Fréttablaðið - 07.02.2008, Blaðsíða 33
FIMMTUDAGUR 7. febrúar 2008
Á eftir herratísku næsta vetrar var hátíska komandi sumars á sýningar-
pöllunum í París á dögunum. Christian Lacroix sýndi nokkra tugi hátísku-
kjóla, hvern öðrum glæsilegri. Sýningin fór fram í Georges Pompidou-
safninu í miðborginni þar sem tískuhúsið lagði undir sig alla jarðhæð
safnsins. Kjólarnir voru líkt og málverk úr suðri, svipmyndir innblásnar
meðal annars af stúlkunum frá Arle, heimaborg hönnuðarins. Mikið af
sterkum litum og formum frá ýmsum tímum, jafnt frá barokki með
miklum pilsum til áranna milli 3.-4. áratugarins á tuttugustu öldinni með
beinar línur. Falleg sýning en eins og vantaði einhverja heildarmynd,
rauðan þráð sem gengi í gegnum sýninguna, líkt og mátti finna hjá
Gaultier og Dior.
Á fremsta bekk mátti sjá Önnu Wintour frá bandaríska Vogue með sín
kunnuglegu svörtu sólgleraugu, þá hina sömu og hinn illgjarni ritstjóri í
kvikmyndinni „Djöfullinn klæðist Prada“ er byggður á. Með horaða og
föla stúlku sér við hlið sem hafði ekki borðað í viku og tók niður athuga-
semdir ritstjórans. Stundum stutt á milli skáldskapar og veruleika.
Hjá Jean-Paul Gaultier var þemað hafmeyjur. Stigu þær
upp úr sjónum á land með hárið síða blautt eins og hæfir
prinsessum hafsins. Hreistur sem minnti á hafið og
sporður hafmeyjunnar einkenndi hönnunina og ýmiss
konar glitrandi efni, hvort sem var í skóm eða fatnaði.
Gaultier blandar einnig saman Swarovski-steinum og
blúnduefni. Brúðurin, sem eins og hefðin vill er síðasta
fyrirsætan sem stígur fram á sviðið, átti við ákveðið
vandamál að stríða enda með sporð. Hún mætti því að
sýningarpallinn með gylltar hækjur í stíl við brúðar-
kjólinn! En kraftaverk gerast enn og á miðju sviðinu
fleygði hún hækjunum og gekk um eins og land-
krabba sæmir.
Hinn ítalski Valentino kvaddi með virktum í París
með sinni síðustu hátískusýningu en hann dregur
sig nú í hlé eftir 45 ár í bransanum. Ekki var að sjá
að Valentino vantaði innblástur. Hver kjóllinn var
öðrum glæsilegri enda hann þekktur fyrir fágaða
hönnun og klassíska. Sýning hans var óður til
kvenlegrar fegurðar og boðsgestir risu úr sætum og
heiðruðu hönnuðinn með löngu lófaklappi að henni
lokinni. Hann var af þessu tilefni sæmdur orðu Parísar-
borgar af Bertrand Delanoë borgarstjóra, fyrir framlag
sitt til tískunnar sem er mikilvægur hluti af menningunni
hér í borg. Valentino þakkaði fyrir sig með orðum úr lagi
Josephine Baker frá þriðja áratug síðustu aldar, „j´ai
deux amour, mon pays et Paris“, ég elska tvennt,
landið mitt og París. Enda kjólarnir
saumaðir í Róm og fluttir til Parísar fyrir
sýninguna á Rodin-höggmyndasafninu.
bergb75@free.fr
Stutt milli skáldskapar og veruleika
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
Augu ársins
TVEGGJA BURSTA
MASKARI GERIR FALLEG
AUGU ENN FEGURRI Á
STÓRUM STUNDUM.
Elizabeth Arden hefur
sett á markað nýjung
sem er tveggja bursta
maskari með nærandi
formúlu sem mýkir
augnhárin og gefur
þeim glans.
Stærri burstinn leng-
ir, þykkir og aðskil-
ur augnhár á meðan
smærri burstinn greiðir
úr hárum og lagar, auk
þess að ná til svæða
sem erfitt er að nálg-
ast.
Lýst eftir
sundskýlu
LUMI FÓLK Á SUNDSKÝLUM, SÓL-
GLERAUGUM OG FERÐATÖSKUM FRÁ
SEVENTÍS-TÍMABILINU GETA SLÍKIR
MUNIR GENGIÐ Í ENDURNÝJUN
LÍFDAGA Í ÞJÓÐLEIKHÚSINU.
Ragnar Kjartansson, leikmynda-
og búningahönnuður, leitar þessa
dagana dyrum og dyngjum að
búningum
fyrir leikritið
Sólarferð sem
verður frum-
sýnt í Þjóð-
leikhúsinu
15. febrúar.
Hann vantar
sund skýl-
ur, bikiní,
sólgleraugu
og ferðatöskur
frá áttunda áratugnum. Leikritið
gerist árið 1976 en svo virðist
sem sundfatatískan á þeim tíma
hafi verið það vandræðaleg að
skýlum og bikiníum hafi hreinlega
verið fargað. Að minnsta kosti er
ekki um auðugan garð að gresja í
búningadeild Þjóðleikhússins og
biður Ragnar fólk sem á til dæmis
litríkar sundskýlur og ferðatöskur
frá þessum tíma, sem það má sjá
af, að koma þeim til dyravarðar
Þjóðleikhússins. - ve
Síðumúla 3 • Reykjavík • s. 553 7355
Hæðasmára 4 • Kópavogi • s. 555 7355
síðustu dagar
útsölu
enn meiri
verðlækkun
Bæjarlind 6 • s. 554 7030
Eddufelli 2 • s. 557 1730
Opið virka daga 10 - 18
Opið laugard. í Bæjarlind 10 - 16
og Eddufelli 10 - 14
Skólavörðustígur 2.
Sími: 445-2020
www.birna.net