Fréttablaðið - 07.02.2008, Page 20
20 7. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR
Svona erum við
fréttir og fróðleikur
> Fjöldi lögskilnaða á árunum 1971 til 2006
HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS
FRÉTTASKÝRING
GUÐSTEINN BJARNASON
gudsteinn@frettabladid.is
Hvaða lið sem keppir í bandarísku meist-
aradeildinni í amerískum fótbolta verður
Bandaríkjameistari ræðst árlega í svonefnd-
um Super Bowl-leik, sem er jafnan áhorfs-
mesta sjónvarpsefnið á hverju ári vestra.
Sunnudagurinn sem leikurinn fer fram á
(Super Bowl Sunday) er þjóðhátíðardagur í
reynd; til að mynda neyta Bandaríkjamenn
ekki meiri matar á neinum einum öðrum
degi ársins nema á þakkargjörðardaginn.
Vinsælustu söngvarar Bandaríkjanna keppast
um að fá að troða upp fyrir leikinn og í
leikhléinu.
Hver er uppruni Super Bowl?
Fyrsti svonefndi Super Bowl-leikurinn var
leikinn 15. janúar 1967, en þar áttust við
meistaralið þeirra tveggja fótboltasambanda
sem þá störfuðu í Bandaríkjunum, National
Football League (NFL) og American Football
League (AFL). Samböndin tvö sameinuðust
formlega árið 1970 og síðan þá hefur Super
Bowl-leikurinn verið bikarmeistaraleikur NFL,
þar sem við eigast meistaralið beggja deilda
sambandsins, American Football Confer-
ence (AFC) og National Football Conference
(NFC).
Hvert er fyrirkomulagið?
Super Bowl-meistaratitill hvers árs er
númeraður með rómverskum tölustöfum
í stað þess að vera kenndur við ártalið.
Þannig eru New York Giants, sem
unnu leikinn nú á sunnudag, meist-
arar Super Bowl XLII. Þeir eru þar með
meistarar leiktíðarinnar árið 2007, þótt
úrslitaleikurinn sjálfur hafi ekki farið fram
fyrr en komið var fram á árið 2008. Hver
leiktíð hefst að jafnaði
í lok ágúst; leiknar
eru 16 umferðir, þrjár
útsláttarumferðir áður
en kemur að úrslita-
leiknum Super Bowl.
Sigurvegari hvers Super
Bowl-leiks fær Vince
Lom bardi-bikarinn svo-
nefnda, sem er nefndur eftir
þjálfara Green Bay Packers,
liðinu sem vann fyrstu tvo
Super Bowl-leikina og þrjá
af fimm meistaratitlum NFL
á sjöunda áratugnum, áður
en Super Bowl kom til.
Vince Lombardy lést í sept-
ember 1970 og í kjölfarið
var bikarinn nefndur eftir honum.
FBL-GREINING: „SUPER BOWL”-ÚRSLITALEIKURINN Í AMERÍSKUM FÓTBOLTA
Áhorfsmesta sjónvarpsefnið vestra
1971 1976 1981 1986 1991 1996 2001 2006
306
383
463
498
547
530
551
498
Ákveðið
hefur verið
að hafa
afgreiðslu
lögreglu-
stöðvar-
innar við
Hverf-
isgötu
lokaða á
næturna.
Í staðinn
kemur
dyrasími
sem
kemur
gestum í samband við lög-
reglumann. Með þessu sparar
lögreglan 20 milljónir króna á ári.
Stefán Eiríksson er lögreglustjóri
höfuðborgarsvæðisins.
Hvers konar verkefni komu til
lögreglumanna á næturna?
Það voru alls konar mál. Til
dæmis fólk sem hefur verið að
óska eftir því að gista í fanga-
geymslum, til dæmis útigangs-
fólk. Þangað hefur líka komið
fólk sem er að leita að öðru fólki
sem það grunar að sé í fanga-
geymslum.
Hefur heimsóknum fjölgað eða
fækkað á síðustu misserum?
Almennt séð hefur heimsóknum
fækkað mikið. Eftir þessa miklu
farsímavæðingu er auðveldara
fyrir fólk að ná sambandi við
lögreglu hvar sem það er statt.
Menn óska í yfirgnæfandi meiri-
hluta tilvika eftir aðstoð lögreglu
í gegnum síma.
Hverjir munu sinna fólki sem
kemur á stöðina að nóttu til?
Lögregluvarðstjórarnir sem eru
inni og sinna málum sem eru
þar. Ef það verður mikið álag
verður því einfaldlega mætt með
því að kalla lögreglumenn inn til
starfa.
SPURT & SVARAÐ
NÆTUROPNUN Á LÖGREGLUSTÖÐ
Álag minnkað
vegna farsíma
STEFÁN EIRÍKSSON
Lögreglustjóri höfuð-
borgarsvæðisins
Hillary Clinton og Barack
Obama þurfa næstu vikur
eða jafnvel mánuði að berj-
ast áfram um útnefningu
Demókrataflokksins. John
McCain virðist hins vegar
næsta öruggur um að verða
forsetaefni repúblikana.
Forkosningabaráttan í Bandaríkj-
unum snýst um að tryggja sér
nægilegan fjölda kjörmanna, sem
greiða atkvæði á flokksþingum
repúblikana og demókrata í haust
þar sem forsetaefni flokkanna
verða endanlega valin.
Eftir þriðjudaginn mikla, þegar
kjörmenn voru samtímis valdir í
rúmlega 20 af 50 ríkjum Banda-
ríkjanna, hefur Hillary Clinton
tryggt sér atkvæði 845 kjörmanna
á flokksþingi Demókrataflokksins
í lok ágúst, en Barack Obama
hefur tryggt sér atkvæði 765
kjörmanna.
Munurinn er vel innan við
hundrað atkvæði, sem er ekki
mikið þegar horft er til þess að á
flokksþinginu sitja 4.049 kjör-
menn og til þess að ná sigri þarf
frambjóðandi að fá að minnsta
kosti 2.025 atkvæði.
Risinn úr öskustónni
Meðal repúblikana virðist hins
vegar fátt ætla að koma í veg fyrir
sigur Johns McCain, sem hefur
tryggt sér 613 kjörmenn og er því
kominn með verulegt forskot –
bæði á Mitt Romney, sem er með
269 kjörmenn, og Mike Huckabee,
sem nokkuð óvænt hefur tryggt
sér 190 kjörmenn.
„Ég hef ekkert á móti þessu,“
segir McCain, greinilega hæst-
ánægður með að standa loksins
með pálmann í höndunum eftir að
hafa mánuðum saman mátt þola
það að vera hálfpartinn utangarðs
í forkosningabaráttunni hjá rep-
úblikönum.
McCain náði samt ekki alveg
þeim góða árangri sem honum
hafði verið spáð í skoðanakönnun-
um. Á flokksþingi repúblikana í
byrjun september verða 2.380
kjörmenn, þannig að hann vantar
enn 578 kjörmenn til að tryggja
sér sigur.
Romney gerir sér því enn vonir
um að ná upp forskoti McCains, og
á þar helst von í því að geta gert
sér mat úr þeirri hörðu andstöðu
við McCain sem finna má í hinum
harða hægrikjarna Repúblikana-
flokksins. Romney tapar hins
vegar á því að Mike Huckabee
ætlar ekki heldur að gefast upp
alveg strax, þannig að nú slást
þeir tveir um fylgið sem ekki fer
til McCains.
Hlakka til baráttunnar
Bæði Clinton og Obama voru hæst-
ánægð með úrslit þriðjudagsins
og ætla að berjast áfram af krafti.
Hvorugt þeirra vill taka af skarið
strax og lýsa sig reiðubúið til að
verða varaforsetaefni hins, enda
möguleikar beggja til sigurs enn
góðir.
„Ég hlakka til að halda áfram
kosningabaráttunni og umræð-
unni um það hvernig við eigum að
skilja við þessa þjóð handa næstu
kynslóð,“ sagði Clinton við stuðn-
ingsmenn sína í New York. Úrslit-
in hljóta þó að hafa orðið henni
nokkur vonbrigði því hún hefur
lengst af staðið miklu betur en
Obama í skoðanakönnunum.
Obama var reyndar töluvert sig-
urvissari í Chicago þar sem hann
sagði háværum stuðningshópi
sínum: „Tími okkar er kominn.
Hreyfing okkar er raunveruleg.
Og breytingar eru að verða í
Bandaríkjunum.“
Óvissa áfram
Ekki er útlit fyrir að málin muni
skýrast mikið hjá demókrötum
næstu vikurnar. Svo mjótt er á
mununum að hvorki Obama né
Clinton græða í raun mikið á því
að vinna einn og einn sigur á hinu
nema yfirburðirnir séu þeim mun
meiri.
Takist þeim Clinton og Obama
að halda kosningabaráttunni á vin-
gjarnlegu nótunum eins og nú upp
á síðkastið þá getur líklega fátt
komið í veg fyrir sigur þeirra
saman í forsetakosningunum í
nóvember, þar sem annað yrði
varaforsetaefni hins.
Færist hins vegar aukin harka í
baráttu þeirra, eins og sjá mátti
fyrir nokkrum vikum, þá á McCain
tvímælalaust eftir að græða á því
að geta fylgst með þeim draga
hvort annað í svaðið. Bandarísk-
um kjósendum hugnast slíkt lítt.
Nú þegar eru menn farnir að
horfa til forkosninganna í Louisi-
ana, Nebraska og Washingtonríki
á laugardaginn, en síðan kemur
röðin að Maryland og Virginíu
þriðjudaginn 12. febrúar og svo
Washingtonborg viku síðar.
Síðustu forkosningarnar verða
3. júní í Suður-Dakóta, Montana og
Nýju-Mexíkó.
Barátta demókrata heldur áfram
Í MIÐRI KOSNINGAVÍMUNNI Hillary Clinton þurfti ekki að hafa mikið fyrir því að
brosa í fyrrinótt þegar úrslitin voru að tínast inn. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Á flokksþingi demókrata í lok ágúst
greiða 4049 kjörmenn atkvæði
þegar forsetaefni flokksins er
valið. Þessi hópur skiptist í 3253
„skuldbundna“ kjörmenn, sem eru
bundnir af úrslitum forkosninga
og greiða atkvæði samkvæmt því,
og svo 796 „ofurkjörmenn“, eins
og þeir eru kallaðir, en það eru
þingmenn flokksins, ríkisstjórar,
fyrrverandi forsetar og aðrir helstu
leiðtogar flokksins. Þeir ganga
óbundnir til atkvæða á flokksþing-
inu.
Á flokksþingi Repúblikanaflokks-
ins, sem haldið verður í byrjun
september, eru kjörmennirnir tölu-
vert færri, eða 2380 í heild. Eins
og hjá demókrötum ganga flestir
þeirra bundnir til atkvæða, en 463
eru óbundnir af úrslitum forkosn-
inga og geta því varið atkvæði
sínu að vild þegar að úrslitastundu
kemur á flokksþinginu.
Eftir því sem niðurstöður
forkosninganna verða jafnari þá
harðnar jafnframt baráttan um hylli
óbundnu kjörmannanna, og er þá
hart sótt að þeim með loforðum
um framkvæmdir og hagsmuna-
gæslu heima í héraði hvers og eins.
Frambjóðendur, sem detta út úr
baráttunni eftir að hafa tryggt sér
einhverja kjörmenn, geta haft auk
þess haft áhrif á niðurstöðuna á
flokksþinginu með því að lýsa yfir
stuðningi við annan frambjóðanda.
Kjörmönnum þeirra er þó frjálst að
greiða atkvæði óháð þeirri stuðn-
ingsyfirlýsingu.
KJÖRMENN OG OFURKJÖRMENN