Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.02.2008, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 07.02.2008, Qupperneq 24
24 7. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR nám, fróðleikur og vísindi 16 Arabíska Græn- lenska Úrdú 1 6 Breski arkitektinn Mark Dudek er sérfræðingur í hönnun skólahúsnæðis. Hann tekur nú þátt í bygg- ingu skóla á Urriðaholti sem kemst nálægt því að gera draumabyggingu hans að veruleika jafnvel þótt skólabörn leggi til hug- myndir um það hvernig hún eigi að vera. „Þeim mun fleiri sem koma að hönnun byggingarinnar, þeim mun betur nýtist hún samfélag- inu,“ segir Mark. „Ég hef fengist við að hanna skólabyggingar í heimalandi mínu, Bretlandi. Þar eru menn þó nokkuð fastir í hug- myndunum um hinn hefðbundna skóla. En við hönnun skólans á Urriðaholti förum við óhefð- bundnar leiðir enda viljum við reisa skóla eins og þeir eiga að vera á 21. öldinni. Við viljum að skólinn verði nýttur allan sólar- hringinn alla daga vikunnar. Á Bretlandi er venjan sú að fólk hittist á torginu sem síðar verður eins konar félagsmiðstöð bæjar- ins. Við ætlum að fela skólanum svipað hlutverk. Til dæmis höfum við rætt um að þarna verði kaffi- hús þar sem eldri borgarar geta hist, fengið sér að borða og að aðstaða verði fyrir tölvukennslu fyrir þá svo dæmi séu nefnd. Satt að segja hef ég ákveðna hugmynd um draumaskólabyggingu sem verður eitt með náttúrunni og ég hef tröllatrú á því að þessi bygg- ing verði nálægt þeirri draum- sýn.“ Fjölmargir leggja hugmyndir sínar í púkk sem vinnuhópurinn tekur svo mið af. Þeirra á meðal eru börn sem spurð voru hvernig þau vildu hafa skólann sinn. Vitan- lega er ekki hægt að verða við öllum þeim hugmyndum. Til dæmis vildi einn þeirra að ungl- ingum væri bannaður aðgangur að skólanum þar sem meðal þeirra leyndust mörg hrekkjusvín. En öðrum hugmyndum er hægt að verða við og ekki er loku fyrir það skotið að glæsilegur þakgluggi verði í miðri skólabyggingunni rétt eins og einn ungur nemandi stakk upp á. Mikil áhersla verður lögð á að skólar á Urriðaholti verði í farar- broddi í almennri þróun umhverf- isvænna skóla og á byggingin sjálf að bera því glöggt vitni. Á holtinu finnst hin sjaldgæfa jurt sóldögg og ekki ber á öðru en að hún hafi veitt hönnuðum innblástur því allt bendir til þess að byggingin verði eins og jurtin sú þar sem bygging- ar vísa frá miðju rétt eins og krónublöð blómsins. jse@frettabladid.is Blómahúsið á holtinu MARK DUDEK Breski arkitektinn fær nokkra útrás í þessu íslenska verkefni en hann segir landa sína helst til íhaldssama þegar kemur að skólabyggingum. Á Urriðaholti er hins vegar verið að byggja skóla með kröfur og þarfir fólks á 21. öld í huga. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN Grunnskólar > Fjöldi nemenda árið 2006 með viðkomandi erlend móðurmál. HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS Félagsstofnun stúdenta (FS) stendur fyrir málþingi föstudaginn 29. febrúar, um samfellu á yngsta skólastiginu með virkt nám að leiðarljósi. Segir um dagskrá málþingsins að í ljósi umræðu um kröfu í samfélaginu um fjölgun ungbarna- leikskóla sé ljóst að marka þurfi skýra stefnu þess skólastigs og brúa það bil sem myndast milli mismunandi leikskóla. Málþingið fer fram á Háskólatorgi við Háskóla Íslands og hefst klukkan 13.30. Er það öllum opið og er þátttökugjald 4.500 krónur en 2.500 krónur fyrir nema. Skráning fer fram á slóðinni www.congress.is ■ Málþing Virkt nám – sterkari sjálfsmynd Ískalt íslenskt vatn - hvenær sem er GE kæliskáparnir eru öflugir, endingargóðir og glæsilega innréttaðir Verð frá: Kr. 209.790 stgr. AFSLÁTTUR 30% Sólveig Anna Bóasdóttir guðfræðingur vinn- ur nú að útgáfu bókar með greinum eftir hana sem fjalla til dæmis um ástina, skiln- ing á manninum sem kynveru og hjóna- band í nútímanum með hliðsjón af kristni. „Ég er búin að vera í þessu í sjö ár,“ segir Sólveig Anna. „Ég er með doktorsgráðu í siðfræði í guðfræði. Doktorsritgerðin fjallaði um heimilisofbeldi en undanfarin ár hef ég farið meira út í að skoða ást, kynlíf og hjónaband með hliðsjón af kristni. Ég hef blandað mér mikið í umræðuna um hvort hjónaband samkynhneigðra sé rétt eða ekki og skrifað margar greinar á því sviði, sem hafa birst bæði á Íslandi og erlendis.“ Sólveig vinnur nú að því að safna þessum greinum saman í eina bók, sem hún væntir að komi út með vorinu. Um hjónaband samkynhneigðra segir Sólveig Anna sína niður- stöðu vera í stuttu máli að það sé lýðræðiskrafa samtímans að hópar á borð við samkynhneigða eigi fullan rétt á því að ganga í hjónaband. „Þar af leiðandi tel ég ekki rétt að takmarka hjónaband eingöngu við karl og konu. Ástæðan er sú að innihald hjónabands er ást; ást samkynhneigðra er jafn góð og ást gagnkyn- hneigðra.“ Sólveig kveðst hafa fengið sterk viðbrögð við greinum sínum. „Yfirstjórn kirkjunnar er ekki par hrifin, enda komst hún að þveröfugri niðurstöðu á síðasta kirkjuþingi, þar sem sam- þykkt var að hinn ævaforni skilningur á hjónabandinu skyldi standa. Það sem mér finnst athugavert við þá niðurstöðu er að engu er haldið opnu. Það er ekki sagt að þetta megi skoða síðar heldur er eins og þetta sé síðasta orðið. Það finnst mér ekki vera góð guðfræði; að ætla að ákveða það fyrir alla framtíð hvernig hjóna- bandið eigi að vera. Mér finnst að samtíminn, sá andi mannréttinda, frels- is og lýðræðis sem svífur yfir vötnum í bæði fræðunum og samfélag- inu, knýi fram þessar breytingar.“ FRÆÐIMAÐURINN: SÓLVEIG ANNA BÓASDÓTTIR GUÐFRÆÐINGUR Fjallar um ástina með hliðsjón af kristni „Fram undir árið 1940 líktist kennaramenntun meira gagn- fræðaskólanámi,“ segir Kristín Aðalsteinsdóttir, deildarforseti kennaradeildar Háskólans á Akur- eyri, aðspurð um helstu breyting- ar á grunnskólakennaramenntun á Íslandi. Kristín er höfundur bókarinnar Að styrkja haldreipi skólastarfs- ins, Menntun grunnskólakennara á Íslandi í 100 ár, en eins og titill- inn ber með sér kemur bókin út í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá því að kennaramenntun hófst á Íslandi. Í bókinni fjallar Kristín meðal annars um baráttu fyrir formlegri menntun kennara og átök á milli stjórnvalda, stjórnenda mennta- stofnana og fagfólks um skipulag og markmið kennaramenntunar. Kristín segir lög um kennara- menntun alltaf vera að breytast. „Árið 1947 koma lög sem áttu að stuðla að kennslufræðilegum rannsóknum,“ segir Kristín sem telur ótrúlegt að slík lög skuli koma svo snemma fram á Íslandi. „Ég tel þau hafa markað tímamót þar sem þau sýndu nýjan skilning á hlutverki skóla. Með þessum lögum koma fram breytt viðhorf og vilji til framfara.“ Þá segir Kristín önnur tímamót vera árið 1963. „Þá er farið að tala um að nemendur þurfi að þroska með sér sjálfstæð vinnubrögð og að leiðsögn sé í samræmi við hæfi- leika nemenda,“ segir Kristín og að við það hafi verið sleginn nýr tónn. - ovd Í ár eru hundrað ár liðin frá því að formleg kennaramenntun hófst á Íslandi: Breytt viðhorf og framfaravilji KENNARAMENNTUN Á ÍSLANDI Þróun og staða kennaramenntunar á Íslandi er rakin í nýrri bók.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.