Fréttablaðið - 07.02.2008, Qupperneq 32
[ ]
Klæðskerinn og kjólameist-
arinn Selma Ragnarsdóttir
getur breytt gömlum frakka í
tískujakka og saumað dýrindis
kjóla úr gardínum.
Hver kannast ekki við það að eiga
nokkrar flíkur inni í skáp sem ekki
má henda? Kannski eitthvað frá
afa eða ömmu eða bara eitthvað
sem ekki passar.
Selma Ragnarsdóttir, kjóla-
meistari og klæðskeri, sérhæfir
sig í fatabreytingum af ýmsu tagi
og býður upp á tólf spora meðferð
fatnaðar sem getur gefið fötum
nýtt líf. Hún breytir þeim á eftir-
farandi vegu:
1. Stytta/síkka – þrengja/víkka
2. Umskipti: Skipta til dæmis um
rennilás, tölur og smellur.
3. Fjarlægja: Taka af vasa, tölur,
hluta af flíkinni.
4. Bæta: Til dæmis göt, rifur og
saumsprettur.
5. Skreyta
6. Prenta/þrykkja
7. Lita: Heillita, úða, stensla,
skvetta á og fleira.
8. Aflita/klóra: Skvetta, úða,
leggja í bleyti.
9. Sjúska: Rispa, nudda og vinda.
10.Skera: Með hníf, skærum eða
sprettara.
11.Skjóta: Með pílum, örvum,
haglabyssu.
12.Yfirkeyrsla: Keyra yfir til
dæmis á nagladekkjum og
spóla.
Selma er nýflutt með vinnu-
stofu sína að Skúlagötu 10 en þar
rekur hún einnig búningaleigu
ásamt systur sinni Guðbjörgu
Ragnarsdóttur. „Ég hef fengist
við að breyta fötum síðan ég var
unglingur. Í fyrstu var ég að fikta
með flíkur af ömmu og langömmu
en svo hefur það þróast út í alhliða
fatabreytingar,“ segir Selma.
Hún segir fólk oft eiga mikið af
verðmætum flíkum sem gaman
er að gefa nýtt líf. „Kápan hennar
ömmu eða jakkinn hans afa pass-
ar kannski ekki við eigið vaxtar-
lag en er ef til vill úr flottu efni
og hefur tilfinningalegt gildi,“
útskýrir Selma. „Það má síðan
þess vegna koma með gardínur
sem maður vill breyta í kjól,“
bætir hún við og segir að slík end-
urnýting sé auðvitað líka
umhverfisvæn. vera@frettabladid.is
Tólf spora meðferð fatn-
aðar gefur fötum nýtt líf
Selma á vinnustofunni þar sem hún fæst
við að breyta flíkum og leigja búninga af
ýmsu tagi til bæði einstaklinga og hópa.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Alexander og Emil í jökkum sem
Selma hefur breytt með því að setja
á þá stroff og rennilás. Alexander átti
upphaflega hugmyndina að breyting-
unni en Selma hefur síðan útfært hana
á ýmsa vegu.
Jakkinn hans
Emils fyrir
breytingu.
Kate Moss er vinsæl sem aldrei fyrr. Í mars mun hún ná þeim
áfanga að vera á forsíðu glanstímaritsins Vogue í 25. skipti.
s: 557 2010
Opið:
Laugardaga 10-16
SUNNUDAG 12-16
ÚTSALA
Mörkinni 6, s. 588 5518