Fréttablaðið - 07.02.2008, Side 16
16 7. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR
BANDARÍKIN, AP Demókratar í öld-
ungadeild Bandaríkjaþings krefj-
ast þess að rannsókn verði gerð á
því hvort pyntingar, sem starfs-
menn leyniþjónustunnar CIA hafa
beitt fanga í vörslu sinni, brjóti í
bága við bandarísk lög.
Michael Hayden, yfirmaður
CIA, viðurkenndi á þriðjudag,
fyrstur bandarískra embættis-
manna, að vatnspyntingum hafi
verið beitt á þrjá fanga á árunum
2002 og 2003.
Fangarnir þrír eru Khalid Sheikh
Mohammed, Abu Zubayda og Abd
al-Rahim al-Nashri. Þeir voru allir
handteknir í tengslum við svokall-
að stríð Bandaríkjanna gegn
hryðjuverkum, sem hófst í kjölfar
árásanna á New York og Washing-
ton hinn 11. september 2001.
Vatnspynting er fólgin í því að
fangi er bundinn niður, klæði er
strekkt yfir andlit hans og vatni
hellt ofan á þannig að fanginn fær
það sterklega á tilfinninguna að
hann sé að drukkna.
Þessi aðferð hefur öldum saman
talist til pyntinga. Jafnt mannrétt-
indasamtök sem stjórnvöld lýð-
ræðisríkja hafa fordæmt hana.
Hayden bannaði notkun þessar-
ar aðferðar árið 2006, en Mike
McConnell, æðsti yfirmaður allra
leyniþjónustustofnana Bandaríkj-
anna, segir enn mögulegt að starfs-
menn CIA beiti henni, en þá að
fengnu samþykki forseta og dóms-
málaráðherra. - gb
Bandaríska leyniþjónustan CIA viðurkennir að hafa beitt pyntingum:
Þrír fangar voru pyntaðir
VATNSPYNTING Í nóvember síðast-
liðnum sýndu nokkrir mótmælendur
hvernig umrædd pyntingaraðferð er
framkvæmd fyrir utan dómsmálaráðu-
neytið í Washington. NORDICPHOTOS/AFP
TÓKÝÓ, AP Ópíumræktun á svæðum
uppreisnarmanna í suður- og
suðvesturhluta Afganistans mun
aukast til muna á þessu ári og
fjármagna baráttu talibana, segir í
nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna.
Um níutíu prósent af ólöglegu
heróíni á heimsmarkaði koma frá
Afganistan og áætla Sameinuðu
þjóðirnar að hlutur talibana nemi
um hundrað milljónum Banda-
ríkjadala.
Alþjóðlegir aðilar hafa bent á
niðurstöður skýrslunnar og
gagnrýna aðgerðir stjórnvalda.
Herða þurfi á baráttunni gegn
eiturlyfjasölum, spilltum stjórn-
málamönnum og skæruliðum. - gsh
Talibanar í Afganistan:
Hagnast á auk-
inni ópíumrækt
A
T
A
R
N
A
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
RV
U
N
IQ
U
E
02
08
02
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Hreinar hendur
- örugg samskipti
Á tilboðií febrúar 2008DAX Handspritt, krem og sápur
DAX Sótthreinsiservíettur 20 stk. 393 kr.
DAX Hand & húðkrem 600 ml með dælu 496 kr.
DAX Handáburður 250 ml 259 kr.
DAX Handspritt 60 5 ltr. 1.492 kr.
DAX Handspritt 60 600 ml með dælu 296 kr.
DAX Handspritt 70 600 ml með dælu 296 kr.
DAX Handsápa mild 600 ml með dælu 198 kr.
SJÁVARÚTVEGUR Allt bendir til þess
að fyrsti kjarasamningurinn sem
gerður hefur verið milli Lands-
sambands smábátaeigenda og Sjó-
mannasambandsins hafi verið
felldur. Búið er að greiða atkvæði
um samninginn í tíu af fimmtán
svæðisfélögunum hjá smábátaeig-
endum og hefur samningurinn
verið felldur í þeim öllum.
„Ég reikna ekki með að það
verði nein breyting þar á en við
munum samt funda með fulltrúum
sjómanna á næstunni,“ segir Örn
Pálsson, framkvæmdastjóri
Landssambands smábátaeigenda.
Kjarasamningurinn hefur verið
felldur með öllum greiddum
atkvæðum með þremur undan-
tekningum. Þrír smábátaeigendur,
sem sitja í samninganefnd, hafa
greitt atkvæði með samningnum
„enda er mönnum skylt að styðja
samning sem þeir hafa sjálfir
tekið þátt í að gera“, segir Örn.
Smábátaeigendur hafa einkum
gert tvær athugasemdir við samn-
ingsdrögin. Í þeim eru ákveðin
atriði sem gefa útgerðarmönnum
ekki frjálsar hendur um það
hvernig aflaverðmæti er skipt á
milli skipstjóra og háseta. Þá segir
Örn að mikil óvissa sé um það
hvert iðgjald af slysatryggingu
verður þar sem bæturnar taki mið
af skaðabótalögum. „Þeir telja að
þetta iðgjald sé það hátt að það sé
betra að bjóða upp á hefðbundna
tryggingu,“ segir hann.
Örn vonast til að samninga-
nefndinni takist að laga þessi
atriði verði samningurinn felldur í
öllum félögum. Hann bendir á að
þetta sé í fyrsta skipti sem farið sé
í þá vinnu að gera kjarasamninga
enda hafi útgerðarmenn talið að
flest réttindi sem lúta að sjómönn-
um séu tryggð í lögum. Ríkur vilji
sé til að gera kjarasamning.
„Aðalástæðan fyrir því að gera
kjarasamning er sú að breyting
hefur orðið á útgerðarmynstrinu.
Fyrir tíu til fimmtán árum gerðu
flestir út einir en nú hafa bátarnir
stækkað og fleiri eru um borð. Þá
er að sjálfsögðu ástæða til að
tryggja kjör launþega með samn-
ingum,“ segir hann.
Sævar Gunnarsson, formaður
Sjómannasambandsins, segir að
atkvæði hafi verið greidd í öllum
tuttugu félögum innan Sjómanna-
sambandsins. Ekkert verði gefið
upp um niðurstöðuna strax en
útgerðarmenn hafi fellt samning-
inn.
ghs@frettabladid.is
Felldu kjara-
samning á
smábátum
Fyrsti kjarasamningur smábátaeigenda og sjómanna
hefur verið felldur í þeim svæðisfélögum smábátaeig-
enda þar sem atkvæði hafa verið greidd. Aðeins þrír
samningamenn hafa greitt atkvæði með honum.
Í BÁTNUM Smábátaeigendur gera athugasemdir við það að hafa ekki frjálsar hendur
um hvernig aflaverðmæti skiptist milli skipstjóra og háseta. Þá telja þeir óvissu um
það hvert iðgjald af slysatryggingu verður.
Samningurinn nær til þriggja veiði-
aðferða; netaveiða, línuveiða þar
sem beitt er í landi og línuveiða
á vélbát.
■ Ákveðin prósenta af aflaverð-
mæti á öllum þessum veiðiað-
ferðum á að fara í laun. Ákveðin
prósenta af þessari prósentu
tryggir lágmarkskjör háseta.
■ Einnig er í samningnum ákvæði
um mánaðarlega kauptryggingu.
■ Ákvæði er um slysa- og veik-
indarétt sem er að nokkru leyti
þegar tryggður í lögum.
■ Fæðispeningar og hlífðarfatn-
aður.
SAMNINGSDRÖGIN
KÁT Á KJÖTKVEÐJUHÁTÍÐ Þessi unga
snót skemmti sér konunglega á kjöt-
kveðjuhátíðinni í Rio Janeiro.