Fréttablaðið - 07.02.2008, Qupperneq 6
6 7. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR
ALÞINGI Kjartan Ólafsson, Sjálf-
stæðisflokki, segir kvótakerfi í
mjólkurframleiðslu íþyngjandi
fyrir bændur og vill skoða aðrar
leiðir við stuðning ríkisins við
mjólkurbændur.
Hann horfir til dæmis til þess
kerfis sem notað er við grænmet-
isframleiðslu en þar er tiltekinni
fjárhæð varið til stuðnings við
framleiðslu hverrar tegundar og
fá bændur hlut af henni í hlutfalli
við framleiðslu sína. Segir hann
kerfið opið og að allir geti hafið
framleiðslu.
Kjartan viðraði þessi sjónarmið
á þingfundi í gær eftir að Valgerð-
ur Sverrisdóttir, varaformaður
Framsóknarflokksins, hafði opin-
berað áhyggjur sínar af yfirlýs-
ingum Einars K. Guðfinnssonar
landbúnaðarráðherra um hug-
mynd Vilhjálms Egilssonar, fram-
kvæmdastjóra Samtaka atvinnu-
lífsins. Felur hún í sér að ríkið
kaupi upp allan mjólkurkvóta af
bændum. Einar kvaðst í Morgun-
blaðinu í gær tilbúinn að skoða
hugmynd Vilhjálms.
Arnbjörg Sveinsdóttir, þing-
flokksformaður Sjálfstæðisflokks-
ins, sagðist reiðubúin að skoða
allar leiðir en taldi ólíklegt að sam-
staða næðist um hugmynd Vil-
hjálms.
Birkir Jón Jónsson, Framsókn-
arflokki, varaði við öllum hug-
myndum í þá átt að ríkið léti af
stuðningi við landbúnaðinn.
- bþs
DÓMSMÁL Karlmaður um þrítugt
hefur verið dæmdur í tveggja
mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir líkamsárás. Hann sló annan
mann í andlitið, reif í auga hans
og beit í lærið á honum í Vest-
mannaeyjum hinn 1. apríl 2006.
Fórnarlambið hlaut glóðarauga,
bitfar og stórt mar á innanverðu
lærinu.
Árásarmaðurinn játaði að hafa
veist að manninum, en kannaðist
ekki við að hafa bitið hann í
lærið. Til viðbótar við refsinguna
var hann dæmdur til að greiða
fórnarlambinu um 180.000
krónur í bætur auk sakarkostn-
aðar. - sþs
Fékk tveggja mánaða skilorð:
Maður beit í
læri annars
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
www.ss.is
Endalausir
möguleikar!
Fáðu þér SS skinku á 20% afslætti
í næstu verslunarferð, leyfðu
hugmyndafluginu að njóta sín ....
brauðterta, samloka, heitur
brauðréttur, salat…
…og nú þú!
20%
afsláttur
Lágmúli - Smáratorg - Laugavegur - Smáralind - Spöngin - Garðatorg - Setberg - Keflavík - Grindavík - Selfoss - Laugarás
Borgarnes - Stykkishólmur - Grundarfjörður - Búðardalur - Ísafjörður - Bolungarvík - Patreksfjörður - Sauðárkrókur
Blönduós - Hvammstangi - Skagaströnd - Húsavík - Kópasker Raufarhöfn - Þórshöfn - Egilsstaðir - Seyðisfjörður
Fáskrúðsfjörður - Höfn - Neskaupstaður - Reyðarfjörður - Eskifjörður
www.lyfja.is - Lifið heil
VEISTU AÐ VATN
ER BESTI
SVALADRYKKURINN?
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
3
59
11
0
1/
07
Komdu núna í Bílaland B&L og kynntu þér kostina
Glæsilegt úrval lúxusbílaLÚXUS
Opið virka daga frá kl. 10 til 18
og á laugardögum frá kl. 12 til 16
Bílaland B&L, Grjóthálsi 1 - 110 Reykjavík
575 1230 - luxusbilar@bilaland.is. 575 1230
L.R RANGE ROVER V8 diesel
Nýskr: 12/2006, 3600cc, 5 dyra,
Sjálfskiptur, Grár, Ekinn 25.000 þ.
Verð: 11.100.000
ALLIR INNFLUTTIR
OG ÞJÓNUSTAÐIR
AF UMBOÐI
Þingmaður Sjálfstæðisflokks vill breyta stuðningi ríkisins við mjólkurbændundur:
Fyrirmyndin sótt í grænmetið
KJARTAN ÓLAFS-
SON Vill skoða
hvort hyggilegt
sé að styðja við
mjólkurbændur
með sama hætti
og grænmetis-
ræktendur eru
studdir. Greiðsl-
um verið hagað
í samræmi við
hlutfall af heild-
arframleiðslu.
STYRKUR „Það hefur virkilega vantað upplýsingar um
stjúp tengsl en ég vona að ég geti nú bætt úr því,“
segir Valgerður Halldórsdóttir félagsráðgjafi, sem
var ein þeirra sem hlaut styrk úr styrktarsjóði
Baugs Group í gær.
Þetta var í fimmta sinn sem úthlutað var úr
sjóðnum en samtals numu styrkirnir 35 og hálfri
milljón króna. Tæplega 350 umsóknir bárust að
þessu sinni en 46 einstaklingar og félög fengu styrk
í þetta sinn.
Styrkinn hyggst Valgerður nota til að vinna
handbók um málefni stjúpfjölskyldna sem hún telur
gleymda stærð í samfélaginu. Meðal annarra
verkefna sem fengu styrk var til að mynda gerð
námsgagna sem vinna á fyrir börn sem hafa íslensku
sem annað tungumál. Þá var fyrirtækinu Ad Astra,
sem veitir bráðgerum börnum í efri bekkjum
grunnskóla verkefni við hæfi, veittur styrkur til að
halda námskeið með fjölbreyttum námsfögum.
Verkefnum Listahátíðar var einnig gefinn
gaumur. Arkitektarnir og ljósmyndararnir Anna
Leoniak og Fiann Paul fengu styrk til að fara fara
um landið, taka ljósmyndir af íslenskum börnum á
aldrinum þriggja til sjö ára og klæða húsin við
Lækjargötu, sem brunnu á liðnu ári, með myndun-
um af þeim. - kdk
Úthlutað var 35 og hálfri milljón úr styrktarsjóði Baugs í gær:
Fjölskyldur og listir í fyrirrúmi
STUTT VIÐ BAKIÐ Á FJÖLSKYLDUM Áslaug Ósk Hinriksdóttir
tók við hálfrar milljónar króna styrk sem veittur var til þess
að styðja við fjölskyldu hennar en Þuríður Arna Óskarsdóttir,
dóttir hennar, glímir við alvarleg veikindi sem reynt hafa á
fjölskylduna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HEILBRIGÐISMÁL Um 250 manns bíða
eftir að komast í hjartaþræðingu á
Landspítalanum. Það eru um fimm-
tíu fleiri en biðu í desember og
þótti ástandið þá óviðunandi.
Ástæða tafanna er að skæðar nið-
urgangssýkingar hafa smitast milli
sjúklinga á deildinni auk þess sem
plássleysi á gjörgæslu hefur ítrek-
að orðið til þess að fresta þarf
aðgerðum á hjartadeild.
Mikil þrengsli hafa verið á
hjartadeild og sjúklingar hafa iðu-
lega þurft að liggja á göngunum og
allt í upp í fjórtán manns þurft að
deila með sér
einu klósetti.
Við slíkar
aðstæður eykst
hætta á smiti
milli sjúklinga
verulega.
Þórarinn
Guðnason,
hjartasérfræð-
ingur á Land-
spítalanum,
segir að þó
hjarta- og æða-
sjúkdómar séu
langalgengasta
dánarorsök
Íslendinga sé
vandamálinu of
lítill gaumur
gefinn en árlega
deyja 700 manns
af fyrrgreindum
sjúkdómum hér
á landi. Hann segir biðlistann eftir
hjartaþræðingu nú um átta mánuði
og lengjast stöðugt.
„Ég þekki til aðstæðna á sjúkra-
húsum í Svíþjóð. Þar er hreinlega
bannað að fólk liggi á göngum
vegna reglna um eldvarnir. Þetta
er svo auðvitað líka afar slæmt
þegar grípa þarf til endurlífgana,
sem ekki eru óalgengar á hjarta-
deildum, því erfitt er að koma
tækjum eftir ganginum þegar sjúk-
lingar liggja þar,“ segir hann.
Í grein sem Þórarinn ritar í nýj-
asta hefti Læknablaðsins deilir
hann auk þess hart á þær aðstæður
sem heilbrigðisstarfsmenn og
sjúklingar þurfi að búa við á hjarta-
deildinni. Sjúklingar sem séu í
sjúkrarúmi á gangi spítalans þurfi
að pissa í bekken eða flösku liggj-
andi þar sem umferð gesta og sjúk-
linga sé stöðug. Þá sé deildin meðal
annars fjársvelt og háð gjafafé til
að endurnýja tækjakost. Gestur
Þorgeirsson, yfirlæknir hjarta-
deildar, segir tvö hjartaþræðingar-
tæki nú í notkun á deildinni, annað
sé frá árinu 2001 en hitt nokkuð
eldra. „Það eldra er meira en tíu
ára gamalt og ef okkur á að takast
að anna öllum þeim sjúklingum
sem bíða þyrftum við þriðja tækið,“
segir Þórarinn en slíkt tæki myndi
kosta á bilinu 70 til 100 milljónir.
„Á Íslandi hefur náðst einn besti
árangur í heimi á ýmsum sviðum
hjartalækninga. Þrátt fyrir það má
þessi sjúkdómaflokkur ekki gleym-
ast enda er hann aðaldánarorsök
Íslendinga,“ segir hann.
karen@frettabladid.is
Hjartadeild lömuð
vegna iðrasýkingar
250 manns bíða eftir að komast í hjartaþræðingu á Landspítalanum. Á hjarta-
deild hefur verið unnið hörðum höndum að því að anna sjúklingum. Listinn
lengist þó stöðugt ekki síst vegna sýkinga á deildinni en þar eru þrengsli mikil.
GESTUR
ÞORGEIRSSON
ÞÓRARINN
GUÐNASON
ÞRENGSLI Á HJARTADEILD Í þrengslum eykst hættan á smiti milli sjúklinga.
Þórarinn Guðnason hjartasérfræðingur bendir á að erfitt sé að koma endurlífgun-
artækjum eftir göngunum þegar sjúklingar þurfa að liggja þar í rúmum. Þrátt fyrir
aðstæðurnar er árangur íslenskra lækna á ýmsum sviðum hjartalækninga með
því besta sem gerist í heiminum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Á hjartadeildinni hafa sjúklingar smitast af svokallaðri Noro-veirusýkingu en
hún veldur uppköstum og niðurgangi. Veiran er ekki hættuleg þeim sem eru
frískir en aldraðir og sjúkir geta veikst alvarlega og því ekki komist í aðgerðir.
SKÆÐ IÐRASÝKING
Mun fasteignamarkaðurinn í
Reykjavík kólna enn frekar á
næstunni?
Já 73,8%
Nei 26,2%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Þekkir þú einhvern sem glímir
við tölvufíkn?
Segðu skoðun þína á visir.is
KJÖRKASSINN