Fréttablaðið - 07.02.2008, Síða 10

Fréttablaðið - 07.02.2008, Síða 10
10 7. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR KÍNA, AP Fjárhagslegur og pólitísk- ur órói, flóðbylgjur og sjúkdóms- faraldrar eru meðal þess sem kín- verskir spekingar spá á ári rottunnar sem gengur í garð í dag, samkvæmt kínversku tímatali. Vissara er því að hafa allan vara á sér næstu tólf mánuðina taki fólk mark á slíkum spám á annað borð. Orsök þessara válegu atburða sem eru í kortunum segja þeir þá að vatn og jörð, tvö af fimm frumefn- um sem talin eru uppspretta alls, rekast á þetta árið. „Jörð er venju- lega vatni yfirsterkari en hún er of veik til að stjórna rottunni, sem er sterkasta táknmynd vatnsins,“ segir Raymond Lo, meistari í feng shui, aldagamalli kínverskri speki sem snýst um að ná heilsu, jafn- vægi og velgengni með tilhögun dagsetninga og talna, byggingar- hönnunar og uppröðun hluta. Ár rottunnar er hið fyrsta í tólf ára hringrás kínverska tímatalsins og bera öll árin dýraheiti. Sagan segir að rottan sé fyrst eftir að hafa sigrað hin dýrin ellefu í kapphlaupi, ekki vegna þess að hún var fljótust, heldur vegna kænsku. Eftir að hafa logið að tígrisdýrinu um dagsetningu keppninnar fór rottan mesta hluta leiðar innar á baki uxans áður en hún stökk af og hljóp lokaspölinn í mark fyrst allra. - sdg Vissara er að hafa vara á sér næsta árið: Svartsýn spá á ári rottunnar ÁRIÐ GENGIÐ Í GARÐ Miklum óróa er spáð á ári rottunnar. Við eigum 40 ára afmæli Fyrir 40 árum tók Árbæjarútibú Landsbankans til starfa. Við ætlum að fagna þessum tímamótum með afmælisveislu fyrir alla viðskiptavini, gesti og gangandi, á morgun föstudaginn 8. febrúar. Fjölbreytt dagskrá og veitingar frá kl. 10 – 17 10.00 Sproti kíkir í heimsókn 13.00 Sproti kíkir í heimsókn 14.00 Landsbankinn veitir styrk til SÍBS 14.30 Fimleikadeild Fylkis sýnir listir sínar 15.00 Söngkvartettinn OPUS 16.00 Birgitta Haukdal, Hreimur og Vignir Snær taka lagið Við hlökkum til að sjá ykkur. Landsbankinn Árbæjarútibú A u g lý si n g a sí m i – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.