Fréttablaðið - 07.02.2008, Blaðsíða 54
7. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR
Íslenska óperan frumsýn-
ir annað kvöld óperuna
La Traviata eftir ítalska
tónskáldið Giuseppe Verdi.
Óperan er ein sú þekktasta
og vinsælasta sem fyrir-
finnst í tónbókmenntunum.
Söguþráður óperunnar er á þann
veg að yfirstéttarpilturinn Alfredo
Germont og fylgdarkonan Víóletta
verða ástfangin, þvert á vilja
Giorgios Germont, föður Alfredos,
sem er vandur að virðingu sinni og
kærir sig ekki um að sonur sinn sé
í slagtogi við fylgdarkonu. Giorgio
reynir allt hvað hann getur til að
koma upp á milli elskendanna og
tekst það að lokum enda er sagan
hreinræktaður harmleikur.
Það er valinn maður í hverju
rúmi í þessari uppsetningu
Íslensku óperunnar. Leikstjóri
verksins er Jamie Hayes, hlutverk
Alfredos er í höndum Jóhanns
Friðgeirs Valdimarssonar, Tómas
Tómasson fer með hlutverk Giorg-
ios og Sigrún Pálmadóttir syngur
hlutverk Víólettu nema í tveimur
sýningum, þá hleypur Hulda Björk
Garðarsdóttir í skarðið.
„Þetta er æðislegt hlutverk sem
gaman er að syngja, ekki síst
vegna þess að tónlistin í þessari
óperu er svo vel samin. Verdi tekst
að framkalla svo miklar tilfinning-
ar með tónlist sinni og því er auð-
velt að lifa sig inn í hlutverkið af
lífi og sál,“ segir Sigrún, spurð um
hlutverkið. „Víóletta er náttúru-
lega harmræn persóna og það er
mikið drama í kringum þetta hlut-
verk og í kringum verkið í heild
sinni. En það er smá rómantík líka,
þetta er ekki bara sorg.“
Hlutverk Víólettu er frumraun
Sigrúnar hjá Íslensku óperunni, en
fram að þessu hefur hún mest-
megnis starfað erlendis. Hún segir
gaman að upplifa stemninguna í
kringum hérlenda óperuuppsetn-
ingu. „Mér finnst ríkja nokkur
eftir vænting í kringum sýninguna
hér vegna þess að minna ber á
slíku erlendis. Munurinn er nátt-
úrulega til kominn vegna þess að
hér er einfaldlega minna að gerast
í óperuheiminum og því er upp-
setning sem þessi stórfrétt í
íslensku menningarlífi. En það er
gaman að verða vör við þessa eft-
irvæntingu.“
Greinilegt er að eftirvæntingin
er mikil þar sem miðar á þær tíu
sýningar sem áætlaðar höfðu verið
seldust upp fyrir nokkru og því
þurfti að bæta við tveimur auka-
sýningum til að anna eftirspurn-
inni. Sigrún er að vonum ánægð
með þessa stöðu mála. „Það er ljóst
að íslenskir óperuunnendur eru
búnir að bíða eftir stóru og þekktu
stykki. Það er náttúrulega nauð-
synlegt að setja slík verk reglu-
lega upp svo að fólk fái tækifæri
til að upplifa þau, en ég tel ekki
síður mikilvægt að setja líka upp
minna þekkt verk enda nauðsyn-
legt að hafa breidd og fjölbreytni í
efnisvali í óperuheiminum eins og
annars staðar.“
vigdis@frettabladid.is
Sungið um ást í meinum
FORBOÐIN ÁST Frá æfingu Íslensku óperunnar á hinni sívinsælu La Traviata.
Baðstofan forsýn. 6/2 uppselt,
frumsýning lau. 9/2 uppselt, 10/2
örfá sæti laus
Vígaguðinn sýn mið. 6/2 uppselt,
fös. 8/2, lau. 9/2
Kynning á Vetrarhátíð 7/2 kl. 21
allir velkomnir
norway.today sýn. 7/2 uppselt,
boðssýn. 8/2
Ívanov sýn. 7/2, 8/2, 9/2 og 10/2 uppselt
LA TRAVIATA
giuseppe verdi
sigrún pálmadóttir | jóhann friðgeir valdimarsson | tómas tómasson
27. febrúar
28. febrúar
2.mars