Fréttablaðið - 07.02.2008, Qupperneq 56
44 7. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR
SNÚINN AFTUR Rambo er mættur aftur og þarf
að takast á við búrmíska sadista sem slátra
kristnum trúboðum.bio@frettabladid.is
Kvikmyndabræðurnir Joel
og Ethan Coen eru hálfgert
fyrirbæri í kvikmyndaborg-
inni Hollywood og nýj-
asta kvikmynd þeirra, No
Country for Old Men sem
frumsýnd verður um helg-
ina, sýnir að enga bresti er
að finna í samstarfi þeirra.
Þrjú ár skilja þá bræður að, Joel er
eldri en Ethan yngri. Aldursmun-
urinn hefur þó ekki komið að sök
enda þykja þeir hafa svo svipaða
sýn á kvikmyndir sínar að leikarar
hafa sagt að þeir geti spurt þá
sömu spurningarinnar hvorn í sínu
lagi en fengið nákvæmlega sama
svarið frá þeim báðum.
Upphafið að öllu
Foreldrar þeirra eru báðir próf-
essorarar; faðir þeirra í hagfræði
en móðirin í listfræði. Kvikmynda-
gerð átti snemma hug þeirra allan
og eyddi til að mynda Joel öllum
sínum sumrum í að slá garða
nágranna sinna og notaði síðan
launin til að kaupa 8mm tökuvél.
Og svo hófust þeir handa við að
endurgera þær kvikmyndir sem
þeir sáu annaðhvort í sjónvarpi
eða í kvikmyndahúsum.
Leiðir þeirra skildust hins
vegar eftir að þeir
kláruðu framhalds-
skólann. Þeir fóru
reyndar ekki langt
frá hvor öðrum, Joel
tók háskólapróf í
kvikmynda-
gerð við
háskólann í
New York en
Ethan nam
heimspeki
við Princ-
eton-háskól-
ann í New
York. Joel hélt
strax að námi
loknu af stað út
í hinn harða
kvikmynda-
gerðarheim og
gat sér gott orð
fyrir klippingu.
Vann meðal
annars sem
aðstoðarklipp-
ari hjá Sam
Raimi þegar
hann gerði
Evil Dead.
En árið 1984
urðu eigin-
leg straumhvörf í lífi þeirra þegar
þeir skrifuðu handritið fyrstu
kvikmyndinni, Blood Simple.
Kvikmyndinni hefur verið haldið
á lofti sem brautryðjendaverki í
heimi spennumynda og oftar en
ekki þurfa svokallaðar nútíma
film-noir kvikmyndir að bera sig
saman við hana.
Samstiga bræður
Blood Simple
reyndist upphafið
að einhverju
ótrúlegasta
og frjóasta
samstarfi
sem Holly-
wood hefur
getið af sér.
Kvikmynd-
ir á borð
við Barton
Fink, Mill-
er’s Cross-
ing, Fargo
og Big
Lebowski
segja meira
en mörg orð.
Samstarfi
Coen-bræðranna má að einhverju
leyti líkja við samstarf Pauls
McCartney og Johns Lennon.
Reglurnar eru skýrar; Joel er leik-
stjóri, Ethan framleiðandi og
saman skrifa þeir handritið. Eða
þannig er það í það minnsta á
kreditlistanum. Hins vegar þegar
út í kvikmyndagerðina sjálfa er
komið þá hverfur þessi lína og
leikarar vita jafnvel ekki hvor
þeirra er framleiðandi og hvor
leikstjóri.
Sögurnar sem Coen-bræður hafa
sagt kvikmyndahúsagestum eru
byggðar upp á fjórum meginstoð-
um; peningum, ofbeldi, landslagi
og óstjórnlegri illsku. Þessi atriði
koma til að mynda öll fyrir í nýj-
ustu kvikmyndinni No Country
For Old Men þótt aðdáendur þeirri
kunni að sakna kolsvartrar kímni
bræðranna þegar kemur að ofbeld-
inu eins og í Fargo, þegar kvik-
myndasalurinn skellti upp úr á
meðan Peter Stormare bútaði
niður eitt fórnarlamba sinna.
Og þó að margir kvikmyndagerð-
armenn séu smeykir við velgengni
sína og vilji gefa aðdáendum
sínum frí frá sjálfum sér eru
Coen-bræðurnir í miklu stuði um
þessar mundir. Á teikniborðinu
eru tvær kvikmyndir; Burn after
Reading sem fjallar um CIA og
netstefnumót og skartar George
Clooney, Brad Pitt og John Mal-
kovich í aðalhlutverkum, og hin
heiti A Serious Man og á að fara á
fullt árið 2009.
Tvíhöfðar í Hollywood
FRJÓIR OG Í FULLU
FJÖRI Coen-bræð-
urnir ætla sér
síður en svo að
slá slöku við og
eru með tvær
kvikmyndir á
teikniborðinu.
TÝPISK COEN-MYND No Country for Old Men er sögð vera dæmigerð Coen-mynd;
ofbeldi, peningar, illskan og magnaðar landslagssenur eru áberandi.
Meet the Spartans
Að venju þykir stórum hópi ungs fólks alltaf gaman að því
þegar gert er grín að vinsælustu kvikmyndum síðasta árs. Og
Meet The Spartans er af þeim meiði. Þótt sumum þyki kvik-
myndir af þessari gerð hin mesta peningasóun og mikill við-
bjóður þá eru aðrir sem veltast um af hlátri yfir kvikmynda-
gerð síðasta árs sem sýnd er í spéspegli. Carmen Elektra
flækist síðan um hvíta tjaldið með beran barminn.
Leikstjóri: Jason Friedberg og Aaron Seltzer
Aðalhlutverk: Sean Maguire og Carmen Elektra
Dómur IMDB: 2,4 /10
Ps. I love You
Rómantíkin svífur
yfir vötnum í
kvikmyndinni Ps.
I love you. Hin
unga Holly
Kennedy
lifir hinu
fullkomnu
lífi með eiginmanni
sínum. En sorgin tekur völd
þegar hann deyr úr alvarlegum
veikindum. Holly uppgötvar
hins vegar að eigin-
maðurinn sálugi hefur
skilið eftir tíu skilaboð
um hvernig hún eigi
að finna hamingjuna
á ný.
Leikstjóri: Richard
LaGravenese
Aðalhlutverk: Gerard
Butler og Hillary
Swank
Sid Ganis, forseti Óskarsaka-
demíunnar, segir að það leiki
enginn vafi á því að verðlaunahá-
tíðin verður haldin 24. febrúar
þrátt fyrir að verkfall handrits-
höfunda verði enn þá í gangi.
Hann er jafnframt bjartsýnn á
að búið verði að leysa deiluna í
tæka tíð. „Hlutirnir líta virkilega
vel út,“ sagði Ganis í hádegis-
verðarboði þar sem tilnefndir
Óskarsverðlaunahafar voru
samankomnir. Samkvæmt
kvikmyndablaðinu Variety er
góður möguleiki á að verkfallinu
ljúki í byrjun næstu viku gangi
allt að óskum.
Óskarshátíð verður haldin
Einhver fræknasta hetja kalda stríðs-
ins, sjálfur John Rambo, er mættur til
leiks eftir þó nokkra fjarveru. Enda
hefur lítið verið fyrir hermanninn að
gera eftir að honum tókst nánast einum
síns liðs að klekkja á kommum í austri
með aðstoð talibana. Rambo hefur
komið sér vel fyrir í Taílandi þar sem
hann siglir um fljót með ferðamenn og
fangar snáka til að eiga fyrir salti í
grautinn. Rambo er fyrir löngu búinn
að fá nóg af hvers kyns drápum og
stríðsrekstri en vandamálin eiga það til
að elta hann uppi. Hann fær nefnilega
tilboð frá hópi kristinna trúboða um að
fylgja þeim inn í Búrma en ástandið í
landinu er eldfimt og stríð getur brotist
út hvenær sem er.
En ferðin gengur vel, til að byrja
með, eða allt þar til hópurinn er tekinn
til fanga af harðsvíruðum hershöfð-
ingja sem pyntar og myrðir hluta
hópsins. Rambo þarf því að dusta rykið
af svitabandinu og hnífnum góða og
sýna að lengi lifir í gömlum glæðum.
Að venju er sjálfur Sylvester Stallone
einhver undarlegasta en um leið
vinsælasta kvikmyndastjarna síðari
tíma. Leikarinn, sem er nánast ótalandi,
hefur náð að safna í kringum sig
einhverjum dyggasta aðdáendahópi
sem um getur og telur hann að allt sem
Sly komi nálægt sé meistaraverk og
fjórða Rambo-myndin sé engin undan-
tekning. Engu skiptir þótt gagnrýnend-
ur hafi að mestu leyti verið sammála
um að nýja myndin um John Rambo sé
stórt og ruglingslegt blóðbað.
Rambo ríður húsum með vélbyssu
FRUMSÝNDAR UM HELGINA
> ARRESTED DEVELOPMENT Í KVIKMYND
Allt útlit er fyrir að sjónvarpsþættirnir Arrested Develop-
ment rati á hvíta tjaldið eins og hefð er fyrir með vinsæla
sjónvarpsþætti frá Amer-
íku. Jason Bateman,
einn aðalleikarinn
úr þáttunum,
segir að leik-
hópurinn voni
það besta og
trúi því að farið
verði af stað á
næstunni.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
4
09
96
0
2
/0
8
TILBOÐ 7.–15. FEBRÚAR
+ Nánari upplýsingar og bókanir á
www.icelandair.is eða í síma 50 50 100
* Innifalið í verði: Flug aðra leið og flugvallarskattar. Ferðatímabil: 2. mars–31. des.
BERLÍNVerð frá 14.890 kr.*
CLOONEY George Clooney var á meðal
þeirra sem mættu í hádegisverðinn.