Fréttablaðið - 02.02.2008, Blaðsíða 8
8 2. febrúar 2008 LAUGARDAGUR
UTANRÍKISMÁL Bandarísk stjórn-
völd munu ekki upplýsa um
það hverjir voru í svonefnd-
um fangaflugvélum banda-
rísku leyniþjónustunnar CIA
sem lent hafa yfir 200 sinnum
á íslenskum flugvöllum, sam-
kvæmt skýrslu starfshóps
utanríkisráðuneytisins. Sam-
kvæmt heimildum Frétta-
blaðsins byggir ákvörðunin
öðru fremur á því að lögfest
upplýsingaskylda banda-
rískra stjórnvalda nái ekki
til flugsins þar sem fyrir-
tæki í einkaeigu hafi ann-
ast það.
Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins hefur
utanríkisráðuneytið
spurst fyrir um það hvort
fangar hafi mögulega
verið fluttir ólöglega um
Ísland en þau svör hafa
fengist frá bandarísk-
um stjórnvöldum að svo
hafi ekki verið í neinum
tilfellum. Engin gögn því til stað-
festingar hafa þó verið lögð fram.
Fréttablaðið sendi bandaríska
sendiráðinu spurningar eftir að
upplýst var um lendingar flugvéla
hér á landi og spurðist fyrir um
hverjir hefðu verið í vélunum, sér-
staklega þeim sem hér millilentu á
leið frá Kaíró í Egyptalandi til
Houston og frá Búkarest í Rúmen-
íu til Washington DC. Spurningum
verður ekki svarað en þær upplýs-
ingar hafa fengist frá bandarísk-
um stjórnvöldum að þar sem um
leynilegar aðgerðir sé að ræða, og
flugvélar einkafyrirtækja eigi í
hlut, verði ekki upplýst um hverj-
ir hafi verið í vélunum.
Í skýrslu starfshóps Evrópu-
þingsins frá því í júní í fyrra sem
stýrt var af svissneska stjórn-
málamanninum Dick Marty kemur
fram að undirfyrirtæki CIA sem
annast fangaflugin séu skúffufyr-
irtæki, það er hafi enga aðra starf-
semi en að annast flugið fyrir CIA
og um fyrirtækin sé ekki að finna
neinar frekari upplýsingar. Í
skýrslunni segir jafnframt að
leynileg fangelsi hafi meðal ann-
ars verið í Póllandi og Rúmeníu, í
nágrenni Búkarest.
Grænlenska landstjórnin hefur
krafist rannsóknar á því hvort
flugvellir í þar hafi verið notaðir
af CIA til þess að flytja fanga
leynilega. Danska ríkisstjórnin,
sem fer með yfirráð yfir Græn-
landi, hefur ekki gert það upp við
sig enn hvort rannsókn fari fram á
fluginu. Danska ríkissjónvarpið
sýndi á miðvikudaginn þátt um
fangaflugið en fréttir þess efnis
að fangaflugvélar hafi farið um
Grænland, einkum flugvöllinn í
Narsassuaq, og þar með danska
lögsögu, hafa valdið nokkrum óróa
á danska þinginu undanfarna
daga. Stjórnarandstaðan krefst
rannsóknar en ríkisstjórnin, með
Anders Fogh Rasmussen í broddi
fylkingar, hefur engar ákvarðanir
tekið.
magnush@frettabladid.is/gudsteinn@fretta-
bladid.is
Spurningum
ekki svarað
Bandarísk stjórnvöld munu ekki upplýsa um það
hverjir voru um borð í svonefndum fangaflugvélum
á vegum undirfyrirtækja CIA sem lent hafa hér á
landi. Flugvélar hafa lent hér meira en 200 sinnum.
FANGAFLUGVÉL Hér sést ein þeirra véla sem nefndar hafa verið fangaflugvélar á
Reykjavíkurflugvelli.
VIÐSKIPTI Microsoft bauðst í gær
til að kaupa netfyrirtækið Yahoo
fyrir sem samsvarar tæplega
þrjú þúsund milljörðum króna.
Ætlunin með kaupunum er að
styrkja starfsemi Microsoft á
netinu, en þar hefur fyrirtækið
átt í harðri samkeppni við Google.
Yfirtökutilboðið kom nokkuð á
óvart, þar sem það hljóðaði upp á
töluvert meira á hvern hlut en
markaðsverð sagði til um. Því
hefur ekki verið svarað.
Hlutabréfaverð í Yahoo
hækkaði um sextíu prósent í gær
í kjölfar fréttanna um tilboðið.
Samtímis lækkaði Google um átta
prósent. - sþs
Þrjú þúsund milljarðar króna:
Microsoft vill
kaupa Yahoo
SAMGÖNGUMÁL Stefnt er að því að
grunnskólabörn og eldri borgarar
fái ókeypis í strætó. Gísli Mart-
einn Baldursson borgarfulltrúi
vonast til að það geti orðið að veru-
leika næsta vetur. Ekki sé enn
ljóst hvernig staðið verði að fram-
kvæmdinni.
Til greina komi að borgin kaupi
strætókort og dreifi til þessara
hópa svipað og gert er fyrir eldri
borgara í Hafnarfirði.
„Við munum leysa öll vandamál
sem upp koma í sátt við önnur
sveitarfélög og þannig að sómi
verði að,“ segir Gísli Marteinn.
Hann minnir á að upphaflega hafi
borgin ein ætlað að gefa fram-
haldsskólanemum frítt í strætó en
síðan hafi hin sveitarfélögin viljað
taka þátt. Þetta sé gert til að fá
fólk til að taka strætó og draga
þannig úr mengun og fækka
bílum.
Gísli Marteinn segir að slæmur
fjárhagur Strætó komi ókeypis
strætósamgöngum ekkert við.
Sveitarfélögin greiði strætófar-
gjöldin. „Þetta kostar hellings
pening og við göngum að því með
opin augu,“ segir hann og bendir á
að með því að fjölga farþegum og
skera niður kostnað aukist tekjur.
Á næstunni verður hægt að
setja rauntímaupplýsingar á lykil-
biðstöðvar svo farþegar geti fylgst
með hvenær næsti vagn kemur.
Ekki er vitað hver kostnaðurinn
verður. - ghs
Gísli Marteinn Baldursson, fulltrúi borgarinnar í stjórn Strætó bs.:
Kaupum kannski strætókort
ÓKEYPIS NÆSTA VETUR Til greina kemur
að kaupa strætókort og dreifa til grunn-
skólabarna og eldri borgara í Reykjavík
og standa vonir til þess að það verði að
veruleika næsta vetur.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur
mildað dóm yfir fertugum manni
sem var sakfelldur í Héraðsdómi
Reykjavíkur í ágúst fyrir vörslu
barnakláms. Dómurinn var
styttur úr tólf mánuðum í tíu.
Í tölvum mannsins fundust um
fjögur þúsund ljósmyndir og sjö
hreyfimyndir, margar mjög
grófar, segir í niðurstöðu
Hæstaréttar.
Hann hefur verið dæmdur
tvisvar áður fyrir vörslu
barnakláms og einu sinni fyrir
kynferðisbrot gegn ungum
drengjum.
Auk fangelsisvistarinnar var
hann látinn greiða allan áfrýjun-
arkostnað, samtals um 250
þúsund krónur. - sþs
Hæstiréttur mildaði dóminn:
Fangelsi fyrir að
eiga barnaklám
VINNUMARKAÐUR Gylfi
Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri Alþýðu-
sambands Íslands, ASÍ,
segir að engin launung
sé á því að evrubinding
launa hafi verið til
umræðu á vettvangi
kjarasamninga en á
ekki von á því að hún
verði „í neitt sérstak-
lega miklum mæli“.
„Auðvitað hljóta
okkar félagsmenn að
velta fyrir sér möguleik-
anum á því að takmarka gengis-
áhættu þegar þeir taka erlend lán
og njóta þar með hagstæðari
vaxtakjara án þess að axla mikla
gengisáhættu,“ segir Gylfi.
Nokkur fyrirtæki
hafa þegar gefið starfs-
mönnum sínum kost á
því að tengja laun við
erlendan gjaldmiðil.
Gylfi bendir á að
óheimilt sé að greiða
minna en umsamin
laun.
„Það hefur að mestu
leyti verið á fjármála-
markaðnum þar sem
einstaklingar taka ekki
laun samkvæmt kjara-
samningum.
Þeir sem starfa samkvæmt
kjarasamningi þurfa að vera viss-
ir um að þetta fyrirkomulag leiði
ekki til þess að brotið sé á þeim.“
- ghs
Framkvæmdastjóri ASÍ um laun í evrum:
Dregur úr áhættu
GYLFI
ARINBJÖRNSSON
42
8. desember 2007 LAUGARDAGUR
WashingtonHouston
Kaíró
Búkarest
Prag
Szymany
Glasgow
ÍSLAND
ÞÝSKALAND
FRAKKLAND
PÓLLAND
BÚLGARÍA
Lendingarnar í skjóli hersinsMörgum spurningum um svonefnt fangaflug bandarískra stjórnvalda, einkum leyniþjónustunnar CIA, er enn ósvarað. Árum saman var eftirlit með lendingum flugvéla á svæði varnar liðsins á Keflavíkurflugvelli ekki neitt samkvæmt heim-ildum Fréttablaðsins. Magnús Halldórsson skoðaði fangaflugið.
FANGAFLUGVÉL Á REYKJAVÍKURFLUGVELLI Hér sést það sem kallað er fangaflugvél á Reykjavíkurflugvelli. Á
undanförnum árum hafa margar vélar á vegum bandarísku leyniþjónustunnar CIA lent á vellinum en ekki
hefur tekist að upplýsa hvort fangar, sem hefur verið haldið í trássi við alþjóðalög, hafi farið um íslenska
flugvelli.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
TEGUND:
N368CE
BROTTFARARSTAÐUR: Búkarest, Rúmenía
ÁFANGASTAÐUR:
Keflavík, Ísland
ÁFRAMFLUG: Washington, BandaríkinDagsetning Koma Brottför
til Íslands frá Íslandi
24.5. 2006 13.13
14.23
28.5. 2006 13.10 14.24
31.5. 2006 12.37 13.58
4.6. 2006 12.33 13.49
7.6. 2006 12.37 13.56
14.6. 2006 12.48 14.06
18.6. 2006 13.17
14.29
21.6. 2006 13.06 14.15
25.6. 2006 12.40 13.55
28.6. 2006 12.37 13.52
2.7. 2006 12.48 14.02
5.7. 2006
12.52 14.04
9.7. 2006 12.43 13.56
23.7. 2006 12.38 13.44
26.7. 2006 13.02 14.13
30.7. 2006 13.02 14.07
2.8. 2006 12.50 14.05
6.8. 2006 12.13
13.21
9.8. 2006 13.02 14.13
13.8. 2006 12.48 13.59
16.8. 2006 13.26 14.33
20.8. 2006 13.52 15.00
23.8. 2006 21.40 22.44
27.8. 2006 13.40 14.47
30.8. 2006 13.30 14.43
3.9. 2006 17.17
18.27
6.9. 2006 13.20 14.32
Starfshópur utanríkisráðherra lét taka
saman upplýsingar um ferðir flugvéla
sem tengdar hafa verið við meint, og ekki
meint, fangaflug víða um heim.
TEGUND:
N404AC
BROTTFARARSTAÐUR: Kaíró, Egyptalandi
ÁFANGASTAÐUR: Keflavík, Ísland
ÁFRAMFLUG: Houston, Texas, BandaríkinDagsetning Koma Brottför
til Íslands frá Íslandi
5.12. 2001 11.33 13.08
16.4. 2002 12.20 12.59
25.9. 2002 12.12 12.45
11.12. 2002 12.49 13.29
10.8. 2003 11.01 11.43
23.4. 2004 12.21 13.04
3.8. 2004 17.34 18.21
24.10. 2004 11.21 12.14
7.6. 2005 10.57 11.55
10.9. 2005 18.01 18.58
6.6. 2006 10.59 11.57
➜ MEINT FANGAFLUG VÉLA TIL OG FRÁ KEFLAVÍK
FLUGVÖLLUR Á VARNARSVÆÐINU Flugvélar sem
notaðar hafa verið til fangaflugs, samkvæmt
skýrslu Evrópuþingsins, lentu margsinnis á flug-
velli varnarliðsins.
H inn 4. október 2001, rúmlega þremur vikum eftir mann-skæðar árásir hryðjuverka-manna al-Kaída á tvíbura-turnana í New York, hittust fulltrúar NATO á fundi í Brussel sem bandarísk stjórnvöld höfðu óskað eftir við Norður-Atlantshafsráð NATO. Á fundinum var rætt um leiðir til þess að efla eftirlit og aðgerðir gegn hryðjuverkaógn. Samþykktar voru aðgerðir í átta liðum, að beiðni bandarískra stjórnvalda, sem miðuðu að því að víkka út möguleika NATO og stjórn-valda aðildarþjóða í „baráttunni gegn hryðju-verkaógninni“. Fallist var á að efla upplýs-ingaflæði, samstarf við eftirlit, varnir á landamærum, verkaskiptingu milli þjóða og eftirlit með höfnum og flugvöllum. Einnig var samþykkt að herskip og fallhlífahersveit-ir skyldu vera til þjónustu reiðubúin í sér-tækum aðgerðum bandarískra stjórnvalda gegn hryðjuverkaógnum. Þessi stefnumörkun NATO er talin vera forsenda þess að bandarísk stjórnvöld, einkum leyniþjónustan CIA (Central Intelli-gence Agency), hófu í kjölfarið að handtaka meinta hryðjuverkamenn og fljúga þeim á starfstöðvar sínar víðs vegar um heim til yfirheyrslna og fangelsunar án aðkomu dóm-stóla. Umfangsmesta starfsemi CIA í Evrópu, sem tengdist þessum handtökum, fór fram í Póllandi og Rúmeníu. Nefnd á vegum Evrópuþingsins, sem stýrt var af svissneska þingmanninum Dick Marty, upplýsti um margvíslegar aðgerðir CIA sem fólu í sér leynileg flug með menn sem teknir höfðu verið til fanga þar sem talið var að þeir gætu mögulega tengst hryðjuverkastarf-semi. Í flestum tilvikum höfðu dómstólar enga aðkomu að því þegar mennirnir voru handteknir og þeir fangelsaðir, meðal annars í leynilegum fangelsum í austurhluta Rúm-eníu og miðju Póllandi. Frumkvæðið að rann-sóknum á starfsaðferðum bandarískra yfir-valda hefur að mestu komið frá fjölmiðlum, meðal annars staðbundnum dagblöðum í Rúmeníu og Póllandi, og mannréttindasam-tökum. Í kjölfar frétta af leynilegri starfsemi CIA í „stríðinu gegn hryðjuverkum“ tóku alþjóðastofnanir og stjórnvöld einstakra landa að skoða hvort alþjóðalög hefðu verið brotin. Íslensk stjórnvöld voru þar á meðal.Ekkert eftirlit árum samanLangflestar lendingar bandarískra flugvéla á Íslandi, sem taldar eru tengjast fangaflugi á árunum 2001 til 2007, voru innan svæðis á Keflavíkurflugvelli sem tilheyrði banda-ríska hernum. Ekkert eftirlit var með þess-um lendingum, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, og er „nánast ómögulegt“, svo vitnað sé til heimildarmanns, að upplýsa um hvort fangar hafi verið fluttir um flug-völlinn, nú nokkrum árum síðar. Ræður þar mestu sú afstaða bandarískra stjórnvalda að upplýsa ekki hvort fangar hafi verið fluttir með tilteknum flugvélum þar sem starfsemin er sögð leynileg. Samkvæmt ströngustu verklagsreglum á eftirlit með öllum flugvélum sem koma
hingað utan Schengen-svæðisins að vera
fyrir hendi. Það er vegabréfaskoðun og
almenn skoðun á vélinni. Lendingar innan
hersvæðisins voru aftur á móti látnar
afskiptalausar, samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins. „Þetta voru samstarfsþjóðir
(Bandaríkin og Ísland), áttu í góðu pólitísku
sambandi og því var þetta [eftirlit með flug-
umferð á hersvæðinu] einfaldlega ekki á
dagskrá,“ segir heimildamaður Fréttablaðs-
ins.
Á Reykjavíkurflugvelli, þar sem þekktar
fangaflugvélar hafa einnig lent, hefur eftir-
lit verið með öllum flugvélum en eftirlits-
deild lögreglu höfuðborgarsvæðisins hefur
sinnt því. „Við skoðum einfaldlega allar
flugvélar sem hingað koma,“ segir Jóhann
Karl Þórisson, yfirmaður eftirlitsdeildar-
innar. „Allar flugvélar sem koma utan
Schengen-svæðisins inn í íslenska lofthelgi
og lenda á Reykjavíkurflugvelli þurfa að
fara í gegnum vegabréfaeftirlit og skoðun.“
Alls eru starfsmenn eftirlitsdeildarinnar sjö
talsins.
Frá Kaíró og BúkarestAmnesty á Íslandi kom upplýsingum um
ferðir þekktra fangaflugvéla til utanríkis-
ráðuneytisins með beiðni um að skoðað yrði
hvort bandarísk stjórnvöld hefðu nýtt sér
íslenska flugvelli í fangafluginu. Jóhanna
Kr. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastýra
Amnesty á Íslandi, segir ólíðandi ef mann-
réttindabrot hafi verið framin með fanga-
fluginu. „Það er vitaskuld ólíðandi ef banda-
rísk stjórnvöld hafa nýtt sér íslenska
lofthelgi til að stunda mannréttindabrot.
Hins vegar virðast málin standa þannig nú
að afar erfitt eða ómögulegt er að upplýsa
um hvort fangar hafi verið fluttir í fanga-
vist eða yfirheyrslur um Ísland. Meginmark-
miðið núna ætti því að vera að að fordæma
ólöglegt framsal og önnur mannréttindabrot
sem því tengjast. Og krefjast nákvæmra
upplýsinga um flugvélar sem lenda á Íslandi
og eru á vegum CIS. Nauðsynlegt er að
íslensk stjórnvöld fordæmi aðferðir banda-
rískra stjórnvalda sem fela í sér brot á
alþjóðalögum, svo sem fangaflugið og
Guantánamo-fangabúðirnar á Kúbu.“
Meðal upplýsinga sem Amnesty kom til
utanríkisráðuneytisins voru gögn um flug-
ferðir CIA frá Kaíró í Egyptalandi til Íslands
og áfram til Houston í Texas. Margar slíkar
ferðir voru farnar frá því í desember 2001
og fram í september 2005. Einnig var sér-
staklega tekið fram að flug véla frá Búka-
rest í Rúmeníu til Íslands og áfram til Wash-
ington gætu hugsanlega verið fangaflug þar
sem vitað væri að meintir hryðjuverka-
menn hefðu verið yfirheyrðir þar, sam-
kvæmt upplýsingum sem Evrópuþingið afl-
aði. Í flestum tilfellum virðist sem vélarnar
hafi lent hér einungis til að taka eldsneyti
þar sem þær stoppa hér í aðeins einn til þrjá
klukkutíma. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráð-
herra ákvað í kjölfarið, 27. júní síðastliðinn,
eftir að nefnd Dicks Marty hafði lokið störf-
um og gefið frá sér skýrslu, að skipa starfs-
hóp til þess að kanna hvort svonefnt fanga-
flug bandarískra stjórnvalda hefði farið um
íslenska lofthelgi og þá hvernig eftirliti með
því hefði verið háttað. Starfshópurinn tók
saman lista með rúmlega 200 flugum sem
hugsanlega gætu verið fangaflug. Einnig
var upplýsingum um verklagsreglur safnað
saman í tengslum við eftirlit með flugferð-
um af því tagi sem um ræðir. Ingibjörg
Davíðsdóttir sendiráðunautur stýrði starf-
inu en sendiráðsritararnir Erlingur Erlings-
son og Finnur Þór Birgisson áttu einnig sæti
í hópnum.
Meginniðurstaða starfshóps utanríkis-
ráðherra er sú að „utanríkisráðuneytinu
[sé] ekki kunnugt um ferðir loftfara um
íslenska lofthelgi, Keflavíkurflugvöll eða
Reykjavíkurflugvöll, með fanga eða meinta
hryðjuverkamenn sem hvorki njóta vernd-
unar né meðhöndlunar samkvæmt alþjóða-
sáttmálum“. Í niðurstöðukafla samantektar
starfshópsins er sérstaklega tekið fram að í
vinnu starfshópsins hafi ekki falist „við-
leitni til þess að staðfesta eða kanna frekar
hvort um ólögmæta fangaflutninga um
íslenskt yfirráðasvæði hafi verið að ræða“.
Sagt er að slík rannsókn „væri tímafrek og
flókin í framkvæmd og ljóst [...] að væri
hún framkvæmd einhliða myndi slík rann-
sókn ekki leiða til óyggjandi niðurstaðna“.
Þá segir: „Ef ólögmætur flutningur fanga
hefur átt sér stað um Ísland með umrædd-
um loftförum, eða öðrum, þá er vart mögu-
legt að sannreyna slíkt eftir á nema með
fullri samvinnu þeirra sem að slíku flugi
stóðu.“
Alþjóðalög brotinBirgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, var formaður Íslandsdeildar
Evrópu ráðs Alþingis og átti sæti í áðurnefnd-
um starfshóp. Hann segir flesta sem hafi
komið að skoðun þessara mála vera sammála
um að bandarísk stjórnvöld hafi brotið
alþjóðalög með starfsaðferðum sínum, að
minnsta kosti í einhverjum tilvikum. „Það
má deila um það hvort innistæða hafi verið
fyrir öllum þeim fullyrðingum sem hafa
oftar en ekki komið fram í umræðu um þetta
fangaflug. Ég held þó að skýrslan sem unnin
var undir stjórn Martys sýni að það séu
komnar fram afar sterkar vísbendingar, og
jafnvel sannanir, fyrir því að alþjóðalög hafi
verið brotin í mörgum tilvikum. Það hafa
ekki fundist nein gögn ennþá um það hvort
Ísland hafi blandast með einhverjum hætti
inn í þetta fangaflug, nema þá helst með
þeim hætti að einhverjar tilteknar flugvélar
hafi lent hér, sem hafi áður verið notaðar til
þess að flytja fanga milli landa.“
Starfsaðferðirnar umdeildu, sem talið er
að CIA hafi beitt, eru taldar fara gegn lögum
um meðferð fanga og fela því í sér mann-
réttindabrot. Birgir segir vitaskuld mikil-
vægt að fá upplýsingar fram eins og unnt er.
„Vitaskuld er mikilvægt að þau atriði sem
geta verið uppi á borðum séu það. En aðferð-
irnar sem verið er að rannsaka eru leyni-
legar og því er erfitt upplýsa um það hvern-
ig þessum málum var háttað.“ Deilt hefur verið um það hvort fyrr-
nefndar samþykktir NATO, frá 4. október
2001, hafi veitt bandarískum stjórnvöld
heimild til þess að nýta flugvelli í Evrópu-
ríkjum í stríðinu gegn hryðjuverkum. Utan-
ríkismálanefnd Alþingis ræddi þessi mál á
fundum í október og nóvember. Samkvæmt
upplýsingum Fréttablaðsins voru nefndar-
menn almennt sammála um að ef fanga-
flugið fæli í sér brot á alþjóðalögum sam-
rýmdist það ekki samþykktunum frá 4.
október þar sem ekki væri með nokkru móti
hægt að greiða fyrir athæfi sem fæli í sér
brot á alþjóðalögum.
VETTVANGUR LEYNILEGRAR STARFSEMI
Vitað er til þess að bandarísk stjórnvöld hafi
handtekið menn í Kaíró í Egyptalandi í tengslum
við rannsóknir á hryðjuverkastarfsemi án aðkomu
dómstóla. Þá hefur rannsókn leitt í ljós að starfrækt
voru leynileg fangelsi í nágrenni Búkarest í Rúmeníu,
eins og sést á kortinu.
1. Hver fékk Íslensku bók-
menntaverðlaunin í flokki
fræðirita?
2. Hversu stórt verður stærsta
einbýlishús landsins sem rís í
Mosfellsdal?
3. Hvaða fjárfestingarfyrirtæki
yfirgefur ónotaðar höfuðstöðvar
með tugmilljóna innréttingum?
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
N1 VERSLANIR
SÍMI 440 1200
WWW.N1.IS
Hjá N1 finnur þú landsins mesta úrval af bílavarahlutum frá
viðurkenndum framleiðendum. Í verslunum okkar um land
allt er fagfólk reiðubúið að veita þér alla þá aðstoð og ráðgjöf
sem þú þarfnast. N1 – Meira í leiðinni.
FRÉTTABLAÐIÐ 8. DESEMBER Fjallað
var ítarlega um lendingar svonefndra
fangaflugvéla CIA á íslenskum flugvöll-
um í Fréttablaðinu í desember. Þar kom
fram að eftirlitið með lendingum véla
innan gamla varnarsvæðisins, þar sem
bandaríski herinn var með starfsemi,
hafi ekkert verið árum saman.
VEISTU SVARIÐ?