin með síma:
Segir málið eitt
allsherjarklúður
SKIPULAGSMÁL Eigendur einbýlis-
húsa í Fossvogi mega loka fyrir
aðgang framhjá húsum sínum frá
stígakerfi hverfisins. Þetta er
niðurstaða skrifstofustjóra
framkvæmdasviðs Reykjavíkur-
borgar.
Hjón í Fossvoginum vildu fá
skýr svör um það hvort heimild,
sem eigendur í einum fjögurra
einbýlishúsa klasa fengu til að loka
á umferð að stígakerfinu, væri
fordæmisgefandi. Framkvæmda-
sviðið hefur nú tekið undir þá
túlkun embættis skipulagsstjóra
að engin kvöð um göngustíga sé á
slíkum lóðum í Fossvogi. Málið fer
nú fyrir skipulagsráð. - gar
Göngustígar í Fossvogi:
Embættismenn
staðfesta lokun
VEISTU SVARIÐ?